Fréttablaðið - 20.08.2004, Blaðsíða 24
Gylfi Þ. Gíslason, fyrrverandi
ráðherra og formaður Alþýðu-
flokksins, lést í fyrradag, 87 ára
að aldri. Gylfi var ráðherra í við-
reisnarstjórn Alþýðuflokks og
Sjálfstæðisflokks sem var við
völd frá 1959 til 1971. Gunnar
Helgi Kristinsson, prófessor í
stjórnmálafræði við Háskóla Ís-
lands, segir ekki nokkurn vafa á
því að Gylfi hafi sett mark sitt á
íslensk stjórnmál og samfélag.
„Ég held að Gylfa verði helst
minnst fyrir það að vera einn af
feðrum viðreisnarstjórnarinnar,“
segir Gunnar Helgi Kristinsson,
prófessor í stjórnmálafræði við
Háskóla Íslands. „Hann hafði ver-
ið í vinstri armi Alþýðuflokksins,
en á árunum fyrir 1960 átti hann
meginþáttinn í því að snúa
flokknum yfir á þá braut að telja
opið markaðssamfélag vera
framtíðina – líka fyrir jafnaðar-
menn. Það var síðan forsendan
fyrir því að Alþýðuflokkurinn og
Sjálfstæðisflokkurinn gátu sam-
einast um stefnu 1959.“
Gunnar Helgi segir viðreisnar-
stjórnina hafa verið mjög merki-
lega stjórn.
„Hún sat mjög lengi og á fyrri
hluta stjórnartíðar sinnar byrjaði
hún á mikilli kerfisbreytingu á Ís-
landi sem hefur haldið áfram síð-
an. Þetta var stjórn sem tók mjög
mikilvæg skref í átt að frjálsræði
í utanríkisverslun á tímum mik-
illa innflutningshafta, sérstak-
lega með gengisfellingunum.“
Gunnar Helgi segist telja að
Gylfi hafi verið farsæll stjórn-
málamaður að mörgu leyti.
„Að vísu gekk Alþýðuflokkn-
um ekkert sérstaklega vel undir
hans forystu. Það getur verið að
Gylfi hafi ekki verið nógu mikill
populisti eða æsingamaður til að
passa inn í íslensk stjórnmál eins
og þau voru á hans tíma. Það er
kannski vegna þess að hann var
vandaður, siðmenntaður og gegn
maður.“
Gunnar Helgi segist ekki vita
betur en Gylfi hafi almennt verið
vel liðinn af pólitískum vinum og
andstæðingum.
„Ég hef eiginlega aldrei heyrt
neinn hallmæla honum neitt um-
talsvert. Það er nokkuð óvenju-
legt. Hann var kannski einna helst
illa liðinn af einhverjum sjálf-
stæðismönnum enda mjög öflug-
ur leiðtogi vinstri krata.“
trausti@frettabladid.is
20. ágúst 2004 FÖSTUDAGUR
Aðstoðarforstjóri Actavis:
Áherslan færð á önnur félög
VIÐSKIPTI Þór Kristjánsson, aðstoð-
arframkvæmdastjóri Actavis,
hættir hjá fyrirtækinu um næstu
mánaðamót. „Ég mun áfram vinna
að verkefnum fyrir fyrirtækið,“
segir Þór.
Meðal þeirra verkefna sem Þór
hefur sinnt hjá Actavis er leit að
vænlegum fyrirtækjum til kaups
fyrir félagið. „Við höfum byggt
upp sterka deild til að sinna þeim
verkefnum. Þau eru í góðum hönd-
um nú, þannig að þetta er ágætur
tímapunktur fyrir mig til að færa
áherslu yfir á önnur verkefni.“
Þór hefur unnið fyrir Björgólfs-
feðga og Samson. Áherslan færist
því á önnur félög í þeirra eigu.
Meðal þeirra félaga eru Burðarás
og Eimskipafélagið. Burðarás leit-
ar erlendra tækifæra til fjárfest-
inga. Eimskipafélagið hefur sett
sér metnaðarfull arðsemismark-
mið og stefnir að aukinni útrás.
„Eimskip hefur verið á góðri sigl-
ingu og ég vil styðja við það sem er
að gerast í félaginu. Við teljum að
það séu fjárfestingartækifæri er-
lendis og tækifæri til að útvíkka
starfsemi félagsins.“ ■
Einn af feðrum
viðreisnar látinn
Gylfi Þ. Gíslason, fyrrverandi ráðherra, lést í fyrradag. Hann setti
mark sitt á íslenskt samfélag. Taldi opið markaðssamfélag framtíðina.
Gylfi var farsæll stjórnmálamaður sem almennt var vel liðinn.
Hlíðaskóli
Hlíðaskóli óskar eftir
starfsfólki í eftirtalin störf
Skólaliði fullt starf
Stuðningsfulltrúi 70% starf
Táknmálskennari
Kennari á táknmálssvið
Upplýsingar veitir
Kristrún G. Guðmundsdóttir skólastjóri
og Ingibjörg Möller aðstoðarskólastjóri
í síma 552 5080.
- Fæddur 7. febrúar 1917. Lést 18. ágúst
2004
- Kvæntist Guðrúnu Vilmundardóttur
árið 1939. Þau eignuðust þrjá syni; Þor-
stein, Vilmund, sem er látinn, og Þor-
vald
NÁM:
- Stúdent frá Menntaskólanum í Reykja-
vík 1936
- Hagfræðingur frá Háskólanum í Frank-
furt 1939
- Stundaði nám við háskóla í Danmörku,
Sviss, Bretlandi og Bandaríkjunum frá
1946-1952
- Lauk doktorsprófi frá Háskólanum í
Frankfurt 1954
STÖRF:
- Starfsmaður í Landsbanka Íslands
1939-1940
- Kennari við Viðskiptaháskóla Íslands
1939-1941
- Stundakennari við Menntaskólann í
Reykjavík 1939-1946 og 1947-1956
- Skipaður dósent í viðskiptafræði við
Háskóla Íslands 1941
- Prófessor í laga- og viðskiptadeild Há-
skóla Íslands 1946
- Heiðursdoktor Háskóla Íslands 1971
- Prófessor í viðskiptadeild Háskóla Ís-
lands 1972-1987
STJÓRNMÁL:
- Alþingismaður frá 1946-1978
- Formaður Alþýðuflokksins 1968-1978
- Mennta- og iðnaðarmálaráðherra
1956-1958
- Mennta-, iðnaðar- og viðskiptamála-
ráðherra 1958-1959
- Mennta- og viðskiptamálaráðherra
1959-1971
- Forseti Sameinaðs þings 1974
NEFNDIR OG STJÓRNIR:
- Formaður Hagfræðingafélags Íslands
1951-1959
- Í stjórn Alþjóðagjaldeyrissjóðsins 1956-
1965
- Í stjórn Alþjóðabankans 1965-1971
Gylfi Þ. Gíslason
GYLFI Þ. GÍSLASON
Á árunum fyrir 1960 átti Gylfi meginþáttinn í því að snúa Alþýðuflokknum yfir á þá braut að telja opið markaðssamfélag vera framtíðina
– líka fyrir jafnaðarmenn.
EIMSKIP Í FORGRUNNI
Þór Kristjánsson hættir sem aðstoðarforstjóri
Actavis. Hann mun sinna verkefnum fyrir fé-
lagið en áherslan færist á aðrar fjárfestingar
Björgólfsfeðga svo sem Eimskipafélagið.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/P
JE
TU
R
14 - 18
11 - 15
24-25 19.8.2004 16:41 Page 2