Fréttablaðið - 12.05.2005, Blaðsíða 55

Fréttablaðið - 12.05.2005, Blaðsíða 55
FIMMTUDAGUR 12. maí 2005 39 Það verður skarð fyrir skildi í liði íkvennaliði ÍBV í sumar því að markamaskínan Olga Færseth getur ekki leikið með liðinu í að minnsta kosti tvo mánuði vegna meiðsla sem hún hlaut í leik gegn KR á dögunum. Frétta- blaðið sló á þráð- inn til Olgu og spurði hana nánar út í meiðslin. „Þetta gerðist í leiknum við KR fyrir um tveimur vikum. Ég lenti í tækl- ingu og í kjölfarið fékk ég hnykk á hnéð. Það kom svo í ljós að ég er með slitin liðbönd á innanverðu hnénu og svona meiðsli þurfa lág- mark 2-3 mánuði til að jafna sig,“ sagði Olga. „Þetta er mér mikið áfall og leiðinlegt fyrir liðið,“ sagði Olga. Miami Heat jók forskot sitt í 2-0 íundanúrslitum Austurdeildar- innar í úrslitakeppni NBA-körfubolt- ans í fyrrinótt. Heat vann Washing- ton Wizards, 108-102, og átti Dwy- ane Wade stórleik og skoraði 31 stig, tók 7 fráköst, stal 3 boltum, varði 2 skot og gaf 15 stoðsending- ar, sem er persónulegt met. Shaquille O’Neal gat lítið beitt sér vegna meiðsla en skoraði þó 16 stig og tók 7 fráköst. „Meiddur Shaq er samt besti miðherji deildarinnar,“ sagði Gilbert Arenas, leikmaður Wizards. Stuðningsmenn spænska stórliðs-ins Real Madrid vilja fá Frank Lampard, leikmann Chelsea, til liðs við félagið. Þetta kemur fram í könn- un sem spænska dagblaðið Marca gerði á dögunum. Lampard hlaut tæplega 23% at- kvæða en alls tóku um 32 þúsund áhangendur þátt í könnuninni. „Þetta kemur lítið á óvart enda er Lampard frábær leik- maður,“ sagði Michael Owen, leik- maður Real Madrid. Mike D’Antoni hjá Phoenix Sunsvar valinn þjálfari ársins í NBA- körfuboltanum í fyrrakvöld. D’Ant- oni breytti gangi Suns-liðsins til muna og bættu lærisveinar hans sig um hvorki meira né minna en 33 sigurleiki frá því á síðasta tímabili. „Þetta er ótrúlegur heiður,“ sagði D’Antoni. „Að vinna þetta er nokk- uð sem ég gat ekki einu sinni gert mér í hugarlund.“ Hollenski framherjinn DennisBergkamp er orðinn óþreyjufull- ur eftir nýjum samningi við Arsenal. Hinn 36 ára gamli Bergkamp viður- kenndi að ástandið væri mjög pirrandi. „Maður vill eðlilega vita hvað framtíðin ber í skauti sér. Ég get spilað eitt ár til viðbótar þannig að þeir verða bara að ákveða sig,“ sagði Bergkamp. Ralf Schumacher hjá Toyota segirað bróðir sinn, Michael Schu- macher hjá Ferrari, muni ekki geta unnið heimsmeistaratitilinn í Form- úlu 1 kappakstrinum í ár. „Ferrari er allt of neðarlega og menn þar á bæ geta þess vegna pakkað saman og farið heim,“ sagði Ralf. „Menn verða að vera raunsæir og Michael á mjög langt í land að ná Renault- mönnum.“ ÚR SPORTINU Litrík, skemmtileg og æsispennandi Skemmtilestur Fyrir göngugarpa Tilboðsverð 1.090 kr. Fullt verð 1.590 kr. Pöntunarnetfang: aubok@penninn.is / s. 511 1130 Tilboðsverð 1.260 kr. Fullt verð 1.799 kr. Komin í kilju „Skáldið er í ham ... Bítlaávarpið er skemmtileg saga, stráksleg og gosaleg í sprúðlandi stílnum.“ - Páll Baldvin Baldvinsson, DV „Mikið vor og glettni í þessari bók ... skemmtilestur.“ - Gauti Kristmannsson, RÚV „Konan mín hélt að ég væri að verða eitthvað skrýtinn. Ég hló svo mikið.“ - Gunnar Þórðarson, tónlistarmaður Tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna 2004 Músin Geronimo Stilton og sögurnar um ævintýri hans hafa farið sigurför um heiminn. Í þessari fyrstu sögu sem út kemur á íslensku kemst hann yfir dularfullt fjársjóðskort sem gæti fært honum mikinn gróða. Ævintýri í litum - fyrir krakka frá 7 ára aldri Góður undirbúningur gerir gott ferðalag enn betra Nýstárleg og vönduð handbók með aðgengilegum upplýsingum fyrir útivistarfólk og göngugarpa. Fróðleikur í máli og myndum! „Einstök bók sem allt áhugafólk um útivist þarf að eignast. Bók fyrir byrjendur jafnt sem reynda.“ Björn Ólafsson, Everestfari Tilboðsverð 2.790 kr. Fullt verð 3.990 kr. Tilboðsbækur mánaðarins 30% afsláttur Penninn Eymundsson og Bókabú›ir MM 4. – 10. maí 4. Börn Penninn Eymundsson og Bókabú›ir MM 4. – 10. maí 5 Skáldverk - kiljur HVAÐ? HVENÆR? HVAR? 9 10 11 12 13 14 15 Miðvikudagur MAÍ ■ ■ SJÓNVARP  17.45 Íþróttakvöld á Rúv.  19.00 Inside the US PGA Tour 2005 á Sýn.  19.30 Landsbankadeildin á Sýn.  20.30 Þú ert í beinni! á Sýn.  21.30 Bikarmótið í fitness 2005 (karlar) á Sýn.  22.00 Olíssport á Sýn.  23.15 Þú ert í beinni! á Sýn.  00.15 Boltinn með Guðna Bergs á Sýn. 1. deildarlið Víkings: Vill ekki Palmer aftur FÓTBOLTI Jermaine Palmer og Rich- ard Keogh, sem léku með Víkingi í Landsbankadeildinni síðastliðið sumar, munu ekki spila með félag- inu í 1. deildinni í sumar. Þeir voru báðir leystir undan samningi við Stoke í síðustu viku. Sigurður Jónsson, þjálfari Vík- ings, hefur lítinn áhuga á að fá Palmer, sem var með mikla heim- þrá meðan hann dvaldist hér síð- asta sumar, og þá er Keogh í við- ræðum við lið úti. Víkingar eru að fá einn Serbanna sem æfðu með ÍA en sá er feikilega sterkur varn- armaður að sögn Sigurðar og skil- ur hann lítið í því að Ólafur Þórð- arson vildi ekki sjá hann. Heiðar Helguson er greinilega eftirsóttur leikmaður: Or›a›ur vi› Leeds en er sáttur hjá Watford FÓTBOLTI Í enskum fjölmiðlum í gær var sagt frá því að Leeds United ætlaði að bjóða rúmar 120 milljónir króna í íslenska lands- liðsmanninn Heiðar Helguson. Í samtali við Fréttablaðið sagð- ist Heiðar reikna með að vera áfram í herbúðum Watford sem endaði í 18. sæti ensku 1. deildar- innar, Leeds hafnaði fjórum sæt- um ofar í sömu deild. Hann segist ánægður hjá Watford og að fjárhagur félagsins sé ágætur, því neyðist það ekki til að selja hann. Fleiri lið hafa verið orðuð við Heiðar, þar á meðal Stoke og úrvalsdeildarlið Charlton. „Ég hef ekkert heyrt af neinu tilboði og tek þessu bara með ró. Ég hef lesið ýmislegt í blöðunum en það er lítið að frétta af mínum málum. Hér er ég sáttur og fer ekkert að skoða þessi mál nema ég fái þau skilaboð frá stjórninni að þeir vilji selja mig. Eins og og ég segi þá reikna ég þó ekki með því að þeir vilji það,“ sagði Heiðar. - egm ÁNÆGÐUR HJÁ WATFORD Heiðar Helgu- son lætur orðróm um áhuga annarra félaga á sér ekki raska ró sinni.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.