Morgunblaðið - 13.09.2002, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 13.09.2002, Blaðsíða 1
214. TBL. 90. ÁRG. FÖSTUDAGUR 13. SEPTEMBER 2002 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS STOFNAÐ 1913 MORGUNBLAÐIÐ 13. SEPTEMBER 2002 GEORGE W. Bush Bandaríkjafor- seti krafðist þess í gær að þjóðarleið- togar heimsins þröngvuðu Saddam Hussein Íraksforseta til að eyða gerð- eyðingarvopnum sínum. Sagði Bush, er hann ávarpaði allsherjarþing Sam- einuðu þjóðanna (SÞ), að ella væri líf milljóna manna í hættu og að SÞ „skiptu ekki máli“ nema því aðeins að þær byðu Írak birginn. „Við megum ekki standa hjá og að- hafast ekkert á meðan hættan vex. Við verðum að tryggja öryggi okkar og varanleg réttindi og vonir mann- kynsins,“ sagði Bush. Bandalagsþjóð- ir Bandaríkjanna og bandaríska þing- ið hafa verið hikandi í afstöðu sinni til málstaðar Bush fyrir því að grípa til vopna gegn stjórnvöldum í Írak. Kofi Annan, framkvæmdastjóri SÞ, varaði Bandaríkjamenn við því að ráðast ein- ir til atlögu án stuðnings öryggisráðs- ins. „Írakar hafa í áratugi þrjóskast við að verða við kröfum SÞ,“ sagði Bush. „Nú stendur heimsbyggðin öll og SÞ frammi fyrir prófraun, erfiðri ögur- stund. Verða ályktanir öryggisráðs- ins virtar og þeim framfylgt eða ýtt til hliðar án afleiðinga? Munu SÞ þjóna því hlutverki sem var tilgangurinn með stofnun þeirra, eða hætta að skipta máli?“ Býðst til samstarfs Bush bauðst til að vinna með öðrum ríkjum að gerð ályktunar sem svara myndi „sameiginlegu verkefni okk- ar“. Og, sagði hann, „ef Íraksstjórn óhlýðnast okkur rétt eina ferðina, verður heimsbyggðin að grípa tafar- laust til afgerandi ráðstafana“ gegn stjórnvöldum í Írak. Virtist Bush með þessu vera að bregðast við aukinni andstöðu við einhliða hernaðarað- gerðir Bandaríkjamanna til að steypa Saddam af stóli. Bush setti fram fimm kröfur sem hann sagði að Írakar yrðu að ganga að ef þeir vildu komast hjá aðgerðum af hálfu Bandaríkjanna: 1. Írakar upplýsi nú þegar og án skilyrða um og fjarlægi eða eyðileggi öll gereyðingarvopn, langdræg flug- skeyti og annan tilheyrandi búnað. 2. Írakar hætti án tafar að styðja hryðjuverkamenn og grípi til aðgerða gegn hryðjuverkum eins og krafist sé af öllum ríkjum í ályktunum örygg- isráðs SÞ. 3. Írakar hætti að ofsækja íraska borgara eins og krafist er í ályktunum öryggisráðs SÞ. 4. Írakar leysi úr haldi eða geri grein fyrir afdrifum allra þeirra sem börðust í Persaflóastríðinu og ekki er vitað um. Þeir skili jarðneskum leif- um þeirra sem féllu, skili eignum, axli ábyrgð á mannfalli sem varð í kjölfar innrásarinnar í Kúveit og vinni með alþjóðlegum stofnunum við að upp- lýsa þessi mál, eins og ályktanir ör- yggisráðsins kveði á um. 5. Írakar hætti nú þegar öllum ólöglegum viðskiptum með olíu. Íraksstjórn fallist á að SÞ stjórni því hvernig fjármunum sem Írakar fá í tengslum við áætlunina um olíu fyrir matvæli, verði varið til að tryggja að féð verði notað til hagsbóta fyrir írösku þjóðina. „Brjálæðisleg markmið“ „Það sem við óttumst mest er að hryðjuverkamenn nái að stytta sér leið að brjálæðislegum markmiðum sínum með því að útlagastjórn láti þeim í té tæknibúnað til fjöldamorða,“ sagði Bush. „Írakar hafa hæfa kjarn- orkuvísindamenn og hafa þann búnað sem þarf til að smíða kjarnorkuvopn. Komi Írakar höndum yfir kjarnkleyf efni gætu þeir smíðað sér kjarnavopn innan árs. Sagan, rökin og staðreynd- ir málsins leiða til einnar niðurstöðu: Einræðisstjórn Saddams Husseins er alvarleg og vaxandi ógn.“ Bandaríkjaforseti gerði í löngu máli grein fyrir því hvernig hann teldi Íraka hafa hvað eftir annað rofið þau heit sem þeir hefðu gefið í kjölfar Persaflóastríðsins 1991, þ. á m. loforð um að eyða gereyðingarvopnum sín- um og hleypa vopnaeftirlitsmönnum SÞ inn í landið, og haft ályktanir SÞ að engu. Saddam hefði vikið sér hjá refsiaðgerðum og komið sér upp vopnum. Hann kenndi SÞ um fátækt írösku þjóðarinnar, en á sama tíma smíðaði hann vopn og glæsihallir handa sjálfum sér. „Með grimmd sinni hefur Saddam sjálfur gert grein fyrir málstaðnum gegn sér,“ sagði Bush. Saddam hefði ráðist á Íran 1980, Kúveit 1990, skotið langdrægum flugskeytum á Sádi-Ar- abíu, Barein og Ísrael, fyrirskipað að allir á aldrinum 15 ára til sjötugs í nokkrum kúrdískum þorpum skyldu drepnir, beitt efnavopnum gegn Íran og í 40 íröskum þorpum. Hefði Persa- flóastríðið ekki verið háð hefðu Írakar verið búnir að koma sér upp kjarna- vopnum 1993. „Ögurstund fyrir SÞ“ Sendiherra Íraka hjá SÞ, Moham- ed al-Douri, fordæmdi ræðu Bush og sagði hana hafa verið ótrúverðuga. Bush væri rekinn áfram af hefndar- þorsta og pólitískum metnaði. „Hann velur þann kostinn að blekkja um- heiminn og sína eigin þjóð með lengsta lygavef sem nokkur þjóðar- leiðtogi hefur ofið.“ Bretar fögnuðu áskorun Bush til leiðtoga ríkja heims, og sögðu hana „ögurstund fyrir SÞ“. Jack Straw, ut- anríkisráðherra Bretlands, sagði ræðu Bush hafa verið „kröftuga og áhrifamikla“. Enginn, sem hefði heyrt ræðuna, gæti velkst í vafa um nauð- syn þess að brugðist yrði við þeirri ógn er stafaði af Saddam Hussein. Bush gerir Sameinuðu þjóðunum grein fyrir málstað sínum gegn Írak Framferði Íraka ógn við SÞ og heimsfriðinn „Komi Írakar höndum yfir kjarnkleyf efni gætu þeir smíð- að sér kjarnavopn innan árs“ Sameinuðu þjóðunum. AP, AFP. Reuters George W. Bush Bandaríkjaforseti ávarpar allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna í gær. Á bak við Bush situr Kofi Annan, framkvæmdastjóri SÞ. Reuters Íraskar konur í Jórdaníu fylgjast með útsendingu al-Jazeera frá ræðu Bush í gær. Tugir þúsunda Íraka flýðu til Jórdaníu í Persaflóastríðinu. Á meðan Bush hélt ræðuna sýndi íraska ríkissjónvarpið sápuóperur. Sérfræðingarnir/22 VLADÍMÍR Pútín, forseti Rúss- lands, gaf í gær í skyn að Rússar kynnu að hefja sitt eigið „hryðju- verkastríð“ innan landamæra ná- grannaríkisins Georgíu. Væri mark- miðið að ráða niðurlögum tsjetsj- enskra skæruliða sem sagðir eru hafast við í Pankisi-skarði. „Ef Georgía stígur ekki skref í þá átt að ráða niðurlögum hryðjuverka- mannanna, og þeir halda áfram að gera þaðan á okkur árásir, mun Rúss- land grípa til viðeigandi ráðstafana, sem yrðu í fullu samræmi við alþjóða- lög, til að bregðast við hryðjuverka- vánni,“ sagði í bréfi sem Pútín sendi ríkjunum fjórum, sem eiga fast sæti í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna ásamt Rússum. Var bréfið einnig sent Kofi Annan, framkvæmdastjóra SÞ. „Rétt er að taka fram að við höfum ekki í hyggju að grafa undan fullveldi Georgíumanna eða vanhelga landa- mæri þeirra, hvað þá að takmark okk- ar sé að stuðla að stjórnarskiptum í landinu,“ sagði einnig í bréfi Pútíns. Kom þar fram að tsjetsjenskir skæruliðar hefðu með blessun stjórn- valda í Georgíu flutt búðir sínar til Pankisi, sem á landamæri að Tsjetsj- eníu, og þar fengju þeir að dveljast al- gerlega óáreittir. Samkomulag við Bush? Rússneskir fjölmiðlar hafa undan- farna daga haft uppi getgátur um að Pútín og George W. Bush Banda- ríkjaforseti hafi gert samkomulag um að sá fyrrnefndi beitti sér ekki gegn því að Bandaríkjamenn gerðu hern- aðarárás á Írak. Í staðinn myndi Bush lítt hafa sig í frammi þó að Rússar réðust gegn skæruliðunum í Georgíu. Sá harði tónn, sem var í bréfi Pút- íns, er sagður hafa komið stjórnvöld- um í Georgíu í opna skjöldu. Edúard Shevardnadze, forseti Georgíu, sagði þau ummæli sem höfð væru eftir Pút- ín „fljótfærnisleg“ og kvaðst vilja ræða málin betur. Pútín hótar hernaði í Georgíu Moskvu. AFP.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.