Vísir - 13.12.1978, Blaðsíða 16

Vísir - 13.12.1978, Blaðsíða 16
16 MiOvikudagur 13. desember 1978 VÍSIR LÍFÖGUST LÍF OG LIST LÍF OG LIST LÍF OG LIST LÍF OG LIST PÓKÓK PÖKÓK Sýning Leikfélags Þorláks- liafnar Leikstjóri: Kristbjörg Kjeld Leikmynd: Gylfi Gíslason ÞaB bar svo viB um siö- ustu helgi, aB hér á höfuB- borgarsvæöinu voru sýnd samtimis tvö verk eftir Jökul Jakobsson. Pókók og Sonur skóarans og dóttir Leiklist bakarans, fyrst og siöasta verkhöfundar. Þegar maö- ur ber saman þessi tvö leikrit, kemur á daginn, aö þau fjalla bæöi um þaö sama: ofurvald pening- anna, um þaö, hvernig ágirndin drepur niöur allt siöferðisþrek mannanna og hver og einn hugsar um þaö fyrst og fremst aö bjarga sinu eigin skinni. Munurinn er þó sá, aö 1 hinu fyrra, eins og reyndar i flestum íeikritum Jökuls fram á seinustu ár, tekur höfundur enga skýra af- stööu. Hann greiöir fag- mannlega úr hinum ýmsu leikfléttum og hnútum, en bendir ekki á neina alls- herjar lausn eöa leiö. Þaö er ekki fyrr en nú I Syni skóarans, aö hann talar af sannfæringu. Hann gengur svo langt aö sprengja viöurstyggöina i loft upp og fyrirfara sjálfum sér um leiö. 1 Pókók er afstaöa hans kæruleysisleg, jafnvel hót- fyndin. Eini heiöarlegi maöurinn f leikritinu gerist glæpon til þess aö ná ástum forstjóradótturinnar, vondi maöurinn er tekinn fastur, en sá góöi, sá sem svindlar á lögmætan hátt, sleppur, eins og reyndar alltaf i lif- inu sjálfu. Leikritiö allter skrifaö af miklum gáska og unglinga- gleöi, og þaö er uppfullt af þessum dásamlegu fimm- aurabröndurum, sem Jökli einum var svo lagiö aö fara meö. Þáö minnir um margt á Túskildingsóperuna eftir Bertold Brecht, fjallar um tvenns konar glæpamenn, þá viöurkenndu, sem enda alltaf á Litla Hrauni, og svo hina, sem smeygja sér fram hjá lögunum og ráða öllu i þjóöf élaginu. Fordekruö dóttir forstjór- ans fellur fyrir vonda manninum og lendir 1 ilti- stööum viö dræsuna, barnsmóöur hans. Skúrk- arnir eru góölátlegir, þann- ig aö maöur hefur samúö meö þeim og finnst þeir eigi allt þaö besta skiliö. Þaö var vel til fundiö aö sýna Pókók einmitt núna, þó aö þaö heföi óneitanlega verið meira gaman aö sjá atvinnuleikara i hlutverk- um. Áhugamannaleikhús getur eöli sínu samkvæmt aldrei ortiö annaöog meira en yfirborösleg uppákoma, þar sem leikarinn er fyrst og fremst aö leita sér afþreyingar og skemmta sjálfum sér. Þaö þarf margra ára skólun til þess aö skilja, aö þaö aö leika er annaö og meira en aö standa uppi á sviöi og þylja utanbókar rulluna sina. Til þessaö gæöa persónu lffi er nauösynlegt aö finna hana fram i fingurgóma og vera en ekki leika. Góöur leik- stjóri getur gert mikiö gagn, en hann gerir ekki kraftaverk. Kristbjörg hef- ur lagt sig alla fram, en timinn er of naumur til þess aö ná fram hinu fag- mannlega. Nú, en fólk, sem leikur sér til afþreyingar og i ihlaupum fer varla fram á alvörugagnrýni. Þó má geta þess, aö ýmsir sýndu töluverö tilþrif. Ingi Inga- son átti góöa spretti i for- stjórahlutverkinu, og þaö maöur. Læt mér nægja aö vera i Félagi isienskra Bifreiöaeigenda”, sagöi Steingrimur Sigurösson. Hann opnar sina fertug- ustu sýningu á föstudags- kvöld klukkan 20:30, og stendur sýningin til 22. desember. „Ég hef haldiö sýningar heima og erlendisfjörutiusinnum á tólf árum. Annars má kannski segja aö þetta sé 41. sýningin, þvi ég opnaöi einu sinni tvisvar sinnum sýningu á sama degi. Þaö var á tsafiröi. Tveimur timum eftir aö ég opnaöi sýninguna, birtust einhverjir tveir menn og sögöu mér aö fara út meö myndirnar. Af hverju veit ég ekki. Þaö voru svo vinsamlegir aöilar sem bentu mér á bókasafniö á staönum, og M þar opnaöi ég aftur um kvöldiö”. Steingrimur sýnir yfir 50 myndir aö þessu sinni, allar nýjar og flestar til sölu. Margar myndirnar eru úr Reykjavik, meöal annars frá Gólanhæöum, eins og Steingrimur kallar Breiöholtiö. — Afkastamikill sýningamaöur? „Nú, ég læröi aö vinna á Vísi og á sjónum fyrir vestan. Svo læröi ég tölu- vert af Vestmannaeying- um, þar sem ég sýndi einu sinni. Mig langaöi einu sinni til aö búa þar, ég kann einkar vel viö þá þjóð. En þess I staö fór ég til Stokkseyrar. Nú er ég kominn til Reykjavikur, og mér finnst ég kominn heim eftir sex ár. Mér þykir vænt um borgina”. EA Steingrfmur meö mynd sina sem hann máiaöi þegar hann var I Vigur viö isafjaröardjúp nokkra daga i sumar. M.a. sér til fjallsins Kofra. Ljósm. GVA. „Ég er slœmur félogsmaður — lœt mér nœgja FÍB!” Steingrímur Sigurðsson opnar sýningu á Kjarvaisstöðum ,,Ég ætla aö opna um. Ég erekki i félaginu. sýningu ð Kjarvalsstöö- Ég er slæmur félags- Kristbjörg Kjeld leikstjóri og Gylfi Gislason leiktjalda- smiöur á æfingu sama má segja um Kjart- an Guðmundsson, sem er þó kannski einum of glæsi- legur til þess aö vera sann- færandi utanveltubésefi. Bergþóra Arnadóttir hefur sjarmerandi rödd og henni tókst aö gæöa Gauju gæs mjög gæsarlegu lifi. Jökull hefur mikiö dálæti á sveita- stúlkum aö vestan og kem- ur þeim alltaf aö. Og hver ætti aö halda betur á þvi hlutverki en einmitt sveita- stúlka aö vestan meö ósvikinn vestfirskan fram- burö og hvaöeina, Halldóra Gunnlaugsdóttir. Fram aö hléi tókst aö halda uppi fjörinu, og bæöi leikendur og áhorfendur skemmtu sérprýöilega. Eftir hlé datt stemningin og menn fóru aö hiksta á tekstanum og veröa viöutan. En allt er gott þá endirinn er góöur, og voru viötökur hinar ágætustu, þótt ekki væri margt I salnum. Bryndis Scliram Skúldskapur mannlífsins ÁsifBæ: Skáldaöf sköröin. Myndskreyting bókar og kápu: Arni Elfar. Útgef. Iöunn, 1978. Sumar bækur eru gæddar svo manneskjulegri klmni og hlýju, aö lesanda finnst hann jafnvel ekki eins af- leit manneskja aö lestri loknum og áöur var. Ein slikra bóka er endurminn- inga Asa i Bæ, Skáldaö i sköröin. Þaö er jafnan einkenni slikra bóka aö láta ekki mikiö yfir sér, fá ekki aug- lýsingar af þvi tæi aö um heimsviöburöi sé aö ræöa, hrópa ekki hátt, heldur koma til manns meö nota- legu viömóti i skammdeg- inu. Þetta gerir bók Asa. Hún þykist ekki vera stór- brotinn skáldskapur — jafnvel alls ekki skáld- skapur, þvf titilinn skil ég Bókmenntir Heimir Páisson skrifar svo, að þar sé aöeins veriö aö leggja áherslu á að sannleikurinn sé afstæöur, þaö sem manni finnst sjálf- um vera sannleikurinn og ekkert nema sannleikur- inn, jafnvel allur sann- leikurinn, þaö getur veriö hlálegur skáldskapur og uppdiktun I augum annarra þátttakenda sömu viö- buröa. Samt er þessi bók skáldskapur á sama hátt og i Fjölbreyttur Skírnir Arsritin um islensk fræöi, Saga og Skirnir, koma nú, eins og vana- lega i miöju jólabóka- flóöi. En þótt útkomutimi þeirra sé ef til vill ekki hinn hentugasti eru þau alltaf fagnafengur. Skirnir er heil bók aö stærö og fjölbreyttur aö efni svo aö hér veröur aö- eins sagt frá lengstu rit- geröunum. Veröur þá fyrst fýrir grein Helga Þorlákssonar um 7 örnefni tengd land- námsmönnum. Þau eru Loömundur, Þrándur, Bjólfur, Geirólfur (fjöll) önundur(tindur) Þuriöur (drangur) og Náttfari (hóll). Helgi dregur fram mikinn fjölda hliöstæöra örnefna Islenskra og nor- rænna. Eru mörg þeirra a.mJc. hinna yngri vis- lega dregin af nöfnum sannsögulegra persóna, oghallast Helgi aö þvi aö svo muni einnig vera um þessi „landnámsmanna- nöfn”. Er hann þar meö kominn i andstööu viö náttúrunafnakenningu Þórhalls Vilmundarson- ar. Viröast mér rök hans sannfærandi aö þvl marki aö þessi 7 örnefni þarfn- ast ekki öörum fremur Tímarit Helgi Skúii Kjartans- son skrifar náttúrunafnaskýringar, þrátt fyrir sérkennilega myndun sina en þaö er raunar ekki mikil röskun á grundvelli náttúru- nafnakenningarinnar. Auk þessrifjar Helgi upp tormerki á þvi aö land- námsmenn hafa gleymst á 200 árum. Þá ritar Vésteinn Óla- son eins konar bókadóm i greinarformi um nýleg rit eftir Lars Lönnroth (um Njálu) og Preben Meulengracht Sörensen (um islenskar fornbók- menntir). Grein Vésteins er læsileg og einkar fróö- leg, ekki sist fyrir þaö aö hann lýsir nýstárlegum rannsóknum og kenning- um um munnlega sagna- skemmtun og tengsl hennar viö bókmenntir sem þeir Lönnroth og Meulengracht Sörensen byggja aö nokkru leyti á. Þetta form bókadóma hefur veriösjaldséö hér á landi, en ég tel þaö mjög hentugt, þegar jafnvel er á haldiö og hér hjá Vé- steini. Hrafnhildur Hreins- dóttir birtir hér niöur- stööur um könnun á bók- lestri og bókakaupum, sem gerö var meö þvi aö leggja spurningalista meöupplagi þriggja bóka og bárust yfir 2000 svör. Ritgeröin er full af tölum og töflum, og eru fróö- ieikskornin býsna mörg, þótt fá komi stórkostlega á óvarL Greinilega háir þaö rannsókninni aö ekki voru tök á aö prófa spurningalistann i for- könnun. Þá ritar Dagný Kristjánsdóttir túlkunar- grein um Svartfugl Gunn- ars Gunnarssonar. Hún vikur frá fyrri skýrend- um sögunnar i þvi aöal- lega aö hún telur lesand- ann ekki eiga aö taka fyrirvaralaust gildar skýringar sögumanns, séra Eyjólfe, heldur felist einmitt i sögunni ádeila á margt I fari hans. Dagný rekur af mikilli leikni, hvernig sagan liti út I þessu ljósi og veröur aö SKIRNIR, timarit Hins islenska bókmenntafé- lags. 152. ár. Ritstjóri Ólafur Jónsson. lestrarlokum að telja skýringu hennar snjalla og sannfærandi. 1 útlistun sinni gerir hún persónur sögunnar iöulega aö full- trúum stétta en liklega fengi skilningur hennar á hlutverki sögumannsins staöist jafnt fyrir þvi þótt fremur væri litiö á per- sónurnar sem fulltrúa óllkra einstaklingsörlaga en ekki vil ég fullyröa aö þaö sé réttara. Þá er ótaiiö efni eftir ritstjórann svo og W.M. Senner, Lýö Björnsson og Magnús Pétursson, auk nokkurra ritdóma sem allir fjalla um fræöibæk- ur. Væri aö visu gagnlegt ef Skirnir sæi sér fært aö dæma einnig skáldrit. —HSK Kvikmyndahúsin í Noregi: Kröfluggagn- rýni á mynda- val þeirra Hér á landi er mikiö kvartaö yfir þvi aö kvik- myndahúsin bjóöi upp á litiö úrval mynda. Þessi gagnrýni er jafnvel enn há- værari hvaö viövikur kvikmyndasýningum á landsbyggöinni. Viku eftir viku er ekki boöiö upp á annaö en þriöja flokks kvikmyndir. Væntanlega álfta ýmsir aö viö séum hér meö rétt eitt sérislenskt fyrirbrigöi. En svo er ekki. Frændur vorir Norömenn kvarta hástöfum yfir fá- tæklegu myndavaii norskra kvikmyndahúsa. Nýiega var kynnt I Noregi niöurstaöa af 4ra ára könnun sem var gerö á þeim kvikmyndum sem norsk kvikmyndahús bjóöa áhorfendum. „Norskur kvikmynda- markaöur er ofurseldur hagsmunum erlendra dreifingaraöila. Framboö til minni kvikmyndahúsa eb ömurlegt”, segir meöal annars i niöurstööum nefndarinnar. Nefndar- menn voru sammála um þetta atriöi, en hins vegar ekki um þaö hvernig mætti bæta úr þessu ástandi. Nefndin klofnaöi i fernt þegar kom aö tillögum um úrbætur. Fjðrar tillögur um úr- bætur Flestir nefndarmanna voru á þeirri linu aö halda bæri I núverandi fyrir- komulag, en vildu ná fram umbótum með rikisfram- lagi. Formaöur nefndarinnar og tveir aðrir nefndarmenn töldu aö réttast væri aö sveitarfélög I einstökum fylkjum rækju kvikmynda- LÍF OG LIST LÍF OG LIST LÍF OG LIST LÍF OG LIST LÍF OG LIST

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.