Morgunblaðið - 04.02.2004, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 04.02.2004, Blaðsíða 40
DAGBÓK 40 MIÐVIKUDAGUR 4. FEBRÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ Fréttir Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur. Skrif- stofa s. 551 4349, mat- araðstoð kl. 14–17. Mannamót Aflagrandi 40. Kl. 9 vinnustofa og postulín, kl. 13 postulín, kl. 13.30 leshringur. Árskógar 4. Kl. 9–12 handavinna, kl. 10.30– 11.30 heilsugæsla, kl. 13–16.30 smíðar og handavinna, kl. 13 spil. Bólstaðarhlíð 43. Kl. 9–12 glerlist, kl. 9–16 handavinna, kl. 10– 10.30 bankinn, kl. 13– 16.30 bridge/vist, kl. 13–16 glerlist. Bingó á morgun kl. 13.30, dansað eftir tónlist af geisladiskum, eftir bingóið. Nokkur pláss laus í glerlist. Félagsstarfið, Dal- braut 18–20. Kl. 10 leikfimi, kl. 14.30 bankinn, kl. 14.40 ferð í Bónus. Félagsstarfið Dal- braut 27. Kl. 8–16 handavinnustofan, kl. 10–13 verslunin, kl. 13.30 bankinn, kl. 11– 11.30 leikfimi. Félagsstarfið, Hæð- argarði 31. Postulíns- málun og leirmótun kl. 9–16.30. Félagsstarfið, Löngu- hlíð 3. Kl. 9.30 hjúkr- unarfræðingur, kl. 10– 12 verslunin, kl. 13 föndur og handavinna. Kl. 10 guðsþjónusta. Félagsstarf aldraðra, Garðabæ. Stólaleikfimi kl. 9.30, kvenna- leikfimi kl. 10.20 og 11.15, handavinnuhorn og bridge-námskeið kl. 13, trésmíði kl. 13.30. Félag eldri borgara Kópavogi. Skrifstofan opin í dag frá kl. 10– 11.30, viðtalstími í Gjábakka kl 15–16. Félag eldri borgara, Hafnarfirði, Hraun- seli, opnað kl. 9, myndmennt kl. 10–16, línudans kl. 11, gler- skurður kl. 13, pílu- kast kl. 13.30, billj- ardsalurinn opinn til kl. 16. Félag eldri borgara, Reykjavík, Ásgarði. Söngfélag FEB kór- æfing kl. 17. Línu- danskennsla kl. 19.15. Gerðuberg, fé- lagsstarf. 9–16.30 vinnustofur opnar, kl. 10.30 gamlir leikir og dansar og sund- og leikfimiæfingar í Breiðholtslaug, kl. 12.30 koma börn úr Ártúnskóla með leik og söng, kl. 13.30 kór- æfing. Gjábakki, Fannborg 8. Kl. 9–17 handavinna, kl. 9.30 boccia, kl. 9.30 og kl. 13 glerlist, kl. 13 félagsvist, kl. 16 hringdansar, kl. 17. bobb. Kl. 15.15 söngur Guðrún Lilja mætir með gítarinn. Gullsmári, Gullsmára 13. Kl. 9 vefnaður, kl. 10 ganga, kl. 11 handavinnustofan op- in. Hraunbær 105. Kl. 9 handavinna, útskurður og banki, kl. 13 brids. Hvassaleiti 58–60. Kl. 9–15 handmennt, kl. 9–10 og kl. 10–11 jóga, kl. 15–18 myndlist. Korpúlfar Grafarvogi. Á morgun pútt á Korpúlfsstöðum kl. 10. Norðurbrún 1. Kl. 9– 16.45 vinnustofa, kl. 13–13.30 bankinn, kl. 14 félagsvist. Vesturgata 7. Kl. 8.25–10.30 sund, kl. 10–11.30 ganga, kl. 9.15–16 myndmennt, kl. 12.15–14.30 versl- unarferð, kl. 13–14 spurt og spjallað, kl. 13–16 tréskurður. Vitatorg. Kl 8.45 smiðja, kl. 10 búta- saumur, bókband, kl. 13 föndur og kóræf- ing, kl. 12.30 versl- unarferð. Þjónustumiðstöðin, Sléttuvegi 11. Kl. 10– 12 verslunin opin, kl. 13–16 keramik, tau- málun, föndur, kl. 15 bókabíllinn. Bókmenntaklúbbur Hana-nú. Fundur í kvöld á Bókasafni Kópavogs kl. 20. Verið er að lesa verk skálds- ins SJÓN. Vinahjálp, brids spilað á Hótel Sögu í dag kl. 13.30. Hafnargönguhóp- urinn. Kvöldganga kl. 20. Lagt af stað frá horni Hafnarhúsins. Sjálfsbjörg, Hátúni 12, kl. 19.30 Fé- lagsvist. MR-49. Fundur í dag. á Grand hóteli kl. 16, vegna Ítalíuferð- arinnar. Kvenfélag Fríkirkj- unnar í Reykjavík. Aðalfundurinn verður á morgun kl. 20, í Safnaðarheimilinu Laufásvegi 13. Félag kennara á eft- irlaunum, skákhóp- urinn í dag kl. 14, fundur bókmennta- hóps fimmtud. 5. febr- úar kl. 14. Fyrsti fræðslu- og skemmti- fundurinn verður laugard. 7. feb. í Húnabúð, kl. 13.30. Ræðumaður Þuríður Kristjánsdóttir, fyrr- verandi prófessor. Kvenfélag Hallgríms- kirkju. Félagsfundur verður fimmtud. 5. febrúar kl. 20. Gestur fundarins Ingólfur Hartvigsson. Jóhanna Möller verður með upplestur. Í dag er miðvikudagur 4. febr- úar, 35. dagur ársins 2004. Orð dagsins: Takið því hver annan að yður, eins og Kristur tók yður að sér, Guði til dýrðar. (Rm. 15, 7.)     Samkeppnisstofnunhefur beint því til tannlækna að þeir hafi gjaldskrá sýnilega við- skiptavinum. „Samkvæmt samkeppnislögum ber tannlæknum að hafa uppi gjaldskrá, bæði inni á tannlæknastofu sem og útdrátt á biðstofu þar sem greint er frá verði á helstu gjaldliðum. Þetta er algjört skilyrði fyrir því að verðlagning geti verið frjáls. Samkeppni byggir m.a. á því sem kallað er gagnsæi mark- aðarins,“ segir í umfjöll- un Samkeppnisstofnunar.     Þessi ábending er gefinút eftir að Sam- keppnisstofnun gerði verðkönnun hjá tann- læknum. Í henni kemur fram að mikill verðmun- ur er á milli einstakra tannlækna á þeim gjald- skrárliðum sem könn- unin náði til. Reyndist munurinn á lægsta og hæsta verði á einstökum gjaldskrárliðum vera frá 100% og upp í 650%.     Það er ekki óeðlilegtað verð fyrir sam- bærilega þjónustu sé mis- jafnt þegar verðlagning er frjáls. Margar for- sendur liggja að baki ákvörðun um verð sem væntanlegir kaupendur meta eftir sínum eigin mælikvörðum. Þess vegna er það rétt ábend- ing að fólk verður að geta kynnt sér gjaldskrá á einfaldan hátt. Það fer ekki saman frjáls verð- lagning og pukur.     Samkeppnisstofnunhefði af þeim sökum líka átt að benda á að tannlæknum er óheimilt að auglýsa þjónustu sína samkvæmt lögum um tannlækningar frá árinu 1985. Í 11. grein segir: „Tannlæknum eru óheimilar hvers konar auglýsingar um starf- semi sína sem tann- læknar.“ Þetta er síðan útfært enn betur í reglum tannlækna um auglýsingar þar sem meðal annars segir að þegar „tannlæknir hefur störf á tannlæknastofu eða flytur starfsemi sína má hann auglýsa í blöð- um þrisvar sinnum. Aðr- ar auglýsingar eru ekki leyfðar.“ Auglýsingarnar þrjár mega þó ekki vera stærri en tveggja dálka og 5 cm á hæð.     Þetta fer klárlega ekkisaman. Ef fólkið í landinu á að geta kynnt sér gjaldskrá tannlækna verða þeir að hafa svig- rúm til að koma þeim upplýsingum á framfæri. Umtalsverðar fjárhæðir fara í tannlækningar hjá fjölskyldum ár hvert. Frjáls verðlagning er af hinum góða en til þess að þeir tannlæknar, sem verðleggja þjónustu sína í hófi, fái að njóta þess í auknum viðskiptum verða þeir að geta upp- lýst fólk um verð þjón- ustunnar. Það er bæði hagur tannlækna og við- skiptavina þeirra. STAKSTEINAR Tannlæknum er bannað að auglýsa verðskrá Víkverji skrifar... Víkverji hefur ekki enn séð umtal-aða sýningu Ólafs Elíassonar, Frostvirkni, í Hafnarhúsinu en hann átti hins vegar nýlega leið um Tate Modern-safnið við Thames-ána í London, þar sem „Verkefnið um veðrið“ er enn í gangi. Víkverji hef- ur til þessa ekki talist til listhneigð- ustu manna, og er það viðburður þegar hann fer á myndlistarsýn- ingu, en það verður að segjast alveg eins og er að heimsóknin í Tate Modern var ógleymanleg. Þvílík upplifun! Það var eins og að stíga inn í ann- an veruleika að sjá sólina hans Ólafs birtast í þessum gríðarstóra túrb- ínusal safnsins. Og Víkverji var svo sannarlega ekki einn á ferð. Þarna, á miðjum virkum degi, var mikill mannfjöldi samankominn og bresk skólabörn áberandi í fylgd kennara sinna. Einn hópurinn hafði t.a.m. komið sér fyrir á teppum úti við einn vegginn að snæða nesti sitt á meðan skrafað var um verkið og spekúlerað. Einnig voru þarna ferðamenn frá ýmsum heims- hornum og ekki annað að sjá en að allir hrifust af því sem fyrir augu bar. Lögðust margir í gólfið til að spegla sig í lofti túrbínusalarins, ekki síst ungt og ástfangið fólk, en flestir stóðu bara og horfðu hug- fangnir mót sólinni. Með þokunni í salnum (sem þartilgerð tæki fram- kölluðu), sólinni og sérstakri birtu sem af henni stafaði sköpuðust þannig aðstæður að Víkverja fannst eins og hann væri staddur á miðju sögusviði vísindaskáldsögu, þar sem jarðarbúar biðu þess að geimskip lenti eða annað þaðan af meira framandi gerðist. Enginn var þó með skelfingarsvip heldur mátti fyrst og fremst sjá aðdáunar- og undrunarsvip á andliti fólks. Það er engin furða að þessi sýn- ing Ólafs hefur vakið mikla athygli og kæmi Víkverja ekki á óvart að sólin fengi að skína lengur en upp- haflega var ætlunin. Hún hefur lað- að til sín á aðra milljón manna og safnið hlýtur að njóta góðs af því í verslunum sínum og hliðarsölum. Hið eina sem skyggði á upplifun og ánægju Víkverja var að á stóru veggspjaldi var hins íslenska upp- runa listamannsins hvergi getið og nánast falið í sýningarskrá að hann ætti íslenska foreldra. „Born in Denmark“ stóð alls staðar og var ekki laust við að þetta kæmi eilítið við þjóðarstoltið. Því greip Víkverji tækifærið fegins hendi þegar hann, ásamt kunningja sínum, var beðinn að tjá sig um sýninguna í litla bók sem ungur listnemandi gekk með á milli gesta. Að sjálfsögðu skrifaði Víkverji að hann hefði verið af- skaplega hrifinn af sýningu „Íslend- ingsins“ Ólafs Elíassonar. Hann mátti meira að segja skrifa í bókina á móðurmáli sínu því nemandinn sagðist vera með Dana í bekk sem áreiðanlega skildi íslensku! Hvað er svona danskt við eftirnafnið Elíasson? Kambanesskriður – Kambanes ÉG las í Morgunblaðinu sl. fimmtudag frétt á bls. 4 þar sem segir frá vöruflutninga- bíl sem fór út af í Kamba- nesskriðum. Mig langar til að leiðrétta þetta örnefni. Á þessu nesi eru nokkrir bergdrangar (klettar yfir- leitt frekar lágir en langir) sem heita einu nafni Kamb- ar. Við þessa bergdranga er nesið kennt og heitir Kambanes. Sömuleiðis eru skriðurnar kenndar líka við þessa bergdranga og heita Kambaskriður, ekki Kambanesskriður. Þarna eru fleiri örnefni sem eru kennd við þessa kamba t.d. röstin austur úr nesinu sem heitir Kambaröst og þá má geta þess að Stöðfirðingar hafa sl. 50 ára átt fiskiskip með nafninu Kambaröst. Víkin sunnan á nesinu heitir Kambavík þannig að þetta er allt kennt við þessa kamba. Á þessu nesi eru tvær jarðir, önnur heitir Kambar og hin heitir Heyklif. Baldur Pálsson. Síróp frá Karo ÞANNIG er mál með vexti að ég geri töluvert af því að baka og meðal uppáhalds- uppskrifta minna er amer- ísk peacan-hnetubaka (peacan pie). Í uppskriftinni á að vera síróp frá Karo (pancake corn syrup) og fékkst það lengi vel bæði í Hagkaupum og Nóatúni. Núna er Karo-sírópið hins vegar horfið úr hillunum og ég í öngum mínum … Ég hef nefnilega prófað flestar ef ekki allar þær sírópsteg- undir sem til eru hérlendis, en árangurinn lætur á sér standa; bakan verður allt öðruvísi á bragðið. Ég er búin að dreifa uppskriftinni minni víða og því margar aðrar konur sem eiga í sömu vandræðunum og ég. Ég lýsi hér með eftir sír- ópinu! Er það til í einhverri verslun á Íslandi? Og/eða; af hverju var hætt að selja það? Bryndís. Tapað/fundið Hefur einhver fundið breitt silfurarmband? BREITT silfurarmband tapaðist föstudagskvöldið 23. janúar sl. í miðbæ Reykjavíkur, líklega á Vín- barnum við Kirkjuhvol eða í Lækjargötu. Finnandi vinsamlegast hafi samband í síma 695- 3105. Dýrahald Hafið þið séð hana Fífu? FÍFA á heima í Dýjahlíð á Kjalarnesi og hvarf að heiman í síðustu viku. Við erum búin að leita að henni á næstu bæjum og höfum spurt eftir henni mjög víða. Fífa er tík, svört og hvít, afar gæf og lítil í sér – hún er á 5. ári. Hún er blanda af border-collie og íslensku hundakyni. Hún er skyn- söm og geltir lítið sem ekki neitt. Ef sagt er við hana sæl þá heilsar hún og ligg þá leggst hún. Hennar er sárt saknað enda hefur hún aldrei farið svona að heim- an áður og biðjum við alla þá sem orðið hafa hennar varir að hafa samband í síma 566-6002 eða 822- 6750. VELVAKANDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15  Netfang velvakandi@mbl.is LÁRÉTT 1 grasgeiri, 4 kvendýr, 7 formar, 8 meiðum, 9 rödd, 11 beitu, 13 tryllt- ar, 14 sköp, 15 sjávardýr, 17 boli, 20 ótta, 22 lágfót- an, 23 fangbrögð, 24 kvarta undan, 25 ákveð. LÓÐRÉTT 1 áflog, 2 reikningurinn, 3 sjá eftir, 4 næðing, 5 líkamshlutinn, 6 sár, 10 lítilfjörleg, 12 afbrot, 13 skelfing, 15 snauð, 16 svefnhöfgi, 18 ávinnur sér, 19 dregið, 20 elska, 21 getraun. LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU Lárétt: 1 bandólmur, 8 farið, 9 kuldi, 10 lok, 11 riðla, 13 afnám, 15 stefs, 18 illar, 21 puð, 22 lognu, 23 netti, 24 hannyrðir. Lóðrétt: 2 afréð, 3 daðla, 4 lokka, 5 uglan, 6 æfar, 7 fimm, 12 lof, 14 fól, 15 soll, 16 eigra, 17 spurn, 18 iðnar, 19 látni, 20 reif. Krossgáta  Hægt er að kaupa 10 krossgátur á 600 kr. á mbl.is. Slóðin er: http://www.mbl.is/mm/folk/krossgata/index.html 1 7 11 15 22 24 12 14 3 9 20 10 4 8 21 23 25 13 17 5 18 6 19 2 16

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.