Fréttablaðið - 21.05.2004, Blaðsíða 32

Fréttablaðið - 21.05.2004, Blaðsíða 32
Skaftpottur með glerloki er eitt þeirra búsáhalda sem flestir vildu hafa á sínu heimili. Hann hentar hvaða eldavél sem er, venjulegum hellum, keramikplötu eða gasi og fæst hjá Bræðr- unum Ormsson. Iðnbúð 1 · 210 Garðabæ s: 565-8060 · fax:565-8033 Gardínustangir Sérsmíði Gjafavara Smíðajárn Ítalskir gæðastólar: Þægindi og gæði í fyrirrúmi Gegnum Glerið - Verslun fagurkerans í Ármúla hefur nýverið hafið innflutning á ítölsku húsgögnunum Cattelan Italia. Verslunin býður um þessar mundir 15% kynningarafslátt á þessum vörum og stendur tilboðið til 26. maí. Cattelan Italia var stofnað árið 1979 og hefur í tuttugu ár verið framarlega í flokki hágæða húsgagnahönnunar. Húsgögnin hafa verið til sýnis á helstu húsgagnasýningum heims og hlotið virt hönnunarverðlaun. Framleiðslan er víðtæk innan heimilisgeirans, mest áhersla er lögð á stólana en einnig eru framleidd rúm, borð, hillur og húsbúnað- ur á borð við spegla og lampa. Stólarnir frá Gattelan Italia eru afar fjölbreyttir og hafa vakið mikla athygli. Þægindi og gæði eru höfð í fyrirrúmi við hönnunina og mestmegn- is er notað leður á stólana, en það er hægt að velja úr meira en tutt- ugu litum á leðrið. Gegnum Glerið býður upp á litríkt úrval af allskyns heimilisvör- um en undir sama þaki er einnig starfrækt verslunin Duxiana sem sérhæfir sig í lúxusrúmum. Þetta er því ómissandi viðkomustaður standi breytingar til heima fyrir. ■ Sýning útskriftarnema í Listaháskóla Íslands: Handhægir og skemmtilegir hlutir FR ÉT TA B LA Ð IÐ /G VA „Hugmyndin mín var að gera þrif- hljómsveit úr heimilisverkfærum því fólk þarf að vinna saman í hljómsveit,“ segir Guðfinna Mjöll Magnúsdóttir, 24 ára útskriftar- nemi í hönnunardeild Listahá- skóla Íslands. Nú stendur yfir sýning á verkum útskrifarnem- enda í hönnunar- og myndlistar- deild og opnaði hún laugardaginn 15. maí síðastliðinn og stendur yfir til 31. maí næstkomandi. Guðfinna Mjöll hefur verið að leggja stund á nám í þrívíðri hönnun og heitir lokaverkefni hennar Heimalagað rokk og ról og er það tileinkað öllum sem hafa rifist um heimilisstörfin. Þar reynir hún að blanda saman skemmtun og rokk og róli við heimilisstörfin sem fæstum finn- ast skemmtileg en flestir þurfa að takast á við. „Mig langaði að gera heimilisverkin að fjölskyldustund og útrýma rifrildum um heimilis- þrifin. Mörgum leiðast húsverkin og mig langaði að gera þau bæri- legri svo öll fjölskyldan gæti gert þau saman og skemmt sér í leið- inni,“ segir Guðfinna og bætir við að henni finnist mjög gaman að vinna með hversdagslega hluti því þeir séu allt í kringum okkur. Lóa Auðunsdóttir er annar út- skriftarnemandi í þrívíðri hönnun sem á verk á sýningunni. „Mig langaði að gera hlut sem virðist vera eitthvað en er svo í rauninni allt annað,“ segir Lóa sem hefur hannað græjur sem eru inn í vaf- inni bastkörfu. Bastkarfan er vaf- in algjörlega úr næloni og svo er járngrind inn í henni sem heldur græjunum í föstum skorðum. „Það eru græjur á næstum því hverju heimili og þær þurfa ekki að líta út eins og bíll eða gervitungl, þær geta líka verið hlýlegar og mjúk- ar,“ segir Lóa og segist hafa feng- ið hugmyndina er hún var að kynna sér bastkörfugerð. Það er eitt það elsta sem til er í heiminum og langaði hana að blanda saman nútímanum og gamla tímanum. „Veggurinn á bakvið er svo heim- ur sem ég útbjó til að fá ævintýri örlítið inn í verkið.“ Lóa og Guðfinna eru báðar í hóp með nokkrum öðrum útskrift- arnemum og stefna þau á að nota sumarið í að reyna að koma hönn- un sinni á framfæri. Draumur þeirra er ekki aðeins að hanna hlutinn á Íslandi heldur líka búa hann til og markaðssetja hér á landi. „Þetta er sumarstarfið okk- ar í ár sem er mjög gaman og við finnum styrk í því að vinna sam- an,“ segir Guðfinna að lokum. Sýning útskriftarnemanna er opin öllum og er hún til húsa í Listasafni Reykjavíkur, Tryggva- götu 17. ■ Hér stendur Guðfinna Mjöll stolt með þrifhljómsveit sinni og gítarsópinn í hendi. Coco verð frá 22.680 kr. July 40.770 kr. Margot 46.700 kr. Boss 57.780 kr. Margot 70.200 kr. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /G VA Ragnheiður Tryggvadóttir er útskriftarnemandi í þrívíðri hönnun við Listaháskóla Íslands og sýndi hún þetta verk sitt á sýningu sem útskriftarnemendur héldu í Listasafni Reykjavíkur. Ragnheiður hannaði eldhúsáhöld sem eru aðallega ætluð til baksturs en auðvitað hægt að nota þau við tilfallandi verk í eldhúsinu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.