Morgunblaðið - 06.05.2004, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 06.05.2004, Blaðsíða 26
LISTIR 26 FIMMTUDAGUR 6. MAÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ BARSELÓNA skipar veigamikinn sess í þróun nútímalistar, skartar t.d. listamönnum eins og Salvador Dali, Juan Miro, Antoni Tápíes og Pablo Picasso sem m.a. hélt sína fyrstu sýn- ingu þar árið 1900. Er óhætt að segja borgina einhverja þá mikilvægustu fyrir myndlistina í upphafi módern- ismans, þá auðvitað á eftir París. Spánn var hlutlaus í fyrri heimsstyrj- öldinni og sóttu margir listamenn því hæli í Barselóna, Má þar nefna Francis Picabia sem kynnti Dada- stefnuna fyrir borgarbúum og gaf þar út Dada-tímaritið 391. Hefð hefur svo skapast hjá listamönnum borgarinnar fyrir hugmyndalegri nálgun við listina sem margir vilja meina að sé helsti styrkur katalónskra listamanna í dag. David G. Torres er einmitt þeirrar skoðunar en hann er sýningarstjóri á yfirstandandi sýningu sjö listamanna frá Barselóna í vestursal Kjarval- staða – Listasafns Reykjavíkur. Með sýningunni leitast hann við að skil- greina samband á milli listar og hugs- unar og velur þar með listamenn sem á ólíkan hátt sækja í arf hugmynda- listar eða konseptlistar. Listamenn- irnir sjö heita Martí Anson, Ignasi Aballí, Carles Congost, Antonio Ort- ega, Mabel Palacín, Daniel Chust Peters og Tere Recarens og hafa þau verið að skapa sér nafn í heimalandi sínu og víðar. Sýningin ber heitið „Litið lengra – Horft í gegn“ og kemur hingað sem skiptisýning. Í hennar stað sendi Listasafn Reykjavíkur sýningu á verkum nokkurra íslenskra lista- manna til La Capella í Barselóna. Skondin skiptisýning Gamansemi er ríkjandi á sýning- unni. Leiktími Martí Ansons er t.d. þrælskoplegt myndband um hvers- dagsleikann í anda gamalla farsa eða Warner Bros teiknimynda, skjámynd Daniels Chust Peters af lítilli eftir- mynd af vinnustofu sinni kitlar mig einnig í magann og jafnvel „mistök“ Ignasis Abullís eru á sinn hátt skond- in útfærsla á mínimal-konseptlist síð- ustu aldar. Helst er það þó söngleikur Carles Congost sem mér finnst hitta í mark. Þetta er stuttur heimatilbúinn söngleikur í „80́s“ stíl sem fjallar um ungan og efnilegan knattspyrnumann sem er ginntur af listagyðjunum og gerist vídeólistamaður, vinum sínum og vandamönnum til mikillar niður- lægingar. Congost er þarna að hnýta í spænsku þjóðarsálina en knattspyrna er gríðarlega mikilvæg þar í landi og þá sérstaklega í Barselóna. Congost spilar líka vel á söngleikjaformið með tilheyrandi óperu-innslagi í anda Ro- gers/Kern og Hammerstein, s.s. So- uth Pacific eða Show Boat, þegar hinn þjáði vinnumaður, ýmist bassi eða mezzosópran, tekur blúsinn sinn. Í söngleik Congost er það andi hins þjáða og goðsagnakennda listamanns sem fussar yfir tískubylgju vídeólist- ar og minnist dagana þegar hann drap dýr til að búa sér til striga, mal- aði litaduft úr villtum blómum og át skít til að seðja hungrið. Í heildina er þetta forvitnileg og skemmtileg sýning þótt ekki sé um stórviðburð að ræða. Þykir mér því merkilegt miðað við þá umræðu sem hér hefur verið um nauðsyn þess að hafa alþjóðlegar sýningar á Íslandi til að fá réttan samanburð á íslenska samtímalist, að sýningin virðist ger- samlega hverfa í sýningarflóru Reykjavíkur. Algert áhugaleysi er um hana, meira að segja af hálfu að- standenda Listasafns Reykjavíkur, að mér sýnist, en ekkert er gert til að kynna eða auglýsa sýninguna né lista- mennina annars staðar en á heima- síðu listasafnsins. Mætti því halda að hér sé ómerkileg skiptisýning á ferð sem safnið tók við til að geta sent ís- lenska listamenn til Spánar. Kannski er það líka viðhorfið sem ríkir. En raunin er samt önnur. Hér er verið að bjóða upp á ágætt sýnishorn af því sem ungir listamenn eru að fást við sunnan hafs. Carles Congost, sem dæmi, er myndlistarmaður og popp- ari og má líkja stöðu hans í spænskum listheimi við stöðu Egils Sæbjörns- sonar í þeim íslenska, nema að Spán- verjar eru jú 48 milljónum fleiri en Ís- lendingar. Frá hinu holdlega til hins guðdómlega Á ganginum á Kjarvalstöðum sýnir Erla Þórarinsdóttir 8 málverk undir heitinu „Corpus lucis sensitivus“ eða „Hinn ljósnæmi líkami“. Fæst Erla við málverkið sem áþreifanlegan lík- ama í sjálfu sér, sem var algengt við- horf til málverka í upphafi abstrakt expressjónismans um og eftir síðari heimsstyrjöldina. Verkin eru unnin með línolíu, litadufti og silfri. Hefur efnablöndunin ásamt birtu sólar þau áhrif að silfrið gulnar og tekur að líkj- ast gulli. Að þessu leyti er Erla komin á svið gullgerðarlistar (alchemy) sem voru vinsæl vísindi á tímum endur- reisnarinnar. Var þá gull álitið guð- dómlegt efni og vildu gullgerðarlista- menn eða alkemistar breyta ódýrum málmum í gull og færa þannig óhreint efni á æðra stig. Erla breytir auðvitað ekki línoliu, litadufti og silfri í gull. Eðli þessara efna helst óbreytt í myndunum, en myndlíkingin og sam- hengið breytir merkingu þeirra og upplifun okkar á þeim. Að þessu leyti færir listakonan efnið á annað stig, hvort sem menn vilja svo kalla það æðra eða ekki. Hvað málverkin varðar er hver mynd sjálfstætt verk en saman skapa þær samtal á milli hins dýrslega og hins guðdómlega sem gefur sýning- unni aukið gildi. Hafði ég talsverða ánægju af að lesa í og túlka tákn- myndirnar sem Erla notar til að skapa þetta samtal. Í fyrsta málverk- inu í myndröðinni notast listakonan við blóðrauðan lekandi lit og horn sem er táknmynd Díonýsíusar eða hins dýrslega og holdlega. Síðasta mál- verkið í röðinni er í tærum litum með auga á miðjum fletinum sem vænt- anlega táknar hinn alsjáandi guð eða hreina vitund. Þar á milli á sér svo stað ferli frá hinu dýrslega til hins guðdómlega, sem t.d. birtist í tákn- myndum eins og valentínusarhjarta (táknmynd ástar manns og konu), klukkuformi (sem merkir guðdómleg- an eða tæran hljóm sem fælir frá hið díonýsíska) og englavængjum, en englar eru guðdómlegar verur sem samkvæmt gamla testamentinu missa vængi sína og guðdómleika ef þeir hafa mök við jarðneskar konur. Þetta er semsagt vel hugsuð sýning hjá Erlu og fer nú hver að verða síð- astur að sjá hana, eins og sýningu Börsunganna, en báðum sýningunum lýkur á sunnudaginn kemur. MYNDLIST Listasafn Reykjavíkur – Kjarvalsstaðir Safnið er opið alla daga frá 10–17. Sýningunum lýkur 9. maí. VESTURSALUR – SJÖ LISTAMENN FRÁ BARSELÓNA GANGUR – ERLA ÞÓRARINSDÓTTIR Jón B. K. Ransu Vængir Gabríels á sýningu Erlu Þórarinsdóttur, Corpus lucis sensitivus. Daniel Chust Peters beinir upptökuvél á litla gull-eftirgerð af vinnustofu sinni og varpar myndinni á vegg. Knattspyrnumaðurinn efnilegi ákveður að snúa sér að vídeólist í söngleik Carles Congost, Ákveðin dulúð, sem sýndur er á Kjarvalsstöðum. Spænsk fyndni, íslensk alvara JÓRUKÓRINN á Selfossi heldur sína árlegu vortónleika í Hvíta hús- inu við Hrísmýri á Selfossi. Tónleik- arnir verða tvennir að þessu sinni. Hinir fyrri verða á morgun, fimmtu- dag, en hinir síðari á sunnudag. Hvorir tveggja tónleikarnir verða kl. 20.30. Að þessu sinni er kórinn með eins konar þematónleika því meginvið- fangsefni kórsins í vetur hefur verið tónlist sem fjallar um hinar ýmsu hliðar ástarinnar. Stjórnandi kórsins er Helena Káradóttir og undirleikari er Þór- laug Bjarnadóttir. Auk Þórlaugar leika með kórnum Smári Kristjáns- son á bassa, Jóhann Stefánsson á trompet og Petra Sigurðardóttir á þverflautu. Jórukórinn syngur um ástina SKAGFIRSKA söngsveitin í Reykja- vík heldur tvenna tónleika á þessu vori, að þessu sinni í Langholtskirkju kl. 20 í kvöld, fimmtudagskvöld, og kl. 17 á laugardag. Í vor eru 20 ár síðan Björgvin Þ. Valdimarsson stjórnaði sínum fyrstu tónleikum með Skag- firsku söngsveitinni, en hann tók við söngstjórninni af Snæbjörgu Snæ- bjarnardóttur haustið 1983. Björgvin og söngsveitin hafa átt farsælt sam- starf og hefur sveitin frumflutt fjölda laga hans, sem mörg hver prýða nú söngskrá annarra kóra. Söngskráin nú tekur að nokkru mið af því að kórinn er að fara í söng- ferð til Kanada í sumar. Á efnis- skránni eru íslensk þjóðlög, sönglög eftir íslensk tónskáld auk sönglaga- syrpu eftir Björgvin Þ. Valdimars- son. Björgvin hefur í tilefni Kanada- ferðarinnar samið lag við kvæði Stephans G. Stephanssonar, Við verkalok, og verður það frumflutt á tónleikunum. Af erlendum verkum ber hæst kafla úr sköpuninni eftir Jo- seph Haydn. Einsöng með kórnum syngur Kristín R. Sigurðardóttir og kórfélagarnir Ragna Bjarnadóttir, Guðmundur Sigurðsson, Magnús Sigurjónsson og Baldvin Júlíusson. Undirleikari er Dagný Björgvins- dóttir. Skagfirska söngsveitin Mokka, Skólavörðustíg Gunnar Scheving Thorsteinsson sýnir mál- verk til 6. júní. Á sýningunni bregð- ur fyrir ýmsu mektarfólki, leiðtog- um og stórstjörnum. Félagsheimilið á Hvammstanga kl. 20.30 Raddbandafélag Reykja- víkur á tónleikum á Hvammstanga. flytur tónlist úr ýmsum áttum, m.a. íslensk þjóðlög og sönglög, erlend þjóðlög í ýmsum búningi, barbers- hop lög og erlend dægurlög. Radd- bandafélagið var stofnað fyrir rúmu ári og í því starfa nú fjórtán söng- menn. Stjórnandi Raddbandafélags Reykjavíkur er Sigrún Grendal. Tónleikarnir eru liður í tónleikaröð Tónlistarfélags Vestur-Húnvetn- inga. Í DAG ♦♦♦ Frábærar, fjörugar og fjölbreyttar ævintýraferðir fyrir útskriftarhópa og alla sem vilja upplifa ævintýr Upplýsingar í síma 562-7700 www.travel-2.is 1 4 4 4 w w w. g u l a l i n a n . i s
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.