Alþýðublaðið - 03.12.1988, Blaðsíða 5

Alþýðublaðið - 03.12.1988, Blaðsíða 5
Laugardagur 3. desember 1988 5 UMRÆÐA Guðrún Konný Pálmadóttir skrifar „Svo má brýna deigt járn að bíti“ Á almennum fundi um verslunarmál i Dölum, kvaddi maður sér hljóðs og ræddi. hann stuttiega um verslun ís- lendinga erlendis. Nefndi hann tölur í þessu sambandi sem umhugsunarefni vegna þess fjármagns sem hann taldi streyma úr landi þegar íslendingar versla á erlendri grund. Vissulega voru orö þessa manns þarft umhugs- unarefni. En það var annað og meira sem ræðumanni lá á hjárta og var raunveruleg ástæða þess að hann kvaddi sér hljóðs — þvi ekki ræddi hann verslunarmál i Dölum. Ræðumaður vísaði í orð Jóns Sigurðssonar viðskipta- ráðherra á fiokksþingi Al- þýðuflokksins — vitnaði öllu fremur í umræður sem hann kvað hafa átt sér stað á Al- þingi þennan sama dag um orð Jóns Sigurðssonar. Þar sem ræóumaður taldi þessi ummæli eiga erindi til íbúa Dalasýslu sem byggðu af- komu sina að mestu á land- búnaði, vildi hann benda á ummæli Jóns Sigurðssonar sem væru þess efnis, að hann hefði kvatt fólk til þess að neyta ekki kinda- né hrossakjöts frá ofbeittum svæðum. Ræðumaður taldi þetta ámælisverð ummæli og hafði um þetta nokkur vel val- in orð. Hann lauk máli sínu á þann veg að hann teldi rétt að fundurinn mótmælti þeim harkalegu árásum á bændur og landbúnað sem hann taldi fólgnar ( oröum ráðherrans. Jafnframt lagði hann til að aðstandendum fundarins yrði falið að koma mótmælum á framfæri. Annar ræðumaður sem ræddi þetta mál, tók heils - hugar undir þessi orð og sagöi rétt, að fyrrnefnd um- mæli Jóns Sigurössonar heföu verið gagnrýnd á Al- þingi I dag, sem fréttir höfðu greint frá, og allir vissu að al- þingismenn færi ekki með fleipur á Alþingi. Þessi um- mæli væru sannarleg gagn- rýnisverð og lýsti vilja sinum til þess að fundurinn mót- mælti þeim. Þriðji ræðumaður kom fram með ábendingu þess efnis, að málshefjandi orðaði mál sitt f tillöguform sem lagt yrði fyrir fundinn. Fundarstjóri óskaði eftir skriflegri tillögu f þessu máli ef áhugi stæði til þess fund- urinn samþykkti eitthvað um þetta. Fjórði ræðumaöur kvaðst ekki hafa heyrt umræður á Alþingi um þessa hluti né heyrt umfjöllun af þeim — þess vegna ekki i stakk bú- inn til að taka afstöðu. Ræðumaöur sagðist þó hafa grun um að þessi orð við- skiptaráðherra væru hér slit- in úr samhengi við önnur mál, þ.e. umhverfismál. Varp- aði síðan fram þeirri spurn- ingu hvort fundarmenn teldu sig almennt tilbúna til þess að taka afstöðu í þessu efni þar sem e.t.v. væru þeir fleiri sem ekki vissu um hvað mál- ið snérist í heild sinni. Annar ræðumaður tók þá aftur til máls og kvað það vera alveg rétt að Jón Sigurðs- „Þar sem ég hafði hlýtt á rœðu Jóns Sig- urðssonar um umhverfismál á flokksþingi Alþýðuflokksins, gerði ég mér Ijósa grein fyrir því hvað bjó að baki þeim orðum sem ég taldi að rœðumenn vœru að reyna að vitna til. Ég vissi í hvaða samhengi þau orð voru sögð sem rœðumenn voru að basla við að vitna til og þá um leið úr hvaða sam- hengi þau voru slitin, “ segir Guðrún Konný m.a. í grein sinni. son hefði veriö að ræða um- hverfismál þegar hann hvatti fólk til þess að borða ekki þessar afuröir. En Dalasýsla væri ekki meðal þeirra svæða sem talin væru ofbeitt af bú- fé. Ræöumaður lagði til að ómaklegum ummælum Jóns Sigurðssonar um landbúnað yrði mótmælt af þessum fundi og þeim mótmælum komið á framfæri ( öllum dagblöðum landsins — þar á meðal í Alþýðublaðinu. Þá kom fram stutt athuga- semd þess efnis að líklegt mætti telja að neytendur þekktu kjöt frá ofbeittum svæðum frá öðru kjöti og e.t.v. væri það rétt aö orð Jóns Sigurðssonar sem hér væri vitnað til, væru slitin úr samhengi við önnur mál. Málshefjandi lýsti þá yfir, að því miður hefði hann ekki til taks orðrétt ummæli þessi og treysti sér þvi ekki til að orða neitt í skriflegri tillögu í þessu sambandi. Aörir tóku ekki til máls og fundarstjóri tók málið af dag- skrá en hvatti fólk til aö láta í Ijósi skoðanir sinar á öörum vettvangi. Þessi atburðarás af af- mörkuðu máli á fundi í Dala- sýslu sýnist í fljótu bragði ekki mjög merkileg — en gæti e.t.v. orðið innlegg í aöra atburðarás — síðar. HÉR SKAL UPPLÝST EFTIRFARANDI: 1. Málshefjandi þessarar um- ræðu á fundi þessum, um ummæli Jóns Sigurðssonar sem hann þóttist vitna til — er oddviti stærsta sveitarfé- lags sýslunnar — þunga- viktamaður í hópi sjálfstæð- ismanna í Dölum. » 2. Annar ræðumaðuar er oddviti næst-stærsta sveitar- félags sýslunnar — formaöur Búnaöarsambands Dalasýslu — fulltrúi Stéttarsambands bænda — fulltrúi á Búnað- arþingi og talinn meðal áhrifamestu framsóknar- manna í Dalasýslu. 3. Þriðji ræðumaður er virk félagskona Kvennalistans í Dölum. 4. Fjórði ræðumaður sem er undirrituð, er í hópi yfirlýstra Alþýðuflokksmanna í Dölum. Þaö skal ég fúslega játa hér og nú að talsverðrar sjálfsögunar þurfti við í mínu stutta tiltali um þetta mál. Þar vísaði ég til þess að hafa ekki heyrt umræður frá Al- þingi sem þarna var vitnað til né heyrt fréttir fjölmiðla þar af sem alveg var sannleikan- um samkvæmt. En ég sagði fundinum ekki það sem ég ætla nú að segja — því — „oft má satt kyrrt liggja“ — en — „svo má brýna deigt járn aö biti“. 1. Þar sem ég hafði hlýtt á ræðu Jóns Sigurðssonar um umvherfismál á flokks- þingi Alþýðuflokksins, gerði ég mér Ijósa grein fyrir þvi hvað bjó að baki þeim orðum sem ég taldi að ræðumenn væru að reyna að vitna til, þrátt fyr- ir að ég hefði ekki heyrt fréttir útvarps af umræð- um á Alþingi um málið. 2. Ég vissi í hvaða samhengi þau orð voru sögð sem ræðumenn voru að baslast við að vitna til og þá um leið — úr hvaða samhengi þau voru slitin. 3. Síðast en ekki síst voru ummælin ekki rétt eftir höfð — á þessum fundi um verslunarmál í Dölum. Ég ætla hér með að koma þeirri skoðun minni á fram- færi e.t.v. bæri okkur Dala- mönnum að þakka Jóni Sig- urðssyni og flokki hans fyrir þarflegar ábendingar um gróður og umhverfisvernd, sem líklega gætu orðiö til þess að lengur yrði lífvæn- legt í Dölum. Á meðan ræðumenn töl- uðu um nauðsyn þess að mótmæla árásum á bændur og landbúnað þá rann til- gangur þeirra upp fyrir mér og sá tilgangur var skýr og afdráttarlaus í mínum huga. Svo meðvitaðir voru þessir tveir pólitísku þungaviktar- menn í Dölum um eigiö vægi, að þeim fannst það hljóta að liggja í hlutarins eðli að orð þeirra og föður- legar ábendingar jafngiltu fundarsamþykkt. Þegar til kastanna kom féllu þeir á eigin bragði — treystu sér ekki til að vinna þau pólitísku skítverk — sem þeir þó ætl- uðu öðrum að vinna. En þeir þekkja sitt fag, blessaðir mennirnir og hafa sjálfsagt skynjað sin mikil- vægu hlutverk sem forystu- menn í héraði sinu. En svo mikið er víst að með orðum sinum voru þeir ekki að höfða til rökréttrar hugsunar, vitsmuna eða víðsýnis. Hér var verið að vísa til afmark- aðra hagsmuna þeirra, sem ræðumenn töldu sig geta haft hag af — i pólitiskum til- gangi. Hér var þekkingarleys- ið og hin pólitísku trúarbrögð notuð sem svo oft tíðkast í áróðri af þessum toga. Ræðumönnum hefði e.t.v. verið hollara að taka betur eftir þeirri ábendingu sem kom fram i máli eins af fram- sögumönnum fundarins þess efnis, að slæmt er að sjá ekki út fyrir túngarðinn, verra þó ef hann félli yfir menn. Min skoðun var og er sú að þessi umræða átti ekkert er- indi inn á fundinn með þess- um dæmalausa hætti og var beinlínis móðgandi við fund- arboðendurog fundarmenn sem í einlægni komu saman til þess aö ræða vanda versl- unar í dreifbýli — vanda verslunar og neytenda i fá- mennri byggð sinni. Hér mun ég skýra frá stað- reynd sem seint verður hrak- in eða umflúin. Þrisvar sinnum sáu fundar- menn ástæöu þess að skelli- hlæja undir þessari umræðu og er ég ekki að finna aö því að við sjáum spaugilegu hlið- ar mála — það skal skýrt tek- ið fram. En hvenær sáu fundamenn ástæðu til að hlæja? 1. Þegar fullyrt var að alþing- ismenn færu ekki meö fleipur á Alþingi. 2. Þegar lagt var til að fyrr- nefndum mótmælum fundarins yrði komiö á framfæri — i Alþýðublað- inu. 3. Þegar talað var um að ■ neytendur þekktu liklegast kjötið sem kæmi frá of- beittum svæðum. Þegar hláturinn hijóðnar, gefst vonandi tóm til þess, og væri raunar verðugt verk- efni okkar hvers fyrir sig, aö íhuga í hverju er fólgið þaö skopskyn fundarmanna sem birtist í hlátri þeirra og hér hefur verið sagt frá. Að lokum ber ég fram þá frómu ósk, með fullan skiln- ing á því að halda túngarðin- um í lagi — að forystumenn okkar fjallT af þekkingu og á málefnalegan hátt um það sem þeir hafa að segja. Við sem viljum sjá yfir túngaró- inn yrðum því þakklát. Við þurfum að fara að líta upp úr askinum okkar, Dala- menn, og hafa annan himin en asklokið. Guðrún Konný Pálmadóttir, Búðardal

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.