Fréttablaðið - 16.09.2004, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 16.09.2004, Blaðsíða 6
NEYTENDUR Eins og fram kom í Fréttablaðinu í gær eiga Íslend- ingar heimsmet í skattlagningu á áfengi. Samkvæmt sundurliðuð- um kostnaðartölum frá ÁTVR fer hlutur ríkisins í einstakri vöruteg- und upp í allt að 85% af verði. Þannig borgar neytandinn ríkinu 2.419 krónur í skatt af hverri keyptri 700 ml. Absolut-vodka- flösku, sem kostar 2.880 krónur í vínbúð. Inni í þeirri tölu er bæði 24,5% virðisaukaskattur, sem hljóðar upp á 567 kr. í þessu til- tekna dæmi, og áfengisgjald, sem hljóðar upp á 1.852 krónur. Skatthlutfall í öðrum tegund- um er einnig hátt. Þannig tekur ríkið um 59% af hverri seldri flösku af Baileys-líkjör, 62% af tiltölulega ódýrri franskri Merlot rauðvínsflösku og 68% af hverri seldri dós af Tuborg Gold. Þegar áfengisgjald á sterkt vín, þar sem skatthlutfallið er hvað hæst, er borið saman við áfengisgjöld í nágrannalöndum sést ótvírætt að Íslendingar eiga vinninginn í álagningu. Bretar leggja 1.066 kr áfengisgjald á hvern lítra af 40% áfengi, Þjóð- verjar 447 krónur, Danir 667 krónur, Svíar 1.891 krónu og Kýp- urbúar 71 krónu. Norðmenn skatt- leggja rausnarlega og leggja 2.327 krónur á hvern seldan lítra af 40% áfengi, en komast þó ekki með tærnar þar sem Íslendingar hafa hælana, með 2.646 krónur. gs@frettabladid.is 6 16. september 2004 FIMMTUDAGUR KJARAMÁL Heildarlaun karla í ár eru 22 prósentum hærri en kvenna samkvæmt launakönnun Verzlunarmannafélags Reykja- víkur. Karlar eru að meðaltali með 307 þúsund krónur á mánuði en konur þiggja 252 þúsund krón- ur. Það er sami launamunur og kom fram í launakönnun félagsins í fyrra. Í könnuninni er miðað við fólk í fullu starfi. Kynbundinn launamunur, þ.e. þegar búið er að taka tillit til vinnutíma, aldurs, starfsaldurs og starfsstéttar, er 15%. Samkvæmt könnuninni hafa grunnlaun hækkað að meðaltali um sex prósent frá því í fyrra en heildarlaun um fimm prósent, úr 249 þúsund krónum á mánuði í 273 þúsund. Laun sölu- og af- greiðslufólks hækkuðu mest, um tíu prósent. Forstöðumenn og sviðsstjórar fá hæstu launin að meðaltali, 424 þúsund á mánuði en afgreiðslufólk á kassa hefur lægstu launin, 154 þúsund krón- ur. Tveir af hverjum fimm þátt- takendum í könnuninni sögðust vera sáttir við launin sín en einn af hverjum þremur sagðist ósátt- ur. Vinnutími félagsmanna VR hefur lengst um rúma eina og hálfa klukkustund frá síðustu könnun og er núna 44,8 klukku- stundir á viku. Vinnuvika karla er um sjö klukkustundum lengri en kvenna. ■ Póstforstjóri hættir: Ekkert við því að segja VIÐSKIPTI „Er ekki lífið bara svona?“ svaraði Björn Jósef Arn- viðarson, stjórnarformaður Ís- landspósts, spurður um skyndi- lega uppsögn Einars Þorsteinsson- ar forstjóra og áform hans um stofnun nýs póstdreifingarfyrir- tækis í samvinnu við útgáfufélag Fréttablaðsins. „Hann vildi breyta til og ekkert við því að segja.“ Björn Jósef hefur ekki áhyggj- ur af því að Einar búi yfir við- skiptaleyndarmálum eða öðrum viðkvæmum upplýsingum sem væru illa komnar í samkeppnisfyr- irtæki. „Í nútíma viðskiptum ger- ast hlutirnir hratt og það sem er nýtt í dag getur verið úrelt á morg- un. Einar er heiðarlegur maður og það hvarflar ekki að mér að hann fari að nýta einhverja vitneskju héðan í óeðlilegum tilgangi.“ Björn Jósef sagðist auðvitað sjá á eftir góðum manni en ekki væri annað að gera en þakka hon- um fyrir vel unnin störf og óska honum góðs gengis. ■ VEISTU SVARIÐ? 1Hvers vegna var Lögregluskólinn ífréttum í gær? 2Hvað heitir hinn nýi formaður einka-væðingarnefndar? 3Hvers vegna fór Chelsea-leikmaður-inn Eiður Smári Guðjohnsen út af á 11. mínútu í leiknum gegn PSG? Svörin eru á bls. 42 410 4000 | landsbanki.is Banki allra landsmanna Eru n‡ju íbúðalánin fyrir mig? Landsbankinn býður „fjármálastjórum heimilanna“ á opinn kynningarfund um nýju íbúðalánin í aðalbanka, Austurstræti 11 í kvöld kl. 20.00. Skráning: fiú getur skrá› flig á kynningarfundinn me› flví a› hringja í síma 410 4000 e›a með tölvupósti á kynning@landsbanki.is BJÖRN JÓSEF ARNVIÐARSON Stjórnarformaður Íslandspósts. Ríkið tekur 84% af hverri vodkaflösku Álagning á áfengi á Íslandi er sú mesta í heiminum. Af hverri 700 ml Absolut-vodkaflösku sem kostar 2.880 krónur í vínbúð tekur ríkið 2.419 krónur í skatt. ÁFENGISGJÖLD Á ÍSLANDI AF VÖLDUM TEGUNDUM Dæmi 1 Absolut vodka 700 ml, 40%. 2.880 kr. Virðisaukaskattur 567 kr. Áfengisgjald 1.852 kr. Heildarskattur 2.419 kr Heildarskattur sem hluti verðs = 84% Dæmi 2 Baileys-líkjör 700 ml, 17,5%, 2.080 kr. Virðisaukaskattur 409 kr. Áfengisgjald 810 kr. Heildarskattur 1.219 kr. Heildarskattur sem hluti verðs = 59% Dæmi 3 Rauðvín – Angove’s Bear Crossing Cab. Sauvignon Merlot, 750 ml, 14%. 1.090 kr. Virðisaukaskattur 214 kr. Áfengisgjald 465 kr. Heildarskattur 679 kr Heildarskattur sem hluti verðs = 62% Dæmi 4 Bjór – Tuborg Gold, 500 ml, 5,5%. 197 kr. Virðisaukaskattur 39 kr. Áfengisgjald 95 kr. Heildarskattur 133 kr. Heildarskattur sem hluti verðs = 68% (heimild: ÁTVR) % 84 80 70 60 50 40 30 20 10 VINNUVIKA STÉTTA Skrifstofufólk 41,0 klst. Sérhæft starfsfólk og tæknar 42,4 klst. Skrifstofufólk við afgreiðslu 42,7 klst. Sölu- og afgreiðslufólk 45,1 klst. Gæslu-, lager- og framl.störf 45,6 klst. Stjórnendur og sérfræðingar 46,9 klst. MEÐALLAUN Forstöðumaður/sviðsstjóri 423.649 kr. Markaðsstjóri 388.604 kr. Forstjórar/hærri stjórn.störf 370.828 kr. Hag- og viðskiptafræðingar 361.703 kr. Verk-, tölvunar- og kerfisfr. 357.823 kr. Gestamóttaka 194.501 kr. Vaktstjóri í verslun 193.825 kr. Ræstingar og þrif 192.310 kr. Matráðsk./matsv. 189.824 kr. Afgr. á kassa 154.132 kr. Könnun á vegum Verslunarmannafélags Reykjavíkur: Launamunur kynjanna minnkar ekki GUNNAR PÁLL PÁLSSON Formaður VR kynnti niðurstöðu könnunar- innar í gær. Skagamenn og miðborgin: Flýtt fyrir Sundabraut SAMGÖNGUR Bæjarstjórn Akra- ness vill að ríkisstjórn og Al- þingi kappkosti lagningu Sunda- brautar og hraði undirbúningi hennar. Á bæjarstjórnarfundi í fyrradag var tekið undir nýlega ályktun samgöngunefndar Reykjavíkur um að lagning Sundabrautar sé ein allra mikil- vægasta samgöngubótin á höfuðborgarsvæðinu enda hafi hún jákvæð áhrif á byggða- þróun. Þá skipti hún máli í fyrir- hugaðri sameiningu hafnanna á Akranesi, Reykjavík, Borgar- nesi og Grundartanga. ■ SUNDABRAUT Hér má sjá eitt af þremur mögulegum brautarstæðum. 06-07 15.9.2004 19:51 Page 2
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.