Morgunblaðið - 26.07.2003, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 26.07.2003, Blaðsíða 23
MENNTUN MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. JÚLÍ 2003 23 ARFINN er atvinnuskap-andi fyrir ungmennilandsins, en það er ekkibara arfi sem mætir þeim í vinnunni. Í sumar gróðursetja t.d. nemendur Vinnuskólans í Reykjavík um 18.500 plöntur og taka 739 garða eldri borgara og öryrkja í gegn. Síð- asta sumar fylltu nemendur Vinnu- skólans poka og jarðvegsgáma með 515 tonnum af jarðvegi, úrgangi og sorpi. Í öllum bæjum landsins eru ung- lingar við sumarstörfin. Í sumar starfa u.þ.b. 3.200 unglingar hjá Vinnuskóla Reykjavíkur. Skólinn á sér langa sögu en hefur sjaldan áður verið svo fjölmennur. Árið áður voru 2.700 í honum. Í Morgunblaðinu árið 1937 stóð um fyrsta sumar Vinnu- skólans: „Vinnuskóli fyrir unglinga, sem bæjarstjórnin hefur ákveðið að kom- ið verði upp í tilraunaskyni nú í sum- ar, tekur til starfa í næstu viku. Er ráðgert að hann standi í fjórar vikur. Verður hann starfræktur í skíða- skála Ármanns í Jósefsdal. Þar verða 25 piltar á aldrinum 14-16 ára. Þar verður vinnudagurinn 6 klst. á dag og einni stund varið til íþrótta- iðkana. Fæðið verður ókeypis, svo og kennslan og húsnæðið að sjálfsögðu. Gert er ráð fyrir að piltarnir fái 15 krónur í þóknun að námskeiði loknu.“ Skólinn var þó ekki formlega stofnaður í Reykjavík fyrr en árið 1951. Góð þjálfun leiðbeinenda Vinna unglinganna er þáttur af umhirðu og snyrtingu innan borgar- markanna, en utan borgarmarka starfa fimmtán ára unglingar einnig í uppgræðslu, skógrækt og stígagerð í Heiðmörk og á Hólmsheiði. Eitt- hvað er enn um göngustigagerð í Esjunni, en átak var gert í þeim efn- um fyrir nokkrum árum. Svavar Jósefsson fræðslu- og upp- lýsingafulltrúi Vinnuskólans segir að vegna þessa hlutverks hafi þjálfun leiðbeinenda verið stóraukin og kröf- ur til þeirra orðið meiri. Hann segir að áður en sjálft sumarstarfið hefjist sitji þeir námskeið þar sem farið er yfir grundvallaratriði svo sem fyrstu hjálp, vinnuvernd og vinnubrögð, stjórnun, garðvinnu o.fl. Námskeið leiðbeinenda verða sífellt fjölbreytt- ari og nú voru t.d. sérhæfð námskeið á borð við fjölmenningarfræðslu og fíkniefnafræðslu. Vinna aldurshópanna Fjórtán ára unglingar vinna nú 3,5 klst á dag í sex vikur. Reynt er að halda vinnuhópum þeirra í nágrenni við heimili, þar á meðal við skóla og íþróttasvæði. Verkefni þeirra eru þá umhirða og snyrting lóða og opinna svæða í hverfinu. Þetta fyrsta ár er lögð áhersla á að kynna fyrir nem- endunum vinnubrögð, beitingu verk- færa, grundvallarreglur á vinnustað o.s.frv. Fimmtán ára unglingar vinna 7 tíma á dag í sex vikur. Ekki er sér- staklega miðað við að þeir séu að vinna í hverfum sínum, heldur þar sem starfskrafta þeirra er þörf. Meiri alvara hefur færst í leikinn, þeir starfa m.a. við þjónustu við eldri borgara og öryrkja. Sextán ára unglingar vinna einnig 7 klst á dag, en í sex vikur. Litið er á þessi ungmenni sem starfsmenn fremur en nemendur og störfin mið- ast við að þau kunni til verka að lokn- um tveimur árum í skólanum. Verk- efni þeirra eru bæði innan borgar og utan. Í borginni er unnið í samvinnu við gatnamálastofu- og garðyrkju- deild Reykjavíkurborgar að erfiðari verkum. Tómstundir og forvarnir Svavar segir að vinnuskólinn sé einnig forvarnarstofnun. Rannsókn- ir hafa sýnt að mest hætta er á að unglingar leiðist út í óreglu á sumrin. Aðalorsakir eru taldar vera rýmri tími, minna aðhald og meiri fjárráð. Vinnuskólinn hefur reynt að sporna gegn óreglu með uppbyggjandi fræðslu. Á sumrin eru flestar félagsmið- stöðvar lokaðar eða minna opnar en yfir vetrarmánuðina. Meðal annars af þeim sökum heldur Vinnuskólinn uppi tómstundastarfi. Fræðslustarf- ið er auk þess miðað við að þar sé heilbrigðum lifnaðarháttum og spennandi áhugamálum gert hátt undir höfði. Vinna og fræðsla mynda spennandi, þroskandi og heilbrigða heild - sem er líkast til besta for- vörnin. Fræðsla og fjölmenning Frá árinu 1995 hefur Vinnuskól- inn boðið upp á sérstaka fræðslu- daga. Hver hópur fer í þrjár fræðslu- ferðir og telst hver dagur fullur vinnudagur. Fræðslan spannar þrjú svið sem nefnast:  Náttúran og umhverfið  Listir og menning  Lífsleikni og sjálfsstyrking. Fjórtán ára nemendur fara í nátt- úru- og umhverfisfræðslu í Viðey. Nemendur eru bæði fræddir um sögu staðarins og náttúrufar, en nefna má að þar verpa 24 tegundir fugla. Þessi hópur fær lista- og menning- arfræðslu í Ásmundasafn og fjöl- menningarfræðslu í Alþjóðahúsinu. Svavar segir að markmiðið með því sé að gera unglingunum grein fyrir því að Ísland sé fjölmenningarlegt samfélag. Einnig að þeir fái innsýn í líf jafnaldra sinna í öðrum löndum. Fimmtán ára taka fræðsludag í Heiðmörk, bæði til að kynnast henni sem útivistarsvæði og til að fræðast. Þau eru einnig í fræðslu sem nefnist List í borg, en þar leggja leiðbein- endur áherslu á að kynna nemendum nýtt sjónarhorn á Reykjavík. Dag- urinn hefst í turni Hallgrímskirkju og eftir það er ferðast á fæti um borgina og kannað hvað helst er að gerast í listum. Sjálfsmynd og samskipti er sam- starfsverkefni Geðræktar og Rauða kross Íslands sem þessi aldurshópur kynnist. Þar er fjallað um sjálfs- mynd og viðhorf unglinganna til sjálfra sín og hvernig samskipti þeirra og hugmyndir tengjast öðru fólki. Hjól í borg og List í borg Framtíðarfræðsla Verzlunar- mannafélags Reykjavík er ennfrem- ur efni sem sextán ára njóta - en það er um hinar fjölmörgu leiðir sem standa til boða eftir grunnskóla og kennsla í að sækja um starf. Þau læra um rétt sinn og mikilvægi góðra samskipta, svo dæmi sé tekið. Sextán ára taka skemmtilegan dag á hjólum og nema þannig nátt- úru- og umhverfisfræðsluna. Hjólað er um Elliðarárdalinn, um Fossvog- inn og þaðan upp að Öskjuhlíð þar sem leystar eru þrautir og farið í spurningakeppni. Eftir það er haldið í Nauthólsvík og slegið upp grill- veislu, en deginum lýkur í Vestur- bæjarlauginni. Markmiðið með Hjól í borg er m.a. að kynna hjólreiðar sem farkost til hreyfingar og skemmtunar, ýta undir heilbrigða og holla lífshætti og opna augu fyrir náttúru og sögu Elliðaárdals og Öskjuhlíðar. Listafræðslan fyrir 16 ára ung- linga er haldin í Listasafni Reykja- víkur í Hafnarhúsinu. Leiðbeinend- ur leggja m.a. áherslu á nútímalist, samruna listforma og list í nánasta umhverfi. Fræðslan á að virka bæði hvetjandi og örvandi fyrir þátttak- endur. Vinnuskólinn stendur í sumar í níu vikur eða frá 10. júní til 8. ágúst. Hér er alls ekki sagt frá öllu sem við ber í vinnuskólanum, t.d. hefur frá árinu 1987 hefur Vinnuskólinn boðið fötl- uðum nemendum í Reykjavík og ná- grannasveitarfélögum upp á sumar- störf, sumarhátíðinni sem var haldin 17. júlí sl. Um miðjan ágúst verður síðan haldin hátíð fyrirmyndarhópa. Munu yfirleiðbeinendur þá tilnefna 18-20 hópa sem verða valdir úr fyrir vel unnin störf og fá í verðlaunaskyni að sækja hátíðina. Vinnuskólinn/Árlega eru á vegum Vinnuskóla Reykjavíkur 500.000 trjáplantna gróðursettar, um 750 garðar elli- lífeyrisþega hirtir í tvígang og 1000 tonnum af lífrænum garðaúrgangi skilað til SORPU þar sem honum er breytt í moltu. Gunnar Hersveinn heilsaði upp á nokkra af u.þ.b. 3200 starfandi unglingum hjá Vinnuskólanum. Ekki bara arfi í beðum borgar Morgunblaðið/Arnaldur Hópur úr Vinnuskólanum á fræðsludeginum List í borg sem Gerður og Guðfinna leiðbeina á. Hópurinn hóf daginn á því að fara í Hallgrímskirkjuturn og líta yfir borgina og eftir það skoðaði hann Listasafn Einars Jónssonar.  Vinnuskólinn er vinsæll vinnustað- ur og skóli með 200 bekki.  Á fræðsludögum er t.d. hjólað um borgina eða farið í Alþjóðahúsið. guhe@mbl.is TENGLAR ..................................................... http://www.vinnuskoli.is/ GERÐUR Jónsdóttir og Guðfinna Mjöll Magnúsdóttir leiðbeina í Lista- og menningarfræðslunni List í borg sem er fyrir 16 ára unglinga. Blaðamaður hitti hópinn eftir að hann hafði skoðað útsýnið úr Hallgrímskirkjuturni og Ein- arssafn. Viktor Bjarnason, Sólrún Tinna Grétarsdóttir og Karitas Matthíasdóttir voru bara ánægð með morguninn, en yfirleitt eru þau að störfum á Hólmsheiði í Heiðmörk. Framundan þennan dag var að ganga um miðbæinn og kanna hvort Reykjavík sé borg sem geymir fjölbreytt og skemmtilegt listalíf. Blaðamaður hitti annan hóp í Laugardalnum eða þau Sunnu Sig- urðardóttur, Þórhildi Sunnu Æv- arsdóttur og Pál Helga Sigurðar- son ásamt Frey Björnssyni leið- beinanda þeirra. „Þetta er fín vinna,“ segir Páll, maður fær a.m.k. borgað fyrir að reyta arfa.“ Sunna og Sunna voru fyrst í sumar í Öskjuhlíðinni en fengu að skipta yfir í Laugardalinn. Sunna Sigurðar og Páll hafa reyndar unnið þar öll þrjú árin en Þórhild- ur Sunna starfað líka í Mosfells- bænum. Núna vinna þau sjö tíma á dag og fá tvisvar fimmtán mínútur í kaffi og hálftíma í mat. „Starfstím- inn er níu vikur,“ segir Sunna, „og af þeim erum við 12 daga í fríi.“ „Við erum með 385 krónur á tímann núna, en þau úr 9. bekk eru með 290 og 8. bekk með 257 krónur,“ segir Þ. Sunna og Páll bætir við að einnig séu 2 veik- indadagar greiddir. Þau segjast bara vera sátt við vinnuna, vera mest í arfatínslu, en einnig að kantskera og jafnvel að slá gras. Veðrið er auðvitað mis- jafnt og erfitt að vinna ef rign- ingin er rosaleg. Þau byrja kl. 8:30 á morgnana og eru að störfum til 15:50. Næsta haust ætla þau öll í nám. Páll í Fjölbrautaskólann við Ár- múla, Sunna í Fjölbrautaskólann í Breiðholti og Þórhildur Sunna í Menntaskólann í Reykjavík. „Þetta er fín vinna“ Morgunblaðið/Arnaldur „Maður fær a.m.k. borgað fyrir að reita arfann.“ Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, Sunna Sigurðardóttir, Páll Helgi Siguðarson og Freyr Björnsson, leiðbeinandi í Vinnuskóla Reykjavíkur. Þau segjast bara vera sátt við vinnuna.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.