Morgunblaðið - 15.06.2002, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 15.06.2002, Blaðsíða 39
Til íslensku þjóðarinnar og íslensku ríkisstjórnarinnar – frá Vinum Falun Gong Við, sem erum mannréttindahreyfing er helgar sig stuðningi við trúfrelsi þeirra sem iðka Falun Gong, erum snortin yfir öflugum og hvetjandi stuðningi íslensku þjóðarinnar við Falun Gong. Við höfum fengið fjölmargar kveðjur og orðið vitni að alúðlegum stuðningsaðgerðum hennar og erum full þakklætis. Það er kvíðvænlegt að sjá hvernig einræðisaðferðir kínverskra stjórnvalda hafa breiðst út til þessarar ljúfu þjóðar sem á sér elsta lýðræði heims. Kínverski einræðisherrann, Jiang Zemin, hefur beitt öllum þeim ráðum sem honum eru tiltæk til að standa fyrir hatursherferð sinni, þar með taldar hótanir um efnahagslegar þvinganir gegn erlendum ríkisstjórnum. Ríkisstjórn hans sendi út „svartan lista“ og þess vegna eru margir tugir Falun Gong iðkenda nú strandaglópar í flughöfnum um heim allan eftir að hafa verið neitað um flugfar til Íslands. Þeir verða að greiða hóteldvöl, mat og annan ferðakostnað sem ekki hafði verið gert ráð fyrir. Hver ber ábyrgð á þessu? Og hvernig kom þessi „svarti listi“ til sögunnar? Flestir þeirra sem á listanum eru hafa ekki verið talsmenn Falun Gong eða sérstaklega virkir félagar, hvernig var þá nöfnum þeirra safnað saman? Það sem nú gerist á Íslandi fyrir allra augum er að harðstjóri spillir lýðræðislegum stofnunum í frjálsu ríki með það fyrir augum að auka enn frekar ofsóknir sínar á hendur Falun Gong. Sama hefur verið uppi á teningnum, þótt minna hafi farið fyrir því, um Bandaríkin öll og víðar undanfarin þrjú ár. Kínverskir ráðamenn hafa þvingað staðbundin yfirvöld og ráðamenn ríkja til að verða við óskum stjórnar Jiangs um að hætta stuðningi við Falun Gong. Í lýðfrjálsum ríkjum um heim allan deilir fólk hneykslun Íslendinga á því sem er að gerast. Þeir einstaklingar sem ákváðu að fara til Íslands áttu sér þá ósk eina að láta Jiang Zemin vita að umheiminum stendur ekki á sama um þá saklausu karla, konur og börn sem hann hefur skipað svo fyrir um að yrðu barin, pynduð eða jafnvel myrt undanfarin þrjú ár fyrir það eitt að leggja stund á Falun Gong. Þúsundir saklausra karla og kvenna hafa verið sendar í hræmulegar þrælabúðir, að minnsta kosti 100.000 iðkendur hafa verið settir í fangelsi án dóms og laga og á fimmta hundrað hafa verið drepnir. Hvernig getur samfélag þjóða látið sem ekkert sé gagnvart þessum glæpum gegn mannkyni? Eða það sem verra er, hvernig er hægt að sætta sig við þá? Við erum sannfærð um að enginn með samviskuna í lagi getur sætt sig við þannig ódæðisverk þegar af þeim fréttist og því er það undir okkur komið að fræða umheiminn um hvað sé á seyði. Við vonumst til að þið haldið áfram að taka vel á móti Falun Gong og veita þessari friðsamlegu starfsemi stuðning. Vinir Falun Gong vilja lýsa yfir einlægu þakklæti sínu við íslensku þjóðina og fjölmiðla hennar og styðja hana í því að hvetja ríkisstjórn Íslands til að aflétta nú þegar ferðabanni á iðkendur Falun Gong til Íslands. Okkur sýnist þetta vera afbragðstækifæri til að sýna heiminum öllum að ekki er hægt að stofna meginreglum þess frelsis, sem vestræn lýðræðisríki rækta með sér, í voða vegna krafna kínversks kommúnistaharðstjóra. Með vinsemd og virðingu, Vinir Falun Gong, mannréttindasamtök sem ekki starfa í hagnaðarskyni. Friends of Falun Gong Europe: www.freecfm.com/f/FOFG-europe/introduction.htm eða 020-8422-7789 (UK) Friends of Falun Gong USA: www.fofg.org eða 1-866-343-7436 (USA) Vinátta United in Support of Falun Gong Practitioner´s Freedom of Belief
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.