Vísir - 28.09.1976, Blaðsíða 10
10
Þriðjudagur 28. september 1976. VISIB
VÍSIR
(Jtgefandi: Iteykjaprent hf.
Framkvæmdastjóri: Daviö Guömundsson
Hitstjórar: Þorsteinn Fálsson, ábm.
Olal'ur Hagnarsson
Ritstjórnarfulltrúi: Bragi Guömundsson
Fréttastj. crl. frétta: Guömundur Pétursson
Blaðamenn: Anders Hansen, Anna Heiður Oddsdóttir, Edda Andrésdóttir,
Einar K. Guðfinnsson Jón Ormur Halldórsson, Kjartan L. Pálsson, Ólafur
Hauksson, Óli Tynes, Rafn Jónsson, Sigriður Egilsdóttir, Sigurveig Jóns-
dóttir, Þrúður G. Haraldsdóttir.
Iþróttir: Björn Blöndal, Gylfi Kristjánsson.
btlitsteiknun: Jón Óskar Hafsteinsson
Ljósmyndir: Jens Alexandersson, Loftur Asgeirsson.
Auglýsingastjóri: Þorsteinn Fr. Sigurðsson.
Dreifingarstjóri: Sigurður R. Pétursson.
Auglýsingar: Hverfisgötu 44. Simar 11660 8«61I
Afgreiösla: Hverfisgötu 44. Simi 86611
Hitstjórn: Siðumúla 14. Simi 86611.7 linur
Askriftargjald 1006 kr. á mánuöi innanlands.
1 lausasölu 50 kr. eintakið. Blaðaprent hf.
Upplýsingafullfrúa
í kerfið
Ýmis fyrirtæki og stofnanir hér á landi hafa i sinni
þjónustu blaðafulltrúa# menn, sem annast fyrir-
greiðslu við f jölmiðla og koma á framfæri fréttum og
fróðleik um viðkomandi fyrirtæki. Slíkir tengiliðir
fyrirtækjanna við f jölmiðlana og fólkið eru nauðsyn-
legir ef f jölmiðlunin á að geta gengið snurðulítið fyrir
sig.
Opinberar stofnanir hafa yfirleitt ekki slíka starfs-
menn i þjónustu sinni, en víða væri þörf á þvi. Blaða-
menn gætu þá leitað upplýsinga á einum stað hjá
þessum aðila og haft milligöngu um að koma þeim á
framfæri. Þess eru allt of mörg dæmi að embættis-
menn hins opinbera séu of önnum kafnir til þess að
hafa tíma til að sinna f jölmiðlafólki og svara spurn
ingum þess. Þess vegna m.a. gengur f jölmiðlunum oft
illa að fá svör við þeim spurningum, sem brenna á
vörum fólksins í landinu hverju sinni, en þær tengjast
ekki einum málaflokki frekar en öðrum.
Sú var tíðin, að ríkisstjórn Islands hafði starfandi á
sinum vegum blaðafulltrúa, og þótt ekki hafi allt
tekist vel hjá þeim siðasta, er þvi starf i gegndi, sýndi
það sig, að þörf er fyrir slíkan aðila. Að vísu er
starfandi blaðafulltrúi á vegum einnar stjórnar-
deildarinnar, utanríkisráðuneytisins, en þjónusta
hans snýr fyrst og fremst að erlendum frétta-
mönnum, sem hingað koma.
Þess er rétt að geta að nú i seinni tíð hafa ýmsir
opinberir embættismenn leitast við að veita fjöl-
miðlum greiðari aðgang en áður að gögnum og upp-
lýsingum ýmiss konar og er það vel. En þessir
skilningsríku menn, sem hafa tamið sér nútima
hugsunarhátt í stað þess að vera forpokaðir og ríg-
bundnir við gamlar leyndardómakreddur, eru því
miður of fáir ennþá. Aftur á móti ber að þakka það,
sem vel er gert og er i því sambandi skemmst að*
minnast mjög lipurra samskipta fréttastofnana og
dómarans í ávísanakeðjumálinu, sem markað hefur
jákvæða og skipulega stefnu gagnvart fjölmiðlum.
Eftir að settar verða fastar nútímalegar reglur um
upplýsingaskyldu stjórnvalda væri mjög æskilegt að
opinberar stofnanir kæmu á fót embætti blaða-
fulltrúa, sem gæti að nokkru leyti létt af ýmsum
embættismönnum stjórnsýslukerfisins þjónustunni
við fjölmiðlana.
Slíkir blaðafulltrúar ættu að hafa reglurnar sem
bakhjarl og þeim ætti að vera treystandi til þess að út-
vega tiltækar upplýsingar. Ef til vill hentaði betur að
nefna þessa menn upplýsingafulltrúa og binda starfs-
svið þeirra þá ekki eingöngu við miðlun til f réttastofn-
ana heldur gætu þeir annast almenna upplýsinga-
þjónustu ákveðinna stofnana og stjórnardeilda bæði
fyrir einstaklinga, stofnanir og fjölmiðla.
I ákveðnum tilvikum gætu upplýsingafulltrúarnir
haft frumkvæði um birtingu upplýsinga með því að
koma þeim til dæmis á framfæri við fjölmiðla, en
einnig ættu þeir að útvega þær upplýsingar og þau
gögn, sem beðið er um.
Með þessu móti ætti upplýsingamiðlunin frá hinu
opinbera kerfi að geta orðið mun fljótvirkari og auð-
veldari en nú er, þegar treysta þarf í mörgum til-
vikum á önnum kafna embættismenn, sem í mörg
horn þurfa að líta, og erfitt er oft að ná tali af jafnvel
dögum saman.
EINLÆGUR UNN-
ANDI LANDSINS
Ljósmyndasýning Gunnars
Hannessonar ó Kjarvalsstöðum
(Einar Hákonarson,
skrifar
v —
Gunnar Hannesson var gott
dæmi um mann, er fékk köllun i
lifinu, þaö geröist fyrir rúmlega
tiu árum. Aö mála islenskt
landslag var löngu þekkt fyrir-
bæri frá frumherjum islenskrar
myndlistar, margir hafa siöan
fariö i þeirra farveg meö mis-
jöfnum árangri. Gunnar haföi
veriö unnandi islenskrar
náttúru og feröast um landiö
þvert og endilangt um árabil áö-
ur en hann fékk sér fyrstu ljós-
myndavélina. Þaö varö upphaf-
iö aö þrotlausri myndatöku
næstu tiu árin.
Aö visu hlýtur Gunnar aö hafa
átt viö ýmsa byrjunaröröug-
leika aö striöa algjörlega ó-
menntaöur I ljósmyndatækni.
Fljótlega uppgötvar hann
möguleika tækisins og fyrir
meðfædda listgáfu og tilsögn
góðra manna, fara myndir hans
aö taka á sig æ sterkari svip
þjálfaös atvinnumanns.
Hann fer aö mála meö
myndavélinni, ef svo mætti aö
oröi komast, og býr yfir djúpri
tilfinningu fyrir myndefnum,
samfara næmi og þroska i
myndbyggingu, og siöast en
ekki sist sérstæðri og persónu-
legri túlkun á landi okkar. Þaö
færi betur ef fleiri menn bæru i
brjósti slikar heitar tilfinningar
til lands og þjóöar og Gunnar
heitinn geröi um ævina. Hann
reyndi aö lita bjartari hliöar til-
verunnar og meö þvi að sáldra
um sig jákvæöum viöhorfum til
samferðamanna. Ég var svo
heppinn aö starfa um stuttan
tima meö Gunnari, viö sögu-
sýninguna „ísland — Islending-
ar, þjóðhátiöarárið 1974.
Mér llður seint úr minni eld-
legur áhugi hans, sifellt vakandi
yfir nýjungum og hvernig
hlutirnir mættu best fara. Og
ekki tók hann nærri sér að
standa I salnum og útskýra
myndir sinar þrisvar I viku á
annan mánuö, slikur var áhug-
inn á aö opna fólki innsýn I
töfraheim Islenskrar nátturu.
Myndir Gunnars hafa farið
viöa um heim og veriö mikiö
notaöar til kynningar á okkar
fallega landi, og þar kom aö
honum var boðið aö sýna ljós-
myndir eftir sig I sýningarsal
Nikon House I New York siöast-
liöinn vetur. Það er mikill heiö-
ur og draumur flestra ljós-
myndara. Þvi var þaö ánægju-
legt aö Gunnari skyldi hlotnast
þessi heiöur, áöur en hann
kvaddi þetta jarölif.
Hann hefur reist sér stórbrot-
inn minnisvarða I formi Ijós-
mynda sinna og ég vona aö hann
verði varöveittur vel.
Sýningin aö Kjarvalsstööum
er gullfalleg og öllum til sóma,
sem aö henni hafa staöiö.
Heimaeyjargos
Hljómskálinn i Reykjavik
t
* T-... Á
i. _ lTi | no m i
L&j Aí -i 7 * ** Sk*' S*" -"""r