Morgunblaðið - 07.05.2004, Blaðsíða 58

Morgunblaðið - 07.05.2004, Blaðsíða 58
ÍÞRÓTTIR 58 FÖSTUDAGUR 7. MAÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ Hinn 26 ára gamli Drogba hefurheldur betur verið drjúgur fyr- ir Marseille í keppninni. Hann skor- aði í báðum leikjunum gegn Liver- pool í 16 liða úrslitunum og skoraði sigurmarkið gegn Inter Mílanó í fyrri leiknum í 8 liða úrslitunum. Fyrra mark hans var sérlega glæsi- legt, á 18. mínútu, þegar hann nýtti sér mistök á miðjum vellinum, brun- aði upp að markinu, plataði þar varn- armann upp úr skónum og skoraði. Newcastle tók við sér í seinni hálf- leik og fékk nokkur þokkaleg færi en enska liðið saknaði margra lykil- manna og varð að játa sig sigrað þegar Drogba skoraði aftur 8 mín- útum fyrir leikslok, 2:0. „Þetta er búin að vera löng og mikil barátta og við biðum okkar fyrsta ósigur í tólf leikjum í keppn- inni. Marseille skoraði úr skyndi- sókn og eftir aukaspyrnu, og náði í raun ekki að opna vörn okkar að ráði fyrr en seinna markið kom. Við átt- um okkar tækifæri sem ekki nýttust. En við stóðum okkur mjög vel, ég bað strákana um að gefa allt í leikinn og þeir gerðu það – þeir spiluðu eins og hetjur. Ég er mjög ánægður með þá að öllu leyti,“ sagði Bobby Rob- son, hinn 71 árs gamli knattspyrnu- stjóri Newcastle, sem vann þessa sömu keppni fyrir 23 árum, þá við stjórnvölinn hjá Ipswich. Newcastle tapaði í fyrsta skipti í síðustu átta útileikjum sínum í Evr- ópukeppni og þetta var í fyrsta skipti í 10 Evrópuleikjum á útivelli sem lið- ið náði ekki að skora. Þriðji úrslitaleikur Valencia á fimm árum Miguel Mista skoraði eina markið í viðureign grannliðanna á austur- strönd Spánar, Valencia og Villar- real. Á 16. mínútu krækti hann í víta- spyrnu og skoraði úr henni sjálfur. Þar með þurftu leikmenn Villarreal að skora tvö mörk til að komast áfram og það var þeim um megn gegn toppliði spænsku 1. deildarinn- ar. Valencia var nær því að skora úr skyndisóknum en gestirnir að jafna metin og Mista var klaufi að bæta ekki við marki seint í leiknum. Villarreal náði eftir sem áður mjög óvæntum árangri í keppninni og sló út bæði Roma og Celtic. Valencia er aftur á móti komið í sinn þriðja úr- slitaleik á fimm árum en liðið tapaði úrslitaleikjum Meistaradeildar Evr- ópu árin 2000 og 2001. Reuters Didier Drogba, fyrir miðju, er fagnað af félögum sínum í leikslok, þeim Demetrius Ferreira, til vinstri, og Brahim Ndani. Marseille mætir Valencia í úrslitaleik UEFA-bikarsins. Drogba gerði draum Newcastle að engu DIDIER Drogba, töframaðurinn frá Fílabeinsströndinni, gerði vonir Newcastle um að komast í úrslitaleik UEFA-bikarsins í knattspyrnu að engu. Hann skoraði bæði mörk Marseille sem lagði enska liðið að velli, 2:0, í síðari undanúrslitaleik liðanna á Velodrome-leikvang- inum í frönsku Miðjarðarhafsborginni í gærkvöld. Sá fyrri endaði 0:0. Marseille mætir Valencia frá Spáni í úrslitaleiknum í Gautaborg hinn 19. maí en Valencia vann Villarreal, 1:0, í uppgjöri spænsku liðanna og 3:2 samanlagt.  FELIX Magath, þjálfari Stutt- gart, sem hefur náð mjög góðum ár- angri með liðið, segist hafa áhuga að fá að spreyta sig á Englandi. Mag- ath, 49 ára, er samningsbundinn Stuttgart til sumarsins 2005. „Ég hef alltaf haft áhuga á að reyna mig fyrir utan Þýskaland og hef þá horft til Englands, en er mjög hrifinn af knattspyrnunni sem er leikin þar í landi,“ sagði Magath.  ÞESSI fyrrverandi þýski lands- liðsmaður, leikmaður Hamburger SV og þjálfari Werder Bremen og Frankfurt, hefur verið orðaður við Bayern München, sem eftirmaður Ottmar Hitzfeld, sem hættir 2005. Magath skoraði sigurmark Ham- burger gegn Juventus í úrslitaleik Evrópukeppni meistaraliða 1983.  HÖRÐUR Sveinsson, tvítugur sóknarmaður í knattspyrnuliði Keflavíkur, skrifaði í gær undir þriggja ára samning við félagið. Hörður hefur vakið mikla athygli með Keflavík að undanförnu en hann skoraði 10 mörk í 7 leikjum liðsins í riðlakeppni deildabikarsins.  FLORENTINO Perez, forseti Real Madrid, sagði í gær að búið væri að kalla Fernando Morientes, miðherja og lykilmann Mónakó, aft- ur til Real. Hann á að vera kominn á nú til Madrid 30. júní. Real lánaði Morientes til Mónakó í ágúst sl., þar sem hann komst ekki í liðið eftir að Ronaldo var keyptur. FÓLK HANDKNATTLEIKUR Valur – ÍBV 28:27 Hlíðarendi, úrslitakeppni kvenna, annar leikur, fimmtudagur 6. maí 2004. Gangur leiksins: 0:2, 1:4, 6:4, 8:6, 8:8, 12:8, 12:11, 13:11, 13:13, 14:13, 14:14, 14:17, 15:19, 16:20, 18:20, 18:22, 20:22, 20:23, 24:23, 25:25, 26:26, 28:26, 28:27. Mörk Vals: Ágústa Edda Björnsdóttir 7/3, Elfa Björk Hreggviðsdóttir 5, Sigurlaug Rúnarsdóttir 5/2, Árný Björg Ísberg 3, Kolbrún Franklín 3, Gerður Beta Jóhanns- dóttir 2, Hafrún Kristjánsdóttir 2, Arna Grímsdóttir 1. Varin skot: Berglind Hansdóttir 18/2 (þar fóru 4 aftur til mótherja). Utan vallar: 8 mínútur. Mörk ÍBV: Birgit Engl 7, Alla Gokorian 6, Anna Yakova 6/2, Sylvia Strass 4, Guðbjörg Guðmannsdóttir 2, Elísa Sigurðardóttir 1, Edda Eggertsdóttir 1. Varin skot: Julia Gantimorova 12 (þar af fóru 5 aftur til mótherja). Utan vallar: 10 mínútur. Dómarar: Gunnar Viðarsson og Stefán Arnaldsson. Áhorfendur: Um 460.  Liðin hafa unnið sitthvorn leikinn. KNATTSPYRNA UEFA-bikarinn Undanúrslit, seinni leikir: Marseille – Newcastle............................. 2:0 Didier Drogba 18., 82.  Marseille vann samtals 2:0. Valencia – Villarreal............................... 1:0 Miguel Mista 16. (víti).  Valencia vann samtals 3:2.  Marseille og Valencia mætast í úrslita- leiknum í Gautaborg 19. maí. Svíþjóð Malmö FF – AIK...................................... 0:0 Staða efstu liða: Halmstad 5 4 1 0 11:4 13 Malmö 6 3 3 0 12:3 12 Hammarby 5 3 2 0 5:2 11 Kalmar 5 3 1 1 7:5 10 Gautaborg 5 2 2 1 5:2 8 Djurgården 5 2 2 1 9:7 8 Trelleborg 5 1 3 1 5:5 6 Örgryte 5 1 3 1 5:5 6 AIK 6 1 3 2 3:6 6 Landskrona 5 1 2 2 4:4 5 Helsingborg 5 0 3 2 6:8 3 Örebro 5 1 0 4 6:14 3 Sundsvall 5 0 2 3 3:7 2 Elfsborg 5 0 1 4 3:12 1 KÖRFUKNATTLEIKUR NBA-deildin Vesturdeild, undanúrslit: San Antonio – LA Lakers.....................95:85  San Antonio er yfir 2:0. ÚRSLIT KVENNALIÐ ÍBV í knattspyrnu verður með tvo bandaríska leikmenn í sínum röðum. Reyndar aðeins einn í einu því varnarmaður- inn Mary McVeigh er væntanleg á næstu dög- um og leikur með ÍBV fram í júlí en þá kemur miðjumaðurinn Rachel Kruze og spilar með Eyjakonum út tímabilið. Þær eru báðar 22 ára og léku saman með Philadelphia Charge í bandarísku atvinnu- deildinni, WUSA, á síðasta ári. McVeigh lék þá 18 leiki af 21 og Kruze 15. „Við urðum fyrir skakkaföllum um daginn þegar í ljós kom að Karitas Þórarinsdóttir yrði ekkert með okkur vegna meiðsla og Lind Hrafnsdóttir er úr leik vegna búsetu í Reykja- vík. Þá er óvíst hve mikið Karen Burke getur spilað með okkur vegna atvinnu sinnar í Liver- pool. Það var því ákveðið að styrkja hópinn á þennan hátt,“ sagði Heimir Hallgrímsson, þjálfari ÍBV, við Morgunblaðið í gær. Tvær banda- rískar til ÍBV „ÉG var að skrifa undir og senda frá mér samninginn við GWD Minden, þriggja ára samning og nú fer maður að huga að því að pakka niður og huga að flutningi til Þýska- lands á nýjan leik,“ sagði Patrekur Jóhann- esson, landsliðsmaður í handknattleik og leikmaður spænska 1. deildarliðsins Bidasoa Irun eftir að hann hafði gengið frá öllum lausum endum og skrifað undir samning við þýska 1. deildarliðið GWD Minden síðdegis í gær. „Nú á ég bara eftir að ganga frá mín- um málum hjá Bidasoa varðandi starfslok en ég reikna ekki með að það verði vanda- mál í kringum það,“ sagði Patrekur sem á strangt til tekið eitt ár eftir af samningi sín- um á Spáni. Patrekur gekk til liðs við Bidasoa á síð- asta sumri eftir að hafa verið í sex ár í her- búðum Tusem Essen í Þýskalandi. Nú í sum- ar snýr Patrekur, sem er 31 árs, aftur til Þýskaland. Bidasoa hefur ekki vegnað sem best í spænsku deildinni, er á leiktíðinni og er í 12. sæti af 16 liðum auk þess fjárhagur liðsins er þröngur og eiga leikmenn m.a. inni laun. „Úr því að svona fór á Spáni þá var mjög gott að þetta tækifæri gafst hjá Minden í Þýskalandi og nú er bara að standa sig þar næstu þrjú árin. Mikill hugur er í forráða- mönnum GWD Minden, til liðsins koma sterkir leikmenn í sumar, þannig að ég er bjartsýnn,“ sagði Patrekur sem verður sjö- undi Íslendingurinn til þess að leika með GWD Minden. Hinir eru; Axel Axelsson, Ólafur H. Jónsson, Jón Pétur Jónsson, Páll Ólafsson, Sigurður Bjarnason og Gústaf Bjarnason. Nú eru rétt 30 ár síðan Axel gekk til liðs við félagið fyrstur íslenska handknattleiksmanna, en þá bar það nafnið Grün Weiss Dankersen. Patrekur skrifaði undir þriggja ára samning við GWD Minden Patrekur flytur á ný til Þýskalands. Stjarnan fær styrk STJARNAN á von á liðsstyrk frá Bandaríkjunum áður en keppni í úrvalsdeild kvenna í knattspyrnu hefst síðar í mánuðinum. Tvær banda- rískar stúlkur leika með lið- inu í sumar en þær koma báð- ar frá South-Carolina há- skólanum. Þar léku þær í úrvalsdeild bandarísku há- skólanna í vetur. Stúlkurnar heita Allison Jarrow, 23 ára miðjumaður, og Sarah Lentz, 22 ára varnarmaður. „Við erum með mjög ungt lið og vantar tilfinnanlega reynslu. Það var því nauðsyn- legt að fá liðsstyrk og von- andi reynast þessar okkur vel. Þær fá mjög góð með- mæli og Jarrow er sögð leið- togi á velli, sem er einmitt það sem við þurfum,“ sagði Auður Skúladóttir, þjálfari og leikmaður Stjörnunnar, við Morgunblaðið í gær.   #$%&'( )%$* '( #+#*,,-.#*, ' $ /$# /(0 5+ # 1 2 3 4  2 3 5  2 2 4  5+ # 1 #.* < < ! < < " 42 42 42 " -  - .. < < # <  "$ 42 4 44                   
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.