Morgunblaðið - 28.03.2002, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 28.03.2002, Blaðsíða 27
LISTIR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. MARS 2002 27 94 8 / TA K T ÍK SAMA TILBOÐ Í ÖLLUM VERSLUNUM NÓATÚNS KL. 12.00 - 15.00 KL. 17.00 - 19.00 KL. 12.00 - 22.00 TUTTUGASTA og fyrsta páska- sýning Myndlistarfélags Árnesinga verður opnuð í dag kl. 14 á Hótel Selfossi. Sautján félagar í myndlist- arfélaginu taka þátt í sýningunni að þessu sinni með sjötíu verk þar sem gefur að líta þverskurð í listsköpun sem þeir stunda. Sýndar eru olíu-, akríl- og vatns- litamyndir auk skúlptúrverka í tré, leir og mósaík auk fleiri afbrigða. Sérstakt „abstrakt“ horn er hluti af þema sýningarinnar núna en að öðru leyti hefur hver og einn lista- maður sínar áherslur. Sýningin er í austurhluta hótels- ins gegnt Tryggvatorgi og er opin frá kl. 14–18 alla dagana til 7. apríl. Morgunblaðið/Sigurður Jónsson Nokkur verkanna á páskasýningu Myndlistarfélags Árnesinga. Selfossi. Morgunblaðið. Myndverk 17 lista- manna á Hótel Selfossi ÁSKIRKJA hefur ráðið til sín nýj- an tónlistarstjóra, Kára Þormar org- anista. Kári hefur fengið til liðs við sig ungt fólk og stofnað nýjan kirkju- kór. Margir kórfélaga eru vel mennt- að söngfólk og fólk með mikla reynslu af kórsöng. Kórinn, sem nú hefur starfað í nokkra mánuði, hélt sína fyrstu opinberu tónleika á mið- vikudagskvöld undir stjórn Kára. Á efnisskránni var úrval kórverka ís- lenskra og erlendra, sum hver tengd föstu. Það voru íslensku kórverkin sem tókust best hjá þessum nýja kór, Englar hæstir andar stærstir og Til þín drottinn hnatta og heima eftir Þorkel Sigurbjörnsson, föstusálmur- inn Í dauðans böndum drottinn lá í raddsetningu dr. Róberts A. Ott- óssonar. Verónikukvæði Jakobs Hallgrímssonar var líka prýðilega sungið, en lagið, sem er þjóðlag þekkja sennilega fleiri með textan- um Fagurt er í Fjörðum. Af erlendu verkunum bar af O vos Omnes eftir Pablo Casals sem er bæði ægifagurt lag og var skínandi vel sungið, Vögguljóð á vetrarkvöldi eftir Tove Knutsen og Unser lieben Frauen Traum eftir Max Reger. Kór Ás- kirkju hefur á að skipa mörgum góð- um söngröddum, og kórhljómurinn lofar góðu. En auðvitað á kórinn eftir að syngjast betur saman og ná betri heildarsvip. Það kom mest á óvart að víða voru innkomur óöruggar og jafnvel kolrangar; einstaka raddir hittu ekki á rétta tóninn og söngur- inn varð beinlínis falskur. Þessi var raunin í Exultate Deo eftir Poulenc og Heilræðavísum Jóns Nordal, og hik og óöryggi í Ave maris stella eftir Grieg þar sem kvenraddir skiptust olli líka óstöðugleika og óhreinindum í söngnum. Í Fjórum íslenskum þjóðlögum Hafliða Hallgrímssonar var tónninn gefinn inn fyrir hvert lag, sem ætti að vera óþarfi, en kannski hefur kórstjórinn talið sig þurfa það vegna óöryggis kórsins. Kannski var of mikið færst í fang, prógrammið er ekki auðvelt við- fangs, jafnvel fyrir reynda kóra, og sennilega hefði verið betra að sleppa flóknum verkum eins og þeim þar sem raddir skiptast innbyrðis, í það minnsta meðan kórinn er að fóta sig í eigin hljómi. En margt var þó fallega gert, og Kári er músíkalskur stjórn- andi og á vafalaust eftir að slípa þá hnökra af kórnum sem voru til stað- ar á þessum fyrstu tónleikum hans. Lokalagið á tónleikunum, Ég vil lofa eina þá eftir Báru Grímsdóttur við gamalt helgikvæði var sönnun þess að hinn ungi Kór Áskirkju á eftir að gera góða hluti. Fyrir það fyrsta er lag Báru stórgott, en auk þess naut kórinn þess vel að syngja það og gerði það listilega vel. Eitt að lokum. Mér hefur alltaf þótt það furðulegt að kristið fólk skuli geta klappað á eftir sálminum um pínu krists, Í dauðans böndum drottinn lá. Lagið er oft flutt á tón- leikum og gagnrýnandi minnist þess að oft hafi verið klappað fyrir því. Þá beinist athyglin auðvitað að frammi- stöðu kórs fremur en að verkinu sjálfu. Kannski er þetta óþarfa við- kvæmni, en ef fólk tekur trú sína al- varlega og hugsar um textann þá hlýtur því að finnast þetta óviðeig- andi. Kirkjukór kveður sér hljóðs Bergþóra Jónsdóttir TÓNLIST Áskirkja Kór Áskirkju söng íslensk og erlend kór- verk, stjórnandi var Kári Þormar. Miðvikudag 20. mars kl. 20.00. KÓRTÓNLEIKAR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.