Morgunblaðið - 08.07.2004, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 08.07.2004, Blaðsíða 25
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. JÚLÍ 2004 25 ✝ Rafn RagnarJónsson tónlistar- maður fæddist á Suð- ureyri við Súganda- fjörð 8. desember 1954. Hann lést á heimili sínu 27. júní síðastliðinn, á fimm- tugasta aldursári. Móðir Rafns er Ragna Sólberg, f. 17.9. 1936, fyrrv. starfsmaður Pósts og síma á Ísafirði. Faðir hans var Jón Snorri Jónsson, f. 12.9. 1924, d. 22.2. 1979, sjómað- ur á Suðureyri. Rafn átti fjögur systkini. Hálf- systkini Rafns, samfeðra, eru; Ágúst Jónsson, f. 22.8. 1944, sjó- maður í Reykjavík, kvæntur Birnu Geirsdóttur og eiga þau fjögur börn; Heiða Björk Jónsdóttir, f. 30.1. 1975, búsett í Reykjavík og á hún tvo syni. Hálfsystkini Rafns, sammæðra, eru; Gísli Þór Guð- mundsson, f. 11.6. 1961, grafískur hönnuður, búsetttur í London. Sambýliskona hans er Anna Hildur Hildibrandsdóttir og eiga þau tvær dætur; Sóley Guðmundsdóttir, f. 11.1. 1964, þroskaþjálfi í Hafnar- firði, sambýlismaður hennar er Ingvar Reynisson og eiga þau einn son, fyrir á Sóley tvær dætur. Rafn fæddist á Suðureyri og ólst þar upp til fimm ára aldurs þegar hann fluttist til Ísafjarðar með móð- ur sinni. Þar giftist Ragna Guð- mundi H. Gíslasyni, f. 19.5. 1935, d. 29.11. 1974, skipstjóra á Ísafirði. Guðmundur tók Rafni sem sínum eigin syni og urðu þeir miklir mát- ar. Ragna er nú gift Óskari Líndal. komu í kjölfarið Náð og Ýr. Ýr var það heillin var fyrsta hljóðritun með Rafni. Hann var síðan meðlim- ur í fjölmörgum hljómsveitum, m.a. Haukum og einnig stofnandi hljóm- sveita á borð við: Danshljómsveit Vestfjarða, Grafík, Bítlavinafélag- ið, Sálin hans Jóns míns og Galíleó. Eftir Rafn liggur fjöldi platna með þeim hljómsveitum sem hann starf- aði í. Auk þess gerði hann þrjár sólóplötur og vann að samstarfs- verkefnum með öðrum tónlistar- mönnum. Rafn rak um tíma og átti hlut í hljóðverinu Hljóðhamri en rak síðar hljóðver og útgáfufyrir- tækið R&R músík á heimili sínu á Norðurbraut 41 í Hafnarfirði. Rafn varð að láta af hljóðfæra- leik vegna veikinda árið 1993 og sneri hann sér þá alfarið að upp- tökustjórn og útgáfu. Meðal þeirra sem hann starfaði með og gaf út eru Botnleðja, Anna Halldórs, Graf- ik, Nýdönsk, Bítlavinafélagið, Sálin hans Jóns míns, Urmull, Sixties, Buttercup, Woofer, Stolía, Noise, Sign auk sólóverkefna með syni sín- um Ragnari Sólberg. Á síðasta ári fór Rafn ásamt sonum sínum Agli og Ragnari, og vinum sínum þeim Rúnari Þórissyni, Jóni Ólafssyni og Haraldi Þorsteinssyni til London og hóf upptökur á síðustu plötu sinni í hinu sögufræga Abbey Road-hljóð- veri. Rafn vann markvisst að plöt- unni síðan og er hún væntanleg til útgáfu í haust. Rafn stofnaði MND-félagið árið 1993 ásamt öðrum og var formaður þess frá upphafi til dánardags. Hann var virkur meðlimur og þátt- takandi í réttindabaráttu íslensks tónlistarfólks og tók þátt í starfi ýmissa hagmunasamtaka á þeim vetvangi. Auk þess var hann virkur þátttakandi í starfi stuðnings- mannahóps KFÍ. Útför Rafns fer fram frá Ísafjarð- arkirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 15. Á æskuárum sínum eyddi hann mörgum stundum hjá ömmu sinni á Suðureyri, Markúsínu Jónsdóttur, f. 20.11. 1911, d. 3.6. 1978, þar sem hann var í miklu uppáhaldi. Rafn hóf sambúð ár- ið 1979 með Friðgerði Guðmundsdóttur, f. 5.12. 1959, sérkenn- ara. Þau gengu í hjónaband 30. desem- ber 1990. Friðgerður er dóttir hjónanna Guðmundar Guð- mundssonar, f. 21.10. 1913, fyrrv. póstafgreiðslumanns, og Rebekku Jónsdóttur húsmóður á Ísafirði, 21.9. 1920. Friðgerður á 3 eldri systkini. Fyrsta barn Rafns átti hann með Halldóru Gunnlaugsdóttur. 1) Helga Rakel, f. 10.11. 1975, sam- býlismaður Dagur Kári Pétursson. Börn Rafns og Friðgerðar eru 2) Egill Örn, f. 29.3 1982; 3) Ragnar Sólberg, f. 2.12. 1986; 4) Rafn Ingi, f. 2.2. 1994. Rafn lauk gagnfræðaprófi frá Gagnfræðaskóla Ísafjarðar árið 1971 og lagði síðan stund á kjötiðn- aðarnám við Iðnskólann á Ísafirði. Á árunum 1980–1981 lagði hann stund á ásláttarhljóðfæraleik hjá Pétri Östlund í Stokkhólmi. Einnig stundaði hann nám í Kennarahá- skóla Íslands 1990–92. Framan af ævi sinni stundaði Rafn ýmis störf meðfram tónlistinni, lengst af versl- unarstörf en frá 1985 varð tónlistin aðalstarf hans. Tónlistarferill hans hófst árið 1967 þegar hann stofnaði hljómsveitina Perluna og síðan Fimmtudaginn 8. júlí verður til moldar borinn Rafn Ragnar Jónsson tónlistarmaður. Hann andaðist að heimili sínu í Hafnarfirði sunnudag- inn 27. júlí eftir harða baráttu við hinn illvíga sjúkdóm MND. Þessi taugahrörnunarsjúkdómur hafði áð- ur fellt ömmu okkar Ragnheiði og föður okkar Jón Snorra Jónasson frá Súgandafirði. Mig langar til að minn- ast Rabba fáum orðum. Rafn Ragnar Jónsson fæddist á Suðureyri 8. desember 1954. Hann ólst upp á Ísafirði hjá móður sinni Rögnu Sólberg og stjúpa sínum Guð- mundi Gíslasyni skipstjóra ásamt systkinum sínum Gísla Guðmunds- syni og Sóleyju Guðmundsdóttur. Guðmundur stjúpi Rabba fórst síðar af Guggunni og var öllum harmdauði. Rabbi átti einnig 2 systkini að föðurn- um: Ágúst Jónsson og Heiðu Björgu Jónsdóttur. Ungur að árum eignaðist Rabbi dótturina Helgu Rakel. Hún er lif- andi eftirmynd föðurins. Glæsileg stúlka, leiklistarmenntuð. Með konu sinni Friðgerði Guðmundsdóttur átti Rabbi 3 stráka. Þeir eru Egill Örn, tónlistarmaður, Ragnar Sólberg, tón- listarmaður og Rafn Ingi, enn í barnaskóla. Hver öðrum glæsilegri. Friðgerður er Ísfirðingur. Er það ekki makalaust hve oft hin sanna ást finnst svo að segja í næsta húsi? Rabbi var gæfumaður að finna Deddu sína, þessa einstöku stúlku, sem hefur staðið með honum í gegn- um þykkt og þunnt. Það var mikið áfall þegar Rabbi greindist og margs hefur þurft alla tíð síðan núna í 16 ár. Óteljandi eru stundirnar á nóttu sem degi þegar einhvers þurfti við og fór þeim fjölgandi eðli málsins sam- kvæmt. Árum saman hafa Rabbi og Dedda verið í forystu MND-samtak- anna og Dedda ritstýrt blaði þeirra en Rafn var formaður félagsins. Þau lögðu gríðarlega vinnu í þetta starf, söfnuðu miklu magni upplýsinga, gerðu þessa þekkingu aðgengilega og létu engum steini óvelt ef ske kynni að einhvers staðar leyndist von. Rabbi var byrjaður að spila þegar á barnsaldri. Trommuleikur hans þótti einstakur og stíll hans persónu- legur. Seinna tóku við lagasmíðar, út- setningar, upptökur og útgáfa. Rabbi naut þess að spila fyrir vestan hve- nær sem færi gafst, bæði á Ísafirði, Súganda og víðar. Hann var án efa einn þekktasti sonur þessara byggða. Mörg laga hans hafa náð eyrum þjóð- arinnar og textar hans skipta máli. Það þarf mikinn innri styrk til að vera hamingjusamur og lifa skapandi og ábatasömu lífi þrátt fyrir gríðar- lega fötlun. Þeim styrk bjó Rabbi yf- ir. Rabbi var skapandi listamaður með mikla útgeislun. Hann var glað- sinna og sjálfsvorkunn var honum al- gjörlega framandi. Hann var æðru- laus maður, sem kom miklu í verk, sló aldrei slöku við og lauk öllu sem hann byrjaði á. Hann var greindur og vel að sér, fordómalaus og góður faðir og vinur. Síðustu nóttina sem Rabbi lifði hlustaði hann á nýjustu lögin sín, sem hann hafði unnið ásamt strákunum sínum í skugga hins óhjákvæmilega og var glaður. Ég leit upp til þessa hæfileikaríka bróður míns. Hann var hugrakkasti maður sem ég hef þekkt. Hann var einfaldlega langflottastur. Ég og fjölskylda mín sendum ást- vinum hans okkar innilegustu sam- úðarkveðjur. Ágúst Jónsson. Elsku Rabbi. Nú skilja leiðir. Ég vil þakka þér fyrir allt það sem þú hefur kennt mér. Það var gott að vera litla systir þín, þú varst mér alltaf góður og tryggur bróðir. Ég minnist þess að þegar pabbi var nýdáinn vildir þú gleðja litlu systur 10 ára, fórst út í Pól um leið og búðin opnaði og keyptir nýjustu plötuna með Cliff, ég sagði: Vá! Þegar ég hlustaði á plöturnar þínar kenndir þú mér að fara með þær eins og gull. Á unglingsárunum var gott að eiga bróður í vinsælli hljómsveit, alltaf frítt á böllin, þurfa aldrei að standa í biðröð. Einhverra hluta vegna virtumst við alltaf þurfa að vera nálægt hvort öðru. Þegar við vorum bæði flutt suð- ur þá vorum við alltaf nágrannar. Fyrst í Reykjavík og síðar í Hafn- arfirði. Þú varst langt kominn með að gera upp Norðurbrautina, bauðst mér á rúntinn og sýndir mér þessa fínu íbúð sem var á efri hæðinni og kaupsamn- ingur var í höfn nokkrum dögum síðar. Það var gott að búa nálægt ykkur Deddu, við gerðum upp garðinn og þú í eldhúsglugganum stoltur af þín- um konum. Minningarnar eru svo margar og góðar, ég þakka fyrir að fá að hafa verið þér samferða hér í þessu lífi. Frá því að þú veiktist fylgdi ég þinni stefnu, að taka því sem að hönd- um ber og að láta ekki bugast. Oft lentum við í skemmtilegum atvikum við ýmsar hindranir sem voru á vegi þínum, en alltaf varst þú þolinmóður og brostir að hlutunum. Þú varst ekk- ert að gefast upp, enda sannur Vest- firðingur. Þú gerðir hlutina þangað til að ekki var umflúið að þú gætir þá ekki leng- ur. Þú keyrðir eins lengi og þú treyst- ir þér til, þó svo að ég væri nú farin að svitna verulega í bíl með þér. Elsku Dedda mín, þú varst honum Rabba yndisleg eiginkona og vinur, þið þroskuðust vel saman. Það kemur best fram í því hvernig þið fjölskyld- an hafið tekið þessu hlutskipti Rabba. Stundirnar sem við höfum átt sam- an síðustu daga eru með þeim dýr- mætustu sem ég hef upplifað. Þökk sé ykkur Rabba fyrir þær. Þær munu hjálpa okkur í að veita hvert öðru styrk í sorginni. Sóley systir. Elsku Rabbi minn. Sextándi júní var hátíðardagur á Súganda. Það var ekki vegna þess að pabbi minn (afi þinn) átti afmæli þennan dag, nei, það var vegna þess að þá komst þú vestur með hljóm- sveitina þína og hélst dansleik fyrir börn og fullorðna. Þá þyrptist fólk af öllum Vestfjörðum til Súganda. Það var venjan að þið komuð allir hljóm- sveitarstrákarnir til mín í „mömmu- steik“, skelltuð ykkur á ljósabekkinn og í sturtu og að því búnu var sest út á svalir til að naga harðfisk. Ég man þegar Bítlavinafélagið kom vestur og þið tókuð „danska lagið“ á svölunum. Þá tóku púkarnir á Súganda upp á því að pakka 500 krónu seðlum utan um steina og henda upp á svalirnar í þeim tilgangi að fá eiginhandarárit- anir ykkar á seðlana. Einn ykkar hafði á orði hvað krakkarnir á Suður- eyri væru klár að biðja um eiginhand- aráritanir á þennan hátt – en viti menn, skömmu síðar heyrðist hrópað neðan af götu „fimmhundruðkall til sölu á þúsund kall með nöfnum allra Bítlavinanna.“ Félagar þínir litu steinhissa hver á annan en þá sagðir þú, Rabbi, og hlóst mikið, að ein- hvernveginn yrðu púkarnir að ná sér í pening, og þetta væri góð hugmynd hjá þeim. Eiginmaður minn, Mummi, sá alltaf um miðasöluna á þessum 16. júní dansleikjum á Súganda. Þegar húsið var að springa utan af fjöldanum þá komu stundum ráðandi menn og vildu vita hve margir væru komnir í félags- heimilið en þeir gátu alls ekki togað það út úr Mumma. Einu sinni sendir þú einhvern úr hljómsveitinni fram í miðasölu til að spyrja hvernig gengi og fékk hann það svar að þú yrðir að koma sjálfur. Já, Rabbi minn, þér fannst hann flottasti miðasölumaður á landinu. Eftir að við hjónin fluttum suður fyrir 10 árum varð það fastur liður að þú kæmir til okkar í fiskibollur með fjölskyldu þína á nokkurra mánaða fresti, en svo var þér allt í einu bannað að borða fisk og þá varð svolítill stans á þessum heimsóknum. Fyrir einum og hálfum mánuði eða svo þá dreif ég mig og kallaði á ykkur í mat og þá vor- um við að ræða ýmislegt og ég sagði við þig að þú yrðir nú að slá metið hennar ömmu þinnar (mömmu minn- ar) þar sem hún var með þennan sjúk- dóm í 16 ár. Þú brostir og sagðir að þú myndir reyna við þetta met, en eins og við vitum þá lifði pabbi þinn aðeins í þrjú ár með sjúkdóminn. Rabbi minn, þú ert hetjan okkar allra. Rabbabararnir stóðu þétt við ykkar hlið ásamt öllum þínum nán- ustu ættingjum og tengdafólki sem hafa staðið eins og klettur við hlið ykkar í þessari baráttu. En hetjurnar þínar eru Dedda konan þín og syn- irnir sem umvöfðu þig til síðasta augnabliks. Dedda svo trygg og góð og hugrökk og synirnir svo ótrúlega þroskaðir, umhyggjusamir og hlýir og það mun fylgja þeim ævilangt, það þekkjum við systkinin frá okkar upp- vexti með mömmu. Ekki má gleyma gleðinni sem skein úr augum þínum þegar þú sagðir mér að þú yrðir afi í september því hún Helga dóttir þín, sem þú varst alltaf svo stoltur af, á von á barni þá og ég veit að þú fylgist vel með því þaðan sem þú ert núna. Það var yndislegt að hún gat verið með ykkur núna síðustu vikurnar þínar hér á meðal okkar. Rabbi minn, nú hefur þú fleygt álagahjúpnum sem þú barst í 16 ár og hleypur frjálst um grundir í Guðsríki með ættingjum þínum. Ég bið Guð að styrkja fjölskylduna þína á þessum erfiðu tímum. Far þú í friði, elsku vinur minn. Þín föðursystir Inga Jónasar. Í þessum skrifuðu orðum er bílalest að leggja af stað með lík Rafns til heimahaganna á Ísafjörð. Í minning- arathöfninni í gær kom í ljós að síð- ustu orð Rabba hefðu verið, „það er alltaf svo gott veðrið fyrir vestan“. Ég á gott með að skilja hvað hér er átt við en einstök birta er yfir þeim tíma sem við vorum að alast upp fyrir vestan, nú tæplega 40 árum seinna. Ég var þeirrar gæfu aðnjótandi að vera heimagangur á heimili uppeldis- föður Rabba og bróður mömmu, Guð- mundar heitins Gíslasonar og Rögnu Sólberg í Aðalstæti 15 á Ísafirði. Gummi Gísla var einstakur hug- sjónamaður fyrir góðu mannlífi og lést langt um aldur fram eins og Rabbi. Í eldhúskróknum í Aðalstræt- inu hittust bátasjómennirnir og hug- sjónamenn þess tíma til að kryfja al- heimssannindin og var ekkert gefið eftir. Fjótlega kom í ljós að Rabbi festist ekki í þrasi í dægurmálunum eins og við hinir, heldur fór sínar eigin leiðir af mikilli staðfestu. Músíkin varð fjótt hans fylgikona og var hann henni trúr til æviloka. Einhver stærsta bylgja alþýðu- menningar í tónlistarheiminum kom til landsins með Bítlunum og síðan Rolling Stones. Þessa bylgju nýtti Raggi sér og eins og sannur brim- brettakappi náði hann að komast upp á ölduna og láta hana framfleyta sér inn í framtíðina. Hæst náði þessi bylgja að koma mér með honum upp á þak á „skúrinni“ í bakgarðinum hjá ömmu, Þorbjörgu, með málningarföt- ur sem trommur og lok á spýtu með nælon sem gítara og syngja „æ mon in æland,“ eða „ég er á eyju“. Þetta þótti fyndið þá, því kona sem hét Eyja átti heima á bökkunum í næsta nágrenni. Þar var líka stóri garður póstsins, sem við vildum ógjarnan fara að ná í bolta en þar bjó líka ein af dætrum póstsins, Dedda, sem síðar varð lífsförunautur Rabba og stoð hans og stytta. Litið til baka er þessi bítlabylgja trúlega það stærsta sem okkar kyn- slóð hefur upplifað, þó við tækjum öll ekki beint eftir því, nema Rabbi. Gamla sjávarþorpið Ísafjörður á sér mikilsmetinn tónlistarmann í dag, sem er Rafn Jónsson og hann náði að betrumbæta lífið og menninguna. Laglínan hans „lífið er andartak og líður áður en við vitum af því“, er gríp- andi en þannig var Rabbi oft með inn- tak og lífsspeki. Þó tími „katalína“ á pollinum, gömlu „hákarladokkunnar“, dísanna, litla og stóra Vers, Morgunstjörnunn- ar og allra róttæku hugsjónamann- anna sé liðinn þá lifir músikin hans Rabba um ókomin ár og hluti af þess- um tíma í lögunum hans. Ég óska hinni sérstöku líkfylgd vestur alls hins besta og megi góður guð taka vel á móti Rabba og vera af- komendum hans og aðstandendum góður. Ég kveð þig, Rabbi minn, með margar fallegar minningar og fallegar minningar varðveitast eins og góða veðrið fyrir vestan þegar við vorum að alast upp og þroskast. Guðmundur Ingason. Ég var aðeins fjögurra ára gömul þegar ég hitti Rabba í fyrsta sinn, en ég kynntist honum í gegnum Rósa móðurbróður minn en þeir spiluðu saman í hljómsveitinni Ýr. Ég átti í erfiðleikum með að muna nafnið hans og sagði hann mér þá að kalla sig Rabba rabarbara sem ég gerði. Hitti ég hann oft eftir það með Rósa og hef fylgst með honum ætíð síðan. Mig langar að kveðja þennan einstaka mann með þessum ljóðlínum: Þar sem englarnir syngja sefur þú sefur í djúpinu væra. Við hin sem lifum í trú á að ljósið bjarta skæra veki þig með sól að morgni veki þig með sól að morgni. Farðu í friði vinur minn kær faðirinn mun þig geyma. Um aldur og ævi þú verður mér nær aldrei ég skal þér gleyma. Svo vöknum við með sól að morgni svo vöknum við með sól að morgni. (Bubbi Morthens.) Kæra Dedda og fjölskylda, ég votta ykkur mína dýpstu samúð í ykkar miklu sorg. Elísabet. Horfinn er af leiksviði lífsins Rafn Jónsson, hljómlistarmaður og for- maður MND-félagsins á Íslandi. Fyr- ir hönd Öryrkjabandalags Íslands vil ég þakka honum samfylgdina í þau sjö ár sem liðin eru frá því Rafn fékk því til leiðar komið að félag hans gekk til liðs við Öryrkjabandalagið. Liðveisla hans er mér persónulega minnisstæð fyrir þá sök að báðir vorum við þá ný- liðar í aðalstjórn bandalagsins. Á vettvangi ÖBÍ var Rafn jafnan hæglátur og afar kurteis í allri fram- göngu. Í afstöðu til stefnu og baráttu- aðferða bandalagsins þurftum við þó aldrei að velkjast í vafa um vilja hans. Þegar á reyndi þurfti ekki af hafa áhyggjur af Rabba. Sá vestfirski klettur myndi hvorki haggast né brotna, hvað sem á dyndi. Sjúkdómurinn sem lagði Rafn Jónsson að velli hefur þá sérstöðu að hvorki er nein von um bata né heldur að framgangur veikindanna stöðvist. Fyrir bragðið reynir þar mun meira og með allt öðrum hætti á sálrænt þrek þess sem fyrir verður en til hátt- ar um flesta aðra sjúkdóma sem við þekkjum. Þótt hugur einn viti hvað hjarta býr nær tókst Rafni að varð- veita viljann til að lifa og sinna áfram hugðarefnum sínum, tónlistinni, fjöl- skyldunni og MND-félaginu. Að leiðarlokum þökkum við Rafni Jónssyni og Friðgerði liðveisluna í RAFN RAGNAR JÓNSSON

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.