NT - 16.11.1984, Blaðsíða 15

NT - 16.11.1984, Blaðsíða 15
HERÐ^Tg| fóHudumbdmum HER«I foíruðum bomum {ötluéumbomum Föstudagur 16. nóvember 1984 15 Sýning Guttorms Jónssonar á KjarvalS' stöðum ■ Nú stendur yfir að Kjarvals- stöðum sýning á skúlptúrverk- um eftir Guttorm Jónsson. Á sýningunni eru 29 verk, unnin í tré og stein og trefja-steypu, þar af eru 18 verk úr íslenskum viði. Guttormur stundaði nám í höggmyndadeild Myndlistar- skóla Reykjavíkur 1978-1981. Þetta er fyrsta einkasýning hans, en hann hefur áður sýnt á sam- sýningum á Akranesi og í Reykjavík. Sýningin verður opin daglega frá ki. 14-22 fram til 25. nóvem- ber. Katrín H. Ágústsdóttir. Sýning íPorlákshöfn ■ Laugardaginn 17. nóvember opnar Katrín H. Ágústsdóttir vatnslitamyndasvningu í Egilsbúð, Þorlákshöfn. Þetta er 11. einkasýning Katrínar. Sýningin er opin til 25. nóv. frákl. 14-19 um helgar, ogáopnunartímasafnsinsaðradaga. Herðatré í fataskáp inn og stuðningur við fötluð börn ■ Mörg hundruð skólabörn í Reykjavík munu ganga í hús laugardaginn 17. nóvember og selja herðatré. Lionsklúbbur- inn Njörður stendur fyrir þess- ari óvenjulegu fjárstöfnun til styrktar fötluðum börnum. Takmarkið er að selja hvorki meira né minna en 52.000 herðatré. Njörður hefur áður skipu- lagt slíka herðatrjáasölu. Það var á ári fatlaðra 1981 og tókst Guttormur Jónsson við eitt vcrka sinna. (NT-mynd: Sverrir) Skjaldbakan kemst þangað líka ■ Um helgina verður leiksýning Egg-leikhússins Skjaldbakan kemst þangað líka eftir Árna Ibsen sýnt á hverju kvöldi fram á mánudag, og verður þá 10. og jafnframt síðasta sýningá þessuóvenjulega leikriti. Sýnt er í Nýlistasafninu við Vatnsstíg og hefjast sýningar kl. 21. Með hlutverkin í leiknum fara Viðar Eggertsson og Arnór Benónýsson, en höfundur er leikstjóri. hún með afbrigðum vel. Að þessu sinni verður ágóðanum verið til uppbyggingar sumar- dvalarheimilis fatlaðra barna í Reykjadal í Mosfellssveit. Heimili þetta er rekið af Styrktarfélagi lamaðra og fatl- aðra. Auk skólabarnanna leggja margir hönd á plóginn til að gera þessa fjáröflun mögulega. Njarðarfélagar vilja sérstak- lega þakka höfðinglegan stuðning frá Eimskipafélagi íslands, Alþýðuprentsmiðj- unni, Auglýsingadeild Sam- bandsins og Strætisvögnum Reykjavíkur. Lionsklúbburinn Njörður hcfur unnið mikið starf að líknarmálum á liðnum árum t.d. gefið mikinn hluta tækja- kosts háls-, nef- og eyrnadeild- ar Borgarspítalans, lagt grunn- inn að hljóðbókasafni Blindra- félagsins, stutt Flugbjörgunar- sveitina í Reykjavík, Grensás- deild Borgarspítalans og ýmsa fleiri aðila. Framlög klúbbsins til líknarmála á sl. ári námu uni 1,2 milljónum króna. Það er von Njarðarfélaga að borgarbúar taki vel á móti sölubörnunum og noti tæki- færið til að bæta nokkuð úr herðatrjáaskortinum í fata- skápnum og hjálpi Lions- mönnum jafnfranrt að styrkja fötluð börn. Herðatrén verða seld sex saman í pakka og kostar liver pakki aðeins 200' krónur. vaxandi áhuga fólks á keramikmálum þar sem sköpunargáfa hvers og eins fær að njóta sín. Sýningin stendur frá kl. 14-17 á sunnudaginn og verður aðeins þenn- an eina dag. Sýning Ómars í Listmunahúsinu ■ í Listmunahúsinu Lækjargötu 2 stendur yfir sýning Ómars Skúlason- ar. Á sýningunni eru collage-myndir frá 1976, en aðaluppistaða sýningar- innar eru tvær myndraðir báðar unnar á árinu 1984. Sýningin, sem er sölusýning, er opin virka daga frá kl. 10-18, laugar- daga og sunnudaga frá kl. 14 til 18. Lokað mánudaga. Þetta er síðasta sýningarhelgin, en sýningunni lýkur 18. nóvember. Háskólafyrirlestur um heimspeki ■ Sunnudaginn 18. nóvember mun Atli Harðarson flytja fyrirlestur á vegum Félags áhugamanna um heim- speki. Atli lauk B.A. prófi í heimspeki frá háskólanum árið 1982 og M.A. prófi í heimspeki frá Brown Univers- ity í Bandaríkjunum á síðastliðnu vori. Fyrirlesturinn nefnist: Árás Berkeleys á efahyggju. í fyrirlestrinum verður rakinn ým- is almennur fróðleikur um efahyggju á 17. og 18. öld, en aðalefni hans verður útskýring á því hvers konar eíahyggju Berkeley reyndi að hrekja og túlkun á rökum hans gegn henni. Fyrirlesturinn verður haldinn í Lögbergi, stofu 101 og hefst kl. 3.00. Ljósmyndasýning í Ný- listasafninu-nedrisal ■ Þessa dagana sýnir Emil Gunnar Guðmundsson ljósmyndaröð, „Hleg- ið í gegnum tárin" í neðri sal Nýlista- safnsins. Sýningin er haldin í tengsl- um við leiksýningar Egg-leikhússins á leikritinu „Skjaldbakan kemst þangað líka“ og er opin öllum al- menningi á miðasölutíma leikhússins kl. 17-21. Ljósmyndasýningunni lýk- ur um leið og sýningum Egg-leikhúss- ins. DansaðáBorginniáný ■ Orator, félag laganema hefur tek- ið að sér að sjá um dansleikjahald á Hótel Borg í vetur, og verður fyrsti dansleikurinn í kvöld - föstudags- kvöldið 16. nóv. Tilgangur Orators með þessu er annars vegar sá, að standa straum af kostnaði við Norrænt laganemamót, sem fyrirhugað er að halda hér á landi næsta sumar og hins vegar að auka fjölbreytni í skemmtanalífi borgar- búa, enda hefur Hótel Borg nokkra sérstöðu meðal skemmtistaða höfuð- borgarinnar, bæði vegna góðrar staðsetningar og eins þeirrar merku sögu, sem hún á að baki. Kvennahúsið ■ Opið hús verður á morgun, laug- ardag, kl. 1-3. Þangað mæta aðstand- endur leikritsins Petra von Kant, sem nú er sýnt á Kjarvalsstöðum. Leik- stjóri, leikmyndateiknari og leikend- ur segja frá tilurð sýningarinnar og spjalla um hana. Aðalfundur Húnvetningafélagsins ■ Aðalfundur Húnvetningafélags- ins í Reykjavík verður haldinn sunnu- daginn 18. nóvember kl. 20.30 í húsi félagsins að Skeifunni 17, 3. hæð. Venjuleg aðalfundarstörf. Nýir félag- ar sérstaklega boðnir velkomnir. Stjórnin Kertasala í Kópavogi ■ Helgina 17. og 18. nóvember fer fram hin árlega kertasala Kiwanis- klúbbsins Eldeyjar. Munu klúbbfé- lagar banka þá á dyr Kópavogsbúa og bjóða þeim kerti til kaups. Allur ágóði rennur til líknarmála í Kópa- vogi. Sóleyjarkvæði í Félagsstofnun ■ Háskólakórinn og Stúdenta- leikhúsið flytja Sóleyjarkvæði Jó- hannesar úr Kötlum nú um helgina. Lögin eru eftir Pétur Pálsson en Árni Harðarson, stjórnandi kórsins, útsetti þau. Guðmundur Ólafsson, leikari, fer með hlutverk sögumanns. Sýning- arnar verða í Félagsstofnun stúdenta við Hringbraut föstudag, laugardag og sunnudag ki. 20.30. TOLEDO VOGIR OG VOGAKERFI lll;isl.os lif BÍLDSHÖFÐA 10 - SÍMI 82655

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.