24 stundir - 31.05.2008, Blaðsíða 38

24 stundir - 31.05.2008, Blaðsíða 38
38 LAUGARDAGUR 31. MAÍ 2008 24stundir „Já, Óperukórinn hefur reyndar oft sungið þetta og kann verkið utan að frá því í gamla daga þegar við settum verkið upp í sviði Óp- erunnar. Um síðustu helgi æfðum við í tæpa sautján klukkutíma samtals. Þetta er að verða tilbúið!“ Hefur sama fólkið þá verið í kórnum síðustu áratugina? „Hluti kórsins hefur verið með mér í mörg, mörg ár. Svo bætist alltaf ungt fólk við í hópinn. Nemar í Söngskólanum fara í Óp- erukórinn á meðan þeir eru í námi og flestir starfandi atvinnu- söngvarar eru gamlir söngfélagar úr kórnum.“ Óperukórinn í Reykjavík er ekki það sama og Kór Íslensku óperunn- ar, eða hvað? „Nei, hann var það á sínum tíma en þegar ég hætti sem óp- erustjóri þá slitnuðu tengslin. Um tíma var enginn fastur kór við Óperuna, heldur var auglýst eftir fólki til að syngja í hverri upp- færslu fyrir sig. Nýverið var stofn- aður Kór Íslensku óperunnar sem á að starfa lengur en til eins verk- efnis í senn.“ Þú hefur sem sagt tekið kórinn með þér þegar þú hættir? „Já, hann fylgdi mér í raun- inni,“ segir Garðar. Hann stofnaði Íslensku óp- eruna undir lok áttunda áratugar síðustu aldar og var óperustjóri í tuttugu ár. Var það léttir að hætta? „Bæði og. Þetta var góður tími en það var kominn tími á annað,“ segir Garðar. „Maður má ekki vera of lengi. Ég hef verið í Söng- skólanum í þrjátíu og fimm ár. Ég verð hérna þangað til yfir lýkur – kallar sig Carmina-hópinn. Stjórnendur þeirra eru Keith Reed, Björgvin Þ. Valdimarsson, Margrét Pálmadóttir og Kristján Valgarðsson. Amerískir háskóla- kórar bætast í hópinn þegar út er komið, svo og þarlend sinfón- íuhljómsveit. Einsöng syngja Bergþór Pálsson, Diddú og amer- ískur tenór. „Ég hefði nú helst viljað sjá Þorgeir Andrésson, sem oft hefur sungið Svaninn, með okkur en hann verður upptek- inn.“ Það eru væntanlega stífar æfing- ar í gangi? taka þátt í New York-ævintýrinu; Landsvirkjunarkórinn, Skagfirska söngsveitin, konur úr Domus Vox og skagfirskur sönghópur sem Garðar heillaði landsmennmeð sinni hrífandi ten-órrödd um áratugaskeið en er nú kominn í hlutverk tón- listarstjórnandans, auk þess sem hann rekur Söngskólann í Reykja- vík. Í sumar býðst honum að munda tónsprotann í hinu víð- fræga tónleikahúsi Carnegie Hall í annað skiptið, en hann var og er fyrsti Íslendingurinn til að hljóta þann heiður. Kórinn sem kemur fram í Carnegie Hall 14. júní samanstendur af fimm íslenskum kórum og sönghópum og mun flytja eitt þekktasta verk kórsög- unnar, Carmina Burana eftir Carl Orff. Þess má geta að verkið státar af einu mest leikna stefi tónlistar- og kvikmyndasögunnar, hinum dramatíska O Fortuna-kór, sem er notaður jöfnum höndum í Nesk- affi-auglýsingar og kvikmynda- „trailera“. „Upphafið má rekja til ársins 2004 þegar mér var boðið að stjórna Elía eftir Mendelssohn í Carnegie Hall, í flutningi 300 manna kórs. Þar komu saman kórar hvaðanæva úr heiminum, þar á meðal Óperukórinn í Reykjavík. Í framhaldi af því var mér boðið að koma aftur, í þetta skipti til að stjórna Carmina Burana og Óperukórinn vildi endilega fá að koma með,“ upp- lýsir Garðar. Fleiri íslenskir kórar Hvað væri íslenskt tónlistarlíf án Söngskólans í Reykjavík og Íslensku óp- erunnar? Án Garðars Cortes væri þessi uppeldisstöð og athvarf íslenskra óp- erusöngvara ekki til. Í sumar hyggst Garðar bregða sér til New York og stjórna 175 manna íslenskum kór í Carnegie Hall. Hér ræðir hann um börnin, trúna og mótorhjólagæjann sem endaði sem músíkant. Menn þurfa skap til að skapa Garðar Cortes ásamt sonum sínum, Garðari Thór og Aroni Axel. Söngvarinn Garðar Thór hef- ur notið mikillar velgengni erlendis á síðustu misserum og Aron Axel tók nýverið hæsta söng- próf sem tekið hefur verið frá Söngskólanum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

24 stundir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.