Morgunblaðið - 14.03.2001, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 14.03.2001, Blaðsíða 3
ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. MARS 2001 C 3  ARNAR Gunnlaugsson skoraði eitt þriggja marka varaliðs Leic- ester í fyrrakvöld þegar það sigraði Charlton, 3:1. Arnar skoraði þriðja markið með glæsilegu skoti beint úr aukaspyrnu rétt utan vítateigs.  FULHAM keypti í gær franska varnarmanninn Alain Goma sem leikið hefur með Newcastle. Kaup- verðið var 500 milljónir króna og er það hæsta sem Fulham hefur greitt fyrir leikmann. Honum er ætlað að fylla skarð Chris Coleman fyrirliða sem lenti í bílslysi í janúar og verður frá keppni í langan tíma.  OLIVER Bierhoff, fyrirliði þýska landsliðsins í knattspyrnu, er ekki tilbúinn til að ganga til liðs við Christoph Daum, fyrrverandi þjálf- ara Leverkusen, sem er nú kominn til Besiktas í Tyrklandi. Bierhoff, sem hefur mátt verma varamanna- bekkinn hjá AC Milan að undan- förnu, hitti Daum að máli í Istanbúl í sl. viku.  STEFAN Effenberg, leikstjórn- andi Bayern München, leikur ekki- með liði sínu gegn Arsenal í Evrópu- leik í München í kvöld. Hann tekur út leikbann.  HOLLENSKI landsliðsmaðurinn í knattspyrnu, Dennis Bergkamp, leikmaður með Arsenal, leikur ekki með liðinu gegn Bayern München. Bergkamp ætlaði að fara akandi til Þýskalands á mánudaginn en eftir að ljóst var að hann var meiddur – eftir bikarleik gegn Blackburn, var ljóst að Bergkamp myndi missa af leiknum í München sem hann ólmur vildi taka þátt í.  MIÐHERJAR Arsenal í München verða líklega Thierry Henry og Kanu.  JÓHANNES Harðarson lék allan leikinn með MVV Maastricht sem tapaði, 3:1, fyrir Haarlem í hollensku 1. deildinni í knattspyrnu um síðustu helgi.  OLEKSANDR Bagach, kúluvarp- ari frá Úkraínu, hefur verið dæmdur í ævilangt keppnisbann af Alþjóða- frjálsíþróttasambandinu vegna notk- unar á hormónalyfjum. Bagach hef- ur tvisvar sinnum orðið heimsmeistari í kúluvarpi og er nú- verandi Evrópumeistari. Hann var einnig gripinn fyrir fyrir notkun hormónalyfja árið 1989 og dæmdur í tveggja ára keppnisbann. Þá var hann árið 1997 sviptur gullverðlaun- um á HM í Aþenu eftir að hafa orðið uppvís að notkun á efedríni sem er örvandi lyf. Þá fékk hann þriggja mánaða keppnisbann. FÓLK Matthías Stephensen, Víkingi, var sigursæll á Íslandsmeistaramóti unglinga í borðtennis, sem fór fram í TBR-húsinu um sl. helgi. Hann varð fjórfaldur meistari – sigraði í einliðaleik, tvíliðaleik og tvenndarkeppni auk þess að fagna sigri í liðakeppninni.. Um 80 unglingar frá Garpi, HSÞ, ÍFR, KR, Stjörnunni og Víkingi mættu til leiks. Keppt var samtals í 16 flokkum. Liðsmenn Víkings voru sigursælastir, sigruðu í ellefu flokkum, KR fjórum og Stjarnan í einum. Víkingar fengu 36 verð- laun á mótinu, KR 15, Garpur tvö, HSÞ og Stjarnan ein. Hér á myndinni fyrir ofan eru Íslands- meistarar unglinga í einstökum flokkum: Aftari röð frá vinstri: Jóhanna Elíasdóttir, Víkingi, Krist- ín Hjálmarsdóttir, KR, Daði Guðmundsson, Víkingi, Matthías Stephensen, Víkingi, Óli Páll Geirsson, Víkingi, Tryggvi Rósmundsson, Víkingi, Halldóra S. Ólafs, Víkingi, Valgerður Benedikts- dóttir, KR. Fremri röð frá vinstri: Signý Pétursdóttir, Víkingi, Ágúst Jónasson, Stjörnunni, Magnea J. Ólafs, Víkingi og Skapti Jónsson, KR. Íslandsmeistarar unglinga í borðtennis Að sögn Ágústs er leitin að eft-irmanni hans hafin og nú þeg- ar sé búið að ræða lauslega við ákveðna aðila en ekkert sé frágengið í þeim efnum. „Það hefði verið skemmtilegra að ná lengra í vetur með liðið. Að mínu mati er réttast að einhver annar þjálfari taki við liðinu þar sem ég hef þjálfað áttatíu prósent af leik- mönnum liðsins síðastliðin sjö ár. Það má segja að ég og leikmenn liðsins hafi gott af því að fá hvíld hvorir frá öðrum en það er allt eins líklegt að ég þjálfi einhvers- staðar aftur eftir hvíldina,“ sagði Ágúst. Karl Jónsson snýr sér að uppbyggingarstarfi hjá KFÍ Þjálfari karlaliðs Körfuknatt- leiksfélags Ísafjarðar, KFÍ, Karl Jónsson ætlar ekki að halda áfram þjálfun liðsins. KFÍ leikur í 1. deild á næsta keppnistímabili en liðið endaði í neðsta sæti úrvals- deildarinnar í vetur eftir fimm ára veru í efstu deild. Í samtali við Morgunblaðið sagði Karl að hann ætlaði sér að beina kröftum sínu að uppbyggingarstarfi hjá KFÍ en hann myndi halda áfram þjálfun kvennaliðs félagsins á næsta keppnistímabili. „Það er komið að ákveðnum vendipunkti hjá félag- inu og ljóst að innra starf félagsins verður að hafa forgang á komandi árum en við erum bjartsýnir á framhaldið hjá KFÍ,“ sagði Karl. Líklegt þykir að leitað verði til þeirra Baldurs Inga Jónassonar eða Hrafns Kristjánssonar hvað varðar þjálfun karlaliðsins en þeir eru báðir menntaðir íþróttakenn- arar og hafa leikið með KFÍ und- anfarin ár. Jón Örn líklegast áfram hjá ÍR Líklegast er að Jón Örn Guð- mundsson geri nýjan samning við úrvalsdeildarlið ÍR í körfuknatt- leik. Jón Örn sagði í samtali við Morgunblaðið í gær að viðræður um nýjan samning væru ekki hafn- ar að svo stöddu en hann taldi lík- legast að hann myndi halda áfram þjálfun liðsins. ÍR sigraði í 1. deild síðastliðið vor og endurheimti þar með úrvalsdeildarsæti og liðið fagnaði langþráðum bikarmeist- aratitli í lok febrúar. Sameiningarmálin efst á baugi hjá Val/Fjölni Þar sem sameiningarmál íþróttafélagana Vals og Fjölnis eru ekki í höfn er ekki ljóst hvort Torfi Magnússon verði áfram þjálfari Vals/Fjölnis, en liðið féll í 1. deild eftir eins árs dvöl í úrvalsdeild. „Það hefur ekkert verið rætt um framhaldið á samstarfi okkar og ekkert ljóst í þeim efnum. Fyrst þarf stjórn körfuknattleiksdeildar Vals/Fjölnis að ganga frá lausum endum í sameiningarferli félagana tveggja", sagði Torfi í samtali við Morgunblaðið í gær. Landsliðsmaðurinn Herbert Arnarson gerði eins árs samning við Val/Fjölni s.l. haust en ólíklegt er að Herbert leiki með Val/Fjölni í 1. deild á næsta keppnistímabili. „Ég er að æfa með Val/Fjölni þessa dagana en ég veit ekki á þessari stundu hvert framhaldið verður hjá mér, sagði Herbert í gær. Herbert sagði ennfremur að hann teldi það ólíklegt að hann léki í annarri deild en úrvalsdeild á næsta keppnistímabili. Breytingar hjá körfuknattleiksliðum á Akureyri og Ísafirði Þórsarar leita að nýj- um þjálfara ÁGÚST Guðmundsson, sem hefur þjálfað úrvalsdeildarlið Þórs frá Akureyri í körfuknatt- leik sl. þrjú ár, verður ekki þjálf- ari liðsins á næstu leiktíð. „Ég var búinn að ákveða það snemma í vetur að taka a.m.k. eins árs frí frá þjálfun og ákvörðunin er gerð í mikilli sátt við félagið,“ sagði Ágúst í sam- tali við Morgunblaðið í gær. Eftir Sigurð Elvar Þórólfsson Reuters k fyrir Sheringham. Hér er hann í baráttu við Robert Ibertsberger. f- r ki ð r r r u d r r r u m - a . - r n m u r n ð n f t Heimamenn hikuðu, bjuggust við aukaspyrnu sem ekki kom en þess í stað brunuðu gestirnir upp og fengu vítaspyrnu. Ólæti á Parc des Princes Brasilíumaðurinn Christian kom PSG í 2:0 á móti Galatasaray með mörkum á 3. og 26. mínútu. Það lá því vel á heimamönnum en því verr á stuðningsmönnum tyrkneska liðsins og í upphafi síðari hálfleiks varð dóm- ari leiksins að stöðva hann þegar slagsmál brutust út á áhorfendapöll- unum og tveir áhorfendur klæddir sem stuðningsmenn Galatasaray hlupu inn á völlinn. Leikurinn var stöðvaður í rúmar 20 mínútur á meðan lögreglan skakkaði leikinn. Þetta var fyrsti sigur PSG í B-riðl- inum, mikilvægur sigur fyrir liðsheild- ina þrátt fyrir að liðið hafði í raun ekki að neinu að keppa. Vörn Deportivo var gríðarlega sterk í gær og samstillt. Tíu sinnum lék vörnin sóknarmenn AC Milan rang- stæða og Marino Helder átti stórleik, en hann kom inn á sem varamaður fyr- ir Mauro Silva á 23. mínútu. Francisco Molina átti einnig fínan leik í markinu, en hann þurfti nokkrum sinnum að taka á honum stóra sínum til að koma í veg fyrir að heimamenn skoruðu. Sjálfsagt verður lengi deilt um mark gestanna. Milan var í sókn og Serg- inho var um það bil að brjótast framhjá varnarmanni á vinstri vængn- um og komast að vítateignum þegar skórinn var traðkaður af honum. asta von a úr leik riðils Meistaradeildarinnar í knatt- Milan og Deportivo Coruna og PSG og ð Tyrkirnir voru efstir með 10 stig, þá og dugði sigur til að komast áfram á kið illa í deildinni og því bjuggust u í gær. Ieper komið í undanúrslitin HELGI Jónas Guðfinnsson og félagar í Ieper töpuðu í gærkvöldi 74:72 gegn Hainat en eru þrátt fyrir það komnir í undanúrslit í belgísku bik- arkeppninni í körfubolta þar sem liðið vann fyrri viðureign liðanna með 12 stiga mun. Helgi lék hálfan leikinn og skoraði fimm stig en hans aðalhlutverk var að taka helstu skyttu Hainat-manna úr umferð. Að- alhetja Ieper úr síðasta Evrópuleik var látin fara frá liðinu fyrir leikinn þar sem þjálfarinn taldi hann ekki passa í þá liðsheild sem hann hefur byggt upp. Það ætti þó ekki að koma að sök fyrir Ieper þar sem annar Bandaríkjamaður, Louis Rowe, er aftur orðinn leikfær eftir meiðsli.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.