Tíminn - 17.03.1966, Blaðsíða 13

Tíminn - 17.03.1966, Blaðsíða 13
FIMMTUDAGUR 17. marz 1966 ÍÞRÓTTIR TÍMINN ÍÞRÓTTIR FJÖR í SUNDHÖLL RVÍKUR í KVÖLD Yfir 100 keppendur úr Rvík og utan af landi taka þátt í unglingamóti Rúmlega 1200 kílómetrar eru a3 baki. Blindi maðurinn, Gunnar Erikson (með sólgleraugu) og ferðafélag! Hans við komuna til Steinkjer. Einstæð skíöaganga í Noregi: GEKK BLINDUR YFIR 1200 KM VEGALENGD ÞaS verður mikið fjör í Sund- höllinni í kvöld. Um eitt hnndraS unglingar úr Reykjavík og utan Miinchen og Chelsea 2:2 Chelsea og Miinchen mættust í fyrrakvöld í fyrri Ieik sínum í „kvartfinal“ ( Borgarkeppni / Ev- rópu. Leikurinn var háður í Miinchen og varð jafntefli 2-2. Tambling skoraði bæði mörk Chelsea og má nú telja nokkuð öruggt, að Chelsea komist í undan úrslit í keppniimi. Leeds hefur þeg ar tryggt sér þann rétt og skozka liðið Dunfermline hefur mögu- leika, á eftir að leika við Real Zaragossa. f sambandi við Chel- sea má geta þess, að Terry Ven- ables hefur verið tekinn af sölu- listanum og mun félagið ekki selja hann, þrátt fyrir tilboð frá Tottenham og Birmingham. f fyrrakvöld léku Everton og Nottingham Forest í 1. deild á Englandi. Everton sigi'aði með 3:0. Þá léku í 2. deild Huddersfield og Birmingham og sigraði Hudd- ersfield með 2:0, og hefur með þessum sigri sínum tekið forustu í 2. deild. af landi munu keppa í fyrstu aldursflokkakeppninni í sundi, sem efnt er til, en um framkvæmd keppninnar sjá sunddeildir Ár- manns og Ægis. Má búast við hörkukeppni milli hinna yngri sundmanna okkar, en í þeirra hópi eru mörg góð efni. Á síðasta ársþingi Sundsam-, bands íslands var samþykkt að koma á fót sérstakri aldursflokka skiptingu í sundi og skipuð sér- stök unglinganefnd til að sjá um framkvæmd hennar. Og í kvöld fer fyrsta keppnin fram. Verður þá keppt í eftirtöldum greinum: 100 m. skriðs. drengja, 15 og 16 ára, 100 m. fjórsundi telpna, 13 og 14 ára, 50 m. skriðs. sveina, 12 ára og yngri, 50 m. bringus. telpna 12 ára og yngri, 200 m. bringus. stúlkna 15 og 16 ára, 200 m. fjórs. drengja 15 og 16 ára. 100 m. bringusundi sveina 13 og 14 ára, 100 m. skriðs. telpna 13 og 14 ára, 50 m. baks. sveina 12 ára og yngri, 50 m. flugs. stúlkna 15 og 16 ára, 100 m. baks. drengja 15 og 16 ára, 50 m. baks. telpna 13 og 14 ára, 50 metra flugsundi sveina 13 og 14 ára og 50 m. flugs. telpna 12 ára og yngri. Keppendur á mótinu eru sem fyrr segir um 100, og koma þeir frá Selfossi, Hafnarfirði, Kefia- vík, Akranesi, auk fjölda frá Reykjavík. Eins og reglugerð um aldursflokkasund ber með sér er aðeins keppt nú í helmingi þeirra greina sem á skrá eru, en annað mót er fyrirhugað í næsta mán- uði. Er óskandi að þessi keppni verði sundíþróttinni til fram- gangí Mótið hefst kl. 20.30. Nýlega lauk einstæðri skíðaferð í Noregi. Blindur maður, Gunnar Eriksen, kom gangandi á skíðum sínum til bæjarins Steinkjer, ásamt iþróttakennara að nafni Atle Návik, eftir að hafa gengið á skíðum allt frá Norður-Noregi og suður úr, rúmlega 1200 kíló- metra, en Steinkjer er nálægt Þrándheimi. Mun láta nærri, að þeir félagar hafi gengið vegalengd, sem sam- svarar að ekið væri frá Reykja- vík til Húsavíkur og til baka aft- ur — og aðeins betur en það. Ekki er getið um það í fréttinni, sem við fengum um þennan at- burð, hve lengi skíðagarparnir voru á leiðinni, en hins vegar er getið um það, að þeir hefðu feng- ið hlýjar méttökur á endastöð inni, sem var Steinkjer, en þar gengu skólabörn á móti þeim á skíðum og fylgdu þeim síðasta spölinn. Það er ekki ofsögum sagt, að Noregur sé mesta skíðaþjóð Norð urlanda. Hin góða frammistaða norskra skíðamanna á alþjóðleg- um mótum hefur margsannað það en kannski er mest um vert, að áhugi meðal almennings á skíða- íþróttinni er mjög mikill í land- inu, eins og fréttin að ofan ber gott vitni um. Reynir Karlsson ráðinn þjálf- ari 1. deildar liðs Keflvíkinga Spjallað við Hafstein Guðmundsson um æfingasóknina í Keflavík. Alf-Reykjavík, miðvikudag. Keflvíkingar hafa ráðið nýj- an knattspyrnuþjálfara fyrir 1. deildar lið sitt, Reyni Karlsson, fymun þjálfara Fram og Ak- ureyri. Upplýsingar um þetta fékk fþróttasíðan hjá Hafsteini Guðmundssyni, formanni íþróttabandalags Keflavíkur, þegar við ræddum við hann um æfingasóknina hjá Kefla- víkurliðinu. Óþarfi er að kynna Reyni. Hann er íþróttakenn- ari að mennt, lék í mörg ár með Fram i meistaraflokki og lék nokkra landsleiki, snéri sér síðan að þjálfun, fyrst hjá Fram, en síðan Akureyri, en undanfarin 3 ár hefur hann starfað á vegum Æskulýðsráðs Reykjavíkur og verið fram- kvæmdastjóri þess. „Við teljum okkur mjög heppna að hafa klófest Reyni,“ sagði Hafsteinn, „og væntum góðs af kunnáttu hans. Hann er ráðinn fyrir allt næsta keppnistímabil og verður með fyrstu æfinguna um næstu helgi.“ „Þið hafið æft frá áramót- um?“ „Já, þrisvar í viku. Við vor- um svo heppnir að fá Karl Guðmundsson til að aðstoða okkur við æfingarnar, þar til okkur tókst að ráða þjálfara. Hljóp Karl undir bagga, þótt hann væri önnum kafinn við störf sín og þjálfun síns eigin félags. Ég vil nota tækifærið til að þakka honum fyrir þá að- stoð, sem hann lét okkur í té.“ „Hvernig hefur verið mætt á æfingarnar?" „Maður er aldrei of ánægð- ur með æfingasóknina. Það hef ur verið mætt sæmilega, sum- ir meistaraflokksmannanna frá því í fyrra hafa mætt vel, en aðrir mætt á fáar æfingar. En nú held ég, að skriður sé að komast á æfingasóknina, enda styttist óðum tíminn, þar til mótin hefjast." „Heldurðu að nokkrar breyt- ingar verði á liðinu?“ „Já, Sigurvin Ólafsson verð- ur sennilega ekkert með okk- ur í sumar. Hann er við tækni- nám í Danmörku og hefur tjáð okkur, að næsta sumar fái hann ekkert frí. En við fáum góða menn í liðið aftur, sem lítið gátu verið með á síðasta sumri. Magnús Torfason er far inn að æfa aftur og hefur æft manna bezt. Hann slasaðist í fyrra og gat ekkert leikið með — hann er einn okkar sterk- ustu manna. Grétar Magnús- son lék lítið með á síðasta keppnistímabili vegna meiðsla, sem hann hlaut, en hann er orðinn góður núna. Þar sem Magnús og Grétar eru orðnir heilir aftur, verðum við með fjóra góða framverði, þ.e. þá tvo og Sigurð Albertsson og Guðna. Allir þessir leikmenn eru það sterkir að mínu áliti, að þeir myndu styrkja liðið. Spurningin er einungis hvern- ig við getum haft þá alla með.“ „Hvernig heldurðu að fram- línan verði?“ „Ég býst við litlum breyt- ingum á henni. Framlínuleik- mennirnir hafa allir æft eitt- hvað, nema Jón Jóhannsson, en hann byrjar fljótlega. Og Karl Hermannsson hefur verið til sjós og hefur af þeim sök- um ekki getað mætt nema á eina og eina æfingu. Ég veit ekki ennþá hvað verður með Karl, en reikna þó með, að hann leiki með liðinu í sumar, þótt hann verði e.t.v. ekki með í fyrstu leikjunum.“ „Eitthvað að lokum Haf- steinn?" „Ekki nema það, að ég vil endurtaka, að við í Keflavík teljum okkur heppna að hafa fengið Reyni Karlsson sem Reynir Karlsson. þjálfara til obkar. Við stefn- um að sjálfsögðu að því að mæta sem sterkastir til leiks, þegar mótin byrja í maí.“

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.