24 stundir - 19.06.2008, Blaðsíða 18
22 FIMMTUDAGUR 19. JÚNÍ 2008 24stundir
hringdi í mig fyrir hádegi, en hann
vaknar aldrei fyrir hádegi, og sagði
mér það að við myndum vinna
þennan leik, þannig að maður fann
strax að allt yrði lagt undir. Þegar
litlu liðin eru að mæta þessum
stóru þá magnast alltaf upp ákveð-
in bikarstemning, eins og gerðist
Eftir Sindra Sverrisson
sindris@24stundir.is
„Við erum með nokkra virkilega
góða einstaklinga í okkar röðum
sem gætu vel verið að spila í efri
deildum, en ýmis mál hafa komið í
veg fyrir að þeir geri það. Á góðum
degi getum við strítt hverjum sem
er,“ sagði Elvar Geir í samtali við 24
stundir á blaðamannafundi sem
haldinn var í KR-heimilinu í gær.
KB er eitt af þeim liðum í heim-
inum sem hafa forseta og skipar sér
þar með á stall með stórliðum á
borð við Real Madrid og Barce-
lona, og skipar Elvar Geir þá stöðu
hjá Breiðholtsliðinu.
Knattspyrnustjórinn fór í sund
KB er einnig með knattspyrnu-
stjóra í sínum röðum, Magnús Ein-
arsson, sem er faðir Elvars Geirs og
reynslumikill þjálfari. „Það er gott
að hafa hann en hann fór reyndar
með okkur í leik á Hvolsvelli um
daginn og þegar hann sá að þar var
sundlaug ákvað hann bara að fara í
heita pottinn í staðinn fyrir að
flytja einhverja ræðu inni í klefa,“
sagði Elvar Geir.
KB, sem leikur í 3. deild, kom
mörgum á óvart með því að vinna
1. deildarlið Njarðvíkur 2:0 í síð-
ustu umferð bikarsins.
„Þórður Einarsson, sem skoraði
fyrra markið okkar í leiknum,
svo sannarlega í Njarðvík þar sem
allir áttu stórleik,“ sagði Elvar Geir
sem vonast til þess að eitthvað
svipað verði uppi á teningnum í
Frostaskjólinu í kvöld.
Vonast eftir réttu mati KR
„Þegar allt kemur til alls þá er
þetta nú bara íslenski boltinn og
KR er bara með íslenska leikmenn
eins og við fyrir utan þennan
Portúgala og Björgólf Takefusa. KR
hefur sýnt ákveðna veikleika í sum-
ar en virðist því miður hafa fundið
lausnir við þeim. Við verðum bara
að vona að þeir hökti eitthvað og
veikleikarnir taki sig upp aftur. Það
væri heldur ekki verra að fá slatta af
vanmati frá þeim, eða kannski rétt
mat þar sem við erum nú ekkert
frábærir,“ sagði Elvar Geir.
KB-liðið er eins og áður segir til-
tölulega nýstofnað, hefur leikið eitt
tímabil í 3. deild, og á því ekki
marga stuðningsmenn en Elvar
Geir vonast þó til að sjá sem flesta.
Spilum fyrir allt Breiðholt
„Við eigum fáa en dygga stuðn-
ingsmenn en síðustu daga hefur
ótrúlegasta fólk lýst yfir áhuga á að
mæta á þennan leik. Við erum
knattspyrnufélag alls Breiðholts, á
meðan Leiknir er fyrir efra Breið-
holt og ÍR fyrir það neðra, og bú-
umst við því við að allir Breiðhylt-
ingar mæti á völlinn hvort sem þeir
halda með ÍR eða Leikni.“
KB fær helming þeirra tekna
sem fást af miðasölu á leiknum og
Elvar Geir segir það kærkomið fyrir
svo lítið félag.
„Það er einhver kostnaður við
leikinn en við ættum að koma út í
fínum gróða og höfum ákveðið að
fyrsta verkefnið sé að kaupa nýja
markmannstreyju. Gamla treyjan
er með Sinalco-auglýsingu framan
á og Raggi markvörður á það nú
skilið eftir stórleik í Njarðvík að fá
nýja markmannstreyju.“
➤ KB, eða KnattspyrnufélagBreiðholts, tók í fyrsta sinn
þátt í Íslandsmótinu í fyrra og
leikur í sumar í þriðju deild.
➤ Liðið komst í fyrra í aðra um-ferð VISA-bikarsins en hefur í
ár slegið út KFR og Njarðvík
og mætir KR kl. 19:15 í kvöld.
➤ KB er nátengt Leikni í Reykja-vík og eru margir leikmanna
liðsins uppaldir þar.
HVAÐ ER KB?
24 stundir/Valdís Thor
Í kvöld fer fram athygl-
isverð rimma í VISA-bikar
karla í knattspyrnu þegar
hið eins árs gamla Knatt-
spyrnufélag Breiðholts,
KB, mætir elsta knatt-
spyrnufélagi landsins,
KR. Forseti KB, Elvar Geir
Magnússon, segir liðs-
menn hvergi bangna.
Davíð og
Golíat
Eitt yngsta lið landsins mætir því elsta í VISA-bikarnum í
knattspyrnu Getum strítt öllum liðum, segir forseti KB
ÍÞRÓTTIR
ithrottir@24stundir.is a
Gamla treyjan er með Sinalco-auglýsingu fram-
an á og Raggi markvörður á það nú skilið eftir
stórleik í Njarðvík að fá nýja markmannstreyju.
Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is
Munið Mastercard
ferðaávísunina
Birt með fyrirvara um prentvillur. Heimsferðir áskilja sér rétt til leiðréttinga á slíku.
Ath. að verð getur breyst án fyrirvara.
Rhodos
frá kr. 39.990
Bjóðum nú allra síðustu sætin til Rhodos 21. júní í 2 vikur. Í boði er
stökktu tilboð en þá bókar þú flugsæti og gistingu og fyrir brottför færðu
að vita hvar þú gistir. Gríptu tækifærið og njóttu lífsins á þessum vinsæla
áfangastað.
Verð kr. 39.990
Netverð á mann, m.v. 2 fullorðna og 2 börn í íbúð. Stökktu tilboð 21. júní í 2 vikur.
Aukalega kr. 10.000 m.v. 2 í herbergi / stúdíó / íbúð.
21. júní í 2 vikur
*** Allra síðustu sætin **
Ótrúlegt tilboð
- 2 vikur