Morgunblaðið - 17.06.2004, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 17.06.2004, Blaðsíða 37
UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. JÚNÍ 2004 37 TIL þeirra er málið varðar: Dagana 11.–13. maí var ég staddur á Íslandi. Ríkissjónvarpið tók 45 mínútna viðtal við mig í tengslum við komandi forsetakosn- ingar hér á landi. Þar sem viðtal þetta fór fram á ensku átti það að vera birt með íslenskum texta. Því var útsendingunni frestað. Ég heyrði rétt í þessu frá Ást- þóri Magnússyni (ég styð málstað hans í friðarmálum) og hann tjáði mér að einungis tíu mínútna brot úr viðtalinu hefði verið birt í sjónvarpinu í kvöld og var þar ekki minnst einu orði á áhersluþætti mína um það hvernig for- setaembætti Íslands gæti beitt sér í friðarmálum á al- þjóðavettvangi né heldur var minnst á hvað Ástþór Magnússon hyggst gera nái hann kjöri. Ég nefndi og studdi eftirtalin þrjú markmið hans en heyrði að þau hefðu öll verið tekin út úr við- talinu: (1) að koma á fót stofnun í lýð- ræðisfræðum sem muni stuðla að virkara lýðræði, sem fyr- irmynd fyrir alla heimsbyggð- ina; (2) að breyta bandarísku herstöð- inni á Íslandi í höfuðstöðvar friðargæsluliðs Sameinuðu þjóðanna; (3) koma á friðarstofnun þar sem leitað verður úrlausna á málum deiluaðila víða að úr heiminum þar sem þeir geta hist ásamt reyndum sáttasemjurum. Einnig benti ég á að þrátt fyrir að Ísland sé lítið land gæti það samt sem áður haft mikið forskot í að stuðla að friði. Ég minntist á tvo forseta í þessu sambandi: Árið 1973 bauð for- seti Finnlands, Urho Kekkonen, öllum rík- isstjórnum í Evrópu til ráðstefnu í Helsinki um öryggi og samvinnu í Evrópu, sem stóð til 1975, og undirbjó jarð- veginn fyrir endalok kalda stríðsins. Árið 1986 fundaði forseti Costa Rica, Osc- ar Arias Sanchez, með öðrum forsetum Mið- Ameríku og gerði sam- komulag sem undirritað var af öllum forsetunum, sem end- aði Contra-stríðið í Nicaragua, og varð að grundvelli annarra svip- aðra friðarsáttmála í El Salvador og Guatemala. Ég skýrði frá því að Ástþór Magnússon myndi, ef hann yrði kosinn forseti Íslands, nota þau tækifæri sem gæfust sökum stöðu hans, til að koma Íslandi á kortið sem uppsprettu friðar í heiminum. Mér var tjáð að öllum þessum þáttum, sem voru kjarni umræðu minnar, hefði verið sleppt þegar hluti viðtalsins var sýndur í sjón- varpinu í kvöld. Ég verð að játa að ég er hneykslaður. Þessi leið til að hindra frjálsa og opna umræðu minnir einna helst á herferðina í Júgoslavíu árið 1992 þar sem tals- manni friðar, Milan Panic, var aftrað frá að kynna friðarstefnu sína fyrir kjósendum vegna þess að fjölmiðlum þar í landi var alfar- ið stjórnað af stuðningsmönnum þáverandi forseta landsins, Slobod- an Milosevic. Ég vonast til að útgáfa viðtals- ins við mig verði birt í fullri lengd og óritskoðuð fyrir kosningarnar 26. júní, til þess að gefa íslenskum kjósendum kost á að ákveða sjálfir hvort þeir séu sammála eða ósam- mála þeim skoðunum sem ég lét í ljós, í stað þess að einhver komi fram við kjósendur eins og börn sem ákveðið er fyrir hvað þau mega sjá og hvað ekki. Ég er þakklátur fyrir það tæki- færi sem ég fékk til að tjá mínar skoðanir, en ég varð samt sem áð- ur fyrir vonbrigðum þegar þær voru afskræmdar með því að klippa burtu kjarnann í máli mínu. Með bestu kveðjum. Ritskoðun RÚV Dr. Dietrich Fischer skrifar um RÚV ’Ég vonast til að útgáfaviðtalsins við mig verði birt í fullri lengd og órit- skoðuð fyrir kosning- arnar 26. júní…‘ Dietrich Fischer Höfundur er framkvæmdastjóri miðstöðvar European University í friðarrannsóknum. Í viðtölum í fjölmiðlum undanfarið hefur Þor- valdur Þorsteinsson, myndlistarmaður og rit- höfundur, sagt að með einu verka sinna á yfirlitssýning- unni „Ég gerði þetta ekki“ sem nú stendur í Listasafni Reykja- víkur sé hann að benda á, að sjálfsmynd Íslendinga sé ef til vill ekki lengur komin úr verkum listamanna á borð við Kjarval heldur auglýsinga- og landkynn- ingarmyndum frá Icelandair – og þvíumlíku. Þorvaldur hefur útlistað þetta verk harla nákvæmlega í fjöl- miðlum og það hefur sést vel í sjónvarpi. Verkið er gert úr aug- lýsingamynd- um frá Ice- landair, og málverkinu Fjallamjólk eftir Kjarval. Auglýs- ingamyndirnar og málverkið hlið við hlið krefjast þess að vera bor- in saman, og það má gera á ýms- an máta. Manni verður hugsað um muninn á málverki og ljós- mynd, list og auglýsingum, mis- munandi sýn listamannsins og ljósmyndarans á landið, mismun- andi hvötum sem liggja að baki listaverkinu annars vegar og aug- lýsingunni hins vegar; svo má fara út í siðferðislegar pælingar og spyrja hvort listaverkið eða auglýsingin hafi jákvæðari áhrif á hugmyndir áhorfandans um Ís- land. Einnig er hægt að kafa enn dýpra – eins og Þorvaldur sting- ur reyndar sjálfur upp á í vegg- texta á sýningunni – og líta á listaverkið og auglýsingarnar sem mismunandi tjáningu á sjálfsmynd íslensku þjóðarinnar. Ef maður samþykkir uppástungu Þorvaldar um að líta svona á verk hans er hægt að feta sig áfram í nokkrar áttir. Til dæmis má spyrja í hverju þessi munur sé fólginn, af hverju breytingin hafi orðið, og líka fara út í siðferð- spælingu og velta því fyrir sér hvort breytingin sé af hinu góða eða óheillaskref. (En það er auð- vitað líka hægt að láta bara stað- ar numið við útlistun Þorvaldar, segja „já, einmitt“ og fara að hugsa um annað). Sleppum siðferðispælingunni og hugum að hinum spurning- unum tveim. Í hverju er þessi munur fólginn og af hverju hefur breytingin orðið? Það blasir við að þjóðarsjálfsmynd sem sprottin er úr listaverkum byggist á per- sónulegri tjáningu listamannanna sem upplifa landið. Markmið þeirra er ekki annað en að mála mynd. Þeir eru ekki að hugsa sérstaklega um áhorfandann, gerir maður ráð fyrir. En sjálfs- mynd sem komin er úr auglýs- ingum byggist aftur á móti á ópersónulegri tjáningu sem er hönnuð á auglýsingastofu sem hefur það að markmiði að vekja athygli á söluvöru (íslensku landslagi). Niðurstaðan er þá sú, að breytingin sem orðið hefur á sjálfsmynd þjóðarinnar og Þor- valdur dregur fram í þessu verki er fólgin í markaðsvæðingu. Það ætti svosem ekki að koma á óvart. Kannski þarf ekki að leita sér- staklega að svari við seinni spurningunni (hvað hafi valdið þessari breytingu); það blasir við þegar svarið við fyrri spurng- inunni er ljóst: Markaðsvæðing. Þetta er ekki stór sannleikur í ljósi þeirra breytinga sem orðið hafa á íslensku samfélagi á und- anförnum áratugum. Líka mætti segja að breytingin á sjálfsmynd Íslendinga sé í samræmi við þá almennu breytingu sem varð í hugmyndaheimi Vesturlanda á síðustu öld, er áherslan á mik- ilmenni – áhrifamikla ein- staklinga – vék fyrir áherslu á ytri og efnahagslegar aðstæður. Ef maður heldur sig innan ramma verks Þorvaldar má segja að áherslan hafi færst af Kjarval (mikilmenninu) yfir á tæknilegar framfarir í farþegaflugi (ytri að- stæður) og möguleika á tekjum af ferðaþjónustu (efnahagslegar að- stæður). En kannski er áhugaverðasta spurningin samt sú, þegar öllu er á botninn hvolft, hvaða breyting hafi orðið á sjálfsmynd lista- manna með þessari almennu breytingu í hinum vestræna hug- arheimi. Og sýning Þorvaldar í Listasafni Reykjavíkur er ef til vill fyrirtaks vettvangur til að velta þeirri spurningu fyrir sér, einmitt vegna þess að hann hefur fengið Fjallamjólk Kjarvals að láni og maður getur umsvifalítið borið list Kjarvals saman við list Þorvaldar sjálfs. (Svona eins og Þorvaldur ber list Kjarvals sam- an við auglýsingar Icelandair). Það fyrsta sem manni dettur í hug, er að í verki Kjarvals sé al- vara sem ekki sé að finna í verk- um Þorvaldar. Þetta alvöruleysi Þorvaldar kemur greinilegast fram í glottinu sem birtist í heit- inu á sýningu hans, „Ég gerði þetta ekki“. Það hefði aldrei hvarflað að Kjarval að hafa svona fyrirvara á verkum sínum. Hann tók þau alvarlega, og sjálfan sig alvarlega sem listamann. Og hann tók það mjög alvarlega að verkin hans væru hans eigin sköpun. Kannski vegna þess að efniviður hans var landið sjálft. Það var enginn milliliður. Fyrirvarinn í verkum Þorvald- ar birtist nefnilega líka í því, að þau eru (mörg hver, að minnsta kosti) unnin úr verkum annarra. Til dæmis málverki Kjarvals og auglýsingamyndum Icelandair. Hann notar þannig gjarnan milli- liði, og því kannski ekki nema von að hann slái varnagla við því að um sé að ræða hans eigin verk. Breytingin á sjálfsmynd lista- manna frá Kjarval til Þorvaldar er þannig ef til vill fyrst og fremst fólgin í minnkuðu mik- ilvægi frumleika og auknum hlut endurvinnslu. En óneitanlega læðist að manni sá grunur, að breytingin sé einnig sú, að Kjar- val hefði staðið við sín verk, hvað sem tautaði og raulaði, en Þor- valdur sé alltaf í viðbragðsstöðu, tilbúinn til að hlaupast á brott frá sínum. Kjarval og Þorvaldur Alvöruleysi Þorvaldar kemur greini- legast fram í glottinu sem birtist í heit- inu á sýningu hans, „Ég gerði þetta ekki“. Það hefði aldrei hvarflað að Kjarval að hafa svona fyrirvara á verkum sínum. VIÐHORF Eftir Kristján G. Arngrímsson kga@mbl.is UNDIRRITAÐUR átti sæti í nefnd sem í maí sl. skilaði tillögum til umhverfisráðherra um stofnun þjóðgarðs eða verndarsvæðis norð- an Vatnajökuls. Nið- urstaða nefndarinnar, sem var einróma í til- lögum sínum, er að þegar verði hafist handa um undirbúning að stofnun þjóðgarðs sem taki til viðeigandi hluta Vatnajökuls og víðáttumikilla svæða norðan hans og allt til sjávar með Jökulsá á Fjöllum. Yrði hér um að ræða stærra svæði sem tekið yrði undir þjóðgarð eða tiltekna verndun heldur en áð- ur hefur verið til umræðu á Íslandi og það svo miklu munar. Aðalsvæði hins nýja þjóðgarðs, eða vernd- arsvæðis, yrðu þrjú. Það er frá því sunnan Vonarskarðs með Tungna- fellsjökli og viðeigandi hlutum Vatnajökuls um Ódáðahraun norð- ur undir Mývatnsfjöll og austur fyrir vatnasvið Jökulsár á Fjöllum, allt að Kringilsárrana. Annað meg- insvæði yrði stækkaður núverandi þjóðgarður í Jökulsárgljúfrum og svæði upp með Jökulsá beggja vegna, að eldfjallaþjóðgarðinum áð- urnefnda í Ódáðahrauni. Þriðja svæðið yrði Vesturöræfi, Snæfell og Eyjabakkar, sem rynnu saman við friðað svæði á Lónsöræfum. Hvað snertir uppbyggingu og rekstur þjóðgarðsins eru einnig lögð til ýmis nýmæli. Tengist það bæði aukinni aðild og þátttöku heimamanna í svæðisbundinni stjórnun og umtalsverðri uppbygg- ingu svo sem svæðis- og jaðarmið- stöðva, þar sem lögð er sérstök áhersla á eflingu ferðaþjónustu og annars atvinnulífs. Markmiðið er nýting svæðanna sem fellur að verndun þeirra og að sömuleiðis sé tryggð samræmd heildarstjórn og ábyrgð umhverfisyfirvalda þannig að alþjóðlegum skilyrðum og skil- greiningum um þjóðgarða sé í hví- vetna fullnægt. Er þannig leitað málamiðlana milli þessara tveggja sumpart gagnstæðu markmiða, að tryggja þátttöku og aðild og virk áhrif heimamanna í svæðisbundnum mál- efnum innan þjóð- garðsins en um leið samræmda heildar- stjórn, samræmda stefnumótun og yf- irumsjón og ábyrgð með vernd svæðanna af hálfu hins opinbera. Friðlýsing Jökulsár á Fjöllum Fyrir utan stærð svæðisins sem hér er undir er tvímælalaust merkasta nýmælið í tillögum nefndarinnar tillagan um friðlýsingu Jökulsár á Fjöllum. Er þar ekki aðeins verið að tala um Jökulsá sjálfa heldur einnig vatna- svið hennar eftir því sem við verð- ur komið, þar með talið allar helstu þverár eins og Kverká, Kreppu og Svartá. Með friðlýsingu Jökulsár á Fjöllum og þveráa með óbreyttum rennslisháttum yrði brotið í blað á sviði vatnsverndar og verndunar vatnsfalla á Íslandi. Og ekki má seinna vera. Kemur þar hvort tveggja til að Jökulsá á Fjöllum er næsta einstæð í sinni röð á Íslandi með einhverri merkustu fossaröð, ekki aðeins Íslands, heldur Evrópu og heimsins, þar sem eru Selfoss, Dettifoss og Hafragilsfoss. Allt um- hverfi árinnar geymir einnig mikla sögu um hamfarahlaup og lands- mótun við einstakar jarðfræðilegar aðstæður. En hitt skiptir ekki síður máli að með virkjun annarra stórra jökuláa sem ýmist hefur þegar ver- ið ráðist í eða er fyrirhugað, er sér- staða Jökulsár á Fjöllum orðin enn meiri en ella. Í reynd er hún á góðri leið með að verða síðasta volduga jökulfljótið í flokki hinna aurugu eða dökkmórauðu sem enn rennur ósnortin og óáreitt til sjáv- ar. Sérstök ástæða er til að fagna þeirri samstöðu sem tókst um þessa tillögu í nefndinni. Vonandi verður nú ekki aftur snúið og sá draumur að veruleika á næstu ár- um að þetta stóra svæði, norð- anverður Vatnajökull (og auðvitað einnig Vatnajökull í heild og svæði austan hans og sunnan) og hin víð- áttumiklu óbyggðasvæði norður af honum, ásamt Jökulsá á Fjöllum og vatnasviði hennar til sjávar, verði allt saman friðlýst. Framtíðarsýnin er að Vatnajökull og ýmis aðliggj- andi svæði austan, sunnan og suð- vestan ásamt hinni miklu víðáttu norðan- og norðaustan sem hér hefur verið til umfjöllunar verði allt í heild sinni tekið undir sérstaka vernd sem þjóðgarður, vernd- arsvæði, á mismunandi stigum og þar með tekið frá til landnýtingar sem samræmist ævarandi verndun svæðisins. Á næstu mánuðum er mikilvægt að tillögur nefndarinnar fái góða kynningu og skapi umræðu, ekki síst meðal heimamanna og íbúa að- liggjandi svæða. En allir áhuga- menn um náttúruvernd, ferðaþjón- ustu og yfirleitt landnýtingu af því tagi sem samrýmist markmiðum sjálfbærrar þróunar, hljóta einnig að láta sig málið varða. Höfuðstóll- inn, sem fólginn er í því sem eftir er af ósnortinni náttúru landsins, ekki síst hinnum víðáttumiklu há- lendissvæðum og víðernum sem við höfum enn í höndum okkar til að varðveita í stað þess að spilla, er í gæslu okkar allra. Steingrímur J. Sigfússon skrifar um tillögur um stofnun þjóðgarðs ’Á næstu mánuðum ermikilvægt að tillögur nefndarinnar fái góða kynningu…‘ Steingrímur J. Sigfússon Höfundur er formaður Vinstrihreyf- ingarinnar – græns framboðs. Þjóðgarður norðan Vatnajökuls
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.