Vísir - 25.04.1981, Blaðsíða 31

Vísir - 25.04.1981, Blaðsíða 31
Laugardagur 25. aprll 1981 VÍSIR 31 Andrésar-Andar leikarnir fara nú fram i Hliðarfjalli og tekur mikill fjöldi barna viðs vegar að af land- inu þátt Iþeim. Þessi mynd var tekin viðsetningarathöfnina. (Visism. GS Akureyri). Atlamel sleglð á Neskaupslað Togarinn Birtingur frá Nes- kaupstað sló aflamet á þriðjudag, er hann kom að landi með 170 tonn eftir þriggja sólarhringa og sjö klukkustunda útiveru. Birtingur var 1 sólarhring og 18 tima að veiðum og lætur nærri að aflaverðmætið sé um 470 þúsund krónur eða 47 milljónir gkróna. Aflinn var þorskur af millistærð, en einnig var nokkuð um stærri þorska i aflanum. Mikil veiði hefur verið að undanförnu og kom Barðinn að landi á Páskadag meö 200 tonn eftir fjögurra sólarhringa útiveru, en veiðarnar fara fram úti i svokölluðum Hvalbakskanti. Sólskin hefur verið á Neskaup- stað dag eftir dag og mikið um útiveru ibúanna. Fr.Þorl. Nesk. ROKSALA HJA EIRÍKI SMITH „Þetta er bara eins og á útsölu,” varð einum gesta að orði, er viðstaddur var opnun mál- verkasýningar Eiriks Smith á sumardaginn fyrsta. Og skyldi engan undra, þvi um kvöldmatar- leytið hafði Eirikur selt hvorki meira né minna en 66 myndir af sýningunni. ,,Ég hef aldrei orðið var við það á fyrri sýningum, eins og nú, að siðustu viku hefur ekki linnt sim- hringingum frá fólki, sem hafði hug á að sjá sýninguna áður en hún væri opnuð almenningi,” VlSISBÍO Strandlif, heitir létt mynd sem sýnd verður i Visisbiói kl. 13 á morgun i Regboganum. Myndin er i litum með islenskum texta. Skemmlllegasla barnamyndin: SKllafreslur að renna út Nú fer hver að verða siðastur aðskila inn atkvæðaseðlinum um skemmtilegustu barnamynd árs- ins, en frestur til að skila inn sagði Eirikur Smith, i samtali við Visi, „þetta fólk hringdi ýmist sem fulltrúar einhverra stofnana eða sem einstaklingar.” A sýningu Eiriks eru 114 myndir, þar af voru 20 myndir, eins konar þjóðsagnasyrpa, seld- ar áður, en þær gerði Eirikur fyrir bókaútgáfu Olivers Steins i Hafnarfirði. Allan daginn var troðfullt útúr dyrum i Kjarvalssal Kjarvals- staða og meðal þeirra, sem festu kaupá myndum voru Landsbank- inn, Útvegsbankinn og Alþýðu- rennur út næstkomandi þriðju- dag, og er fólk beðið að skila seðlunum á ritstjórn Visis Siðumúla 14. Keppninni var hleypt af stokkunum i febrúarbyrjun og var þátttaka geysigóð, en eins og kunnugt er, eru það Visir, Hans Petersen hf og Ljósmyndarafélag Islands, sem að keppninni standa. Lelðréttlng á fóstrufrétt IfréttVisis um launamál fóstra i gær var missagt að fóstrur i Reykjavik væru i 12. launaflokki. Þær eru i 11. launaflokki. Þá var einnig rangt farið með iauna- flokka fóstra i Kópavogi, en þær eru i 12. launaflokki og hækka i 13. Krðfiuvlrkjun: ÓVÆNT AFLAUKNING Gufuafl Kröfluvirkjunar jókst um 1-1.5 megavatt i byrjun vik- unnar öllum að óvörum og án þess að nokkrar ráðstafanir hefðu verið gerðar til að auka aflið. Framleiðir virkjunin nú 13 mega- vött. Aukning hefur áður orðið með þessum hætti á gufuafli og þá um likt leyti og ris hefur náð hámarki á umbrotasvæðunum i Mývatns- sveit og gos hafist. GS Akureyri. Eirikur Smith listmálari bankinn, en sá siðastnefndi ætlar aðfæra Listasafni Alþýðu verkið. Þá festi sjúkrahús Akraness kaup á einni mynd, en flestar hinna munu hafa farið til einstaklinga. —KÞ. flokk eftir þriggja ára starf. Þá er rétt að geta þess, að fóstrur á Akureyri byrja i 12. launaflokki og hækka siðan eftir eitt ár upp i 13. flokk og upp i 14. flokk eftir nokkurra ára starf. „KONA” FER AUSTUR FYRIR FJALL Sýningum Alþýðuleikhússins á Kona eftir þau Dario Fo og Franca Rame i Reykjavik fer nú að fækka. Siðasta sýning að sinni er i kvöld, laugardag, kl. 20.30 og eftir helgina leggur leikhópurinn leið sina austur fyrir fjall. Kona verður sýnd i Árnesi þ. 28. april, i Hveragerði þ. 29. og á Hvolsvelli þ. 30. april. Leikritið fékk mjög góða dóma og leikkonunum hrósað mikið, ekki síst Guðrúnu Gisladóttur. Auk hennar leika þær Sólveik Hauksdóttir og Edda Hólm, en leikstjóri er Guðrún Asmunds- dóttir. Allsendis óvist er um fleiri sýningar i höfuðborginni á þessu leikriti. Frönsk Kvikmyndavika hefst f dag: ,TEK á VANDAMALI SEM ER OFARLEGA A RAUGIÍ DAG' - segir leikstjúri Ma chéríe, sem sýnd veröur víö opnunina Frönsk kvikmyndavika hefst i Regnboganum i dag. Sýndar verða sjö m vndir, ólikar að efni og gerð, sú elsta frá árinu 1973. Allur ágdði að hátiðinni rennur til Rauða Kross íslands. Kvikmyndavikan hefst með sýningu myndarinnar Ma cherie eða Elskan min eftir franska leikstjórann Charlotte Dubreuil og er hún stödd hér á landi vegna þessa „Ég skrifaði Ma cherie með hjálp dóttur minnar. sagði Dubreuil, i sam- tali við Visi, „enda fjallar myndin um samskipti móður og dóttur, þó vil ég taka fram að þetta er ekki ævisaga okkar mæðgnanna, en þau mannlegu tengsl, sem þarna koma fram og þær tilfinningar, eru samt sem áður okkar.” Dubreuil sagði, að hún hefði gert þessa mynd 1979 og hefði hún verið sýnd i Paris i fyrra og fengið góðar viðtökur,, meðal annars hefði hún fengið viður- kenninguá kvikmyndahátiðinni i Cannes á siðasta ári. „Myndin hefur verið sýnd undanfarið i Bandarikjunum,” sagði Dubreuil, „og hlotið þar verulega athvgli og góða dóma, það kom mér reyndar á óvart, hversu jákvæðir allir dómar voru þar, en það er sennilega vegna þess, að efnið sem myndinfjallar um er mjög ofar- lega á baugi þessa dagana. 1 myndinni er tekið tillit til nútimans, konan er ekki lengur bara dóttir einhvers, eiginkona einhvers eða móöir einhvers, hún er einstaklingur, en hvað er hún? Hvað er konan miðað við umhverfi sitt, eiginmann sinn, barn sitt? Þessar spurningar og aðrar slikar eru áleitnar i dag og þeim reyni ég að leita svara við.en hvorteinhver niðurstaða fæst, skal ég ósagt látið.” Dubreuil hefur um nokkurra ára skeið fengist við kvik- myndagerð, hefur hún gert tvær kvikmyndir i fullri lengd, eina sjónvarpskvikmynd og unnið að tveimur öðrum i samráði við fleiri leikstjóra. Auk þess vinn- ur hún að nýrri kvikmynd þessa dagana. En það verða fleiri myndir á dagskrá kvikmyndahátiðarinn- ar. Gamanmyndin L’associe eða Meðeigandinn frá árinu 1979 eftir leikstjórann Rene Grainville segir frá Julien, sem býr sér til imyndaðan meðeig- anda að fyrirtæki sinu. Meðeigandinn verður brátt of fyrirferðarmikill i lifi Julien og allt stefnir i voða. Heimþrá eða Le coup de Sirocco og Beislið Le Mors aux Dents eru frá árinu 1979. Sú fyrrnefnda, gerist i litilli kyrr látri borg i' Alsir, þar sem hin samhenta Narboni fjölskylda býr, þar til brottflutningurinn vegna sjálfstæðisbaráttu Alsir dynur yfir þau. 1 kvikmyndum hefur verið greint frá bylting- unni i Alsir hernum og lifi her manna en nánast aldrei vikið að örlögum þeirra frakka, sem þarna voru búsettir og höfðu verið sumir hverjir mann fram af manni. Narboni fjölskyldan kemur til Frakklands, sem hún þekkir ekki og litur á næstum sem framandi land. Myndina gerði Alexandre Arcady. Beislið gerði Laurent Heynemann og fjallar hún um, hvernig á að eyðileggja stjórn- málamann með þvi að veita honum tækifæri til að skipuleggja svindl, sem aftur er eyðilagt með skemmdarverka- starfsemi annars staðar frá. 1 myndinni er blandað saman veðreiðum og pólitisku ráða- bruggi, sem fjailar um reikn- ingsuppgjör innan valdamikils flokks. Leynilögreglumyndin Tveir menn eða Deux hommes dans la Ville er frá árinu 1973 og er leikstjóri José Giovanni,. Þar er sagt frá Gino, sem eftir að hafa afplánað 10 ára fangelsisdóm, ákveður að hefja nýtt lif með stúlkunni Lucy. Með hjálp góðs vinar viröist lifið blasa við Gino, en allt fer þá á annan veg. Það er hinn frægi leikari frakka, Jean Gabin, sem þarna fer með aðalhlutverkið. Eyðimörk tataranna, Le Ðéset des Tartares, er frá árinu 1979 og leikstjóri er Valerio Zurlini. Myndin er byggð á sam- nefndri sögu Dino Buzzati. Þetta er magnað verk sem tek- isthefur frábærlega vel að kvik- mynda og segir myndin eins og skáldsagan frá afskekktu virki við landamæri einhvers óþekkts lands, sem setulið vakir yfir svo ekki verði ráðist á landið. Horfin slóð, Le chemin perdu, er eftir Patricia Moraz og er f rá árinu 1980. Hún fjallar um Cécile, sem er hugmyndarikt barn, er flöktir milli tveggja heima, þess sem Léon Schwarz afi hennar og eldheitur baráttu- maður kommúnismans lifir i og þess sem sjálfselskir foreldrar hennar hrærast i. Auk þess er hún upptekin i eigin draumum, en þá jcemur Angelo til sögunn- ar og hann fær hjarta hennar til að slá örar. Kvikmyndavikan nú er sú sjötta i' röðinni, sem Franska sendiráðið stendur fyrir á tslandi. Með öllum myndunum eru enskir textar. —KÞ. „Ma chérie er ekki sjálfsævisaga min.” Charlotte Dubreuil, franski leikstjórinn, á fundi með blaöamönnum. (Vísism. EÞS).

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.