Morgunblaðið - 28.03.2002, Blaðsíða 12
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
12 FIMMTUDAGUR 28. MARS 2002 MORGUNBLAÐIÐ
MIÐBORGIN verður aldrei
aftur sá verslunarkjarni sem
hún var, heldur gegnir hún
nú hlutverki mannlífsmið-
stöðvar. Þetta kom m.a. fram
í máli Ingibjargar Sólrúnar
Gísladóttur borgarstjóra á
aðalfundi Þróunarfélags mið-
borgarinnar á þriðjudag.
Kaupmenn við Laugaveg
segjast gáttaðir á ummælum
borgarstjóra og söfnuðu í
gær undirskriftum vegna um-
mælanna og þeirrar stefnu
sem þeir telja að þau marki í
þróun miðborgarinnar.
Framkvæmdastjóri Þróunar-
félagsins, Einar Örn Stefáns-
son, segir að Laugavegurinn
og Skólavörðustígur verði
áfram verslunargötur sem
þurfi að efla. Kvosin hafi hins
vegar fengið nýtt hlutverk
þótt enn séu þar nokkrar
sterkar verslanir.
Verslun hrakin
úr miðbænum
„Það eru allir gáttaðir á
ummælunum og hvert hún er
að fara með þeim,“ sagði Jón
Sigurjónsson, eigandi versl-
unarinnar Jóns og Óskars við
Laugaveg, sem ásamt fleiri
verslunareigendum í mið-
bænum stóð fyrir undir-
skriftasöfnun í gær. „Þetta er
kannski stefna R-listans, að
gera miðborgina okkar að því
sem borgarstjóri kallaði
mannlífsmiðstöð. Við teljum
nú að það hljóti að vera gott
að hafa verslanir þar sem
mannlíf er, en hún er í raun
að hrekja alla verslun í burtu
með þessari hugmynd sinni.“
Verslunarfólk á Laugavegi
mótmælti ummælum borgar-
stjóra með söfnun undir-
skrifta í gær og hvatti borg-
aryfirvöld til að stöðva
undanhaldið og hefja nú þeg-
ar öflugt uppbyggingarstarf í
miðborg Reykjavíkur. Í þeim
texta sem verslunarfólk skrif-
aði undir segir að kaupmenn
við Laugaveg lýsi undrun
sinni á ummælum borgar-
stjórans. „Ummælin lýsa
ótrúlegri skammsýni á mik-
ilvægi verslunar við uppbygg-
ingu miðborgarinnar og fjöl-
breyttara mannlífs í
borginni.“ Þá segir að um-
mælin séu ekki líkleg til að
hvetja kaupmenn né aðra
fjárfesta til þess að taka þátt
í uppbyggingu miðborgarinn-
ar. „Þau lýsa dæmalausum
doða og dugleysi sem því
miður hefur ríkt um málefni
miðborgar Reykjavíkur alltof
lengi.“
Fulltrúar fimmtán verslana
við Laugaveg skrifuðu undir
listann í gær. Gunnar Guð-
jónsson hjá Gleraugnamið-
stöðinni segir það sýna að
fjölda kaupmanna hafi brugð-
ið við ummæli borgarstjóra.
„Þetta er almenn skoðun
kaupmanna. Listinn styður
okkur í því.“
Ummælin eiga
við Kvosina
„Þessi orð borgarstjóra
eiga við Kvosina og auðvitað
er það rétt sem hún segir að
miðborgin dragi að sér fólk
vegna ýmislegrar annarrar
starfsemi en verslunar,“
sagði Einar Örn. „Fólk upp-
lifir borgarkjarna á ýmsan
hátt og nýtur hans vegna
mannlífs og sögu. Það má
segja að Kvosin verði ekki
sami verslunarkjarni að nýju
og hún var, en Laugavegur-
inn og Skólavörðustígurinn
munu halda sínum sessi sem
aðalverslunarsvæði miðborg-
arinnar. Verslunin er og
verður ríkur þáttur í mið-
borgarlífinu, hún er það sem
dregur fólk að í öllum mið-
borgum, líka hér á landi. Auð-
vitað spilar þetta allt saman;
verslun, sögulegar bygging-
ar, söfn, veitingahús og
stjórnsýsla. En fyrst og
fremst kannski mannlífið
sjálft.“
Einar Örn segir að sama
þróun hafi átt sér stað í borg-
um víða um heim. „Verslun-
arhættir eru að breytast og
mannlífið breytist með. En
það verður alltaf verslun í
miðborgum, hún er stór hluti
þess aðdráttarafls sem þær
hafa.“ Þróunarfélag miðborg-
arinnar er hagsmunasamtök
atvinnurekenda og íbúa í mið-
borg Reykjavíkur. Hlutverk
félagsins er að efla miðborg
Reykjavíkur sem miðstöð
stjórnsýslu, menningarlífs,
verslunar og þjónustu.
Ummæli borgarstjóra um framtíð miðborgarinnar falla í grýttan jarðveg hjá kaupmönnum
Mannlífsmiðstöð
í stað verslunar?
Miðborg
Morgunblaðið/Ásdís
Verslun á Laugavegi og Skólavörðustíg mun halda sínu,
segir framkvæmdastjóri Þróunarfélags miðborgarinnar.
VIÐ sali, garða og steina
kenna leikskólar á höf-
uðborgarsvæðinu sig meðal
annars, en það hefur þó
ekki endilega eitthvað að
gera með þá líflegu starf-
semi sem fram fer utan
dyra sem innan, árið um
kring. Leikskólarnir eiga
það þó flestir, ef ekki allir
sameiginlegt, að und-
anfarna daga hafa börnin
unað sér við páskaföndur og
ýmislegt skemmtilegt hefur
orðið til í smáum höndum
þeirra. Guli liturinn hefur
verið áberandi, hvort sem
er á pappír, fjöðrum eða
fagurlega málaður á steina,
skeljar og fleira sem börnin
hafa fundið í náttúrunni.
Í leikskólanum Fífusölum
í Kópavogi, sem opnaður
var fyrir nokkrum mán-
uðum, hefur 101 barn sem
þar dvelst tekið þátt í
páskaföndrinu af lífi og sál.
Á Álfasteini í Hafnarfirði
hafa börnin á deildunum
fjórum haft margt fyrir
stafni og mikið verið klippt,
límt og málað. Börnin á
Leikgarði eiga það meðal
annars sameiginlegt að for-
eldrar þeirra eru við nám í
Háskóla Íslands. Meðan
mamma og pabbi undirbúa
sig fyrir prófin sem fara í
hönd og fletta skruddum í
Þjóðarbókhlöðunni syngja
börnin, lesa ævintýri og
föndra handa þeim skraut
fyrir páskana.
Páskaungar og páskaegg
fylgdu því börnunum heim
af leikskólum í gær þegar
páskafríið hófst og þegar
þau mæta á nýjan leik er
tímabært að fara að hlakka
til sumarsins og útivist-
arinnar sem því fylgir á öll-
um leikskólum.
Páskarnir fara í hönd
Höfuðborgarsvæðið
Morgunblaðið/Kristinn
Einbeitingin skín úr augum þessarar litlu hnátu sem er á leikskólanum Álfasteini í Hafn-
arfirði og eggið tekur smám saman á sig rétta mynd.
Morgunblaðið/Kristinn
Hekla og Arna mála steina gula í leikskólanum Fífusölum. Síðan voru steinarnir faldir í
garðinum og börnin söfnuðu þeim saman í páskakörfuna.
Morgunblaðið/Þorkell
Þessir strákar á Leikgarði voru að mála egg og klippa páskaskraut fyrir mömmu og pabba.
TILLAGA að breyttu deili-
skipulagi fyrir svokallaðan
Rafha-reit við Lækjargötu í
Hafnarfirði var samþykkt í
skipulags- og umferðarnefnd
Hafnarfjarðar á þriðjudag.
Þá var einnig samþykkt til-
laga bæjarskipulags um
breytingu á aðalskipulagi
bæjarins sem felur í sér að
landnotkun fyrir Rafha-reit
verði breytt úr þjónustu- og
iðnaðarsvæði í íbúðarsvæði.
Fyrirhugað er að reisa fjór-
ar fimm hæða blokkir á
reitnum.
Rafha-reitur afmarkast af
Lækjargötu, Hringbraut og
Öldugötu.
Íbúar hafa mótmælt
með undirskriftum
Gunnar Svavarsson og
Trausti Baldursson óskuðu
að bókað yrði að þeir höfn-
uðu breytingu á deiliskipu-
lagi eins og hún lá fyrir.
„Íbúar á svæðinu hafa form-
lega mótmælt með undir-
skriftum þeim tillögum sem
nú eru sýndar. Telja íbúar
umfang bygginganna of mik-
ið, hvað varðar hæð og íbúa-
fjölda. Undirritaðir telja
einnig að gera eigi deili-
skipulag fyrir skipulagsreit-
inn 41 Lækjargata – Hamar
enda er hann á áætlun
nefndarinnar í ár. Mikilvægi
þess að hefja þegar deili-
skipulagsvinnu á öllum
reitnum m.a. vegna fyrir-
hugaðrar stækkunar Flens-
borgarskóla vegur mun
meira í stað þess að skipu-
leggja smáreiti líkt og alltof
oft hefur verið gert í flýti-
meðferð á kjörtímabilinu.“
Hafdís Hafliðadóttir,
skipulagsstjóri Hafnarfjarð-
arbæjar, segir að nú verði
tillögurnar lagðar fyrir bæj-
arráð og bæjarstjórn og
þegar þær hafi verið af-
greiddar þar fari þær í
gegnum lögbundið auglýs-
ingar- og kynningarferli. Þá
hefur almenningur tækifæri
til að gera athugasemdir við
tillögurnar áður en deili-
skipulag reitsins er endan-
lega samþykkt.
Tillaga að deili-
skipulagi Rafha-
reits samþykkt
Hafnarfjörður