Tíminn - 25.05.1975, Blaðsíða 11

Tíminn - 25.05.1975, Blaðsíða 11
rras ifirn .fiS mgabunitu2 Sunnudagur 25. mal 1975 HHIMÍT TÍMINN Alfreö Guömundsson, forstööu- maður Kjarvalsstaða og góövinur Kjarvals um áratuga skeið. Litazt um á Kjarvalsstöðum, rætt við forstöðumann, Alfreð Guðmundsson um framtíðar- verkefni og fl. innar um þennan stað — þetta hús — er gert ráð fyrir að eystri salurinn sé einkum ætlaður verk- .um Kjarvals. Þegar húsið var tekið i notkun vorið 1973 var opnuð yfirlitssýn- ing á verkum Kjarvals og var afl- að mynda viðs vegar að — frá ein- staklingum og stofnunum, en auk þess voru verk i eigu Reykja- vikurborgar á sýningunni. Þessi sýning var opin í nokkra mánuði. Æskilegt hefði verið að halda henni opinni lengur, en það var naumast forsvaranleg; ýegna þeirra, er lánuðu myndir úr híbýlum sinum og söfnum. Seinast á sama ári var opnuð önnur Kjarvalssýning, en sú sýn- ing var siðan tekin ofan vegna sýningar á þróun islenzkrar myndlistar i 1100 ár, sem liklega er merkilegasta sýningin, sem haldin hefur verið hér á Kjarvals- stöðum fyrr og siðar. Nú, og i vetur var þessi sýning opnuð, er nú stendur. Hún er þvi hin þriðja i röðinni. Merkilegar gjafir frá fólki Á sýningunni i fyrra, voru verk Reykjavikurborgar eftir meistar- ann sýnd einvörðungu, en það er allmikið að vöxtum og sifellt bæt- ist þar við. Á sýningu þeirri er nú stendur, eru nýjar myndir, sem borginni hafa verið gefnar, og má þar nefna að erfingjar Ástu Halls- dóttur, tannsmiðs gáfu myndina „Hugarkvöl” að ósk hinnar látnu. Klara Guðmundsdóttir, Hátúni 10, gaf mynd af föður sinum Guð- mundi Daviðssyni, auk nokkurra teikninga i tilefni af þvi að hundrað ár voru liðin frá fæðingu hans. Matthildur Kjartansdóttir, ekkja Guðbrandar Magnússonar forstjóra gaf safninu tvö oliu- málverk stuttu áður en hún lézt, en þau hjón sem voru miklir vinir Kjarvals, létuzt bæði á sama árinu, eða 1974. Aðra mvndina nefndi Kjarval „Astamál Grettis”, en hin mynd- in er af þeim hjónum, Matthildi og Guðbrandi, máluð þegar þau voru öll ung, Kjarvar og þau hjón. Dóttir þeirra Guðbrandar og Matthildar, Hallfrfður Guð- brandsdóttir Schneider gaf einnig tvær myndir, „Hveitibrauðsskip- ið” sem er vatnslistamynd og oliumálverk af Vifilfelli. Hallfrið- ur hafði þekkt Kjarval frá þvi hún mundi eftir sér, enda var hann heimagangur á heimili foreldra hennar alla tið. Þá bárust og fleiri gjafir, sem ættu heima i minjasafni um Kjar- val. í ræðu, er borgarstjórinn i Reykjavik flutti við opnun sýn- ingarinnar gerði hann grein fyrir þessum gjöfum opinberlega og þakkaði gefendum.” Þetta hafði Alfreð Guðmunds- son að segja um sýninguna er nú stendur yfir. Það munu hafa verið þeir Einar Hákonarson, listmálari og Guð- mundur Benediktsson, mynd- höggvari, sem komu sýningunni fyrir —hengdu hana upp — en alls eru sýndar 75 myndir. Hefur myndaval og staðarval tekizt mun betur en oft áður, þeg- Yfirlitssýning á verkum Ásgríms Jónssonar á næsta óri or n Jéhannes Sveinssen rJACVAL SVNING1975 I III \ VI Ulil I .1 ar myndir Kjarvals hafa verið sýndar. Tillit er tekið til þess hversu mikil fjarlægð er nauð- synleg, svo einstakar myndir fái notiö sin til fulls. Auðvitað verður mönnum star- sýnt á gjafirnar að þessu sinni. „Hveitbrauðsskipið,” „Astamál Grettis” og „Yndilegt er úti vor” (málverk af Matthildi og Guð- brandi Magnússyni) mynda sér- kennilega heild. Þesar myndir eru fullar af kjarvalskri dul og ást. Sýningin í heild, gefur furðu góða innsýn i þennan meistara is- lenzkrar myndlistar á 20. öldinni. „Þjóðsagan” Kjarval Mér kemur til hugar, að ef til vill kemur „Kjarval” ekki allur til skila I málverkinu. Halldór Laxness segir einhversstaðar um Snorra Arinbjarnar, að hann segi allt sem segja þarf á málverkinu. Það gerir Kjarval ekki. Að visu segir hann ekki svo litið af mótiv- inu, en hann hafði stóran farang- ur i lifinu, þótt ekki eignaðist hann hús til að sánka að sér mubl- um og áhöldum. Þjóðsagnaper- sónan Kjarval þyrfti einnig að fá nokkurt rúm á minningarsýning- um um hann. Auðvitað þekktu allir Kjarval. Samt er það nú einu sinni svo, að vaxin er upp kyn- slóð, sem ekki þekkir hann á sama hátt og við, sem munum eftir honum. Allt þetta unga fallega fólk, sem núna er að vaxa úr grasi. Flest af þvi þekkir ekki goðsögnina „meistara Iíjarval”. Hann var skáld, stór-spaugari, rithöfundur, heimspekingur og bam. Hann var sjómaður, gátu- smiður, höfðingi og stjórnmála- maður. Allt mögulegt. Þessari hlið málsins má ekki gleyma, og i raun og veru er það gagnslaust að halda uppi safni á málverkum hans, nema gerð sé einhver grein fyrir honum persónulega um leið. Þetta má gera með ljósritum af merkilegum kvæðum eftir Kjar- val, blaðaummælum hans, blaða- ummælum um hann, ljósmyndum og ýmsum smámunum. Þessum smámunum, sem þó hefðu ótrú- legt gildi, mætti koma fyrir á lát- lausan, aðgengilegan hátt, án þess að spilla fyrir kjarna máls- ins,sem auðvitaðeru málverkin. Stutt ágrip af vináttusögu Kjar- vals við þau Matthildi og Guð- brand Magnússon, myndi þannig styðja að viðtækari skilningi á þessari fögru mynd „Yndislegt er úti vor”. Þessa er getið með hliðsjón af þvi sem siðar kann að verða sýnt. Kinversk vináttusýning — Að lokum spurðum við Alfreð Guðmundsson um framtiðar- verkefni myndlistarhússins. Hann hafði þetta að segja: „Núna stendur yfir sýning á kfnverskri grafik. Þetta er mikil sýning, — á annað hundrað verk. Þetta er farandsýning, sem hing- að kom frá Tyrklandi og London. Þetta er alþýðulist, og Kin- verjarnir lita á sýninguna sem vináttusýningu, þ.e. sýningu, sem eigi að undirstrika vináttu kin- versku þjóðarinnar við þá is- lenzku. Aðsókn hefur samt ekki verið næg, ekki miðað við það, að hér er um stóra og mjög fróðlega sýningu að ræða. Ef til vill hefur þó verið of hljótt um hana, en þeir auglýsa ekki. Aðgangur er ókeypis og sýningaskráin kostar aðeins 30 krónur. Sýnt i banni — Nú, af framtiðarverkefnum erþaðaðsegja, að Kjarvalsstaðir eru i svipinn i eins konar banni hjá mörgum listamönnum. Þó eru áhugaverð verkefni framundan, og hafa eftirgreindir listamenn i hyggju að sýna: Sveinn Björnsson, Gunnar I. Guð- jónsson, Guðmundur Karl, Eyjólfur Eyfells, Steinþór M. Gunnarsson, Pétur Friðrik, Ragnar Páll og Halla Haralds- dóttir. 1 haust verður ljósmynda- klúbburinn LJÓS með sýningu og félagið Germania með sýningu um liktleyti, (prentlistarsýning). Toppurinn er svo næsta vor, þegar efnt verður til yfirlitssýn- ingar á verkum Asgrims Jóns- sonar i tilefni af þvi að 100 ár eru liðin frá fæðingu hans. Jónas Guðmundsson. Tveir fuglar.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.