Vísir - 20.10.1973, Blaðsíða 7

Vísir - 20.10.1973, Blaðsíða 7
Visir. Laugardagur 20. október 1973. cTMenningarmál Sverrir Haraldsson — hjá nokkrum nýlegum myndum á svningunni i Myndlistarhúsinu á Miklatúni. INNIHALD OG UMGJÖRÐ Elísabet Gunnarsdóttir skrifar um myndlist: Langt er siðan nokkur myndlistarsýning hefur vakið jafnalmenna at- hygli og verið kynnt jafnrækilega og sýning Sverris Haraldssonar. Sýning þessi er lika eftirtektarv.erð fyrir margra hluta sakir, þó ekki væri nema vegna þess að þetta er yfirlits- sýning á verkum manns sem enn er á miðjum starfsaldri. Venjulega eru slikar sýningar ekki haldnar fyrr en menn eru komnir á efri ár eða jafnvel dau&ir. Sýningar sem spanna nokkurt timabil eru vel fallnar til að veita innsýn i þróun mynd- listar, hvort sem þar eru sýnd verk eins manns eða ákveðins hóps sem sett hefur svip á sam- timamenn sina. 1 landi þar sem myndlistarfræðsla er ekki til, eru slikar sýningar gott tækifæri til að fá betri heildarmynd af þvi sem gerist á hverjum tima og tengja samtimalist við það sem á undan er gengið. Það væri þvi lærdómsrfkt, ef fleiri myndlistar- menn og stefnur yrðu kynntar á þennan hátt. Einbeiting og umskipti Sverrir Haraldsson getur varla talist dæmigerður fyrir jafnaldra sina i myndlist, þó hann hafi orðið fyrir áhrifum af þeim stefnum sem hér bar hæst fyrir tuttugu árum. i seinni tið hefur hann farið mjög sinar eigin leiðir. Sýningu Sverris er þannig fyrir komið að auðvelt er að rekja þar feril hans, sjá hvernig hann sökkvir sér niður i ákveðinn stil eða viðfangsefni, þar til það full- nægir ekki lengur kröfum hans, en stendur i vegi fyrir áfram- haldandi þróun. Einkenni hans — og mér liggur við að segja aðals- merki — hefur einmitt verið þessi einbeiting og umskipti. Hann hefur aldrei fest i neinni aðferð eða stil, heldur haft hæfileika til endurnýjunar, þegar hann hefur talið sig kominn til botns i við- fangsefninu. Þótt Sverrir sé ekki nema fertugur maður, hefur hann tekið algerum stakkaskiptum hvað eftir annað og komið viða við i myndlist. Þegar athugaður er sá þrjátiu ára ferill sem sýningin spannar, vekur það fyrst athygli hversu bráðger Sverrir hefur verið. Myndir hans frá unglings- árunum eru engar venjulegar skólateikningar og mér finnst enginn vafi leika á þvi að hann er efnilegasti málarinn er hér kom fram um miðja öldina. Abstrakt myndir hans í gráum tónum, sem heil seria er af á þessari sýningu, eru eitthvað það albesta sem fram hefur komið á þessu sviði hér á landi. Og þó Sverrir skammist sin nú orðið fyrir geometrisku myndirnar sinar, þá er ekki þvi að neita að þær eru vel af hendi leystar. Aftur á móti veit ég ekki hvað menn kunna að hafa sagt, eða segja, um þá skoðun Sverris að geometria sé i þvi fólgin ,,að raða saman ferningum á kúnstugan hátf'og þvi meir sem menn fáist við þetta þvi meira dofni tilfinningarnar. Þessi iist- stefna eins og aðrar spratt fram af nauðsyn, en ekki persónu- legum duttlungum, þótt ekki henti öllum að vinna í anda hennar. Hvað sem þvi liður, þá er hitt meira áberandi á þessari sýningu að þær stefnur sem hér gripu um sig um miðja öldina eru nú orðnar mjög fjarlægar okkar samtima. Þótt gömlu myndirnar hans Sverris veki enn hrifningu, þá eru þær i raun og veru allt aðrar myndir nú en þegar þær voru fyrst sýndar. Á undan- förnum áratugum hefur myndlist og heimurinn allur breyst það mikið að nú sjáum viö þessi verk 1 allt öðru ljósi en fyrrum. Timinn hefur greinilega dregið úr slag- krafti þeirra eins og við sjáum best, ef við förum enn lengra aftur i timann til upphafs abstraktsins. Fyrst verkaði það eins og raflost á fólk. Það var menningarsjokk fyrir öll Vestur- lönd, en nú heyra þessi verk óafturkallanlega fortiðinni til, og þau hughrif sem þau vekja eru allt annars eðlis en fyrrum. Ný gildi Sprautumyndir Sverris eru ekki orðnar gamlar að árum, en mér finnst sem þetta séu ekki sömu myndirnar og ég sá i Lista- mannaskálanum 1963. Þá sá ég i fyrsta skipti verk eftir Sverri og hreifst mjög af sýningunni, eins og reyndar margir aðrir. Mér voru myndirnar enn i fersku minni, en þegar ég sá þær aftur um daginn voru þær breyttar, þó ekki finnist mér þær hafa fölnað eöa smækkað, heldur vera ein- hver albestu verk Sverris. Gildi þeirra hefur ekki minnkað, heldur breyst. Eftir sprautuna tekur Sverrir aftur til við oliuliti. í fyrstu virðist um litla breytingu að ræða, nema á efni, en smám saman skiptir hann yfir i lands- lag. Frá þessum umskiptum hefur hann sýnt tvisvar og þau verk og hin nýjustu eru mjög fyrirferðarmikil á sýningunni nú. Þær fyrstu þessara mynda, náttúrustemmningar úr Blesu- grófinni og þar i kring, búa yfir miklum og sérkennilegum töfrum. Þar nýtur sin lika vel hin afburða tæknikunnátta Sverris. A yfirborðinu er mikil bliða og kyrrð, en undir er likt og sár kvöl og jafnvel angist. Rofabörðin verða að einhvers konar einkis manns landi, þar sem hið ógn- vænlega biður færis. Sú andlega spenna sem einkennir þessar myndir finnst mér horfin úr þeim nýrri. Þar er óhugnaðurinn ekki eins dulinn, og viðfangsefnið er likt og of auðvelt viðfangs þannig að jafnvel bregður fyrir að hand- verkið sitji i fyrirrúmi. Ef til vill er Sverrir enn kominn að um- skiptatima, en um það getur enginn sagt að svo komnu máli nema hann sjálfur. Myndlist I fréttum Eins og ég sagði i upphafi, þá hefur þessi sýning vakið geysi- mikla athygli. Fjölmiðlar hafa verið ósparir á fréttir og aðsókn verið óvenjugóð. Það væri gleði- ieg stefnubreyting, ef listvið- burðir eru farnir að teljast gott fréttaefni, en einhvern veginn finnst mér þó þessi kynningar- starfsemi bera vott um eitthvað annað en menningaráhuga. Það skyldi sist standa á mér að fagna þvi ef fjölmiðlar sneru sér i alvöru að þvi að sinna myndlist og þá jafnframt öðrum list- greinum, en þessi áhugi nú finnst mér nokkuö skyndilegur og æsi- fréttakenndur. Tryggingarupp- hæð sýningar getur verið fróð- leikur út af fyrir sig og það eru nýjar fréttir á íslandi að um- ferðaröngþveiti skapist við opnun myndiistarsýningar, en þessi fróðleikur er varla til þess fallinn að auka raunverulegan áhuga á listum, þó hann geti valdið augnabliksæsingi. Margtervinn- andi til að stækka þann hóp sem sækir myndlistarsýningar, en mér finnstsem þvi moldviðri er þeytt hefur verið upp umhverfis þessa sýningu sé ekki ætlaö að auka áhuga almennings á listum. Sjáið hana samt! Sýningin sjálf er altur á móti vel til þess fallin, þvi að hún er þannig upp byggð að hún er mjög aðgengileg og verkin þess virði að sem ílestir l'ái að njóta þeirra. Hitt finnst mér vafamál hvort al- menningi og jafnágætum lista- manni og Sverri sé nokkur greiði gerður með þvi að stilla honum upp sem einhverjum konungi listmálaranna. Ef efla á sannan áhuga fólks á lislum og gera list að áhrifameiri þætti i lífi okk- ar er það ekki leiðin að belgja fjölmiðla út á æsifréttum og litmyndum i eina viku á ári og halda að það sé harla gott, en taka sér siðan rækilega hvild frá listinni. Slikar aðferðir eru áhrifarikar til að auka sölu á heimilistækjum og bilum, en ekki lil að upplýsa almenning eða að gera hann listelskari. Það er þvi sorglegt að Sverrir Haraldsson og list hans séu höfð að ieiksoppi i svona sýndar- mennsku en þó verð ég að taka undir með kórnum og segja að þessi sýning er svo sannarlega þess virði að sjá hana, og vona að sem flestir geri það. Sigurður EgiU Garðarsson skrifar um tónlist: Sinfóniuhljómsveit isiands: 2. TÓNLEIKAR 18. október 1973 Stjórnandi: Karsten Andersen Einleikari: Kjell Bækkelund msmmmttmMma Karsten Andersen FLUGTAK OG LENDING Kjell Bækkelund Fátt er eins áberandi á tónleikum og byrjun og endir hvers verks sem flutt er. Upphaf og loka- tónar hvers og eins tón- verks verða þvi oft við- kvæmustu staðirnir i flutningi — frá listrænu sjónarmiði mætti jafnvel likja þeim við flugtak og lendingu. Þau andartök koma aldrei aftur. En þau ráða kannski úrslitum um heildaráhrif hverju sinni. Fyrsta verkið á sinfóniutónleik- um á fimmtudagskvöld var Passa- caglia i f-moll eftir dr. Pál Isólfs- son. Fyrstu drög að þessu verki voru samin á námsárum Páls i Leipzig, þá með orgel i huga, og I þeirri gerð var verkið siðan fullbú- iö og tileinkað danska orgelleikar- anum Sören Sörensen. Sfðar endur- samdi Páll verkið fyrir hljómsveit, og I þeim búningi var passacaglian frumflutt i Kaupmannahöfn árið 1938. En þá tóku Islendingar i fyrsta sinn þátt i norrænu tónlistar- móti sem þar var haldið. — Flutn- ingur verksins fór vel úr hendi og virtist á köflum vandaður eftir máttleysislega byrjun sem minnti um of á blaðlestur. 1 sinfóniu i G-dúr nr. 88 eftir Joseph Haydn náði hljómsveitin markvissum, glæsilegum flutningi. Yndisþokki verksins varð hvergi of þunglamalegur. Þótt pizzikato strengja i lok 2. þáttar missti marks, var leikur þeirra að öðru leyti með þvi bezta sem þeir láta til sin heyra, hrifandi i siðasta þætti verksins. Seinni hluti tónleikanna hófst með Pianókonserti i F-dúr eftir banda- riska tónskáldið George Gershwin. Hér er reynt að sameina tungumál jassins og rómantik Liszts i klass- Iskum klæðum pianókonsertsins. Norski pianóleikarinn Kjell Bækkelund fór með einleikshlut- verkiö.Hann byrjaði feril sinn sem undrabarn og lék i fyrsta sinn á opinberum tónleikum aðeins átta ára gamall meö Filharmóniusveit Oslóborgar, en siðan skipaði hann sér I flokk beztu pianóleikara á Norðurlöndum. Leikur Bækkelunds i Pianókonsert Gershwins var afbragðs góður, og leysti pianóleik- arinn listavel úr öllum tæknilegum erfiðleikum. Hins vegar var sem hljómsveitin ætti við einhverja örðugleika að striða i byrjun verks- ins. En þessu brá til batnaöar þegar liða tók á verkið. Undirtektir áheyrendanægðu til að Bækkelund lék aukalag — auðvitað eftir Grieg. Siðast á efnisskrá var svita nr. 2 úr ballettinum Daphnis et Chloé eftir franska tónskáldið Maurice Ravel. Draumlynd stemmning verksins á sér fáar hliðstæður i lit- brigðum raddsetningarinnar, og er ævintýri næst: Það er ekki út i hött að skipa Ravel i hóp með „im- pressionistum” tónlistarinnar. En verkið er erfitt og kröfuhart i flutn- ingi. 1 meðförum sinfóniuhljómt- sveitarinnar var byrjunin aðeins hnökruð, en þvi betur tókst sem iengra leið á verkið. Til saman- burðar má geta þess að á skólatón- leikum daginn eftir — i gær — var flutningur verksins i heild frábær. Norski hl jómsveitarstjórinn Karsten Andersen verður aðal- stjórnandi sinfóniuhljómsveitar- innar i vetur. Eftir þessa byrjun má búast við mörgum ágætum tón- leikum.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.