Morgunblaðið - 17.05.2002, Blaðsíða 70

Morgunblaðið - 17.05.2002, Blaðsíða 70
FÓLK Í FRÉTTUM 70 FÖSTUDAGUR 17. MAÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ Farðu beina leið í Frjálsa – eftir hagstæðu bílaláni Veittur er 1% afsláttur af lán- tökugjaldi ef lántakandi greiðir í lífeyris- sparnað hjá Kaupþingi www.fr jals i . is Bílalán er án efa þægilegasta leiðin til að eignast nýjan bíl. Hjá Frjálsa fjárfestingarbankanum býðst þér 100% bílalán, án útborgunar. Lánið borgar þú til baka á 96 mánuðum eða skemmri tíma. 1) Þú getur reiknað dæmið og sótt um bílalán á www.frjalsi.is eða hjá bílaumboðunum. Þú getur einnig komið í Sóltún 26, hringt í síma 540 5000 eða sent tölvupóst á frjalsi@frjalsi.is og fengið allar nánari upplýsingar hjá ráðgjöfum okkar. 1) Lánað er 100% af bílverði til allt að 96 mánaða ef bílalánið er með veði í bifreið og bakveði í fasteign. Heildarveðhlutfall fasteignar með bílaláni má mest vera 90% af verðmæti fasteignar. Bílalán með veð í bifreið getur numið allt að 75% af kaupverði til allt að 84 mánaða. Sjá nánari skilyrði fyrir lántöku á www.frjalsi.is. Dæmi um mánaðarlega meðalafborgun af 1.000.000 kr. m.v. jafnar afborganir án verðbóta Lánsupphæð 60 mánuðir 72 mánuðir 84 mánuðir 96 mánuðir 1.000.000 kr. 20.401 kr. 17.612 kr. 15.620 kr. 14.126 kr. Ef þú kaupir t.d. nýjan VW Golf Comfortline 1,4i,16v* og færð 75% lánuð til 84 mánaða er lánsupphæðin 1.293.750 kr. Meðalafborgun á mánuði er þá 20.208 kr. (1.293.750/1.000.000x15.620 = 20.208) * Verð: 1.725.000 kr. skv. verðskrá Heklu hf. í apríl 2002. Ef þú kaupir t.d. nýjan VW Polo Basicline 1,2i, 6v* færð 100% lánuð til 96 mánaða er lánsupphæðin 1.250.000 kr. Meðalafborgun á mánuði er þá 17.658 kr. (1.250.000/1.000.000x14.126 = 17.658) * Verð: 1.250.000 kr. skv. verðskrá Heklu hf. í apríl 2002. A B X / S ÍA FYRIRSÖGNIN er svar við spurningunni sem Neil Young varpar fram í plötutitlinum. Ég er sannar- lega ástríðufullur maður og ef Young var að spyrja sig hins sama er svarið á sama veg – það sannar hann nefnilega á þessari nýjustu plötu sinni. Are You Passionate? hefur verið að fá misjafna dóma og er umdeild. Kemur mér í raun á óvart, því það er vitað mál að Young hefur ávallt farið eigin leiðir í tónlistinni og þá á stundum mjög svo sérstakar (man einhver eftir Trans?). Að mínu mati hefur þetta verið honum til tekna frekar en hitt. Aðall þessarar plötu eru rokk og rólegheit. Young fær hér til liðs við sig sálarkempurnar í Booker T. & the MG’s og saman spila þeir af öryggi og áreynsluleysi. Lagasmíðarnar eru langt í frá frumlegar en vaxa hægt og bítandi, hljómarnir þrír haglega sam- an settir og platan öll þekkileg og ljúf á að hlýða. Með þessu er ég ekki að segja að þetta sé fyrir hjartveila Michael Bolton-aðdáendur; einfald- lega að Young leysi það sem hann ætl- ar sér með glæsibrag. Eini mínusinn hér er bandaríska þjóðerniskjaftæðið sem fær að leika lausum hala (umslagið, „Let’s Roll“). Að öðru leyti afar frambærilegt verk, flutt af ástríðufullum og sönnum lista- manni.  Já Neil Young Are You Passionate? Reprise Ljúfur – en umfram allt góður – Young. Arnar Eggert Thoroddsen ÞESSI plata er ein af þeim hug- myndum sem geta litið harla vel út á pappírnum en orðið að martröð í veruleikanum. Jay Z er í dag einn allra flottasti austurstrandarrapparinn og átti í fyrra hina frábæru Blueprint. R. Kelly hefur löngum verið einn helsti r og b-refurinn þó að síðustu ár hafi hann farið nokkuð hall- oka. Þessir kóngar fengu þá „frábæru“ hugmynd að gera plötu saman, þar sem listrænu afli rappsins og r og b-sins yrði slegið saman í einn, kröftugan pakka. Út- koman er hins vegar handónýt. Bara það að heyra R. Kelly reyna sig við rappið er grátbroslegt, þó mest bara neyðarlegt. Það hefði reyndar verið mjög áhugavert að heyra Jay reyna sig við falsettuna, en hann heldur sig fjarri söngnum – sem betur fer. „The Streets“ er ein fárra rispa hér þar sem samstarfið skilar ávöxtum. Annars er þetta mest bara skítlegt tal um kvenfólk (Kelly) og harðnaglaraus (Jay) undir lítt innblásnu og marg- tuggnu undirspili. Mikið af vart boð- legu uppfyllingarefni sem er hvorug- um listamanninum til framdráttar. Og hvað voru menn að spá með um- slagið!?  Tónlist Tveir plúsar gera einn mínus R. Kelly & Jay-Z The Best of both Worlds Roc-A-Fella/Def Jam/Jive Records Stefnumót rapp- og r og b-risa fer í vaskinn. Arnar Eggert Thoroddsen Lykillög: „It Ain’t Personal“, „The Streets“. BANDARÍSKI heimildaljósmyndarinn Mary Ellen Mark sótti Ís- land heim á dögunum í tilefni af opnun sýningar á myndum henn- ar á Kjarvalstöðum. Sýningin, sem ber yfirskriftina American Odyssey, var sett upp á vegum Ljósmyndasafns Reykjavíkur og er hún liður í Listahátíð Reykjavíkur sem nú stendur yfir. Mary Ellen kom víða við í heimsókn sinni. Hún hitti íslenska kollega sína við hádegisverð í ljósmyndavöruversluninni BEKO og ræddi við þá ásamt Hasse Persson, sýningarstjóra Hasselblad Center stofnunarinnar í Gautaborg. Einnig hélt Mary Ellen fyrirlestur fyrir ljósmyndara og blaða- menn Morgunblaðsins þar sem hún sýndi myndir frá rúmlega 30 ára vinnuferli sínum auk þess að fræða viðstadda um starf sitt og vinnuaðferðir. Einn þekktasti ljósmyndari heims Morgunblaðið/Kristinn Erlendu gestirnir með eigendum BECO. Mary Ellen Mark, Baldvin Einarsson, Martin Bell, eiginmaður ljósmyndarans, Ingibjörg Sigur- jónsdóttir og Hasse Persson sýningarstjóri. Mary Ellen Mark áritar bók sína, American Odyssey, fyrir Kjartan Þorbjörnsson, Golla, ljósmyndara Morgun- blaðsins. Mary Ellen Mark sækir Íslendinga heim Lykillög: „Goin’ Home“, „Are You Passionate?“, „Differently“, „Don’t Say You Love Me“.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.