Íslendingaþættir Tímans - 08.09.1978, Blaðsíða 1

Íslendingaþættir Tímans - 08.09.1978, Blaðsíða 1
ISLENDINGAÞÆTTIR Föstudagur 8. september, 1978 — 24. tbl. TIMANS Baldur Baldvinsson Ófeigsstöðum Baldur á Ófeigsstöðum lézt hinn 4. júli s-l. á sjúkrahúsinu á Húsavik rúmlega áttræður. Otför hans fór fram frá sóknar- kirkju hans að Þóroddsstað i Köldukinn hinn 15. júli að viðstöddu fjölmenni. Bald- ur var fæddur 8. april 1898 á Granastöðum * Ljósavatnshreppi, sonur hjónanna Bald- vins Baldvinssonar frá Naustavik og Kristinar Jónasdóttur frá Silalæk, sem bjuggu allan sinn búskap i Ljósavatns- hreppi fyrst á Granastöðum siöan um árabil á Hálsi en fluttu að Ófeigsstöðum 1910 og keyptu þá jörö um áratug siðar. Baldur ólst upp með foreldrum sinum °g systkinum, tveim systrum og einum bróður, en Baldur var þeirra elstur. Hann naut ei annarrar skólagöngu en eins vetr- ar náms á unglingaskóla að Ljósavatni, er hann var um fermingaraldur. Hin stutta skólaganga virtist ekki koma Baldri aö sök, af þvi að honum tókst að tileinka sér i r'kum mæli menningararfleifö feðra s'nna, og hann var alla ævi frábær nem- a"di I skóla lifsins. Baldur kvæntist2. júli 1922 Hildi Frið- geirsdóttur bónda á bóroddsstaö. Ungu hjónin hófu þá búskap á hluta af Ófeigs- stöðum á móti foreldrum Baldurs. Búskapur Baldurs og Hildar varö skemmri en til stóð. Hin unga húsfreyja 'özt 30. júli 1923, en eftir lifði nýfæddur sonur, er hlaut nafn Baldvins afa sins. Er Laldvin var uppkominn kvæntist hann Sóðri konu Sigrúnu Jónsdóttur frá Hömr- Urn i Reykjadal. Reistu þau nýbýliö Bangá á hluta úr ófeigsstaðalandi og búa Þar enn. Eiga þau 5 börn uppkomin. Baldur kvæntist aftur 28. september 1934 Sigurbjörgu Jónsdóttur, öónda á Geirastöðum i Mývatnssveit. “■)uggiLþau hjónin áfram á móti foreldr- Uln Baldurs á hluta úr Ófeigsstöðum. Um P®r mundir var þröngt fyrir dyrum fjár- hagslega hjá bændum, en búskapur á 0feigsstöðum blómgaöist vel enda fór aaman dugnaður og ráðdeild hjá þeim ojónum, þótt risna væri mikil. Má með sanni segja að skáli hafi staöið um þrjóð- raut þvera á Ófeigsstööum alla bú- skapartiö Sigurbjargar og Baldurs. Búskapurinn færðist æ meira yfir á herðar Baldurs, eftir þvi sem aldur færð- ist yfir foreldra hans. Jafnhliða hlóðust á hann fjölþætt félagsmálastörf i þágu sveitarfélagsins, héraösins og bænda- stéttarinnar. Hann varð oddviti Ljósa- vatnshrepps 1938, var kosinn i stjórn Kaupfélags Þingeyinga sama ár, kjörinn deildarstjóri Kinnardeildar Kaupfélags Þingeyinga 1941, ráöinn fulltrúi Sauðfjár- veikivarna i Suður-Þingeyjarsýslu sama ár, kosinn i stjórn Búnaðarsambands Suð- ur-Þingeyinga 1944 og kjörinn fulltrúi á Búnaðarþing 1946 og átti þar sæti til 1962. Þá var hann i stjórn Bændafélags Þingey- inga 1948-1962. Flestum þessum störfum gegndi Baldur fram yfir sjötugs aldur. Sá er þetta ritar kynntist Baldri á Ófeigsstöðum best meðan hann átti sæti á Búnaðarþingi og þegar við hjónin nutum gestrisni þeirra ófeigsstaðahjóna, er leið okkar lá um Suður-Þingeyjarsýslu. Baldur á Ófeigsstöðum var litrikur per- sónuleiki ógleymanlegur hverjum, sem honum kynntist. Hann var friður slnum, liðlega vaxinn, litið eitt lotinn I herðum, snar i hreyfingum, kiminleitur, brosmild- ur, meö sérkennilegan glampa I augum. Hann var fyrirmannlegur i framgöngu, prýðilega gáfaður, listahagyrðingur og með afbrigðum starfhæfur, hvort sem hann gekk að likamlegu eða andlegu starfi. Baldur var listaskrifari og haföi frábært vald á islenzku máli, sem hvort- tveggja kom sér vel I félagsmálastörfum hans. Hann var félagshyggjumaður, mann- þekkjari góður og vann af alhug að eflingu Islenzks landbúnaðar og þjóðlegrar kenn- ingar. Baldur tileinkaði sér þá gullnu reglu Hávamála að telja ekki alla við- hlæjendur vini. Hann var raunsær i skoðunum um menn og málefni, og á efri árum þótti honum ýmislegt ganga úr- skeiðis, þrátt fyrir allsnægtir nútimans. A Búnaðarþingi átti Baldur ávallt sæti I búfjárræktarnefnd og að sjálfsögöu var hann kosinn ritari hennar. Við, sem þá vorum ráðunautar i búfjárrækt, þurftum að hafa mikiö samstarf við nefndina eins og venja er. Þá kynntist ég, hve gott var að vinna með Baldri, hve lagið honum var aö sam- eina samnefndarmenn sina um heppileg- ustu lausn i hverju máli, en slikt mæðir oft ekki siður á ritara en formánni nefndar. En aldrei átti búfjárræktarnefnd svo ann- rikt eða deildi svo hart um mál, að Baldur héldi ekki glaðværð sinni og kimni, enda komst það orð á búfjárræktarnefnd á ár- um Baldurs, að hún væri skemmtilegasta nefnd Búnaðarþings. Hefur hún reynt að halda þvi heiðurssæti siðan. Einstaka mannisem ekki þekkti Baldur nógu vel, fannst nóg um glaðværð hans og gamanvisur og fannst að varla gæti fylgt nægur alvöruþungi starfi hans. Þetta var hinn mesti misskilningur, þvi að I raun var Baldur djúphygginn og hagsýnn al- vörumaður, sem fylgdi skoðun sinni eftir af lagni og festu og lét ætið málefni ráöa, enda heföi honum ekki verið falin jafn fjölþætt trúnaðarstörf jafnlengi og gert var hefði hann ekki verið giftudrjúgur og traustur i starfi. Lengi vel hélt ég, að Baldur heföi ekki sérstaka ánægju af bú- skap, heldur hefði hann eins og margir af hans kynslóö lagt búskap fyrir sig af þörf fyrir að sjá sér og sinum farborða. Siðan komst ég að raun um, að Baldur var bóndi af lífi og sál, hafði sérstakt yndi af sauöfé sinu og lét sér annt um þaö. Þetta var

x

Íslendingaþættir Tímans

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.