Lesbók Morgunblaðsins - 18.11.1995, Blaðsíða 6

Lesbók Morgunblaðsins - 18.11.1995, Blaðsíða 6
fram það sem orðið gæti til að varpa ljósi á Egils sögu. Eins og sjá má er það ekki lítið. Ef Egils saga hefur verið sögð í gildi, þar sem þekkt var táknmál kristinna laun- helga, skilst flest í dæminu. Mjólk er þá tákn um endurfæðingu Egils. Hann er að segja skilið við óargadýrið, hann er að bjóða velkomið manneðlið, læknislistina og skáld- skaparíþróttina. Jafnframt minnist hann banda fjölskyldunnar, sem örlögin höfðu rofið; það skarð í ætt hans sem hann veit ófullt og opið standa. Hann meðtekur inn- vígsluna; þekkinguna um andlegt líf, nær- ingu Krists og kirkju. Sama máli gegnir um sölin (saltið). Egill meðtekur in helgu tákn, þegar honum er mest nauðsyn á. Hann skynjar líf og ódauð- leika, hann verður var vísdóms og þekking- ar, sem fegurst hljóma af kvæðinu Sonator- reki. Hann gerir sér ljóst, hvað er rétt breytni. Og það er ekki sú hliðin sem veit að mannskepnunni. Hann hefur bragðað á salti skilningsins. Einkum er athyglisvert að sjá að þama getur að líta teninginn sem merkti jörð og var eitt helzta tákn Íslend- inga allt frá landnámi, samkvæmt RÍM. Hér verður sú hlið ekki gaumgæfð, en minnt á ina andlegu móður, sem Egill mætir í Vermalandsförinni, og býður honum að hætta að drekka öl sem hann spýr framan í menn; til er „æðra öl“ sem vafalítið birtist í tákni mjólkurinnar eftir inn mikla harm- leik Egils. Hrjúft og lítt hamið manndýr öðlast vizku; oddarnir hrökkva af; hann hefur gengið gegnum lífsreynslu skógar, óbyggða og dýpstu sorgar. Þá skilur hann loks sjálfan sig. Móðirin Mikla „Móðirin mikla“ var eitt helzta hugtak fomaldar og miðalda; einatt umbreyttist hún í Maríu og kirkjuna, en hefur vafalaust borið nafnið Freyja í heiðni. Jarðnesk móðir Egils lætur vel yfir því ódæði Egils að drepa óvarinn dreng og segir hann víkingsefni, þá kveður Egill (IF II, 100): Þat mælti min móðir, at mér skyldi kaupa fley ok fagrar árar, fara á brott með víkingum, , standa upp í stafni, stýra dýrum knerri, halda svá til hafnar, höggva mann ok annan. En in Mikla móðir er ekki öll þar sem hún er séð. Hún birtist jafnan í gervi ungr- ar telpu. Grímur, drengurinn sem Egill heggur er „ellifu vetra eða tíu“ þegar ódæð- ið er framið; í Vermalandsförinni rekst Egill á stúlku sem er „tíu vetra eða ellifu“. Hún er m.ö.o. jafn gömul drengnum sem Egill varð að bana í skapofsa sínum. Egill svelgur stómm skyr í förinni, eins og hann á vanda til, þá kveður stúlkan (ÍF II, 224-225): Því sendi mín móðir mik við þik til fundar ok orð bera Agli, at ér varir skyldið; Hildr mælti þat homa: haga svá maga þínum, eigu órir gestir æðra nest á frestum. Ef gert er ráð fyrir því, að Egill mæti þarna sjálfri inni Miklu móður í telpugervi, sem hún jafnan íklæddist, verður þetta allt auðskilið. In jarðneska móðir upphefur vfk- inginn í Agli; in andlega móðir bendir honum á, að hann eigi æðra nesti í vændum en jarðneska skyrgáma og öl. Ódæll víkingur, skepnan í manninum, víkur þá er honum er borinn æðri drykkur. Og af sögunni sést, að sá er mjólk. Og þá er spurningin, fyrir alla þá sem velta því fyrir sér, hvort Egill orti kvæði sín sjálfur: Ef Egill orti fyrri vísuna orti hann þá hina síðari, sem er samstæða og gagnstæða hinnar fyrri (og mælt fram af telpunni til hans)?. Tæplega verða margir á því máli. Flest bendir til, að báðar vísurnar séu ortar af höfundi sögunnar. Sem gerir Snorra Sturluson að meira skáldi en áður var ætlað — ef hann reit söguna. Vér sjáum því af inum nýju upplýsingum um saltið og mjólkina, að allt fellur það að efni, ef Egils saga var sögð á allegórisku táknmáli í kristnu gildi. Það furðulega við nánast allt það sem fyrr var ritað um Egils sögu er, að menn hafa gengið út frá því sem vísu, að verið væri að hampa skepnu- skapnum í Agli, dýrka ofbeldið og gera vík- inginn að hugsjón með ritun sögu hans. Egils saga og Ulfar tveir snýr þeirri niður- stöðu við; allt bendir til að með Agli hafi einn hijúfasti steinn íslenzkrar ættar verið fægður í kristnu samfélagi. Höfundur er fræöimaður og hefur skrifað Ræt- ur íslenskrar menningar. Húsameistarinn Einar Sveinsson Fjöldi Reykvíkinga hefur haft ýmis hús Einars Sveinssonar fyrir augunum alla ævi og sá vani hefur ef til vill komið í veg fyrir að tekið væri eftir þeim svo sem vert er. Þetta eru hús eftir listamann; það sjáum við nú ekki sízt á sýning- í næstum fjóra áratugi, frá 1934 til 1973, var Einar Sveinsson arkitekt í embætti húsameistara Reykjavíkur. Enginn maður hafði til jafns við hann áhrif á útlit borgarinnar, bæði einstakar byggingar og skipulag. Greinin er í tilefni sýningar á Kjarvalsstöðum á verkum Einars. unni á verkum Einars, sem stendur yfir á Kjarvalsstöðum og Pétur H. Ármannsson arkitekt hefur veg og vanda af. Hann skrif- ar einnig afar fróðlega ritgerð í sýningar- skrána. Bæði Pétur og ráðamenn Kjarvals- staða eiga heiður skilinn fyrir þessa tíma- bæru kynningu á listamanni sem farið er að fenna yfir. Hvemig má það vera að maður sem skipu- lagði borgina utan Hringbrautar og á auk þess heiðurinn af byggingum eins og Heilsu- vemdarstöðinni við Barónsstíg, Skúlatúni 2, sem var aðsetur Borgarstjórnar áður en ráðhúsið var byggt, svo og Laugarnesskó- lanum, Melaskólanum og Borgarsjúkrahús- inu skuli vera svo til óþekktur meðal nútíma- fólks? Em einhveijar sérstakar ástæður fýr- ir því? Reyndar vom þær til og hafa haft sín áhrif. Ein er sú að Einar Sveinsson naut sem embættismaður borgarinnar þeirra for- réttinda að geta sjálfur fengið eftirsóknar- verð verkefni og það hefur ugglaust kallað yfír hann öfund og slæmt umtal. í annan stað má geta þess að á 6. áratugnum, eftir 20 ár í embætti, var Einar kominn með merkverð frávik í stíl frá fúnksjónalisman- um, sem hann hafði aðhyllst á fyrstu árum sínum. Hann var þá kominn á skjön við þann módemisma og frystikistustíl í anda Mies van der Rohe, sem ungir vinstrisinnað- ir listamenn sáu fyrir sér í sæluríki marxism- ans. Þröngsýni og ofstæki réðu ferðinni. Einar var úthrópaður sem borgaralegur og úrkynjaður arkitekt. Gagnrýnendur hans komu alls ekki auga á, hvað Einar var bú- inn að gera góða hluti. Fúnksjónalisminn hafði leitt af sér hinn sálarlausa módernisma sem setti ömurlegt svipmót á borgir og náði hámarki um 1960. Það er engu líkara en Einar Sveinsson hafi séð það fyrir, en engar hlaut hann þakkirnar nema síður væri. ÞÝZK VlÐHORF KOMA TlL SÖGU Gagnstætt því að fara til Kaupmanna- hafnar, svo sem verið hafði hin hefðbundna menntaleið íslendinga, fór Einar fyrstur ís- lenzkra arkitekta til náms í Þýzkalandi og tók lokapróf frá tækniháskólanum í Darm- stadt síðla árs 1932. Þar kynntist Einar fúnksjónalismanum, sem rakinn er til skóla og kenninga Grophiusar og rekinn _var í Weimar unz nasistar lokuðu honum. Ásamt EINAR Sveinsson. með Gunnlaugi Halldórssyni, arkitekt, varð Einar helzti boðberi þessarar nýju stefnu á íslandi. Einkenni stefnunnar fór að gæta hér á landi um líkt leyti og Einar hóf störf. Hann skilgreini hana svo í blaðagrein 1943: Hér er ekki um neina stað- eða tíma- bundna stefnu að ræða, heldur stefnu sem hefur ækið vísindin í þjónustu sína og tekur allar aðstæður til greina. Við- ieitni hennar er að leysa verkefnin á rökréttan hátt, í fullu samræmi við til- gang og notagildi þess mannvirkis, sem um er að ræða og láta byggingartækn- ina og efnið birtast í hinu ytra sem innra formi, á látlausan en þó listrænan hátt. “ Fyrsta húsið sem Einar teiknaði í Reykja- vík að loknu námi; einbýlishús Sigurðar Jóhannssonar að Freyjugötu 43, er kórrétt eftir formúlu fúnksjónalismans, þar sem teningurinn er einskonar viðmiðun. Þarmeð varð þakið að vera flatt, en Einar var svo langt á undan þeim sem löngu síðar teikn- uðu hús, að hann sá að flöt þök hentuðu ekki á íslandi. Auk þess voru ekki komin til sögu þau byggingarefni, sem gert hafa flöt þök möguleg. Fljótt á litið sýnist þetta fyrsta hús Einars þó vera með flötu þaki. En svo er ekki. Það er með einskonar öfugu valmaþaki, hæst við útveggina, en vatns- halli hafður inn að miðju og niðurfall þar. En einnig sú lausn hefur ekki reynst vel á íslandi og Einar sá það fljótt. Hann leysti málið með valmaþakinu, sem ásamt horn- gluggum einkenndi mörg íslenzk íbúðarhús fram til 1940. Seint á stríðsárunum var var enn verið að byggja þannig hús og þau hafa staðizt tímans tönn vel. Þjóðleg róman- tík var ekki að skapi Einars. Hann féllst hvorki á skreytingar með tilbúnu stuðla- bergi, né heldur burstabæi úr steini eða bárujárni. í ritgerð sinni um Einar Sveinsson og verk hans segir Pétur H. Ármannsson m.a. svo: Menntun Einars skapaði honum sérstöðu meðal íslenskra arkitkta og til hennar má rekja margar þær áherslur sem ein- kennandi eru fyrir verk hans. Hann var fyrsti arkitektinn sem kom til starfa á Islandi eftir að hafa lokið prófi í húsa- gerðarlist úr þýskum tækniháskóla, en fram til þess höfðu norræn áhrif verið ríkjandi í íslenskri húsagerð. Hann er fyrsti íslendingurinn sem hlaut háskóla- menntun í fagurfræðilegri mótun borga íanda rðtgróinnar, evrópskrar skipulags- hefðar. Enda þótt Einar yrði einn helsti boðberi og hugmyndafræðingur funk- sjónalismans í íslenskri húsagerð var formræn hugsun hans alla tíð mótuð af lögmálum klassískrar byggingarlistar. Þó svo Bauhausstefnan hafi snemma fest rætur í Þýskalandi gætti áhrifa hennar lítt í námsskrá þýskra tæknihá- skóla um 1930. Þannig voru flest skóla- verkefni Einars í klassískum anda og , mótuð af þýskri byggingarhefð. í bygg- FREYJUGATA 43, íbúðarhús Sigurðar Jóhannssonar, var með því fyrsta sem Einar teiknaði. Hér er funkisstíllinn alls ráðandi, en þakið varð þó að laga að íslenzkum aðstæðum.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.