Lesbók Morgunblaðsins - 25.11.1995, Blaðsíða 1
O R G U N
L A Ð S
Stofnuö 192 5
42. tbl. 25. nóvember 1995 — 70. árg.
Bræður himins og Egils saga
Eiríkur blóðöx, Gunn-
hildur og sporðdrekinn
Eftir EINAR PÁLSSON
Eitt af því sem nú má heita löngu
ljóst er að himinhvolfið gegnir
miklu hlutverki í allegóríu
Egils sögu. Beztu allegóríur
miðalda voru reistar yfir per-
sónur og atburði úr því lífi sem
lifað var í sagnfræðilegri merkingu; alleg-
órían var launsögnin, sem miðaldamönnum
bar að ráða til að fá botn í hina andlegu
merkingu.
Eitt af því forvitnilegasta við Egils sögu
er það, að Noregi var á miðöldum líkt til
stjörnumerkis þess, sem Skorpio nefnist
(R.H. Allen, Star Names, (Dover. publ.
New York, 1963, s. 364). Á íslenzku nefnd-
ist Skorpio Drekinn, nú Sporðdrekinn.
Þegar svo er tekið til orða, að Noregi
hafi verið líkt til merkis Sporðdreka þýðir
það, að Noregur var talinn undir áhrifa-
valdi Sporðdreka ellegar að Sporðdreki réð
auðnu Noregs. Hins vegar hlýtur maður
að velta fyrir sér lögun Noregs, þegar
samsvörun Sporðdreka við Noreg er gaum-
gæfð. Svo kann að vera, að Noregur hafi
verið seldur undir Sporðdreka, þar sem
hann snýr vestur, til landa sólarlagsins,
en mér hefur oft komið í hug, hvort ekki
hafí það beinlínis valdið lögun Sporðdreka.
Fáum dýrum líkist Noregur eins og því
kvikindi skúmaskotanna.
í bókinni Egils sögu og Úlfum Tveim,
sem út kom 1990 (E.P., Mímir, Rvk.), var
talsvert rætt um merki Sporðdreka. Sporð-
drekamenn voru í nánum tengslum við
Bogmann, þ.e. Mann-dýrið, sem Agli var
líkt til (sjá t.d. k.42-47, 81,82). Svo segir
þar:
Sporðdreki hefur fra ómunatíð verið
andstæðingur Bogmanns í goðsögnum
himinhrings. Ein ástæða þess er sú,
að ör Bogmanns er beint að hjarta
Sporðdrekans. En fleira virðist bera
til, meðal annars það, að Sporðdreki
hefur ætíð verið tákn myrkurs og
dauða ... (s. 203)
Þannig kemur í ljós, að Sporðdreki var
eigi einasta óvinur Bogmanns heldur áttu
konungur og drottning Noregs, sem réðu
landi Sporðdreka, í þrotlausri baráttu við
Bogmanninn Egil. Þetta er feiki athyglis-
vert, eins og þeir vita sem kynnt hafa sér
málið. Segja má einfaldlega, að barátta
Egils við þau Eirík blóðöxi og Gunnhildi
kóngamóður í frumsögninni hafí verið
barátta Bogmanns gegn Sporðdreka.
KONUNGUR og drottning sporðdrekamerkis. Þau drotta yfír undirheimum, dauða oggetnaði.