Lesbók Morgunblaðsins - 02.04.2005, Blaðsíða 1
Laugardagur 2.4. | 2005
[ ]Er ný tónlist leiðinleg? | Þarf maður ekki einu sinni að hlusta á hana til að vita svarið? | 16Niður með auðvaldið! | Eru blaðamenn DV hættir að vera memm með yfirstéttinni? | 2Nick Cave | Martröðin mikla er aldrei aldrei langt undan á B-Sides & Rarities | 13
LesbókMorgunblaðsins 80ára19252005
H.
C. Andersen
fæddist í Óðins-
véum 2. apríl 1805
þannig að í dag
höldum við upp á
200 ára afmæli
hans. Ekki hefði
þessum þekktasta
rithöfundi Dana þótt leiðinlegt að taka þátt í
þessum afmælisdegi!
H.C. Andersen var einkabarn foreldra
sinna og ólst upp hjá þeim báðum þar til árið
1814 að hann missti föður sinn. Hann var
mjög hrifinn af föður sínum sem var skó-
smiður, en faðirinn hefði gjarnan viljað
menntast meira. Faðir hans las mikið upp-
hátt fyrir fjölskylduna, bæði
leikrit Holbergs og Þúsund og
eina nótt. Enn fremur orti
hann ljóð og bjó til handa syni
sínum nokkurs konar brúðuleikhús með
pappafígúrum eins og vinsælt var á þessum
tíma.
H.C. Andersen fór í fátækraskóla eftir
dauða föður síns. Hann átti auðvelt með að
læra utan bókar en hann var ekki iðinn við
námið. Hann undi sér frekar við að setja
saman vísur og lesa allt sem hann komst yfir
s.s. gleðileiki Holbergs og harmleiki. Hann
reyndi að setja saman texta þar sem komu
fyrir kóngar og prinsessur. Hann var svo
ákafur að lesa og læra það sem hann sjálfur
hafði áhuga á að hann lét sig hafa það að
heimsækja fólk sem hann þekkti ekki ef hann
vissi af bókum hjá því.
14 ára fór H.C. Andersen til Kaupmanna-
hafnar. Hann hafði óbilandi trú á listrænum
hæfileikum sínum á mörgum sviðum og hann
byrjaði á að heimsækja sólódansmey
Konunglega leikhússins, en hún henti honum
út eftir að hann hafði „dansað“ fyrir hana.
Hann gafst samt ekki upp heldur fór á milli
ráðamanna leikhússins og leikhússtjórans og
reyndi að komast að í leikhúsinu með ein-
hverjum hætti.
Með harðfylgi gat hann orðið sér úti um
söngkennslu og kennslu í þýsku og dönsku.
Hann fékk statistahlutverk í ballett og varð
kórnemi við leikhúsið.
H.C. Andersen var þá þegar byrjaður að
skrifa og skrifaði á þessum tíma harmleiki
sem ekki fengust sviðsettir. Sína fyrstu 3
Eftir Hildi
Halldórsdóttur
hilduha@hi.is
H.C. Andersen
200 ára
Í dag er haldið upp á 200 ára afmæli danska
rithöfundarins og ævintýramannsins H.C.
Andersens. Af því tilefni eru birtar í Lesbók í
dag þrjár áður óprentaðar þýðingar Sigurð-
ar A. Magnússonar á ævintýrum Andersens.
Ævintýrin heita Stökkgellurnar, Smalastúlk-
an og sótarinn og Holgeir danski. Einnig er
birt grein um feril Andersens og íslenskar
þýðingar á verkum hans en Jónas Hallgríms-
son mun hafa verið fyrstur til að snúa ævin-
týri eftir danska skáldið á íslensku. Einnig er
stiklað á stóru í ævi H.C. Andersens.
H.C. Andersen og
íslensku skáldin