Lesbók Morgunblaðsins - 17.11.1935, Blaðsíða 7

Lesbók Morgunblaðsins - 17.11.1935, Blaðsíða 7
Lesbók MORGUNBLAÐSIKS 36? livalseyjarfjörður friðaður. Kirkjurústirnar í Hvalseyjarfirði. helt jeg áfram að lesa íslensku, og voru íslendingar í skólanum mjer hjálplegir, og eins gamli dr. Feilberg. Hann heimsótti mig daglega þar sem jeg lá úti í garði. Þegar jeg fór að hressast, varð jeg að verja öllum starfskröft- um mínum í þágu heimilisins, svo að íslenskunámið varð að sitja á hakanum. En það get jeg full- yrt, að íslensk tunga hefir auðg- að líf mitt, gefið mjer víðari sjóndeildarhring, gefið mjer inn- sýn í hin dásamlegu menningar- auðæfi Islands og verið mjer upp- spretta sannrar gleði. Frú Jörgensen hefir þýtt ýms- ar íslenskar bækur á dönsku. Hún byrjaði á skáldsögunni „Upp við fossa“ eftir Þorgils gjallanda, en sú þýðing hefir ekki verið prent- uð. Síðan þýddi hún fjórar af smásögum síra Jónasar Jónasson- ar, tvær sögur Jóns Trausta (önn- ur var Heiðarbýlið) og eitt bindi af íslenskum þjóðsögum. Þessar bækur komu út. Auk þessa hefir hón þýtt og ritað 68 greinir um íslandsmál í dönsk blöð og tíma- rit. Auk þessa hefir hún þýtt margt eftir íslensk skáld, svo sem Jónas Jónasson, Einar H. Kvaran, Jón Trausta, Jónas Hallgríms- son, Sigurbjörn Sveinsson, Jón Thoroddsen. Ritlaun þau, sem hún hefir fengið fyrir þýðingar sínar og greinir, hefir hún gefið K. F. U. K. á íslandi. Tvisvar hefir hún komið hingað, 1918 og 1930. Hún heíir verið sæmd riddarakrossi Fálkaorðunnar í viðurkenningar- skyni fyrir íslandsást sína. — Segið mjer nú hreint og beint hvort þjer hafið nokkuð út á nýju bókina mína að setja. — Satt að segja finst mjer að það mætti vera miklu minna bil milli spjaldanna á henni. i — Hver er munurinn á við* skiftum og braski? — Ef þú tapar, þá er það brask, en ef þú græðir, þá eru það viðskifti. Með Grænlandsfarinu „Gertrud Rask“ kom nýlega til Kaupmannahafnar Rous- sell verkfræðingur, sem hefir verið að rannsaka fornminj- ar í Eystribygð á Grænlandi. Hefir hann sjerstaklega rann- sakað rústir húsa í Hvalseyjar- firði. Fann hann þar, skamt frá kirkjunni, merkilegar húsatætt- ur. Er þar fyrst veisluskáli einn mikill, líklega frá aldamótunum 1400, bygður af íslensku íbúun- um í Grænlandi. Fundust þar leifar bjálka þeirra, sem hafa verið máttarviðir í húsinu og borið þakið uppi. Umhverfis rústir þessa veislu- skála fundust 21 þúfa, sem eru leifar af fjárhúsum, er benda til þess, að þarna hafi verið stórbýli. Um einn kílómeter þar frá eru rústir af seli, átta húsatættur. „Landraadet“ grænlenska hefir ákveðið í samráði við stjórn Grænlands að friðhelga þe'nnan stað. Landnám í Hvals- eyjarfirði. Hvalseyjarfjörður skerst inn á milli Eiríksf jarðar og Einars- fjarðar. Dregur hann nafn af ey, sem í firðinum er, og Hvalsey heitir. Um landnám í þessum firði segir svo í Land- námu: „Maðr hjet Þorkell farserkr, systrungr Eiríks rauða; hann fór til Grænlands með Eiríki, ok nam Hvalseyjarfjörð ok víðast milli Eiríksfjarðar ok Einarsfjarðar, ok bjó í Hvalseyjarfirði, frá honum eru Hvalseyjarfirðingar komnir. Hann var mjök rammaukinn; hann lagðist eftir geldingi göml- um út í Hvalsey ok flutti utan á baki sjer, þá er hann vildi fagna Eiríki frænda sínum, en ekki var sæfært skip heima; þat er löng hálf vika. Þorkell var dyajaour í túni í Hvalseyjarfirði, ok heíir jafnan gengit þar um hýbýli". Kirkjurústin mikla í Hvalseyjarfirði. í Hvalseyjarfirði eru merki- legustu leifar hinnar fornu ís- lensku menningar í Grænlandi, hin mikla og fagra steinkirkja, sem hvergi á sinn líka. Og við hana eru tengdar síðustu .minn- ingar um samband íslendinga í Grænlandi og á íslandi. Er frá- sögnin um það á þessa leið: Hinn 16. september 1408 fór fram hjónavígsla í þessari kirkju*

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.