NT - 20.09.1985, Blaðsíða 4
T Föstudagur 20. september 1985 4
réttir
Listahátíð
kvenna í
Reykjavík:
Viðamikil hátíð út um
allan bæ í heilan mánuð
NT lítur inn á Kjarvalsstaði og rabbar við nokkrar af 1001 konu sem gert hefur þessa hátíð að veruleika
Leikfélag Reykjavíkur:
■ I>að var mikið um að vera á
Kjarvalsstöðum þegar blm. leit
þar inn í vikunni. Undirbúning-
ur fyrir Listahátíð kvenna '85 í
fulluin gangi, myndlistarkonur
að koma fyrir verkum sínum
sem sýnd verða á Kjarvalsstöö-
um á sýningu sem ber yfirskrift-
ina „Hér og nú“. Fulitrúar ann-
arra listgreina voru líka mættir
því á Listahátíðinni verðurflest-
um listgreinum gerð skil:
myndlist, tónlist, kvikmynda-
list, byggingarlist, Ijóðlist, bóka-
skreytingum o.fl. Listahátíð
kvenna teygir anga sína um
allan bæ og stendur í rúman
mánuð.
Hátíðin sem haldin er í tiiefni
þess að í ár eru 10 ár frá því
kvennaáratugurinn hófst,
hefst í dag kl. 16.00 með
sýningu á byggingarlist ís-
lenskra kenna í Ásmundarsal.
Kl. 17 verður gengið með
kvennalúðrasveit undir stjórn
Lilju Valdimarsdóttur í broddi
fylkingar niður í Hlaðvarpann
að Vesturgötu 3 þar sem flutt
verður stutt dagskrá og stúlkna-
kór undir stjórn Pórunnar
Björnsdóttur syngur. Jafnframt
verður opnuð sýning á tillögum
arkitekta um nýtingu og endur-
byggingu á Hlaðvarpanum.
Á morgun kl. 14 verður sýn-
ingin að Kjarvalsstöðum opnuð.
Þar sýna 28 konur verk sín.
Flestar þessara kvenna komu
fram á sjónarsviöið á kvenna-
áratugnum. Kl. 16 sama dag
verður opnuð sýning á verkum
Ásrúnar Kristjánsdóttur í Gall-
erí Langbrók. Og kl. 21 verður
frumsýnd leikgerð Helgu
Bachmann á Reykjavíkursög-
um Ástu Sigurðardóttir
að Vesturgötu 3.
Sunnudaginn 22. september
verður opnuð sýning á bókum
og bókaskreytingum eftir konur.
Sýningin verður í Gerðubergi
og hefst kl. 14. Ljóðadagskráin
„Ljóðabönd" - ljóðlist kvenna
um 3 aldir hefst í Gerðubergi kl.
15.30. Kl. 17 verða tónleikar á
Kjarvalsstöðum. Flutt verða
verk eftir Karólínu Eiríksdóttur
og Mist Þorkelsdóttur. Og á
sunnudagskvöld verður frum-
flutt dagskrá úr verkum Jakob-
ínu Sigurðardóttur í samantekt
Bríetar Héðinsdóttur. Dagskrá
þessi er framlag Leikfélags
Reykjavíkur til Listahátíðar-
innar.
sem hafa komið nálægt þessari
Listahátíð og þetta er búið að
vera gífurlega mikil en mjög
skemmtileg vinna.'*
„13 íslenskir kvenarkitektar
sýna í Ásmundarsal," segir
Valdís Gunnarsdóttir arkitekt,"
en það verða 2 aðrar sýningar í
salnum, annars vegar finnsk lit-
skyggnusýning á verkum kven-
arkitekta sem voru braut-
ryðjendur í finnskum arkitekt-
úr. Frá Berlín kemur hins vegar
sögusýning á verkum kvenarki-
tekta og hönnuða á 20. öldinni.
Sýningin sem verður opnuð síð-
ar fjallar um konur hvaðanæva
úr heiminunt þótt þýskar konur
séu eðlilega í brennidepli því að
sýningin er sett saman í Þýska-
landi. En kvenarkitektar er-
lendis fengu ekki inngöngu í
alþjóðasamband arkitekta þeg-
ar það var stofnað árið 1962 og
þess vegna stofnuðu þær sín
cigin samtök sem standa að
þessari sýningu."
Tónlistkvenna
títilsvirt
En á Kjarvalsstöðum voru
líka staddar fulltrúar tónlistar-
hópsins og ljóðlistarhópsins.
„Það sem helst olli okkur erfið-
leikunt," segir Karólína Eiríks-
dóttir tónskáld, „var að fá nótur
nreð verkum kvenna. Ég fór til
dæmis til Kaupmannahafnar til
að kaupa nótur, því auðvitað
fengust þær ekki hér á landi, en
afgreiðslumaðurinn í stærstu
nótnabúðinni þar hafði aldrei
heyrt á þessi kvennatónskáld
minnst. Enda hefur tónlist
kvenna aldrei verið metin í sög-
unni og kventónskáldum verið
haldið niðri. Systir Mendel-
sohns sem var mikilvirkt og gott
tónskáld lét til dæmis gefa verk
sín út í nafni bróður síns, og
Clara Schumann sem var mjög
gott tónskáld var líka farin að
trúa þeim röddum sem sögðu að
konur hefðu ekki hæfileika til
að semja tónverk. Og það var
heldur ekki fyrr en á þessari öld
sem konur fengu inni í skólunt
þar sem tónsmíðar eru
kenndar."
„Dagskráin er ennþá opin,"
segir Guðrún Bachmann í ljóða-
hópnum ákveðin. „Það verða
fluttar sex Ijóðadagskrár sem
ættu að gefa lauslegan þver-
skurð afljóðlist kvennasíðustu
3 aldirnar. Hver dagskrá verður
undir ákveðnu þemaheiti, um
vinnu, um ástina, um trúna og
um lífið. Elstu ljóðin eru frá 16.
öld og leikarar rnunu flytja Ijóð
eftir allar skáldkonurnar sem
nú eru látnar en núlifandi skáld-
konur munu flestar flytja Ijóðin
sín sjálfar og yngsta skáldið er
t.d. lóára. En skáldkonur geta
ennþá haft samband við mig því
ennþá er rúm fyrir nokkrar."
Og síminn hjá Guðrúnu er
21500 og 18926 fyrir þær sem
hafa áhuga.
■ íris Elfa Friðriksdóttir inni í einu verka sinna á sýningunni Hér
og nú á Kjarvalsstöðuni NT-mynd: Róhcrt.
ína Salóme á fullu við undirbúning myndlistarsýningarinnar Hér og nú sem opnuð verður á Kjarvalsstöðum á morgun. NT-mynd: Róben
■ Sólveig Ólafsdóttir í framkvæmdanefnd ’85-nefndarinnar sem
stendur á bak við Listahátíöina og Gerla framkvæmdastjóri
hátíöarinnar. M-myndir. Róberl
Þetta er bara
byrjunin
„En þetta er bara byrjunin,"
segir Gerla framkvæmdastjóri
hátíðarinnar brosandi. „Lista-
hátíðin stendur til 24. október."
Og dagskráin í heild sinni er
óskaplega viðamikil. NT spvr
konurnar sem eru saman komn-
ar á Kjarvalsstöðum hversu
margar konur hafi komið nálægt
skipulagningu hátíðarinnar og
taka þátt í sýningu eða flutningi
á verkum sínum. „Þetta ererfið
spurning," segir Sólveig Ólafs-
dóttir í framkvæmdanefnd ‘85
nefndarinnar, „eigunt við að
segja að 1001 kona hafi gert
þessa hátíð að veruleika." „Jú,"
segir Gerla, þegar þær hafa
reiknað svolítið í huganum,
„það eru fleiri hundruð kvenna
Dagskrá úr verkum
Jakobínu Sigurðar
- í tilefni Listahátíðar kvenna
■ Fyrsta verkefni Leikfélags
Reykjavíkur á nýju leikári er
dagskrá sem Bríet Héðinsdóttir
hefur tekið saman úr verkum
Jakobínu Sigurðardóttur. Verk-
ið verður frumflutt á sunnudag-
inn í Gerðubergi kl. 20.30 og er
framlag Leikfélagsins til Lista-
hátíðar kvenna sent nú er nýhaf-
in.
Flytjendur auk Bríetar eru
Ingibjörg Marteinsdóttir söng-
kona, Jórunn Viðar tónskáld og
leikararnir Margrét Ólafsdóttir,
Valgerður Dan, Hanna María
Karlsdóttir og Þorsteinn Gunn-
Jakobína Sigurðardóttir
fæddist í Hælavík á Hornströnd-
um árið 1918 en flutti 17 ára
gömul til Reykjavíkur þar sem
hún stundaði ýntis störf. Árið
1949 fluttist Jakobína að Garði
í Mývatnssveit þar sem hún býr
enn. Hún hefur gefið út smá-
sagnasöfn, Ijóð, barnabók
ásamt fjórum skáldsögum:
Dægurvísu, Snöruna, Lifandi
vatnið og í sama klefa.
Annar flutningur á dag-
skránni verður föstudaginn 27.
september að Kjarvalsstöðum
og þriðji flutningur í Gerðu-
bergi sunnudaginn 29. septem-
bpr,, . „01, .. ... .....