NT - 07.02.1985, Blaðsíða 9

NT - 07.02.1985, Blaðsíða 9
 ÍW Fimmtudagur 7. febrúar 1985 9 LL Menning Vettvangur Sjálfsmynd af grá- hærðum unglingi ■ Það er ekkert elliheimilis-, „show“ á Kjarvalsstöðum núna þótt þar sé eins konar sextugs afmælissýnig. í vestursalnum sýnir Sveinn Björnsson frá Hafn- arfirði. Hann verður sextíu ára á næstunni og sýnir af því tilefni hátt í sextíu málverk, flest nýleg. Hér er á ferðinni kraft- mikill og hressilegur málari. Á einni sjálfsmynd hans virðist helst sem þar sé á ferðinni gráhærður unglingur. í næstum fjörtíu ár hefur Svein Björnsson málað með svipuðum hætti, en um þessar mundir bregður svo við að myndir hans falla eins og flís við rass að því sem ríkir í listaheim- inum þ.e. expressionismanum. Mynd no. 16 nefnist „Gamalt stef“ og er af bláum fugli. Hvort þetta er nýmálaður hani að syngja sitt gamalkunna stef eða næturgali orðinn blár af kulda hér á klakanum veit ég ekki, en hitt veit ég að hann gæti vel átt heima á myndum einhverra af þýsku ný-expressionistunum. Ég er ekki að tala um þetta hér til að gefa í skyn að Sveinn sé að kópíera útlendinga, heldur til að spá í hvað það er skrítið að mála með sterkum persónu- einkennum í áratugi og svo lítur heimurinn á verkin með mis-: munandi augum eftir því úr hvaða átt vindurinn blæs. Það er alltaf gaman að sjá margar myndir eftir sama málarann á einum stað. Athuga hvernig sömu stefin kom fyrir aftur og aftur. Sjá marga fleti á viðfangsefnunum. Til dæmis er mynd no. 18, „Hverasteinar" heitir hún, mjög áþekk í bygg- ingu þeirri númer 22 sem nefnist „Stefnumót". Það eru fyrst og fremst litirnir sem skapa mis- munandi stemmningu í mynd- unum. Báðar vekja þær sömu tilfinn- ingu hjá mér, ég sé þær sem „hverasteina á stefnumóti“, eða þannig. Eins og tvö tröll sem hittast í þoku og aðeins hausarn- ir standa upp úr þokunni. En ég skal ekki útlista þetta nánar svo ég rústi ekki sýninguna. Sýningin gengur í grundvall- aratriðum út á náttúrustemmn- ingar og trúarlegar myndir. Þær trúarlegu heita nöfnum eins og „Upprisa", „Þjáning“ og „Frið- þæging“ og minnar mig svolítið á Biblíumyndir franska málarans Georges Rouault, kannski af því báðir málararnir nota breið- ar svartar útlínur grimmt. A þessum myndum Sviens eru konur með grófgerða geisla- bauga og frelsarinn dimmgrænn afþjáningu. Þaðervisseinlægni í myndunum. Myndin „Friðurá jörð" virkar á mig eins og altar- istafla, sérlega þarsem til hliðar við hana eru minni myndir. Miðmynd og vængir! Málverkin eru olía á léreft eða pappír. Þær myndanna sem málaðar eru á pappír liafa yfir sér annan blæ en þær sem mál- aðar eru á léreft. Pappírsmynd- irnar eru sjálfsagt unnar sem skissur því þær eru miklu hrárri en hinar og unnar hraðar. Þess sem ég sakna í pappírsmyndun- um eru litir. Litameðferðin. Þótt litir séu notaðir í þessum myndum þá er það oft þannig að þeir eru notaðir til að teikna með og virka ekki sem litir. Þannig er til dæmis „kjarvals- rninni" no. 15, alveg kolómögu- leg finnst mér. Myndlistamenn líta myndir öðrum augum en aðrir dauðleg- ir. Þeir skoða myndir ekki síst út frá þróunarmöguleikum myndanna. Hvað myndir eru elstar, hverjar yngstar og á hverju gekk á milli þeirra? Upp á hvaða möguleika bjóða mynd- irnar í þróun? Út frá þessu sjónarhorni er ég spenntust fyrir sjálfsmyndinni „Málarinn" no. 42. I henni er eitthvað sem „Andlitin mín 1-4“ skortir. Ætli þetta sé eina andlitsmyndin sem hann hefur málað í þessum dúr? Eða ætli hann eigi vini og kunn- ingja á léreftum í hrúgum heima hjá sér? Ef ekki, hvers vegna ætli hann máli ekki liðið? Yrði góður í því! Sá hópur mynda sem sterkast höfðar tii mín eru myndir eins og „Nóttlaus veröld", „Hvera- steinar" og „Friður á jörð". Myndir þar sem Sveinn notar sterka myndbyggingu sem grundvallast á línuteikningu, en jafnframt er litaharmónían rík. Mér finnst það skemma mynd eins og „Nóttlaus veröld" að undir henni er strúktúr að því er virðist óskildrar myndar, eins og draugur í nóttlausri veröld. Þessi mynd getur látið sig hafa þennan draug af því hún er góð, en slíkt gæti hæglega eýðilagt aðrar. Nokkrar myndir, þær nýjustu skilst mér, eru abstrakt. Lita- hrynjandi. Hann notar þá að- ferð að bera litina á með sköfu eða stórum pensli. Notar nokkra liti saman en þó óbland- aða. Þá myndast alls konar rákir og litarandir og pensil- skriftin verður heimur útaf fyrir sig. Þá er hægt að skoða þessar myndir með nefið upp við þær og horfa svo á þær sem allt aðrar myndir í fjarlægð. De Kooning er sérfræðingur í svona vinnu- brögðum. Ég sá yfirlitssýningu á verkum hans í fyrra og var langhrifnust af elstu myndun- um hans. Svona skrautlegpens- ilskrift . verður einhæf til lengdar. Ekki svo að skilja að ég sé á móti því að fólk máli eins og það helst vill. Ég er reyndar ofsalega með því. Sköpunar- gleðin skiptir höfuðmáli í list- sköpun og kannski er það hún sem kemur fram í myndunum sem orka. Þessi sýning Sveins Björnssonar orkar á mig sem gleðileg. Svala Sigurleifsdóttir. ■ Helgafellskirkja Þakkir til velunnara Helgafellskirkju ■ Á nýársdag 1984 voru liðin 80 ár frá því að Helgafellskirkja var vígð nýsmíðuð af Sveini Jónssyni snikkara bróður Björns Jónssonar, ritstjóra og ráðherra frá Djúpadal. Vígslu- dagínn 1. jan. 1904 var hæglátt, frostlaust veður og besta færi fyrir alla, sem fjölsóttu til vígsl- unnar og nýársdagsmessu sr. Sigurðar Gunnarssonar, próf- asts í Stykkishólmi. Aldraður maður, þá ungur drengur, sagði að þá hefði verið glaður og góður dagur í Helga- fellssókn. Nú þegar liðin voru 80 ár frá þeim degi tóku sóknarbúar þá ákvörðun að halda upp á 8 áratuga aldur kirkju sinnar með því að gera verulegar og varan- legar umbætur á kirkjunni. Turninn, sem upphaflega var smíðaður á kirkjuna hafði skemmst fljótt og verið breytt við nauðsynlega viðgerð á honum, þegar vatnsagi og fúi sóttu mjög að stuttu eftir 1920. Nú var ákveðið að smíða nýja turnspíru í samræmi við þann stíl, sem fyrri turnspíra 1903 var smíðuð í. Húsfriðunarnefndarfulltrúi og starfsmenn hjá embætti Húsameistara ríkisins hvöttu mjög til þess og lögðu tillögur fram með teikningu af turnspír- unni. Hún er nú í smíðum og langt komin og á að ljúka viö hana í sumar. Þá var líka skipt um járn á þaki kirkjunnar sl. sumar. Áfram er áformað að halda með endurbætur á járni á hlið- um og turnhúsi kirkjunnar eftir því sem tilefni og þörf sýnist fyrir. Og svo verður hugað að grunninum sjálfum að sjálf- sögðu. Oft hafa Helgafells- kirkju borist góðar gjafir og því var hún ekki alsnauð, þegar viðgerðin hófst sl. sumar. Sjóðir voru samt heldur léttir til þess að kosta svo viðamikla viðgerð sem hafin er. En ótrúlega hefir þó verið gefið rausnarlega til minningar um látna ástvini af ættingjum og það hjálpað mikið fámennri kirkjusókn í stórvirki sínu. Fyrir það er þakkað af alhug. Það er of mikið mál að rifja upp mörg ár aftur í tímann en ég get um það sem gefið hefir verið frá því á jólum í fyrra. Féhirðir Helgafellssóknar Hall- varður á Þingvöllum og Sigurlín kona hans gáfu 3000.00 kr. og 500 minningarspjöld til þess að þeir sem óskuðu gætu fengið þau til að senda samúðarkveðju sína um leið og þeir styrktu kirkjuna sem þeim væri hjart- fólgin af einhverjum ástæðum. Kvenfélagið Björk í Helgafells- sveit gaf á liðnu sumri 10.000,00 kr til styrktar turnspírusmíð- inni. Björn Jónsson frá Kóngs- bakka í Helgafellssveit, bóndi þar um langt árabil og safnað- arfulltrúi og sóknarnefndar- maður lengi í Helgafellssókn færði kirkjunni á gangnadaginn minningargjöf uin systur sína Margréti Jónsdóttur, sem einnig bjó á Kóngsbakka. Margrét andaðist 25. júní 1984,71 árs að aldri. Það voru 50.000,00 kr. sem Björn gaf til minningar um hana. A sl. jólum afhentu svo hjónin, sem lengi hafa setið á Helgafelli með sæmd og prýði, sem allir munu votta, sem á staðinn hafa komið, Ragnheið- ur og Hinrik Helgafellskirkju 25 sálmabækur með ágylltri merkingu „Helgafellskirkja" að gjöf- Og svo hófst árið 1985 með því, að ég fékk boð frá burtflutt- unt Helgfellingi frú Maríu Magðalenu Guðmundsdóttur, sem átti heima í Jónsnesi á uppvaxtarárum sínum og kenndi líka börnum nokkur ár í farskóla í sveitinni. Hún óskaði þess að ég tæki við lítilræði til styrktar þeim endurbótum, sem verið er að gera á Helgafells- kirkju ef ég ætti hægt með og yrði á ferðinni. Gjöf þessa vildi hún gefa til minningar um for- eldra sína, Guðmund Bjarna- son f. 29. júní 1860 og d. árið 1953 og konu hans Ólínu Árna- dóttur f. 6. júlí 1861 og d. árið 1938. Þau eru bæði jarðsett í Helgafellskirkjugarði. Einnig skal gjöfin vera til minningar um þau systkini hennar, sem þar eru greftruð. Lítilræðið var mér svo afhent heima hjá henni 21. jan. sl. og reyndist þá vera sparisjóðsbók með 150 þúsund króna inn- stæðu. Sú gjöf berst á hentugum tíma og kemur í góðar þarfir. F.h. sóknarbúa í Helgafells- sókn og kirkju þeirra flyt ég öllum gefendum bestu þakkir fyrir örlæti þeirra og góðar gjafir. Þó þakka ég meira góðan hug þeirra. Það hefir áður verið ánægjuefni að veita viðtöku gjöfum til Helgafellskirkju. Guð blessi alla, sem fyrr og síðar hafa gefið henni gjafir. Gísli H. Kolbeins UMBOÐSMENN Akureyri Soffía Ásgeirsdóttir, Háalundi 7, s. 24582 og Halldór Ásgeirsson, Hjaröarlundi 4, s. 22594. Akranes Elsa Sigurðardóttir, Deildartúni 10, s. 93-1602. Borgarnes Guðný Þorgeirsdóttir, Kveldúlfsgötu 12, s. 93-7226. Hellissandur Víglundur Höskuldsson, Snæfellsási 15, s. 93-6737. Rif Snædís Kristinsdóttir, Háarifi 49, s. 93-6629. Ólafsvík Margrét Skarphéðinsdóttir, Vallarholti 24, s. 93-6306. Grundarfjörður Jóhanna Gústafsdóttir, Fagurhólstúni 15, s. 93-8669 Stykkishólmur Erla Lárusdóttir, Silfurgötu 25, s. 93-84010. Búðardalur Sólveig Ingvadóttir, Gunnarsbraut 7, s. 93-4142. Patreksfjörður Ingibjörg Haraldsdóttir, Túngötu 6, s. 94-1353. Tálknafjörður Níels Ársælsson, Hamraborg, s. 94-2656 (2514). Bíldudalur Jóna M. Jónsdóttir, Tjarnarbraut 5, s. 94-2206. Flateyri Guðrún Kristjánsdóttir, Brimnesvegi 2, s. 94-7673. Suðureyri Sigrún Edda Edvardsdóttir, Sætúni 2, s. 94-6170. Bolungarvík Kristrún Benediktsdóttir, Hafnargötu 115, s. 94-7366. Isafjörður Svanfríður G. Bjarnadóttir, Pólsgötu 5, s. 94-3527. Þingeyri Karitas Jónsdóttir Brekkugötu 54, sími 94-8131 Súðavík Heiðar Guðbrandsson, Neðri Grund, s. 94-4954. Hólmavík Gu^björg Stefánsdóttir, Bröttugötu 4, s. 95-3149. Hvammstangi Baldur Jessen, Kirkjuvegi, s. 95-1368. Blönduós Snorri Bjarnason, Urðarbraut 20, s. 95-4581. Skagaströnd Ingibjörg Skúladóttir, s. 95-4885. Sauðárkrókur Guttormur Óskarsson, Skaf.braut 25, s. 95-5200. Siglufjörður Friðfinna Símonardóttir, Aðalgötu 21, s. 96-71208. Ólafsfjörður Helga Jónsdóttir, Hrannarbyggð 8, s. 96-62308. Dalvík Brynjar Friðleifsson, Ásvegi 9, s. 96-61214. Grenivík Ómar Þór Júlíusson, Túngötu 16, s. 96-33142. Húsavík Hafliði Jósteinsson, Garðarsbraut 53, s. 96-41765. Kópasker Þórhalla Baldvinsdóttir, Akurgerði 7, s. 96-52151. Raufarhöfn Ófeigur I. Gyifason, Sólvöllum, s. 96-51258. Reynihlíð Þuríður Snæbjarnardóttir, Skútahrauni 13, s. 96-44173. Þórshöfn Kristinn Jóhannsson, Austurvegi 1, s. 96-81157. Breiðdalsvík Jóhanna Guðmundsdóttir, Selnesi 36, s. 96-5688. Borgarfjörður eystri Hallgrímur Vigfússon, Vinaminni. Vopnafjörður Jóhanna Aðalsteinsdóttir, s. 97-3251. Egilsstaðir Páll Pétursson, Árskógum 13, s. 97-1350. Seyðisfjörður Svanur Sigmarsson, Oddagötu 4, s. 97-2360. Neskaupstaður Marín Árnadóttir, Víðimýri 18, s. 97-7523. Eskifjörður Jónas Bjarnason, Strandgötu 73, s. 6262. Reyðarfjörður Marinó Sigurbjörnsson, Heiðavegi 12, s. 97-4119. Fáskrúðsfjörður Sonja Andrésdóttir, Þingholti, s. 97-5148. Stöðvarfjörður Stefán Magnússon, Undralandi, s. 97-5839. Djúpivogur Rúnar Sigurðsson, Garði, s. 97-8820. Höfn Ingibjörg Ragnarsdóttir, Smárabraut 13, s. 97-8255 Hvolsvöllur Bára Sólmundardóttir, Sólheimum, s. 99-8172. Hella Hrafnhildur Þórarinsdóttir, Geitasandi 3, s. 99-5904 Selfoss Helga Snorradóttir, Tryggvavegi 5, s. 99-1658. Stokkseyri Sturla G. Pálsson, s. 99-3274. Eyrarbakki Ragnheiður Marleinsd, Hvammi, s. 99-3402. Þorlákshöfn Þóra Sigurðardóttir, Sambyggð 4, s. 99-3924. Hveragerði Sigríður Ósk Einarsdóttir, Heiðabrún 46, s. 99-4665 Vík Guðrún Árnadóttir, Mánabraut 14, s. 99-7233. Vestmannaeyjar Ingveldur Gísladóttir, Bröttugötu 26, s. 98-2270. Grindavík Sólveig Valdimarsdóttir, Efsta Hrauni 17, s. 92-8583 Garður Kristjana Óttarsdóttir, Lyngbraut 6, s. 92-7058. Sandgerði Snjólaug Sigfúsdóttir, Suðurgötu 18, s. 92-7455. Keflavík Guðríður Waage, Austurbraut 1, s. 2883. Ingibjörg Einarsdóttir, Suðurgjötu 37, s. 4390. Ytri Njarðvík Kristinn Ingimundarson, Hafnargata 72, s. 3826. Innri Njarðvík Guðríður Árnadóttir, Kópabraut 16, s. 92-6074. Hafnarfjörður María Sigþórsdóttir, Austurgötu 29, B, S. 54476. Garðabær Sigrún Kristmannsdóttir, Hofslundi 4, s. 43956. Mosfellssveit Jónina Ármannsdóttir, Arnartanga 57, 666481

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.