Lesbók Morgunblaðsins - 15.10.1994, Blaðsíða 7

Lesbók Morgunblaðsins - 15.10.1994, Blaðsíða 7
Svo kom ívar æskulýðsleiðtogi í skól- ann. Hann var settur yfir allt æskulýðs- starf í skólanum og átti að hafa góð áhrif á okkur nemendurna. ívar kom á fót margvíslegum klúbbum, Ijósmyndaklúbb, spilaklúbb, skákklúbb og hóf strax leit að hæfileikaríkum einstakl- ingum, sem sköruðu fram úr og höfðu sér- gáfur. í þeirri leit kom hann að máli við Magga feita, því Maggi var áberandi og vissi allt um alla. En hverjir höfðu hæfileika? Vissi hann það? Maggi beit á vörina og glotti. Svo sagði hann: „Það er bara einn veru- lega hæfleikaríkur einstaklingur í skólan- um.“ ívar sperrti eyrun. Hann var snaggara- legur og andlit hans opið og bjartleitt. Það skein forvitni úr augum hans. „Og hver er það?“ spurði hann. „Símon,“ sagði Maggi án þess að blikna; og í fyrsta sinn síðan þeir fóru niður í kjall- arann nefndi hann Símon réttu nafni. „Hvað getur hann?“ spurði ívar. „Hann leikur á hörpu,“ sagði Maggi. ívar æskulýðsleiðtogi var i KFUM og hafði verið við kristniboðastörf bæði í Eþíópíu og Kongó áður en hann kom í skólann. Hann sýndi okkur skuggamyndir þaðan og sagði okkur frá lifnaðarháttum íbúanna. Kannski gerði ívar sér ekki grein fyrir því hve fátíðir hörpuleikarar eru hér á landi, auk þess sem nemendur höfðu sannreynt að hann var afar auðtrúa. Að minnsta kosti hóf hann leit að Sím- oni hörpuleikara, gekk um gangana og spurðist fyrir um hann, en þegar ívar loks- ins fann Símon sá hann ekki hjarðsvein með hörpu. Nei, ívar æskulýðsleiðtogi horfði inn í augu svo sturluð af hræðslu að meira að segja hann, sjálfur trúboðinn úr frum- skóginum, forðaði sér. Skömmu áður hafði Heimir, pabbi Sím- ons, verið handtekinn eina ferðina enn, í þetta sinn fyrir innbrot og grófa líkams- árás. í innbroti hafði hann og aðrir ráðist á húsvörð og barið hann til óbóta. Nú þýddi ekkert að tala um slökkviliðs- menn í Nýja-Sjálandi, farskip og fjarlæga staði. Símon var búinn að fá nóg. Hann hélt að ívar æskulýðsleiðtogi væri frá lögreglunni eða barnaverndarnefnd og gerði sér enga grein fyrir því hvor þeirra forðaði sér fyrst. Símon lifði í þögn, einsog óttaslegið dýr í frumskógi. Um vorið, þegar Símon mætti í ritgerðarprófið í stóra íþróttabragganum, sat hann lengi og horfði á ritgerðarefnin sem í boði voru. Svo valdi hann ritgerðarefnið Vinátta. „Ég á engan vin, en ég á kunningja í Kópavogi," skrifaði hann, stakk blýantin- um niður og rauk út. Enginn í salnum sá Símon framar. Hann hljóp frá Skipa.voginum; yfir rólu- völlinn og áfram stíginn meðfram rólu- vellinum. Hann lét ekki staðar numið fyrr en hann stóð í spýtnabraki niðurgrafna kjallarans undir bílskúrnum. Þar hékk hann þegar að honum var komið í timburbjálka sem slegið var upp á miðju gólfinu. „En guð sér á himnunum háu hve hjálp- samur drengurinn er ...“ Á þessum árum hugsaði ég mikið um guð. Bæði var ég velta fyrir mér hinum órannsakanlegu vegum hans, svo og hinu að guð var reiður og guð var góður. Ég trúði því að guð hefndi sín á þeim sem voru vondir en verðlaunaði þá sem voru góðir. Ég reyndi sjálfur að vera góður. Ég var kominn í sveitina og var oft að hugsa um Símon og guð. Þetta var ónota- leg tilfínning, ekki síst ef þetta var guð. Ég gekk inn í stofuna. Á borðinu lá dagblaðið Tíminn. Mér varð litið aftan á blaðið og sá þetta andlit sem ég kannaðist svo vel við. Ég las fyrirsögnina: „Dráttarvélaslys ...“ og svo fréttina og horfði á myndina. Þetta var fermingarmynd, sléttgreiddur drengur á ljósmyndastofu, búlduleitur í framan en brosið glaðlegt og hýrt. Um það var engum blöðum að fletta. Undir myndinni stóð Magnús Sveinsson. Nafn hans var einnig í greininni og heim- ilisfangið var það sama og hjá Magga. Dráttarvélaslys voru afar algeng þetta sumarið. En guð, hvað vildi hann? Höfundur er rithöfundur. ÞÓRÐUR MAGNÚSSON Skafla- kyndug hæðar- bungan Stellaria media Upp við háreistan gafl er haugarfi með hálfluktum blómum; þar er grastoddi, og af gulkollu, krossfífli’og eld- spýtum hrafl. Nú er sumarið brott og svalara og sortnandi nætur; ég sé kettina í kalsanum tifa með lafandi skott. Og í hryssingnum skýst um hellurnar í gangstéttum gráum eitthvert bréfarusl og blaða- með leiðindakjaftæði víst. En þó komið sé haust ertu, haugarfi, með krafti og kynngi eins og töfrari að tendra þín stjörnuljós viðstöðu- laust. Þótt þú opnir til hálfs nú í október þín eilitlu blómstur, ertu’að fjölga þeim uns frostnætur láta sverfa til stáls. Hvað í sumar sem leið, er sólkringlan í suðri sér hreykti, hver þín tíklofna og tárhreina króna var þönd út og gleið! Og ég lagðist á hné og hugsaði: já, sjáðu, því seinna svona smásmíði ég smurt út í glýju og loðmullu sé! Síður líf þitt ég skil og lífskergju en þeysandi þusur* eða bomburnar ... já, búi þeir aðeins einn haugarfa til. Vita gagnslaus þú ferð í flæmingi og illskiptinn undan, og þú sáir þér og sýnir oss tannhvítra blómanna mergð! En hvers virði það er í verunni að þráast og þrauka- það er undarlegt- ég efast um hvor okkar skilji það ger. *Nýyrði yfir þotur. '/■&H Þóröur Magnússon - sjálfsmynd. Við samviskan Hvað verður um mig eftir mína daga? Ég af því merki þegar snert af beyg; Égfinn að hvert eitt sinn er sunna hneig, mín samviska mig hefði átt að jaga. Ég hafði’af henni aldrei nokkurn aga og alltaf leið hún hjá í breiðum sveig; nú reynirhún að vekja veikan geig og verða’að liði heimskingjanum raga. Til hvers, til hvers ergamlan garm að laga, mín góða innri rödd, svo syfjuleg? Til hvers að vera’að hirða visin rök? Og hver er máttur þinn og hvað gat ég og hvoru mátulegt að bíti sök? Til hvers er sig í handarbök að naga? Frá síðasta sumri Ég frá í sumar eina angurværa hef endurminning geymt um hér- vist þína og opin blóm sem létu liti skæra í logni morguns glatt af blöðum skína. Þar undu flugur vel, með vængi glæra; þau vöktu gleði sumarið á enda, en liggja nú ein niðurfrosin hræra og nöturleg og flöt og visin benda. Þau sömu blóm þú sást, og dáðist að, þó sjónin væri farin ört að bila, ogaðeins baslast útá tröppur gast. Nú hvílir lúið hold á vígðum stað; í haust varð kæling þér að aldur- tila. Það er að skyggja - uggvænlegt og hvasst. Hláka Ort á Vífils- staðahæli Hlákan er komin með rok og rign- ingu. VeiðibjöIIumergð. Hátt grátt stuðlaberg á fleygiferð yfir hraunið og fram með hæðar- bungunni skaflakyndugri: Rokið hrekur regnið á fleygiferð yfir hraunið og fram með hæðar- bungunni skaflakyndugri. Veiðbjöllurnar þjóta kæruleysis- lega blaka sjaldan væng; hver af annarri rennir sér fyrir hæðina sker boga bungunnar kyrran óðfluga stórum og djúpum bug- speglar bogann. Á hælinu ýlfra gangarnir á vindhliðinni púa gluggarnir lokaðir. Hlákan er komin stórfengleg! Haustmerki Örmjó fölrönd á fjallsbrún dregin efst, og sem undirspil vaggandi skuggi af visnu puntstrái á grásteini skófskellóttum. Uppstytta í heiði skín sólin loks hérna um hálfnaðan september og meinhæg maðkafluga á múrvegginn hlassar hér. Og vært henni verður að finna hvað veggurinn orðinn er hlýr, um límda vængi losar og löppunum saman nýr. Æ, þægilegt er nú þetta: hann þornaði, múrinn grár, og djúpur frá belgnum digra sér dreifir Ijómi blár. Þórður Magnússon fæddist í Keflavík 1896 og lézt 1965. Hann lét eftir sig laus- blaðamöppu, sem merkt var með „Kóð", og voru þar í Ijóð hans. Þeim hafði hann haldið fyrir sjálfan sig og sína nánustu og aldrei hvarflaði að honum að birta þau. Árið 1903 fluttist Þórður til Reykjavik- ur með móður sinni, sem byggði hús að Bergstaðastræti 7 og þar bjó Þórður alla tíð siðan. Hann stundað verkamannavinnu framan af en varð skrifstofumaður hjá Reykjavíkurbæ 1920 og þar starfaði hann í full 40 ár. Þrátt fyrir skamma skóla- göngu, nam hann mörg tungumál og las heimsbókmenntir á tungu skáldanna og eignaðist gott bókasafn. Siðustu árin átti frönsk tunga og bókmenntir hug hans. Stærðfræði var honum skemmtiefni, drátt- hagur var hann og vel að sér i náttúru- fræði; þekkti hverja íslenzka jurt Nú er í undirbúningi að gefa út Ijóð Þórðar og mun bókin heita „Kóð". LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 15. OKTÓBER1994 7

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.