Lesbók Morgunblaðsins - 30.01.1972, Blaðsíða 6

Lesbók Morgunblaðsins - 30.01.1972, Blaðsíða 6
Rauða skikkjan Eftir Theodór Gunnlaugsson frá Bjarmalandi i. Sumarið 1966 gerðist óvenju- legur atburður hér í Jökulsár- gljúfrum í Norður-Þingeyjar- sýslu, — nánar tiltekið í ná- grenni við Hljóðakletta. Þar var að starfi myndatökumaður, ásamt stórum hóp leikenda, af ýmsu þjóðernd, en þó flestir danskir, eins og stjórnandi þeirra — Gabriel Axel, sem var höfundur leikritsins, ásamt Frank Jæger. Efni leikritsins er sótt i gamla, hánorræna sögu þar sem höfuðpersónur eru glæsileg hetja, að nafni Hagbarður og konungsdóttir, sem hét Signý. Á barnsaldri var mér sögð þessi saga og varð stórhrifinn af. Síðar las ég hana í Kvöld ræðum, séra Magnúsar Helga- sonar, þegar þær komu út og varð þá enn hrifnari, enda skildi ég hana þá betur. Hrifn astur varð ég þó þegar ég las hana i bókinni „Bræðramál", sem út kom 1949, eftir þá bræð urna, séra Magnús og séra Kjartan, enda þá talsvert lífs- reyndur, og veitti því meiri at- hygli, þeim mannMfsperlum, sem birtast iesandanum svo margar, í þeirri bók. Þetta er fyrsta sagan í bókinni og fær hún þar nafnið: Signýjarhárið, á bls. 24. Ég varð því ekkert smáræði spenntur að komast eftir því hvernig höfundur leikritsins færi með þetta stór- brotna efni, eftir að hafa orðið snortinn af hinum djúpa skiln ingi og þeim snillingstökum, sem séra Magnús fór um það. Og það verð ég að játa, að allt af varð mér kærastur hinn sól- bjarti lokkur Signýjar, sem tekiinn var úr hári hennar og Hagbarður var bundinn með. Það band vildi hann ekki slíta. Með því sýndi hann, að dauð- inn var honum léttbær, hjá því, að rjúfa drengskaparheit. Á dönsku heitir þetta ieik- rit: „Den röde kappe.“ II. 1 hópi ieikenda, og einnig að stoðarmaður leikstjórans, var sonur eins vinar míns og skóla bróður. Hann 'var svo elskuleg- ur að lána mér eitt eintak af handriti Gabriel Axels, til þess að forvitni mín fengi strax ósvikna glaðningu. Ég lék á ais oddi og las það allt, næstu nótt. Hvort tveggja var, að ég unni mjög efninu og einnig staðnum, þar sem kvikmymda- takan fór fram. Hann var vel valinn, því þar var lxka að finna óbilandi traust hamranna háu, sem undir taka og heillast af söng árinnar, sem alltaf þvær fætur þeirra. Ekki hafði ég lesið mikið af ieikritinu áður en ég nam stað- ar og stundi þungan. Þannig gekk það, þar tii ég hafði yfir farið það allt. Einna sárast fannst mér það, að hvergi var þarna sagt frá lokknum bjarta, úr hári Signýjar og hlutverki hans. Um hann lék þó bjarm- inn, í brjóstum flestra, er sög- unni kynntust ungir. Mér er þó ljúft að viðurkenna, að höfund ur leikritsins fer um margt af skilningi á söguefninu og af samhug með þeim Sighýju og Hagbarði og fleiri sögupersón- um. Að io'kum rann svo upp sú langþráða stund, er ég sá mynd ina. Þá sveikst ég ekki um að nota augu og eyru, eftir beztu getu. Og víst var myndin um margt áhrifai'ik og gleymist mér ekki. Ef til vili lika fyrir það, að þar var talsvert vikið frá handritinu og fannst mér það ekki til bóta. 1 lokaþættin- um varð ég þó fyrir mestu von- brigðunum. Meðan ég horfði á myndina, þaut um hugann heill skari af minningum, eins og helsin.gja- breiða, á haustkvöldi. Þar á meðal voru hinir sundurleitu dómar, sem ég hafði heyrt um „Rauðu skikkjuna", efni henn- ar og hatrið, sem enga misk- unn þekkir. Þegar svo eigin sk iðanir komust að, varð mikil háreisti. Þar skar sig þó úr ein rödd, sem hrópaði: „ó já. Svona er það — og mun ávallt verða, að sínum augum líltur hver á silfrið." III. Hver var svo ástæðan fyrir því, að þessi lægð þaut um hug minn? Þær voru eiginlega margar en aðeins fáar nefndar hér. Áður en kvikmyndin hófst, hafði ég yfirfarið mjög glæsi- lega og myndskreytta sýningar skrá, þar sem birt voru nöfn leikenda, og einnig i'akinn sögu þráðurinn að settu marki. Varð mér þá á að segja svona í hálfum hljóðum - við þá, er wæstir mér sátu: „Ja — ham- ingjan hjálpi nú þeim, sem aldrei hafa heyrt söguna um Hagbarð og Signýju. Það þarf engan að undra„þótt þeir rugl ist í ríminu og átti sig ekki á hlutvei'ki sumra leikenda, þeg- ar þeir birtast á tjaldinu. „Sam timis birtust mér..í öðru ljósi þau orð, sem mér hafði gram izt mest, og heyrt af vörum ým- issa þeirra, er höfðu séð mynd- ina. Þeir sögðu: „Það er ekk- ert i hana varið, nema þá af hestunum og umhverfinu.“ Þar við bættist svo gremja mín, yf ir þeirri breytingu, sem gerð hafði verið á lokaþættinum. Mér fannst útilokað að hann hefði þau áhrif, sem höfundur- inn ætlaðist til, á áhorfendur. En að þeim kem ég síðar. 1 skýringartexta er t.d. ekk- ert minnst á þær tvær psrsón- ur, sem eiga mesta sök á þeim harmi, er sveipar hinar dánu söguhetjur. Þær heita Hildi- gisl, hinn þýzki, fi'íður maður og stórmannlegur, og Bölvís, 'hinn „ílli andi“ Sigarrs kon- ungs, föður Signýjar. Hildigísl dvelur hjá Sigarr konungi og vex-ður ástfanginn af dóttur hans. Hann notar því öll ráð til að fjarlaagja Hag- barð, eftir að hann komst að því, hvern hug hún bar til hans. Og þá var það, að hann fékk Bölvís sér til hjálpar, en hann var einn af í'áðgjöfum Sig ai-rs konungs. Hann kom þvi til leiðar, með kænsku sinni og svikum, að bræður Signýjar réðust að bræðrum Hagbarðs, þegar hann var fjarri, og felldu þá. Þá þótti þeim auð- sætt að ekki reyndist erfitt að ráða niðurlögum Hagbarðs, enda hét þá Hildigisl að leggja þeim lið. Þetta fór þó á annan veg. En því drep ég á þetta, að fáir, sem ekki þekktu sögu- þráðinn áður, áttuðu sig á hlut- verki þeirra, þegar þeir birtust á tjaidinu. Það var varla fyrr en Hildigísl tók Bölvis á eintal og bauð honum stórfé, í gulli, ef hann kæmi því til leiðar, að Hagbarður yrði drepinn. Þá taldi Hildigisl sér Signýju vísa. En það verð ég að segja, að mér fannst Bölvís leikinn með afbrigðum vel. Hámarkinu náði hann þó, þegar hann sóp- aði gullhlun.kunum, sem Hildi vísl snaraði í hann, af borðinu, niður i skjóðu sína og kinkaði kolli, þegar Hildigísl mælti, -i hálfum hljóðum: „Það er allt hægt að gera fyirir gull.“ En þarna var rödd beggja íslenzk. Og það var hún, sem lyfti leik Bölvisar í æðra veldi, og alveg sérstaklega, þegar hann byrj- aði að hlæja að gullinu, sem glóði og hljömnum, sem barst að eyrum hans, þagar það féll í skjóðuna. Þeim hlátri gleymi ég aldrei. Hann líktist dunreið, sem byrjaði einhvers staðar iengst inni og færðist svo næ.r, þar til hún sprengdi af sér og upp gaus þessi tryllti, hlakk- andi sigurhiátur og þó trölls legur — sem ég var sannfærð- ur um — strákurinn — að and skotinn einn gæti framleitt, þegar hann gómaðl allsnalcta og ósnortna blómarós, eftir tví sýnan eltingaleik. Birtist þá í hug mínum Þorsteinn Ö., því slíkan hlátur gátu þeir út- völdu einir gert að veruleika. Þótt ekki sé það á mínu færi, að dæma um hæfni leikenda, þá vil ég þó segja það, að margir léku vel og sumir ágætlega. Oft óskaði ég þó eftir því, að einhver af okkar ágætu leik- konum, hefðu farið með hlut- verk Signýjar konungsdóttur. Það mætti segja mér, að þessi Gitte Hænning, sem hana lék, hafi aldrei kynnzt hinni sönnu ást, eða þá að hún hafi verið búin að steingleyma henni. 1 lokaþætti handritsins lætur höfundur þess Signýju hengja sig í mittisbeltinu. Þannig finn- ur faðir hennar hana, þeg- ar hann þeysir frá aftöku- staðnum, þar sem Hagbarð- ur var hengdur, eftir að einn vinur hans sagði hon- um að skemma Signýjar væri að brenna. í augljósri geðshræringu yfir því hvað nú var að ske, hrindir hann opinni hurðinni og sér hvar Signý hangir. Með annarri hendi gríp ur hann undir herðar henni, með hinni sker hann sundur beltið, með saxinu, sem hann hélt á. Þannig fellur hún í faðm hans og samstilltir hljómar heyrast frá bjöllunum, sem voru við hálsfesti hennar. Nú veit hann að hún er dáin. Þá bresta allar hömlur. Hann hrópar með hálfkæfðri rödd þess manns, sem er yfirkominn af harmi og iðrun: „Hefði mig órað fyrir því, að ástin væri svona sterk, þá hefði ég ekki látið gera það, sem gert var í dag, fyrir öll rí'ki veraldarinn- ar.“ Á andliti Signýjar átti aft ur á móti að Ijóma sama brosið og þegar hún hallaði sér að brjóstum Hagbarðs. Svo bliknaði myndin, og hvarf, inn í huldulönd fortíðarinnar. Þannig endaði hún fyrir hugar sjónum höfundarins. Af eðlilegum ástæðum reyndi ég að fylgjast vel með þess- um síðasta þætti myndar- innar. Þó tókst mér ekki, þrátt fyrir itrekaðar spurningar O'g greinagóð svör hjá þeim, er myndina sáu, að komast eftir því, hvort faöir Signýjar hefði nokkuð sagt yfir henni látinni. Sjálfur heyrði ég ekki orð, og nú brá svo við, að þarna not- aði hún rýting, er hún stakk d hjartastað. Þegar svo faðir hennar kom að henni, i rúmi sínu, sáust hvergi merki eftir blóð. Og þegar hann beygir sig yfir hana, með hálflukt andlit- ið í höndum sér, heyrðu flestir aðeins andvörp en sumir þótt- ust greina orð. Eitt er þó víst, að enginn taldi sig greina bros á vörum hennar. Nú fellur þaö i þinn hlut lesandi minn að leggja dóm á það, hvort breytingin, frá handritinu, hafi verið eins áhrifarík og varpað eins skýru ljósi á kjarna sögunnar og þær tilfinningar, sem faðir Signýj- ar bar til henna-r, en — sem of seint megnuðu að brjóta niður alla múra haturs og hefnigirni. IV. Með undanfarandi línum var það ætlun mín að vekja athygli á því, hve mjög er nú farið mis Framhald á bls. 14. 6 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 30. janúar 1972

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.