Vísir - 25.09.1980, Blaðsíða 20
VÍSIR
Fimmtudagur 25. september 1980.
Umsjón:
Magdalena
Schram
Framkvæmdanefnd „Árs
trésins’’ hefur ákveðið að verða
við boði Iðnaðarmannafélags
Reykjavikur um að efna til
sýningar á nytja- og listmunum
úr viði I tilefni ársins og hefur
verið ráðgert aö halda sýning-
una i nóvember. Iðnaðar-
mannafélagið vinnur nú að þvi
að safna sýningargripunum
„þar sem vitað er að fjöldi
iönaðarmanna um land allt hafa
gert margan fagran grip úr tré,
ýmist til nytja eða til að þjóna
sköpunargleði og listhneigð höf-
undar”, eins og segir I frétt
Iönaðarmannafélagsins.
Hugmyndin um slika sýningu
kom fram á fundi félagsins á sl.
vori og fékk strax góðar undir-
tektir. Það gaf hugmyndinni
einnig byr undir báða vængi,
hversu vel tókst til með list-
sýningu á vegum félagsins 1977.
öllum iðnaðarmannafélögum
I landinu hefur verið skrifað til
aðleita fanga um sýningargripi
og þótt undirtektir hafi enn
verið dræmar, er það von
sýningarnefndar, að breyting
verði þar á, enda ætti enginn
skorturað vera á iðnaðarmönn-
um, sem gera fagra hluti úr tré.
Eftirtaldir skipa nefndina og
fylgja simanúmer með, svo að
gera megi vart við nýja eða
gamla muni unna úr tré: Helgi
Hallgrimsson (33594 heima,
26240, vinna) Sæmundur
Sigurðsson (16326) Jónas Sól-
mundsson (22552), Karl
Sæmundsson (16435) Þorkell
Skúlason (19762), Hulda Valtýs-
dóttir (36219) og Snorri Sigurðs-
son (18150 heima, 40789 vinna)
Þau tvö siðast töldu sitja nefnd-
ina sem fulltrúar fram-
kvæmdanefndar „Ars trésins”.
OFVITINN LENGI LIFI!
Þaö sem sýnt verður
Fyrirhugað er að sýningin
skiptist í þrjá hluta:
1. Skógræktardeild, sem aðal-
lega verður byggð upp á ljðs-
myndum og linuritum,
2. Viður sem smiðaefni: gerð
viðar, vinnsla, þurrkun, o.sv.
3. Munir úr viði.
■Þessi þáttur sýningarinnar er
sá sem snýr að iðnaðarmönnum
sjálfum og verða þar sýnd hús-
gögn,, nytjalistmunir og hreinir Baðstofa og fundarherbergi Iðnaðarmannafélagsins I gömlu Iönó.
listmunir. Sýningin mun verða i Það hús er nú i eigu Reykjavlkurborgar, en baðstofunni haida
kjallara Húss Iðnaðarins við félagsmenn. Það hefur ekki væst um fundargesti I þessari stofu,
Hallveigarstig. sem er haglega gerð af Rikharði Jónssyni. Smiði baöstofunnar var
Ms. lokið árið 1926.
Iðnaðarmannafélagið
með sýnlngu
Gunnar örn Guðmundsson dýraiæknir i hiutverki dýralæknisins I
óðali feðranna, ásamt Jakobi Þór, sem leikur aðalhlutverkið.
óöalið (Reykjavík,
Akureyri og í Eyjum
A morgun, föstudag, hefjast
sýningar að nýju i Reykjavik á
kvikmyndinni Óðali feðranna.
Myndin verður sýnd á öllum
sýningartimum i Laugarásbiói
frá föstud. 26. september til
föstudagsins 3. október.
Þá verður myndin einnig sýnd
á Akureyri á morgun- og á
sunnudaginn i Vestmanna-
eyjum.
Nú hafa um 70.000 manns seð
þessa umtöluðu kvikmynd.
A laugardaginn opnar Guðrún Tryggvadóttir sýningu i Djúpinu,
Hafnarstræti. A sýningunni veröa Ijósmyndir af ýmsu tagi.ljósritun
o.n.
Sýning Guðrúnar verður opin á sama tima og veitingastofan
Hornið og varir til 8. okóber. Þeir, sem fá sér I svanginn í Horninu,
ættu ekki að telja það eftir sér að Uta niður I Djúpið. Þar eru jafnan
skemmtilegar sýningar og svo má nú ekki gleyma jazzkvöldunum
á fimmtudögum — t.d. i kvöld!
Svningar hefjast að nýju í kvöld
„Sýning Ofvitans er glæsi-
legur sigur og i rauninni
merkisatburður i isiensku ieik-
húslifi. Fyrst og fremst er þaö
að þakka Kjartani Ragnarssyni,
sem fékk þá furðuiegu fiugu i
höfuöið að setja Ofvitann á svið
og jafnframt leikstjóranum,
Kjartani Ragnarssyni, sem
tókst að skila þessu verkefni
sinu heilu i höfn.”
,,Ég óska Leikfélagi Reykja-
vikur til hamingju með þessa
skemmtilegu sýningu. Megi hún
lengi lifa!” (BS i Visi eftir
frumsýningu Ofvitans i fyrra-
haust).
Og hún lifir enn, þvi að i kvöld
verður áfram haldið sýningum
á Ofvitanum i Iðnó. Leikurinn
var sýndur 100 sinnum i fyrra-
vetur, og einatt fyrir fullu húsi
og er ekki að efa, að endurkoma
hans verður mörgum fagnaðar-
efni. 101. sýningin er eins og fyrr
sagði i kvöld og næsta verður á
laugardagskvöldið kemur kl.
20.30. Ms.
Þórbergur yngri og eldri. Emil Guðmundsson og Jón Hjartarson I
hlutverkum sinum.
Snorri Sveinn, Guöbergur, Hringur, örn, Magnús og Björgvin, allir
i smáhvild frá undirbúningi Haustsýningarinnar að Kjarvalsstöö-
um- (Ljósm. Ella)
Hauslsýnlngín
Arleg haustsýning FÍM verð-
ur opnuð á laugardaginn kemur
að Kjarvalsstöðum. 5 mynd-
listarmönnum var boðið að sýna
sem sérstökum gestum og eru
það þau Asgerður E. Búadóttir,
Guðmundur Benediktsson,
Leifur Breiðfjörð, Valtýr
Pétursson og Þórður Hall. FIM
heur látið prenta póstkort i litl-
um af einu verki hverra þessara
listamanna og verða þau seld á
sýningunni, auk korta sem gerð
voru i tilefni Sýningar Sigurjóns
Ölafssonar i vor.
Þegar þetta er skrifað, lá enn
ekki ljóst fyrir, hversu margir
myndu sýna auk gestanna, en
vist er að það verða fjölmargir
og verður þar að lita teikningar,
málverk, glermyndir og vefnað
og muni úr leir á sýningunni.
Hún veröur opnuð sem fyrr
sagði á laugardaginn kl. 15 og
varir til 12. október.
vatnsiitir í
flsmundapsal
Þessa dagana sýnir Kristján
Jón Guönason vatnslitamyndir i
Asmundarsal við Freyjugötu.
Hann sýnir 37 myndir, flestar úr
Reykjavik.
Kristján Jón stundaði nám i
Myndlista-og handiðaskólanum
1961-64 og við Listiðnaðarskól-
ann i Osló 1965-67. Hann hefur
áður sýnt á Ungdomsbiennaln-
um i Osló (1970) og á Haust-
sýningum FIM. Sýning hans i
Asmundarsal er opin frá kl. 4-22
og stendur til sunnudagsins
kemur, 28. september.
Kristján Jón. (Ljósm. Ella)