Lesbók Morgunblaðsins - 31.03.1990, Blaðsíða 9

Lesbók Morgunblaðsins - 31.03.1990, Blaðsíða 9
bjargar-á- Frakkastíg- 17 er Sæmundur Páls- son sá frægi lögregluþjónn, öðru nafni Sæmi rokk. Forseti Alinn Upp í Skúr Á 19 er einlyft timburhús. Þar bjó Gunn- ar Björnsson skósmiður framanaf en síðar Helgi Sæmundsson sjómaður, bróðir Nínu myndhöggvara, og enn síðar Jón Guðmunds- son verkamaður. Á nr. 20 er múrhúðað timb- urhús frá 1907, byggt af Steingrími Guð- mundssyni, afa Steingríms Hermannssonar ráðherra. Þar bjó lengi Magnús Magnússon múrari og síðar tengdasonur hans, Árni Þórðarson sjómaður. í steinhúsinu á 21 bjuggu feðgarnir Eiríkur Sigurðsson tré- smiður og Sigurður Júlíus Eiríksson múrari. Á 22 er myndarlegt timburhús með gluggum í Vínar-júgend-stíl. í því húsi hafa fjölmarg- ir menn búið, m.a. Gísli Jóhannsson frá Eyrarbakka en meðal barna hans voru Jó- hann starfsmannastjóri Flugfélags íslands og Garðar flugmaður. Á 23 er pínulítið timburhús en vel hirt. Þetta var upphaflega skúr en árið 1920 fékk Jón Guðmundsson sjómaður leyfi til að breyta honum í íbúð. Jón fórst með Leifi heppna í Halaveðrinu mikla 1925 og síðan bjó ekkja hans, Gróa R. Jóhannesdóttir, í þessu litla húsi ásamt börnum sínum. Eitt þeirra var Snorri Jónsson járnsmiður, fyrr- verandi forseti Alþýðusambands íslands. Á Frakkastíg 24 er tvílyft forskallað timb- urhús inni í sérkennilegum garði, skreyttum hraungrýti. Áfast er tvílyft steinhús nr. 24B. Hér bjó sama ijölskyldan lengi, fyrst Guð- mundur Höskuldsson bókbindari og síðan synir hans, þeir Guðmundur Elías járnsmiður og Valdimar skipstjóri. Loks bjó Einar járn- smjður, sonur Guðmundar Elíasar, á 24. í framhaldi af húsunum nr. 24 og 24B og áfast er húsið Frakkakstígur 26B. Þar bjó meðal annarra Ingólfur Jónsson banka- ritari í Útvegsbankanum. Framan við það, við götuna, er svo Frakkastígur 26A, einlyft steinhús frá 1923. Það reisti Guðlaugur Guðlaugsson verkamaður sem kallaður var Laugi frá Árbæ af því að hánn var tengda- sonur Margrétar á Árbæ. Nú býr þar sonur hans, Erlendur prentari. Á 25 var timburhús, sem rifið var árið 1963. Þar bjó frá 1912 til dauðadags 1941 ísólfur Pálsson organleikari og tónskáld frá Stokkseyri, faðir Páls ísólfssonar tónskálds og þeirra bræðra og hafa því oft úr því húsi hljómað ljúfir tónar. NÚ TÓK FYRST í HNÚKANA Þar rétt fyrir ofan var hið merka Listvina- hús sem einnig var rifið 1963 til að rýma fyrir viðbyggingu Iðnskólans. Þórarinn B. Þorláksson listmálari átti mikinn þátt í til- urð Listvinafélagsins árið 1919 en það reisti húsið á þessum stað, langa einlyfta stein- byggingu. Listvinafélagið átti að styðja lista- menn, fræða almenning um listir og halda sýningar. Björn Th. Björnsson segir um þetta félag: „Frá stofnun Listvinafélags Islands árið 1919 hafði það gengist fyrir almennum sýn- ingum — að tveimur árum undanskildum — og dómnefndir félagsins valið myndirnar. Á sýningu þess vorið 1925 kom fram mikil óánægja með valið til hennar, og var þá horfið að því vafasma ráði að hafa vorsýning- una 1927 frjálsa öllum þeim er myndir vildu senda. En nú tók fyrst í hnúkana. Sumir reiddust því, að hér væri öllum sleppt lausum sem á pentskúf gætu haldið, en aðrir hinu, að reyndari listamenn „köstuðu rusli inn á sýninguna" í óvirðingarskyni við þá ungu. Jóhannes Kjarval birti auglýsingu í blöðun- um þess efnis, „að hann vari alla þá við, er listsýningar sækja, að fara ekki á sýningu Listvinafélagsins, sem nú er, vegna þess, að hann álítur, að hætta stafi af að vera í miðsal hússins, vegna sprunginna veggja og rangrar byggingar á þakinu". Þótt formaður Listvinafélagsins, Th. Krabbe vitamálastjóri, mótmælti þessu um loftið og veggina í miðsalnum sem hreinum uppspuna, sýndist öðrum Kjarval hafa nokk- ur lög að mæla. - - - Sýning þessi markaði áfanga að ýmsu leyti, en það gerir hana þó sögulegasta, að þar komu fram þrír ungir menn sem áttu síðar eftir að leiða umbyltinguna í íslenskri málaralist, þeir Snorri Arinbjarnar, Þorvald- ur Skúlason og Gunnlaugur Óskar Schev- ing.“ Deilur þær sem Björn getur um urðu svo til þess að Ljstvinafélagið liðaðist í sundur þetta vor. Haustið 1929 tók Guðmundur Einarsson frá Miðdal húsið á leigu og hóf þar framleiðslu á leirmunum sem var algjör nýjung hér á landi. Rjúpurnar, hrafnarnir og dúfurnar sem voru á öðru hverju íslensku heimili um miðja öldina voru allar gerðar í þessu húsi. Höfundur er sagnfræðingur. Sóley Eiríksdóttir í vinnustofu sinni viðLindargötu ásamtnokkrum „konum“ úrsteini, sem hún sýnirá Kjarvalsstöðum. Imynd konunnar í steinsteypu og kristninnar á jámplötum Nokkur orð um samsýningu SÓLEYJAR EIRÍKSDÓTTUR og JÓNS AXELS BJÖRNSSONAR sem opnuð verður á Kjarvalsstöðum í dag. au Sóley Eiríksdóttir og Jón Axel Björnsson, sem opna sýningu saman á Kjarvalsstöðum í dag, eiga bæði allmargar sýningar að baki, þótt ung séu þau að árum. Þeim verkum sem þau sýna nú er það sameiginlegt að vera stór og þung og það var frekar kvíðvænleg tilhugsun á þessu heim- ili að eiga eftir að flytja þau á Kjarvalsstaði og koma þeim fyrir þar. Leið Sóleyjar hefur legið frá smáskúlptúrum úr leir ’ til miklu stærri verka eins og þeirra, sem sjást hér á myndinni. Hún smíðar þá fyrst úr plötum, klæðir þá síðan með vírneti og bæði múr- húðar yfirborðið og málar. Þessir skúlptúrar eru ekkert kvenmanns meðfæri, og þegar við mynduðum gripina var listakonunni alveg hlíft við átökum, því hún var fyrir tveimur dögum komin heim af fæðingardeildinþi með nýfædda dóttur. Það var því eins og nærri má geta í mörg horn að líta hjá þeim Sóleyju og Jóni Axel, því sýningin á Kjaivalsstöðum var löngu ákveðin. Skúlptúrar Sóleyjar einkennast af nokkuð ströngu, geómetrísku formi, en teljast víst fígúratíf list þegar betur er að gáð. Það eru nefnilega kvenmannsbrjóst á þeim öllum og aðspurð um þetta lykilatriði sagði Sóley, að þetta væru allt saman konur. Hún væri alltaf að tjá sig um konur, en kannski væri réttara að segja: ímynd konunnar. Stundum eru þess- ar táknrænu ímyndir í hvíld, stundum eitt- hvað að bjástra. Kvennalistakonur, spurði ég. Nei, Sólei kvaðst ekki vera í neinni femínista- baráttu með þessu. En stundum upplifir hún kynsystur sínar eitthvað þessu líkt. Það er aftur á móti spurning, sem ekki verður svar- að hér, hversvegna Sóley notar steinsteypu frekar en einhver áferðarmýkri efni til að tjá sig um ímynd konunnar. Jón Axel hefur fengið inni í vélsmiðjunni Héðni í bili og veitir ekki af plássinu, því hann hugsar stórt og verður þessvegna ekki með nema örfá verk á sýningunni. Stærsta myndin, um það bil mannhæðarhá, er 15 metrar á lengd ,og öll unnin á járnplötur eins og þeir nota í Héðni. Þær eru að byija að ryðga og þá fær yfirborðið margvísleg og mjög fínleg litbrigði. Þessi mynd heitir „Sjö nætur“ með tilvísan píslargöngunnar, sem maður gæti ímyndað sér að sé hér tákngerð með máluðum bjálka. Hann nær í gegnum allar plöturnar og endar í krossmarki. Á annarri ámóta langi-i mynd, sem unnin er á tréplötur, svífa málaðair diskar, jafn margir postulunum og Kristi. Myndin heitir „Kvöldmáltíð“ og vísunin er öllum augljós þegar nafnið hefur verið kunngert. Þessar myndir var einfaldlega ekki hægt að mynda í heilu lagi, en hér er mynd af þeirri þriðju; „Spegill" heitir hún og er bæði máluð á járn- og tréplötur. Formið er hinsvegar mjög stílfært krossmark með málaðri mynd af ein- hverskonar búri eða grind og tveimur bikur- um; í öðrum þeirra er blóð. Þrátt fyrir þessa notkun á táknmyndamáli kristninnar, kveðst Jón Axel ekki vera að tjá sig um píslargöngu frelsarans eða þjáningu mannsins almennt. Á bak við þessar pælingar lægi ekki trúarþörf, þótt hann gerði sér ljóst, að litið yrði á verkin sem relegiös, eða trúar- leg, vegna þess að annað er naumast hægt, þegar þetta klassíska táknmál er notað. Þetta er kannski trúarlegt landslag, sagði Jón Ax- el, sprottið af menningarsögulegum ástæðum. I raun og veru er þetta konsept, eða hug- myndalist, sem svo hefur verið nefnd og hef- ur oft byggst einvörðungu á því að velta upp einhverri hugmynd án þess að klassísk mynd- ræn gildi kæmu við sögu, svo sem litur og form. „Ég veit að þetta er nærri konsept- inu“, segir Jón, en munurinn liggur í því, að ég hef alltaf afneitað því formleysi, sem ein- kenndi konseptið. Hjá mér skiptir formið mjög miklu máli“. Hughmyndafræði í myndlist fæddist að sjálfsögðu ekki með konseptlistinni, en hún hefur haft veruleg áhrif í þá veru, að unnið ■sé með ákveðna hugmynd. Stundum virðist það komið út fyrir mörk myndlistar og mætti þá öllu frekar flokka það undir heimspeki. Það er ljóst að Jón Axel byggir á hugmynda- fræði, en hann heldur engu að síður í gömul og gróin gildi, sem byggjast m.a. á kröftugu formrænu samspili. Gísli Sigurðsson Jón Axel við verk, sem heitir „Spegill“ og er þegar betur er að gáð, stílfært krossmark. Á þessum krossi er einliverskonar búr eða bygging ásamt bikurum, sem eru enn ein vísun til kristins táknmáls. LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 31. MARZ 1990 9

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.