Alþýðublaðið - 28.06.1983, Blaðsíða 3

Alþýðublaðið - 28.06.1983, Blaðsíða 3
Þriðjudagur 28. júní 1983 3 -RITSTJORNARGREIN ———————————— Vilmundur Gylfason kvaddur Vilmundur Gylfason alþingismaður og fyrrum ráðherra er í dag kvaddur hinstu kveðju. Hann var aðeins 34 ára gamall, þegar kallið kom. Þátttaka hans í íslenskri pólitík varð þannig ekki langvar- andi, en engu aö síður skilur hann eftir sig djúp spor í þjóðfélagi okkar. ,,Ég ætla að vera í þessu stutt, en þá meö reisn,“ voru orð Vilmundar sjálfs, þegar stjórnmálaþátt- töku hans bar á góma. Þessi orð hafa gengiö eftir. Vilmundur Gylfason var jafnaðarmaður — ekki aðeins í orði heldur og á borði. Um það deildi eng- inn. Á hinn bóginn stóö stundum styrr um Vil- mund. Sumum þótti framsetningin dálítió harka- leg, vinnubrögðin glannaleg. Hann orðaði þetta sjálfur þannig, þegar um var spurt: „Stíllinn er stundum þungur, en orðin eru ekki eins þung.“ Og einnig sagði Vilmundur um sama efni: „Ef þið er- uð að leita að róttækni, sem engan styggir, þá er hún ekki til, því eðli róttækni er að styggja ein- hvern. Þetta verða menn að vega og meta. Og þegar þetta er sagt af fullum krafti, þá eru þetta þung orð.“ Stíll Vilmundar í pólitískri umræöu var róttækur og þarmeð umdeildur og kallaði einattfram harka- leg viðbrögð. En þótt deilur stæðu 'um Vilmund, hvort sem það var innan Alþýðuflokksins á sínum tíma, eða annars staðar, þá skildu þær ekki eftir sig framtíöarsár. Óvild sat aldrei eftir slík skoðana- skipti. Öllu fremur að slíkar hreinskilnar og stund- um heitfengnar umræður hreinsuðu andrúmsloft- ið. Það er ekkert launungarmál, að margir Alþýðu- flokksmenn urðu fyrir miklum vonbrigðum, þegar Vilmundur kaus að ganga úr Alþýðuflokknum og stofna ný stjórnmálasamtök. Þrátt fyrir það, hélt Vilmundur góöu sambandi við fjölmarga fyrri flokksféiaga, þótt vettvangur baráttunnar væri ekki lengur sameiginlegur. En það breytti þó ekki þeim sannleik, að eftir sem áður var Vilmundur Gylfa- son jafnaðarmaður af lífi og sál og grundvallar- markmiðin voru þau sömu og áður; baráttan fyrir frelsi, jafnrétti og bræðralagi. Mörgum Alþýðu- flokksmanninum þótti því erfitt að líta á Vilmund, sem pólitískan andstæðing, þrátt fyrir tilkomu Bandalags Jafnaðarmanna. Vilmundur Gylfason starfaði nokkur ár sem sum- arritstjóri við Alþýðubiaðið. Það voru stundum stormasamir tímar. Hin síðustu misseri og þá eink- anlega í hita kosningabaráttunnar flugu stundum hnútur á milli Alþýðublaðsins og Vilmundar. En ekki voru það föst skot, enda aðeins dægurþras milli aðila sem í raun stefna að sömu grundvallar- sjónarmiðum, þótt ágreiningur væri um vinnu- brögð. Jafnaöarstefnan hefur misst eldheitan hug- sjóna- og baráttumann við brotthvarf Vilmundar Gylfasonar. Það skarð verður vandfyllt. Vilmundur Gylfason lifði hratt og kom miklu í verk á skömmum tíma. Það.var hans stíll. Jafnað- armenn eru fátækari en áöur. En baráttan heldur áfram. Störf Vilmundar Gylfasonar munu um langa framtíð vera íslenskum jafnaðarmönnum hvati til framsóknar réttlætis og'jafnréttis. - Alþýðublaðið kveður samherja.. Blaðið sendir eiginkonu Vilmundar, Valgerði Bjarnadóttur, börnum þeirra, og ættingjum öðrum innilegustu samúðarkveðjur. - GÁS Fjórar sýningar # a Kjarvalsstöðum Prestastefnan: Lýsir stuðningi við baráttu Amnesty gegn pólitískum morðum „Prestastefna íslands, á Lúth- ersári 1983, minnir á hve margir meðbræðra okkar líða fyrir skoð- anakúgun og samviskufjötra. Því vekur hún athygli á baráttu Mar- teins Lúthers fyrir samviskufrelsi, — rétti mannsins til frjálsra skoð- anaskipta og lýsandi dæmi hans sjálfs í þeim efnum.“ Svo segir í ályktun prestastefnu um mannréttindamál. „Þessvegna lýsir prestastefnan 1983 yfir eindregnum stuðningi við baráttu Amnesty International gegn pólitískum morðum og kúgun stjórnvalda, hvar sem þau gerast í heiminum. Prestastefnan hvetur ís- lensk stjórnvöld til þess að styðja baráttuna fyrir samviskufrelsi á al- þjóðavettvangiý segir enn fremur í ályktuninni. Ríkisstjórnir um allan heim stunda bæði pyntingar og manndráp á þegnum sínum. Alþekkt er fyrirlitn- ing yfirvalda í Suður og Mið-Ameríku á mannréttindum. Myndin er af kennaranum Rafael Ntonío Carías, sem pyntaður var af öryggissveitar- mönnum í El Salvador á sinum tíma. Hann komst undan og hefur boriö vitni um hroðalegar pyntingar gegn föngum í landinu. En fáir eru jafn heppnir og hann. Fæstir lifa með- ferðina af.... Kjarval á Þingvöllum nefnist sýningin sem opnuð var á Kjarvals- stöðum síðustu helgi. Þar getur að lita 44 olíumálverk og vatnslita- myndir eftir Jóhannes S. Kjarval, sem hann málaði á Þingvöllum, aðallega á árunum 1929-1962. Flestar myndanna eru í einkaeign, og hafa margar þeirra ekki sést opinberlega fyrr. Kjarval tók að venja komur sínar til Þingvalla 1930 og eru mörg af ljúfustu og fegurstu verkum hans einmitt frá alþingishátíðarsumrinu. En Þingvellir er staður sem Kjarval kom alltaf aftur og aftur á, og er fróðlegt að rekja þær breytingar sem urðu á málverkum hans á þess- um nærri 40 ára tímabili. Sýningin er opin daglega kl. 14-22 í sumar. Aðgangur er ókeypis, en sýningarskrá er seld á kr. 20; í vestursal Kjarvalsstaða er sýn- ing Listmálarafélagsins, þar sýna 17 listmálarar verk sín. í vesturforsal er sýningin NÝ GRAFÍK, það er sýning fimm grafíklistamanna, sem luku námi við Myndlista- og handíðaskóla íslands nú í vor. Og í austurforsal sýnir Richard Valtingojer grafíska bók, Samald- in, ljóð eftir ellefu skáld með mynd- um eftir Richard. Hann hefur flutt grafík-pressu inn á sýningu sína á Kjarvalsstöðum og þrykkir þar fyr- ir gesti. Þrjár síðasta nefndu sýningarnar verða á Kjarvalsstöðum til 10. júlí. SKALHOLTSSKOLI Hringdu i sima 91-15015 og fáðu upplýsingar um skólann. ALMENNT KJARNANAM Umsóknarfrestur um skólavist er til 10. júlí. FJOLMIÐLABRAUT LEIÐTOGABRAUT MYNDMENNTABRAUT

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.