Morgunblaðið - 29.01.2002, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 29.01.2002, Blaðsíða 34
34 C ÞRIÐJUDAGUR 29. JANÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐHeimiliFasteignir U M MIÐJA nítjándu öld var Jónasi Helgasyni járnsmið úthlutað lóð á þessum slóðum. Af ókunnum ástæðum afsalaði hann lóðinni til bæjarins og var henni þá úthlutað til Ólafs Þorkelssonar snikkara, sem byggði þar íbúðarhús úr timbri. Það var síðar kennt við Vigdísi Waage sem lengi átti húsið og bjó þar með dóttur sinni, Önnu Þorsteinsdóttur. Árið 1892 var eignin seld, þá skráð á dánarbú Önnu Þorsteinsdóttur. Kaupandi var Jón Þórðarson kaup- maður sem sama ár lét rífa húsið og byggði á lóðinni hús úr steini sem enn stendur. Lóðaviðbót fær Jón, ræmu með- fram Þingholtsstræti, jafn langa lóð sinni í maí 1893. Í september 1893 byggir hann timburskúr á lóðinni, 41⁄4 x 33⁄4 álnir að grunnfleti. Í maí 1897 fær Jón Þórðarson leyfi til þess að lengja íbúðarhúsið til austurs og er viðbótin byggð úr steini með sama frágangi og eldri byggingin. Sama ár byggir hann inngöngu- skúr úr timbri með skáþaki sunnan við húsið. Í desember árið 1897 er bruna- virðingin gerð á húsinu, þar segir að það sé 20 álnir á lengd, 12 álnir á breidd og 10 álna hátt, byggt af steini og tvílofta, með brotnu þaki, járnklæddu á súð með pappa í milli. Niðri í húsinu er sölubúð sem skipt er í tvennt, með hillum, skúff- um, borðum og skápum, allt þiljað og málað. Þar eru einnig tvö geymslu- herbergi, þiljuð en ómáluð. Í sölu- búðinni er einn ofn. Loftið yfir hæð- inni er tvöfalt. Á efri hæð eru fjögur íbúðarherbergi og eldhús. Allt þiljað og málað og með þreföldum loftum. Á efsta lofti eru fimm herbergi, öll þiljuð og máluð, þar er einn ofn. Kjallari er undir húsinu, hólfaður í tvennt. Við suðurhliðina er inn- og upp- gönguskúr með skúrþaki, byggður af bindingi, klæddur utan með járni og allur þiljaður að innan. Í júní kaupir Jón Þórðarson 60 álna lóðarspildu af Magnúsi Gunn- arssyni, Þingholtsstræti 3, til viðbót- ar við lóð sína. Hann fær leyfi til þess að byggja á lóðinni skúr, 9½ x 5 álnir að grunnfleti. Ári síðar tekur bærinn ræmu af lóðinni til breikkunar Þing- holtsstrætis. Tvíbýli Samkvæmt íbúaskrá frá árinu 1901 var tvíbýli í Þingholtsstræti 1. Á öðru heimilinu voru: Jón Þórðar- son, húsbóndi, kaupmaður og út- gerðarmaður, 47 ára, fæddur í Stóruvallasókn; Þorbjörg Gunn- laugsdóttir, kona hans, 44 ára, fædd í Breiðabólstaðarsókn í Fljótshlíð; Guðrún Runólfsdóttir, fósturdóttir hjónanna, 9 ára, fædd í Lágafells- sókn. Ennfremur Guðrún Gunnlaugs- dóttir, vinnukona, 43 ára, fædd í Breiðabólstaðarsókn; Halldór Kjart- ansson, hjú, 21 árs, fæddur á Siglu- firði og Gunnar Brynjólfsson, leigj- andi, 16 ára, fæddur í Kirkjuvogs- sókn. Á hinu heimilinu voru Jón Lúð- víksson, húsbóndi og verslunarmað- ur, 22 ára, fæddur í Kirkjuvogssókn; Lúðvík Jónsson, faðir hans, dag- launamaður, 51 árs, fæddur í Dals- sókn, flytur til Reykjavíkur frá Vall- arhúsum í Höfnum; Margrét Þórðardóttir, kona hans, 51 árs, fædd í Stóruvallasókn og Guðrún Jónsdóttir, leigjandi og saumakona, 35 ára, fædd í Staðarsókn. Árið 1907 byggir Jón sunnan við húsið. Byggingin virðist hafa gengið hratt fyrir sig því að eignin öll var brunavirt í nóvember sama ár. Þar segir að sunnan við húsið hafi verið byggð tvílyft viðbygging með skúrþaki (nýja húsið), 11 x 11 álnir að grunnfleti, byggð úr bindingi, klædd utan með plægðum 1" borðum og járni. Þakið er járnklætt á 1" plægðri borðasúð og með pappa í milli. Eldvarnarvegg- ur er að sunnanverðu. Innan á bindin á veggjum er pappi og milligólf í báðum bitalögum. Niðri í húsinu eru þrjú íbúð- arherbergi, eldhús, gangur og tveir fastir skápar. Herbergin og gangurinn eru með striga og pappa á veggjum og loftum og allt málað. Þar er einn ofn og ein eldavél. Kjallari 23⁄4 álnir á hæð, er undir allri útbyggingunni með stein- steypugólfi og hólfaður í tvennt. Við austurgaflinn er skúr byggður af bindingi með járni á þaki og hliðum. Eldvarnarveggur er að sunnan- verðu. Í skúrnum eru þrjú klósett og ein geymsla. Í sama skipti var steinhúsið virt. þá höfðu orðið þær breytingar að uppi eru fimm herbergi og gangur í stað fjögurra áður og þar eru tvær eldavélar. Á þriðja gólfi er sú breyt- ing að þar hefur verið gert eldhús með eldavél, gangur, tveir geymslu- klefar og þrír fastir skápar. Þar uppi eru þrjár eldavélar. Þá er getið um peningakassa í verslun sem var met- inn á 2.000 kr. Ein fyrsta verslunin fyrir austan Læk Talið er að í eldra húsinu (stein- húsinu) hafi verið stofnuð ein af fyrstu verslununum fyrir austan Læk. Ártalið 1892 er letrað fyrir ofan glugga á horni hússins á mótum Banka- og Þingholtsstrætis og í glugg- ana götumegin var letrað með gullnum stöfum „Verslun Jóns Þórðarsonar“. Laust fyrir aldamótin 1900 var að mestu leyti hætt að flytja inn kornið ómalað. Þá keypti Jón Þórðarson korn- mylluna í Bankastræti og not- aði hana fyrir geymslu. Myll- an var rifin 1902. Í september 1915 voru sett- ar dyr í vestur þar sem áður var verslunargluggi. Glugg- um á götuhlið hússins var breytt árið 1941 bæði Þingholts- og Bankastrætismegin. Viðbygging úr steinsteypu, 8 fer- metrar að grunnfleti, var byggð 1937, geymsla baka til við húsið. Í brunamati frá nóvember 1946 segir að verslunar- og íbúðarhúsið sé óbreytt frá mati 1944. En íbúðar- og hárgreiðsluhús, tvílyft sambygging, sé óbreytt að öðru leyti en því að nú sé hárgreiðslustofan á neðri hæð- inni, en uppi eru tvö herbergi, eld- hús, snyrting og gangur. Þvottahús er í kjallara. Í þessu mati var geymsluskúr með skáþaki óbreyttur frá mati 1944. Jón Þórðarson var frá Mörk í Landsveit. Þegar hann og kona hans fluttu til Reykjavíkur komu þau að austan á tveimur hestum og settust að í Ártúni rétt austan við Elliðaár. Fljótlega fóru þau hjón að selja veit- ingar en í Ártúni var mikill gesta- gangur. Sveitafólk sem erindi átti til Reykjavíkur kom þar gjarnan við og einnig þeir sem fóru úr bænum. Brautryðjandi í verslun Jón var brautryðjandi í íslenskri verslun og mikill áhugamaður um iðnað, kom á fót pylsugerð og nið- ursuðu og reisti fyrsta (eða með fyrstu) sláturhúsið í Reykjavík, en það var í Þingholtsstræti 1. Í versl- uninni var verslað með allar innlend- ar afurðir. Jón Þórðarson byggði húsið Bankastræti 10 og hafði þar verslun. Árið 1908 keypti Sláturfélagið pylsugerðina af Jóni og var hún þá rekin af Matardeildinni sem síðar rak sölubúð í Bankastræti 10 en Sláturfélagið leigði húsnæðið af Jóni Þórðarsyni. Jón hafði fram að þeim tíma rekið mikla fjárverslun fyrir bændur. Tómas Jónsson, sem um skeið starfað hjá Jóni Þórðarsyni, keypti síðan þessa verslun af Slát- urfélaginu en flutti hana seinna að Laugavegi 2. Á sumrin geymdi Jón nautgripi úti í Örfirisey. Þegar átti að slátra fór hann fótgangandi og sótti naut og teymdi það í gegnum bæinn. Komu þá væntanlegir kaupendur og pönt- uðu þann part af nautinu sem þeir vildu fá. Oft var allur tuddinn upp- pantaður áður en honum var slátrað. Jón Þórðarson var vandaður mað- ur, hörkuduglegur og prúður í um- gengni. Hann lést langt um aldur fram árið 1911. Ekkja hans, Þor- björg Gunnlaugsdóttir, bjó áfram í húsinu þar til hún lést 1931. Sonur þeirra, Þórður Jónsson, tók við verslunarrekstrinum með móður sinni og öðrum rekstri sem faðir hans hafði verið með. Kona hans var Þóra Jónsdóttir frá Skipholti í Reykjavík. Þau hjón bjuggu í húsinu ásamt fjölskyldu sinni. Sonur þeirra, Jón Þórðarson og kona hans Mar- grét Sæmundsdóttir, tóku síðan við rekstrinum. Jón og Margrét bjuggu einnig í húsinu til ársins 1967, þar til rekst- urinn var fluttur inn á Laugaveg 81. Eftir það voru afkomendur Jóns Þórðarsonar eldri og Þorbjargar Gunnlaugsdóttur ekki með atvinnu- rekstur eða heimili í húsinu. Jón Sævar Þórðarson þróttakenn- ari, langafabarn Jóns Þórðarsonar, ólst upp í Þingholtsstræti 1. Frá barnæsku sinni eru honum Þingholtsstræti 1 Húsið var upphaflega byggt 1892. Það er verð- ugur fulltrúi fallegra steinbygginga þeirra tíma, segir Freyja Jóns- dóttir. Það er hlaðið úr grágrýti og hefur mjög verið vandað til bygg- ingar þess. Jón Þórðarson yngri Margrét Sæmundsdóttir Laust fyrir aldamótin 1900 var að mestu leyti hætt að flytja inn kornið ómalað. Þá keypti Jón Þórðarson kornmylluna í Bankastræti og notaði hana fyrir geymslu. Myllan var rifin 1902. Húsið var byggt sem verslunar- og íbúðarhús. Það er hlaðið úr grágrýti og vel hefur verið vandað til byggingar þess.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.