Vísir - 07.01.1977, Blaðsíða 17
p
Nigel Watson, Sólveig Halldórsdóttir og Inga Bjarnason í hlutverkum sinum í Fröken Júlía alveg óð.
Tilraunaleikhús á ferðinni
All-nýstárlegt verk veröur
frumsýnt i kjallara Æskulýðs-
ráðs að Frikirkjuvegi 11 á
sunnudaginn. Hér er á ferðinni
stilfæring á leikritinu Fröken
Júlia eftir Strindberg.
Nigel Watson og Inga Bjarna-
son hafa unnið sl. 5 ár i Triple
Action Theatre, einu af leiðandi
tilraunaleikhúsum Englands,
sem leikarar, leikstjórar og
bókmenntaráðunautar. Leikhús
þetta fæst við tilraunasýningar
á klassiskum texta, frá Sófó-
klesi til Shakespears og Byrons
og leitast við að skapa nýjan
leikstil.
A þessu 5 ára timabili hafa
viðfangsefnin ávallt snúist um
leikrit i bundnu máli. Snemma
vors 1976 vaknaði áhugi Nigels
og Ingu á að kanna möguleika
hins óbundna máls til grund-
vallar spuna (improviseringu)
á uppbyggingu sýningar i hin-
um nýja leikstfl, sem má likja
að nokkru við nútima dans eða
látbragð.
Fyrir valinu varð Fröken Júl-
ia Strindbergs. Leikritið sem nú
verður frumsýnt er unnið i hóp-
vinnu úr verki Strindbergs,
Bibliunni og nokkrum islensk-
um söngvum og heitir það Frök-
en Júlia alveg óð. Textinn er
bæði á ensku og islensku.
Inga Bjarnason leikur Júliu,
Nigel Watson leikur Jean, og er
hann jafnframt leiðari sýn-
ingarinnar, og Sólveig Halldórs-
dóttir leikur Kristinu. Sólveigu
fengu þau Inga og Nigel til liðs
við sig eftir að hafa séð hana i
sýningum Nemendaleikhússins.
Aðstandendur sýningarinnar
vonast til þess að hún sé að-
gengileg fyrir allan almenning,
þar sem hún sé ekki siður ætluð
fyrir augað en eyrað.
Miðasala hefst 7. janúar i
kjallara Æskulýðsráðs og stend-
ur kl. 5-7.
Sýna í Gallerí Sólon íslandus
Úr Galleri Sólon Islandus.
Mynd :SÁ
Samsýning aðstandenda
Galleris Solon Islandus stendur
enn, en nokkur verk hafa verið
tekin út og öðrum bætt við.
13 listamönnum utan hópsins
var boðið að taka þátt i sýn-
ingunni og eru nú i Galleriinu
m.a. verk eftir Þorvald Skúla-
son, Þórð Hall, Braga Ásgeirs-
sson, Hörð Agústsson og Hring
Jóhannesson. Auk þess eiga
allir aðstandendur Gallerisins
verk á sýningunni, en þeir eru
þau Aðalsteinn Ingólfsson,
Gunnar örn Gunnarsson, Kol-
brún Björgólfsdóttir, Kristján
Kristjánsson, Leifur Breiðfjörð,
Magnús Kjartansson, Steinunn
Bergsteinsdóttir, Sigurður
örlygsson, Steingrimur E.
Kristm undsson, Þorbjörg
Þórðardóttir og örn Þorsteins-
son.
Á sýningunni eru nú um 80
verk, málverk, grafik, textil og
keramik og stendur hún út
þennan mánuð. Eftir að þessari
sýningu er lokið, verður opnuð
sýning á smámyndum eftir
Kristján Daviðsson. Galleriið er
opið kl. 2-6 virka daga nema
mánudaga ogkl. 2-10um helgar.
Sigríður Ella tyllir
við tá á íslandi
— og syngur með Simon Vaughan
á tónleikum í Austurbœjarbíói
á laugardaginn
„Þetta er ekki i fyrsta skipti
sem við Simon Vaughan syngj-
um saman. Fyrir tveim árum
fórum við út um land og sungum
þá á Húsavik, Egilsstöðum og
Akureyri, en auk þess höfum
við oft sungið saman erlendis”,
sagði Sigriður Ella Magnús-
dóttir, óperusöngkona i samtali
við Visi.
Sigriður Ella og Simon
Vaughan halda tónleika i
Austurbæjarbiói á laugardaginn
kl. 14.30. Undirleikari þeirra
verður Ólafur Vignir Albertsson
pianóleikari.
A efnisskránni eru bæði ein-
söngslög og dúettar, kunn þýsk
þjóðlög, óperudúettar og lög
m.a. frá Frakklandi, Italiu og
Islandi. Aðspurður sagði Simon
Vaughan hann héldi mest upp á
dúett eftir Sanson af þvi sem á
efnisskránni.
„Þetta hjarðljóð er eitt af þvi
besta sem við fundum”, sagði
hann, ,,en ég er lika mjög hrif-
inn af islenska ljóðaflokknum.
Hann er eftir Pál Isólfsson og
hefur aldrei verið sunginn áð-
ur”.
Millilending
Sigriður Ella hefur sungið
viða, bæði hér heima og erlend-
is. Hún er um þessar mundir bú-
sett i London, en er hér heima i
stuttu leyfi. I mánaðarlokin
heldur hún i söngferð til Banda-
rikjanna og Kanada.
„Mér finnst alltaf mest gam-
an að koma heim, en þó held ég
að mér leiddist ef ég væri ekki á
ferðinni”, sagði hún.
„En það er eiginlega ómögu-
legt að vera búsettur hér á
landi, þegar maður er að syngja
út um allar jarðir. Þetta er svo
langt að fara og ferðirnar dýrar.
Á Islandi er ekki hægt að lifa af
þvi einu að syngja. Þeir allra
bestu geta það ekki einu sinni.
Ég var hérna heima i fyrravet-
ur á meðan ég söng i Carmen og
þá kenndi ég með. Mér er eftir-
sjá að nemendum minum, en
kennslan er afskaplega bind-
andi.
Fjórða ferðin til islands
'Simon Vaughan hefur komið
hingað til lands fjórum sinnum
og þá sungið bæði i útvarp og
sjónvarp. Einnig lék hann hlut-
verk nautabanans á nokkrum
sýningum Carmen i Þjóðleik-
húsinu sl. ár. Simon starfar sem
söngvari i London og m.a. mun
hann á næstunni syngja i tveim-
ur óperum i London.
Þá er Simon einnig að búa sig
undir nokkra tónleika á tónlist-
arhátið i London i april.
Miðar á tónleikana verða
seldir i bókaverslun Sigfúsar
Eymundssonar og i Austurbæj-
arbiói við innganginn.
Sigriður Ella Magnúsdóttir og Simon Vaughan æfa fyrir tónleik-
ana á hcimili Sigriðar. Mynd: JA
VINSÆLDIR SABINU
HAFA EKKI DVÍNAÐ
Leikfélag Akureyrar hefur að
undanförnu haft leikritið
„Sabina”, eftir Hafliða Magnús-
son, til sýningar við ágætar und-
irtektir. Þvi er ætlunin að halda
sýningum á þvi áfram um sinn.
Þetta er söngvaleikur og sér
Ingimar Eydal um útsetningu og
undirleik, en Saga Jónsdóttir um
leikstjórnina. I leikritinu eru fjör-
ugir og kraftmiklir söngvar og
hafa sumir útvarpshlustendur ef-
laust heyrt þá fljóta eftir öldum
ljósvakans. Leikendur eru 11 og
með aðalhlutverk fara Þórir
Steingrimsson, Heimir Ingimars-
son, Gestur E. Jónasson, Aðal-
steinn Bergdal og Ása Jóhannes-
dóttir, en alls starfa um 17 manns
við sýninguna.
Fyrsta sýning á „Sabinu” eftir
áramótin verður núna i kvöld kl.
20:30 og svo aftur á sama tima á
sunnudagskvöldið.
Ása Jóhannesdóttir og Aðalsteinn Bergdal i Sabinu.
A veggnum að baki Sigfúsar eru
myndir af foreldrum hans og
Laufásvegi 47, þar sem hann
fæddist og ólst upp.
Mynd: JA.
Sungið á léreft
„Þetta er fyrst og fremst mál-
verkasýning, en þó verður af og
til eitthvað flutt af lögum eftir
mig. Jú, það má búast við að
eitthvað af þeim verði ný lög”,
sagði Sigfús llalldórsson list-
málari og lagasmiður i samtali
við Visi.
Sigfús opnar á morgun sýn-
ingu að Kjarvalsstöðum á 137
verkum, sem flest eru til sölu.
Myndirnar eru flestar málaðar
á siðasta ári og er meðal þeirra
að finna oliumyndir, vatnslita-
myndir, myndir teiknaðar með
japanskri oliukrit og blýants-
teikningar.
„Þessar myndir eru málaðar
allt frá Núpsstað að Reykjanesi
og mikið af þeim er úr Borgar-
firðinum. Ég hef mikið unnið
eftir frumdráttum, sem ég hef
gert á ferðum minum um land-
ið. Sumir þeirra eru mun eldri
en myndirnar. Til dæmis er
þessi mynd af húsunum við
höfnina i Reykjavik nýmáluð,
en þó er kolakraninn á henni”.
„Það voru leiktjöldin við
leikritið Hallsteinn og Dóra eftir
Einar H. Kvaran i uppfærslu
sem gerð var á Blönduósi. Þetta
leikrit er að þvi leyti draumur
allra leiktjaldamálara aö það
gerist einhvers staðar i tilver-
unni.
Hin leiktjöldin sem ég er með
hérna eru öll úr „Igor fursta”,
eftir Borudin, en sú ópera hefur
ekki verið sýnd hér.”
Sýning Sigfúsar Halldórsson-
ar að Kjarvalsstöðum verður
opin til 16. janúar.