Pressan - 10.09.1992, Blaðsíða 11

Pressan - 10.09.1992, Blaðsíða 11
FIMMTUDAGUR PRESSAN 10. SEPTEMBER 1992 11 Þrátt fyrir að langt sé um liðið síðan kynntar voru stórhuga fyrirætlanir um lakkrísverksmiðju í Kína bólar ekkert á af- rakstrinum. Á meðan hafa aðstandendur verksmiðjunnar lent í viðskiptahremmingum og slitið samstarfinu. Á undanförnum misserum hafa reglubundið borist fréttir af djörfum fyrirætlunum íslenskra athaíhamanna um að setja á stofn risavaxna lakkrísverksmiðju í Kína. Hefur hugmyndin verið kynnt með þeim hætti að svo virð- ist sem um sé að ræða verulega ábatasama framleiðslu, byggða á íslensku hugviti. Nú virðist hins vegar flest benda til að hugmyndir þessar hafi verið byggðar á sandi og er reyndar flest á huldu um af- drif verksmiðjunnar, en ljóst er að aðstandendur hennar hafa bland- að sér í mörg vafasöm viðskipta- ævintýri á meðan. Aðalmennirnir í þessu Kína- lakkrísævintýri voru þeir Guð- mundur Viðar Friðriksson og Stefán Jóhannsson. Á sínum tíma keypti Guðmundur Viðar sælgæt- isgerðina Völu, sem hann reyndar seldi síðan áfrarn til Erlings Lauf- dal. Greiðslur Guðmundar til fýrri eiganda sælgætisgerðarinnar munu hins vegar hafa brugðist fullkomlega og skömmu eftir að hann seldi hana varð hún gjald- þrota. Árið 1987 keypti Guðmundur Viðar svo verslunarfyrirtækið Sjónval sem flutti inn smáhluti ffá Kína. I’ kjölfar þess komst hann í viðskiptasambönd við Kínveija og naut meðal annars aðstoðar við- skiptafulltrúa kínverska sendi- ráðsins hér. Þarna virðast hafa vaknað hugmyndir um að tvinna þetta saman; lakkrísinn og Kín- verjana, og fljótlega fara að koma fjölmiðlafréttir af væntanlegum fyrirætlunum. Um mitt ár 1990 leitar síðan Guðmundur aftur til þess aðila sem seldi honum sælgætisgerðina Völu á sínum tíma, Magnúsar Matthíassonar. Bauðst Guðmund- ur til að greiða Magnúsi fljótlega um tvær milljónir króna og ráða hann sem tæknilegan ráðgjafa vegna þekkingar hans á lakkrís- gerð. Voru þessar tvær milljónir meðal annars hugsaðar til að bæta Magnúsi upp fyrri óþægindi. Var undirritaður skriflegur samningur þar um á milli Magnúsar og Sjón- vals. Guðmundur Viðar skrifaði undir þennan samning fyrir hönd Sjónvals, en samningurinn átti meðal annars að tryggja Magnúsi 5% eignaraaðild að væntanlegu lakkrísframleiðsiufyrirtæki úti í Kína. Síðan hefur Magnús hvorki heyrt neitt né séð af þessum fyrir- ætlunum. Skömmu síðar er Sjónvali, sem hafði verið einkafnma, breytt í hlutafélag með skráð hlutafé upp á 18 milljónir króna og Guðmundur Viðar, Stefán og eiginkonur þeirra skrifuð fyrir því. Tilkynnt var að allt hlutafé hefði verið greitt inn, en hver átti 4,5 milljóna króna hlut. í upphafi árs 1991 er viðtal við þá Guðmund Viðar og Stefán í DV þar sem þeir lýsa fjálglega fyrir- huguðum rekstri í Kína. Þar segja þeir að heildarfjárfesting vegna ævintýrisins verði um 1,2 milljón- ir dollara og skiptist til helminga á milli íslenskra aðila og kínverskra. Var tilkynnt að framleiðslan yrði send inn á kínverskan markað en fýrst þyrfti að kenna Kínverjum að borða lakkrís! Einnig átti að vinna markaði víða um heim, sérstak- lega í Bandaríkjunum. Framkvæmdastjórinn kom straxheim Sælgætisframleiðendur hér heima sögðust í samtali við PRESSUNA hafa fýlgst með ffétt- um af atburðunum með dálítilli undrun. Hefði vakið athygli þeirra hve mikið átti að ffamleiða svo og bjartsýn markaðssókn. Þá sagðist einn þeirra hafa tekið eftir að verksmiðjan hefði færst tii innan Kína svo nam um 1.000 km án þess að neinn tæki eftir því! Iðntæknistofhun og Verkffæði- stofa Sigurðar Thoroddsen unnu einhverjar rannsóknir fýrir verk- efhið og skömmu síðan fór Guðmundur Viðar út til Kína. Með honum fór Bjarni Halldórs- son viðskiptaffæðingur, sem hafði tekið að sér að vera ffamkvæmda- stjóri fyrirtækisins í Kína. Bjarni kom hins vegar skjótlega heim. Falsaðar Levi’s-buxur í stað lakkríss Guðmundur Viðar varð eftir í Kína og var ekki aðgerðalaus því hann tók að sér að senda hingað heim ýmsar vörur unnar í Kína. Frægust varð sending á 10.000 fölsuðum Levi’s-gallabuxum sem hingað barst um mitt ár í fýrra. Var innflutningsverðmæti buxn- anna talið um 5 milljónir króna en söluverð á milli 60 og 70 milljónir króna. Um var að ræða nokkuð ná- kvæma eftirlíkingu af buxunum og urðu lyktir málsins þær að lög- reglan gerði þær upptækar og fékk lögmaður Levi’s, Viðar Már Matt- híasson, buxurnar að lokum brenndar. Engin málshöfðun varð hins vegar út úr þessu, einfaldlega af því að ákæruvaldinu tókst ekki að sanna að menn hefðu vitandi vits selt falsaða vöru. Samkvæmt heimildum PRESSUNNAR voru það aðilar sem tengdust Guð- mundi Viðari fjölskylduböndum sem tóku að sér að dreifa buxun- um. Einnig hefur blaðið heimildir fýrir því að fleiri vörutegundir hafi borist frá sömu uppsprettu, þótt ekki hafi vakið jafnmilda eff irtekt. Sjónval fær nýja eigendur sem kannast ekkert við lakkrís En allt síðasta ár leið án þess að nokkuð bólaði á lakkrísnum þótt hins vegar væru reglulegar fjöl- miðlafféttir af ffamtakinu. Á tíma- bilinu bárust hins vegar fréttir af því að Stefán hefði skyndilega hætt hjá verðbréfafyrirtækinu Handsali og eru heimildir fýrir því að brottför hans þaðan hafi tengst því að hann blandaði saman hags- munum Sjónvals og Handsals. Hvorki Stefán né Edda Helgason hjá Handsali vildu neitt tjá sig um það og vildi Stefán yfirleitt ekkert tjá sig um lakkrísverksmiðjuna í Kína, — sagðist ekkert til hennar þekkja. Stefán er hins vegar enn í stjórn Sjónvals, sem nú virðist hafa verið selt nýjum aðilum, ffamkvæmda- mönnum á Akureyri. Um leið hef- ur skráð hlutafé verið fært upp í 36 milljónir króna og hlutverld fé- lagsins breytt. Jafitffamt var sam- þykkt á hluthafafundi 13. ágúst síðastliðinn að selja Unimark hf. á Akureyri alla aukningarhlutina, að Guðmundur Viðar Friðriksson og Stefán Jóhannsson á meðan samstarfið var í blóma. Nú er það fyrir bí og óvíst um innflutning á lakkrísnum. fjárhæð 18 milljónir krona. Þetta var gert nú í ágúst og virð- ist staðfesta að Sjónval hafi ekkert lengur með Guðmund Viðar og Kínalakkrísinn að gera. Nýr stjórnarformaður Sjónvals, Pétur Bjarnason pylsusali á Akureyri, vildi ekkert tjá sig um félagið, hvorki fortíð þess né framtíð. Guðmundur Viðar enn að leita að fjármagni Guðmundur Viðar er ennþá úti í Kína en kom heim á síðasta vetri og virðist síður en svo búinn að setja lakkrísverksmiðjuna til hlið- ar. Hann hafði samband við ABC- umboðs- og heildverslunina hf. og bað forráðamenn hennar að taka að sér umboðsmennsku hér. Átti það að tengjast því að fljótlega færi Kínalakkrísinn að flæða inn. Guð- mundur Guðmundarson, fram- kvæmdastjóri félagsins, sagðist síðan hvorki hafa heyrt nokkuð né séð af þessum fýrirætlunun. Með Guðmundi Viðari í för þá var breskur maður og hefur PRESSAN heimildir fýrir því að þeir hafi leitað að fjárfestum hér heima. Engar upplýsingar eru þó um það hvort þeim tókst að verða sér úti um fjármagn. Stofnfé Sjónvals var skráð að fullu greitt en það var lagt inn í fýrirtækið Scandinavian Guangz- hou Candy Co. Ltd. í kínverska al- þýðulýðveldinu. Þetta stofnfé var greitt í formi einkaleyfa, tækni- kunnáttu, framleiðslutækni og stjórnunar og uppskrifta á lakkrís. Þetta var stofnframlag á meðan Sjónval átti hlut í verksmiðjunni í Kína, en hún var alla tíð kynnt sem samstarfsfélag Sjónvals og kínverskra aðila. Núverandi eig- endur Sjónvals virðast hinsvegar ekki hafa mikinn áhuga á Guð- mundi Viðari og Kínalakkrísnum. Sigurður MárJónsson

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.