Vísir - 11.10.1971, Blaðsíða 9

Vísir - 11.10.1971, Blaðsíða 9
VÍ-SIR. Mánudagur 11. október 1971. 71. skoðanakönnun V'isis: Viljið þér hafa lokunartima verzlana frjálsan eða bundinn ákveðn- um takmórkunum, til dæmis til klukkan sex og fvö kvöld i viku til klukkan 10? Kemur krökkunum upp á // sjoppuhangs á kvöldin // „Það er alveg óþarfi að venja fólk á að þurfa ekki að hugsa eða sjá neitt fram í iímann“ — „Hætt er við, að útgerðarmönnum þætti sér nóg boðið, ef einhver fetti fingur út í það, hven- ær þeir láta báta sína róa“ — „Sjálfri er mér sama, en mörgum húsmæðrum, sem vinna úti, kæmi betur að geta skroppið í búðir að loknum vinnutíma.“ ★ „Takmarkaðan. Það er ekki sanngjarnt að lengja vinnutíma hjá suraum, meðan aðrir eru allir að stytta sinn vinnutíma“ — „Fólk hlýtur að geta sætt sig við fastan tíma“ — „Samkeppn in ætti að ráða í þessu“. ir „Ég vil hafa opið lengur, aðallega vegna verka- mannanna“ — „Þessi lokunartími kemur ákaf- lega lítið við mig. Ég fæ vörur eftir pöntun einu sinni í viku“ — „Meirihlutinn af þeim, sem í þessu eru, vill víst hafa takmarkað“ — „Verzlunarfólk á líka að eiga sín frí“. ★ „Ætti að vera frjáls, en ef til vill með einhverj- um skilyrðum“ — „Það er bara til að spilla bæjarbragnum og koma krökkunum upp á sjoppuhangs á kvöldin, að þetta sé allt frjáist<<!** — „Það hafa flestir orðið frystikistur og geymsl ur og þeir geta vel komizt af með venjulegan lokunartima“ — „Mér leiðast öll afskipti ann- arra af því, hvernig menn haga vinnutíma sín- um“. Nýju reglumar um lokunar- tíma sölubúða í Reykjavík eru að hljóta skírn sína þessa dag- ana. Þær hafa verið umdeildar, en þær eru til komnar vegria kröfu meirihluta kaupmanna og meirihluta verzlunarmanna, sem borgarstjórn samþykkti aö fylgja. Meðal kaupmanna í borginnj er hins vegar talsverð- ur fjöldi, sem telur, að með reglunutn sé gengið á athafna- frelsj sitt. Þetta er sá hópur, sem hefur haft verzlanir opnar á öörum t'ima en meirihlutinn, svo sem eftir hádegi á laugar- dögum og ýmis kvöld. í deilumáli sem þessu er það þó væntanlega hagur neytand- ans sem mestu ætti aö skipta. Andstæöingar nýju reglnanna hafa haldið því fram, að meö þeim væri dregið úr þjónustu við neytendur. Það er einnig aug ljóst mál, að nú verður fólk i Reykjavík að leggja meira á sig en áöur t d. ef eitthvað vant- ar i matinn, þegar óvænta gesti ber að garð; eða ef meira er etið á laugardögum en menn ætluðu, fólk er fjarverandi og slíkt. Nýju reglurnar hljóða i aðalatriðum upp á það, að verzl- anir megi vera opnar til klukk- an sex alla daga nema tvo í viku og þá til klukkan tíu, þriðju- uaga og föstudaga. Margar búð- ir verða því opnar til klukkan tíu þessi tvö kvöld, sem ekki hefðu verið það annars. Sú aukna þjónusta, sem meö þvi er veitt, vegur að einhverju leyti upp á mótj þeirri minnkun þjónustu sem það veldur, að sumir eru neyddir til að loka á öðrum tímum Þeir, sem styðja nýju reglurn- ar, telja, að ekki sé viðunandi, að kaupmenn fari sínu fram að viid. Sú samkeppni. sem af þvi leiði, hljóti að leiða í ógöngur,- og hver grafi ahnars..gröf. Verzl- unarmenn telja sér hættu búna, ef mikil samkeppni verður milli kaupmanna í þessum efnum, svo að vinnutími verði óhóflega langur og erfiður. Skiptast því sem næst í iafna hópa Vísir vildi komast að því, hvað almenningi fyndist um þetta hitamál, og hafði því skoðanakönnun um afstöðu fólksins. Skoðanakönnunin var gerð samkvæmt viðurkenndum reglum um skoðanakannanir. Niðurstöðurnar urðu þær, að menn skiptust því sem næst jafnt í afstöðu með og móti. Könnunin náði til landsins alls í hlutfalli við skiptingu íbúa á landshluta. Að öllu samanlögðu var naumur meirihluti fylgj- andi takmörkun lokunartímans með því orðalagi, sem spurn- ingin hafði: Viljið þér hafa lok- unartíma verzlana frjálsan eða bundinn ákveðnum takmörkun- um, til dæmis til klukkan sex og tvö kvöld í viku ti) klukkan tíu? Samtals reyndust 47,5 af m... ...... - - -. Fólk að verzla á föstudagskvöld hverjum 100 landsmönnum vilja hafa lokunartíma budinn tak- mörkunum og 42 af 100 voru því andvígir. 10,5% höfðu enga afstöðu til málsins. Á höfuðborgarsvæðinu var meirihlutinn hins vegar fylgj- andi því, að lokunartíminn væri frjáls, en það var mjög naumur meirihluti. Af 105, sem könnun- in náði til á því svæði, var 51 fylgjandi frjálsum lokunartíma, 43 vildu hafa hann bundinn tak- mörkunum, og 11 voru óákveðn- ir. Utan Reykjavíkursvæðisins vildu 33 hafa lokunartíma frjáls- an, 52 bundinn takmörkunum og 10 voru óákveðnir. Konumar fremur fylgj- andi takmörkunum Það voru konurnar, sem réðu úrslitum í þessu máli. Af 99 karlmönnum, sem spurðir voru. vildu 45 hafa tímann frjálsan, 43 bundinn og 11 voru óákveðnir. Af 101 konu vildu hins vegar 52 hafa lokunartím- ann bundinn 39 frjálsan og 10 voru óákveðnar í málinu. Gert ráð fyrir 5% fráviki 1 könnunum sem gerðar eru eirts og skoðanakönnun Visis, má Niðurstöður úr skoðanakönnuninni urðu þessar: Frjcflsnn ... 84 eðu 42% Bundinn ... 95 eðn 47,5% Óákveðnir.. 21 eðn 10,5% Ef aðeins eru taldir þeir, sem afstöðu tóku, lítur taflan þannig út: Frjáisnn. .... 47% Tukmarkaðiin • 53% / gera ráð fyrir skekkju eða töl- fræðilegu fráviki, sem er eitt- hvað um 5% á hvora hliðina. Þetta höfðum við alla tíö lagt áherzlu á, þegar litlu hefur munað f þeim 70 skoðanakönn- unum, sem farið hafa á undan þessari. Þegar áðeins eru tekn- ir þeir sem tóku afstöðu i þess- ari könnun, eru 53% fylgjandi takmörkun lokunartíma og 47% fylgjandj frjálsum lokunartíma. Þarna er aðeihá i 6%r munur, sem þýðir það, aö ekki verður tölfræðiléga fúllýrt,'' 'áð niðúr- * stööurnar sýni, hvað meirihluti fólks vill eða vill ekki, heldur aðeins að menn skiptist því sem næst jafnt í hópa um málið, þar sem annar helmingurinn vill frjálsan og hinn helmingurinn takmarkaðan lokunartfma. Athyglisverðasta niðurstaða könnunarinnar er ef til vill sú. að helmingur neytenda að minnsta kosti sér ekkj ástæðu til að láta i ljós andstöðu við takmörkun á lokunartíma sölu- búða. Forsendur þeirrar af- stöðu koma sumar hverjar fram i umsögnum fólksins, sem nefnd ar eru fremst i þessar; grein. Úti á landi er þetta mál víðast hvar lítið á döfinni. en margir utanbæjarmenn sögðu sem svo, að þeir vildu ekki þrælka verzl- unarmönnum í ReykjavVk með kvöld- og helgarvinnu. — HH visiEm — Viljið þér híifa lokun artíma verzlana frjálsan eða bundinn ákveðnum takmörkunum eins og nú er? Steinunn Egilsdóttir, húsmóðir: — Mér finnst hann vera ágæt- ur eins og hann er nú. Ég get að minnsta kosti hlaupið út í búð hvenær sem er dagsins og þarf ekki lengri afgreiðslutíma fyrir mig. Jón Tómasson: — Reglur finnst mér sjálfsagðar í þessu tilviki. Frá minum bæjardyrum séð er allt i himnalagi með þann af- greiðslutíma, sem nú gildir. Ég kaupi nú raunar ekki sjálfur í matinn, það gerir frúin, en hún hefur ekki kvartað. Róslfn ióhannesdóttir, fram- reiðslustúlka: — Mér finnst hann hafa mátt vera áfram frjáls eins og hann var. Mér kom það að minnsta kostj afar- vel oft á tiðum, þar eð ég vinn á vöktum. Guðmundur Guðjónsson, gjald- keri: — Mér fannst hann ágæt- ur, eins og hann var og ekki vera nein þörf á að breyta þar frá Nýja fyrirkomulagið finnst mér vera fremur til óþæginda en hitt. Gestur Sigurjónsson: — Afsalútt frjálsan, þannig að dugnaöur hvers og eins kaupmanns fái notið sín. og þeir getj haft opiö eins lengi og þeir sjá sér fært. mm Svava Bernharðsdóttir, húsmóð- ir: — Ég trúj ekki öðru en að á hverju heimili sé einhver, sem hafi tök á því að gera innkaup til heimilisins fyrir klukkan sex á daginn. Mér finnst það vera hreinasti óþarfí að vera að halda verzlunum opnum lengur frameftir

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.