Íslendingaþættir Tímans - 13.01.1982, Blaðsíða 8

Íslendingaþættir Tímans - 13.01.1982, Blaðsíða 8
Óskar Gunnarsson - vinir kveðja - f. 21./7. 1929 —d. 14./12. 1981 Fölvi haustsins færðist yfir landið, fölnað blóm, sem prýddi okkar leið. Horfinn, dáinn, — helga vinabandið hefur brostið, runnið æviskeið. Ó, hve svipul gæfa heims og gengi, geislar vors og heiðbjart sólarskin. Bera hljóðlát brostna hjartastrengi börn,er misstu föður sinn og vin. Fáa daga vorið skrauti skartar, ski'n í heiði sólin litla stund. Liða framhjá ljúfar myndir, .bjartar. Lif, sem tengt var þinni glöðu lund. Bestu kostum búinn varst til ferðar, bjóst þú okkur hlýjan ævidag. Virðing hlaustu, varstu þeirrar gerðar, viðmót ætí"ð blítt og hjartalag. Þig við syrgjum, traustur vinur varstu, vildir jafnan tótta allra störf, heill og glaður byrðar okkar barstu, bjóst i haginn, hvar sem þess var þörf. 011 við þökkum gengnar gæfustundir, glaða, sanna tryggð og kærleiksþel. Heið þó sólin hafi gengið undir, hún þér ljómar bak við timans hvel. Kvaddir þú með kærleiksorð á vörum, kæri vinur, söm var enn þi'n lund. Var þérljóst, aðvarstu senn á förum, var þvi kveðjan heilög reynslustund. Huggar orðið, heyrum Drottin tala: Hrygga barn, ó lit mit kærleiksráð. Leystur andinn leið til æðri sala, lifið þar ei hverfulleik er háð. J.S. Valgeir Guðjónsson á Daufá Valgeir á Daufá andaðist 21. des. s.l.. Fráfall hans var óvænt og sláandi. Skarö- ið eftir hann stórt bæði í fjölstyyldu hans og umhverfi. Hann var fæddur 17. jan. 1929, elsti sonur hjónanna á Tunguhálsi þeirrar Valborgar Hjálmarsdóttur og Guðjóns Jónssonar. Valgeir giftist Guðbjörgu Felixdóttur og eignuðust þau 4 börn: GuðjónSvein, Ingibjörgu Margréti, Sigriði Rósu og Efemiu Fanneyju. Þegar góður nágranni og vinur er allt i einu horfinn af sjónarsviðinu, fer ekki hjá þvi, að minningar frá liðnum árum leiti fram ihugann. Það varárið 1957, sem þau fluttu i Daufá, Valgeir og Guðbjörg. Þá strax höfs þar uppbygging, fyrst endur- bætur á ibúðarhusi og Utihúsabyggingar. Siðar kom ibúðarhússbygging samhliða ræktun og auknum vélakosti eftir þvi sem aðstæður leyfðu. Og þá er ótalin hitaveita sem gengið var fró i sumar. En Valgeir var i huga okkar nágrannanna meira en framkvæmdamaður. Hann var góður nágranni, sem gott var að leita til með margs konar fyrirgreiðslu og munu þeir margir nær og f jær, sem nutu hjálpsemi hans og útsjónarsemi. Vörubilaakstur stundaði Valgeir langan tima og var félagi i samtökum vörubilstjóra i Skaga- firði. Sveitungar og sýslungar Valgeirs fólu honum mörg trúnaðarstörf. Hann var formaður i sóknarnefnd Reykjakirkju meðan mikil endurbygging stóð yfir á kirkjunni fyrir endurvigslu hennar 1976. Valgeir var kvaddur til starfa fyrir Tón- listarféiag Skagafjarðarsýslu þegar það var stofnað fyrir nokkrum árum og var nú i stjórn þess. Nú á siðustu árum hafa um- fangsmestu störf hans á sviði félagsmála verið i' þágu veiðimála i héraðinu. Það voru einnig brautryðjendastörf, en nýlega hefur komist á samband veiðifélaga i Skagafirði og Valgeir var þar kosinn til formennsku. Hann var einn helsti hvata- maður að byggingu laxeldisstöðvarinnar að Hólum i Hjaltadal. Sá staður var hon- um kærfrá skólaárunum hans þar svo hér sameinaði hann tvö áhugamál sin. Hann sá þörfina á aukinni uppbyggingu at- vinnulifs ihéraðinu og vann heilshugar að efBngu þess. Störf hans nýttust vei. Hann islendingaþættir 8

x

Íslendingaþættir Tímans

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.