Alþýðublaðið - 05.01.1995, Blaðsíða 1
Miklar deilur innan Kvennalistans í Reykjavík vegna forvals:
Þingkonu hafnað - hörð
barátta um efstu sætin
A
Niðurstöður ekki einu sinni kynntar frambjóðenduni. Barátta milli Elínar G. Olafsdóttur og Þórunnar Svein-
bjarnardóttur. Ungu konurnar hóta að hœtta. Guðrún Halldórsdóttir þingkona úti í kuldanum.
„Ef Elín verður sett ofarlega á
listann en Þórunni ýtt til hliðar,
munu ungu konurnar einfaldlega
segja skilið við Kvennalistann. Við
getum ekki séð að Elín muni fiska
mikið af atkvæðum,“ sagði kvenn-
alistakona scm Alþýðublaðið
ræddi við í gær. Miklar deilur eru
nú meðai kvennalistakvcnna í
Reykjavík um framboðsmálin.
Forval Kvennalistans í Reykja-
vík fór fram í desember, en niður-
stöður hafa ekki verið kynntar og
frambjóðendur hafa ekki sinni
fengið að vita í hvaða sætum þeir
lcntu. Samkvæmt áreiðanlegum
heimildum Alþýðublaðsins hlaut
Kristín Ástgeirsdóttir afgerandi
kjör í efsta sætið, en lítill munur
var á næstu konum. Guðný Guð-
björnsdóttir varaþingkona mun
hafa lent í öðru sæti, Þórunn
Sveinbjarnardóttir í þriðja og Elín
G. Ólafsdóttir í fjórða. Guðrún
Halldórsdóttir þingkona náði ekki
einu af efstu sætum.
Samkvæmt heimildum blaðsins
innan Kvennalistans er nú unnið
gegn því að Þórunn skipi þriðja
sætið, og mun Kristín Ástgeirs-
dóttir þannig vilja að það komi í
hlut Elínar. Af samtölum við ung-
ar kvennalistakonur er Ijóst að
þær munu ekki sætta sig við það,
og hóta jafnvel að segja skilið við
flokkinn.
— Sjá umfjöllun á
baksíðu.
Þjóðvaki:
Sigurður Pétursson í
framboð fyrir vestan
Alþýdubandalagid í Reykjavík:
Kem ekki nálægt starfí
innan Alþýðubandalagsins
— segir Stefanía Traustadóttir varaþingmaður flokksins.
Þjóðvaki mun halda landsfúnd
sinn síðustu helgina í janúar. Þá verð-
ur gengið frá stefnuskrá hreyfingar-
innar og kosin stjóm. Einnig er þá ör-
uggt að ákveðið verði hverjir muni
skipa efstu sæti framboðslista hreyf-
ingarinnar við næstu alþingiskosn-
Fyrsta verk
fundarins
verður að
samþykkja
skipulag sam-
takanna, en
eftir því sem
Sigurður Pét-
ursson, sagn-
fræðingur og
fyrrum for-
maður Sam- Sigurður: Góðar lík-
bands ungra ur á að ég fari í fram-
jafnaðar - boð á Vestfjörðum.
manna segir,
er líklegt að 28 manns muni sitja í
landsstjórn, en 3 í framkvæmda-
stjóm, sem skipuð verði formanni,
ritara og gjaldkera. „Annars er þetta
ekki orðið fullljóst ennþá og mun
væntanlega ekki skýrasl fyrr en á
þinginu sjálfu,“ sagði Sigurður. Þá
verða og stofnaðar deildir T öllum
kjördæmum landsins, sem einstak-
lingar og félagasamtök geta átt aðild
að.
Lítið mun hafa gerst í framboðs-
málum samtakanna en skrifuð hafa
verið bréf til skráðra stuðningsmanna
og þeir beðnir um að koma með til-
nefningar. Það verða svo uppstill-
inganefndir sem vinna úr þeim. Eftir
landsfundinn verður formleg kosn-
ingabarátta hafin og sagði Sigurður
að hún yrði fyrst og fremst byggð á
málefnum og grasrótarvinnu, því
samtökin hefðu ekkert tjárhagslegt
bolmagn til að standa í einhverju aug-
lýsingaflóði á við gömlu flokkana,
sem fengju ógrynni fjár frá ríkissjóði.
Aðspurður um hvort að hann vildi
staðfesta þann orðróm sem verið hef-
ur á kreiki að hann færi í slaginn fyrir
hreyfinguna á Vestfjörðum, sagði
Sigurður að það væru góðar líkur á
því.
Enn virðist sundrung og óánægja
fara vaxandi innan Alþýðubanda-
lagsins í Reykjavík. Stefanía
Traustadóttir varaþingmaður flokks-
ins og fyrrverandi formaður Alþýðu-
bandalagsfélags Reykjavíkur sagði í
samtali við Alþýðublaðið í gær, að
hún myndi ekki koma nálægt nein-
um störfum fyrir Alþýðubandalagið.
„Það eina sem ég get sagt er að ég
geri ekki ráð fyrir að starfa mikið
fyrir Alþýðubandalagið á næstunni,*'
sagði Stefanía í gær þegar hún var
spurð hvoit það væri rétt að hún væri
á förum úr flokknum. Aðspurð um
ástæður þess að hún vildi ekki leng-
ur starfa með Alþýðubandalaginu
svaraði Stefanía:
„Það eru margar ástæður til þess.
Það má segja að það sem hefur verið
að gerast á undanfömum vikum sé
Stefanía: Margar ástæður fyrir þvi
að ég mun ekki starfa innan Al-
þýðubandalagsins.
kannski bara hlutur í ákveðnu ferli
frekar en að líta á það eitt og sér. Eg
er í starfi fyrir Álþýðubandalagið
innan Reykjavíkurlistans og geri ráð
fyrir að halda því áfram. En ég mun
ekki koma nálægt öðru starfi innan
félagsins eða flokksins á næstunni."
-Þú cetlar ekki að róa á önniir
mið?
„Eg er ekki að leita að símanúm-
erinu hjá Jóhönnu," svaraði Stefan-
ía.
I Alþýðublaðinu í gær segist Auð-
ur Sveinsdóttir arkitekt og varaþing-
maður vera að íhuga úrsögn úr Al-
þýðubandalaginu. Vitað er að fleiri
kunnir flokksmetin í Reykjavík eru
æfir yfir því að hætt var við prófkjör
fyrir val á framboðslista flokksins og
ýmislegt fleira sem þar hefur verið
að gerast.
Leirlistin útúr skugganum
Á laugardaginn verður opnuð að Kjarvalsstöðum sýningin Leirlist á íslandi. Þar sýna um 20 leirlistarmenn og
spannar sýningin allt frá upphafi leirlistar hérlendis árið 1930 til dagsins í dag. Eiríkur Þorláksson er sýningar-
stjóri þessarar sýningar. Hann segir i viðtali við blaðið að gerð nytjagripa hafi alltaf verið hluti leirlistar. Á sínum
tíma hafi togstreita verið í gangi hér og ekki þótt eins fínt að gera það sem kallast nytjagripi og önnur listaverk.
Það sé horfið í dag en leirlistin hafi þó verið svolítið í skugganum af öðru. Á myndinni er Eiríkur við verk eftir
Kristjönu Samper. A- mynd: E.ÓI. ★ Sjá umfjöllun og svipmyndir á blaðsíðu 7.
Utanríkisrádherra:
Mótmælir hernaði
Rússa íTétsjeníu
Jón Baldvin Hannibalsson
utanríkisráðherra hefur falið
sendiherra Islands í Moskvu að
koma athugasemdum á fram-
færi við rússnesk stjórnvöld
vegna hernaðar Rússa í Tétsjen-
íu. í tilkynningu frá utanríkis-
ráðuneytinu segir: „Utanríkis-
ráðherra harmar þau mann-
skæðu átök sem átt hafa sér stað
í Tétsjeníu í rússneska ríkjasam-
bandinu og afleiðingar þeirra á
líf óbreyttra borgara á því lands-
svæði. Utanríkisráðherra hvetur
jafnframt rússnesk stjórnvöld
eindregið til að leita friðsamlegra
lausna og leggur áhcrslu á sér-
stakt mikilvægi þess að grund-
vallar mannréttindi íbúa Tét-
sjeníu verði höfð í heiðri.“
Þjóðarvitund
íslendinga
Félag nýrra íslendinga heldur
sinn mánaðarlega félagsfund í
kvöld, fimmtudagskvöld, í Gerðu-
bergi. Gísli Gunnarsson dósent
flytur erindi sem nefnist Þjóðar-
vitund íslcndinga og söguskilning-
ur þeirra. Fundurinn hefst klukk-
an 20 og er öllum opinn. Hann fer
fram á ensku, en aðalmarkmið fé-
lagsins er að efla skilning milli
fólks af öllum þjóðernum, sem býr
á Islandi, með auknurn menning-
arlegum og félagslcgum samskipt-
um.
Alþýðublaðið í dag:
Hvenær sá
Jóhanna Ijósið?
Önnur sjónarmið 2
Árangur á erfiðum
tímurn
Leiðari 2
Sumir tala - aðrir
gera
Guðmundur Arni 3
Frambjóðendur á
Reykjanesi
Prófkjörsviðtöl 4
Síðasti smókur
New York-búa
Reykingar 6
Ósómi Hallgríms
Helgasonar
Lesendabréf 7
Stóraukinn ferða-
kostnaður HÍ
Frétt um ferðir 8