Fréttablaðið - 12.05.2005, Blaðsíða 70
54 12. maí 2005 FIMMTUDAGUR
Sunnudagsþátturinn á Skjá einumfer brátt í sumarfrí eins og aðrir
góðir þættir. Hinn fjölhæfi Guðmund-
ur Steingrímsson, sem starfar sem
pistlahöfundur, tónlistarmaður og
sjónvarpsmaður, hefur
verið einn þáttastjórn-
enda í Sunnudags-
þættinum og er þegar
farinn að hugsa sér til
hreyfings. Hann mun
taka við nýjum
skemmtiþætti á veg-
um 365-ljósvakamiðla
sem verður einhvers-
konar sambland af
spjall- og magasín-
þætti.
Auk Guðmundar
munu þar stjórna
Halldóra Rut Bjarna-
dóttir, fegurðardrottn-
ing og þáttastjórnandi af Popptívi, og
Sigríður fyrrum ritari innlendrar dag-
skrárdeildar á Sjónvarpinu.
Lárétt: 1 í fjósi, 5 loka, 6 keyri, 7 enskt
smáorð, 8 vætla, 9 konungur hafsins, 10
silfutákn, 12 í Hveragerði (skst.), 13 gugg-
in, 15 fimmtíu og einn, 16 dani, 18
lengdareining.
Lóðrétt: 1 á Þingvöllum, 2 heppni, 3 ár-
mynni, 4 sjófuglinn, 6 fornt skáld, 8 beita,
11 tímgunarfruma, 14 fiskifæða, 17 á
fæti.
Lausn.
1
5 6
87
9
12
15
10
13
16 17
11
14
18
2 3 4
– hefur þú séð DV í dag?
Dýrasta jörð á Íslandi
Leirubakki seldur á
210 milljónir
Þjóðverji að baki
kaupum Anders Hansen
Hljómsveitin Hjálmar mun spila á
tónlistarhátíðinni G! Festival í Fær-
eyjum í sumar en hátíðin er haldin
dagana 22. til 23. júlí. Á heimasíðu
hátíðarinnar, www.gfestival.com, er
tilkynnt hátíðlega um komu sveitar-
innar og hún sögð ein vinsælasta og
stórkostlegasta hljómsveit Íslands.
„Hjálmar hafa hlotið mikla athygli
fyrir frábæra sviðsframkomu sem
og góða dóma fyrir þeirra fyrstu
plötu. Hjálmar spila alvöru reggí,
jákvætt og ástríðufullt reggí með
lífrænum hljóðum. Andi Hjálma rís
hærra en fjöllin og rætur þeirra ná
jafn djúpt og rætur trjánna,“ segir á
síðunni.
Hjálmar eru nú nýkomnir frá
Svíþjóð þar sem þeir spiluðu í
Stokkhólmi og Malmö. „Þetta gekk
mjög vel og við höfðum gaman að
þessu,“ segir Guðmundur Kristinn
Jónsson gítarleikari. „Það var rosa-
lega sérstakt í Malmö að staðurinn
sem við spiluðum á var gömul
kirkja sem búið var að breyta í tón-
leikastað. Það var mjög skemmti-
legt.“ Hjálmarnir stoppa stutt á Ís-
landi eftir Svíþjóðarförina því um
næstu helgi munu þeir spila á tón-
listarhátíðinni Nordbeat í Rúss-
landi. Aðaláhersla hátíðarinnar er
vinsæl popptónlist frá Norður-Evr-
ópu. Hugmyndin á bak við hátíðina
sem nú er haldin í fyrsta sinn er að
gefa tónlistarmönnum og hljóm-
sveitum frá Norðurlöndunum tæki-
færi til að spila í St. Pétursborg.
Þó svo að Hjálmarnir fari nú um
víða veröld með tónleikahald þá
gleyma þeir ekki íslenskum aðdá-
endum sínum og munu næst spila
hérlendis 3. júní í Hveragerðis-
kirkju og 4. júní á Nasa. ■
Hjálmar spila í Rússlandi og Færeyjum
Nýr þáttur er í deiglunni hjá Sjón-
varpinu sem er ætlað að fylla skarð
Gísla Marteins á laugardagskvöld-
um næsta vetur. Eins og kunnugt er
hefur Gísli Marteinn sagt skilið við
sjónvarpið að sinni þar sem hann
ætlar að einbeita sér að stjórnmál-
um.
Nýi þátturinn mun væntan-
lega fá nafnið Hljómsveit
kvöldsins þar sem vinsælar
hljómsveitar munu koma
fram, ein hvert kvöld. „Við
erum að forma þennan þátt.
Grunnhugmyndin er að
kynna hljómsveit kvöldsins
sem spilar í 25 mínútur. Þetta verð-
ur ekki viðtalsþáttur heldur á tón-
listin að fá að njóta sín,“ segir Rún-
ar Gunnarsson dagskrárgerðar-
stjóri Sjónvarpsins.
Þátturinn fer væntanlega í loftið
í haust, um svipað leyti og
Spaugstofan.
Ljóst er að fleiri
breytinga er að
vænta í Sjónvarpinu
næsta haust. Birta
og Bárður halda
göngu sinni áfram í
Stundinni okkar en
þetta er fjórða árið í
röð sem þau eru þar
við stjórnvölinn. „Það
verða nýmæli í Stund-
inni okkar og munu
koma inn
nýjar fígúr-
ur, þar á meðal sérsmíðaðar brúð-
ur,“ segir Rúnar, sem einnig mun
kynna breytt Óp næsta haust. „Ópið
verður áfram en allir þættir þurfa
að taka breytingum. Þátturinn verð-
ur unninn öðruvísi og stjórnendur
verða þær Þóra Tómasdóttir og
Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir.“
Kristján Ingi Gunnarsson stjórn-
aði Ópinu með þeim Þóru og Ragn-
hildi síðasta vetur en verður ekki
með í næstu þáttaröð. Þá mun Egill
Eðvarðsson sjá um framleiðslu þátt-
anna.
Kallakaffi, tólf leiknir þættir,
verða teknir til sýningar í byrjun
október og standa fram til jóla. Þá
hefjast loks sýningar á Latabæ en
nú er unnið að talsetningu þeirra
undir styrkri stjórn Sigurjóns Sig-
urðssonar.
kristjan@frettabladid.is
ÓPIÐ Ragnhildur Steinunn og Þóra Tómasdóttir verða áfram með Ópið næsta haust. Kristján Ingi mun hins vegar hverfa á braut.
SJÓNVARPIÐ: NÝR ÞÁTTUR Í BÍGERÐ Á LAUGARDAGSKVÖLDUM
Hljómsveitir í stað Gísla
FRÉTTIR AF FÓLKI
...fá dr. Yngvi Björnsson og dr.
Kristinn R. Þórðarson sem munu
fóstra nýtt gervigreindarsetur
Háskólans í Reykjavík.
HRÓSIÐ
GÍSLI MARTEINN BALDURSSON
Vinsælustu hljómsveitum landsins er
ætlað að fylla skarð Gísla Mart-
eins næsta vetur í Sjón-
varpinu.
Lárétt: 1flór, 5lás,6ek,7on,8aga,9
ægir, 10ag,12NLF, 13grá, 15li,16jóti,
18alin.
Lóðrétt: 1flosagjá, 2lán,3ós,4skarf-
inn,6egill, 8agn,11gró, 14áta,17il.
AÐ MÍNU SKAPI
VIGNIR GRÉTAR STEFÁNSSON NORÐURLANDAMEISTARI Í JÚDÓ
TÓNLISTIN
Ég er mjög hrifinn af íslenskri tónlist,
við eigum svo mikið af frábærum
hljómsveitum. Hjálmar eru til dæmis
að gera frábæra hluti og í miklu uppá-
haldi, en síðan eru það snillingar eins
og Rolling Stones og Nirvana sem
verða alltaf í spilaranum hjá mér.
BÓKIN
Ég er ekki mikil bókamanneskja, fyrir
utan það að lesa syrpuna ef það telst
með, og les helst ekki bækur nema ég
sé neyddur til. Mér var samt gefin bókin
Da Vinci-lykillinn um daginn. Hún greip
mig strax og kláraðist á mettíma.
BÍÓMYNDIN
Fear and Loathing in Las Vegas er
mynd sem ég get horft á aftur og aftur.
Frábærir leikarar, klikkaður leikstjóri og
handritið er snilld. Ein flottasta myndin
með Benicio Del Toro.
BORGIN
Tókýó er borg sem ég væri til í að
skoða betur. Ég var þar í tvær vikur að
æfa júdó og skoða mig um, og kúltúr-
inn er mjög frábrugðinn Evrópu. Maður
þyrfti að vera þar í langan tíma bara til
að skilja hvað þetta er allt stórt. Eini
gallinn er að lestarkerfið er allt á
japönsku og það þýðir ekkert að spyrja
til vegar.
BÚÐIN
Abercrombie & Fitch er flott búð, en
annars er ég ekki með mikla þolin-
mæði í fatainnkaup.
VERKEFNIÐ
Ég er nýkominn heim frá Bandaríkjun-
um þar sem ég er í skóla og er þessa
dagana að undirbúa mig undir kom-
andi átök í júdóinu sem verða á smá-
þjóðaleikunum, og þá kemst lítið ann-
að að. Ég er samt að reyna að leika
mér í ljósmyndun og að fljúga flugmód-
elum og fer dágóður tími í að líma vél-
arnar aftur saman.
Hjálmar, Tók‡ó, ljósmyndun og flugmódel
HJÁLMAR Strákarnir halda áfram
að ferðast um heiminn og spila
bæði á tónlistarhátíðum í Rúss-
landi og Færeyjum í sumar. Þeir
skilja þó Íslendinga ekki útundan
og spila hér í byrjun júní.
[ VEISTU SVARIÐ ]
Svör við spurningum á bls. 8
1
3
2
Georgía.
71.412.
1.594 ellilífeyrisþegar.
»
FA
S
T
U
R
» PUNKTUR
Danski skákstórmeistarinn HenrikDanielsen ætlar að gera tilraun
til að slá Íslandsmetið í blindskák í
dag þegar hann mun
tefla 18 blindskákir sam-
tímis í höfuðstöðvum Ís-
landsbanka á Kirkjusandi.
Núverandi Íslandsmet var
sett af Helga Áss Grét-
arssyni stórmeistara
árið 2003 en þá tefldi
hann við ellefu mótherja þannig að
Danielsen stefnir að því að bæta
metið um sjö blindskákir. Fyrra Ís-
landsmet, tíu blindskákir
samtímis, setti Helgi Ólafs-
son stórmeistari en árið
1997 var met hans jafnað
af sænsk-íslenska meist-
aranum snjalla, Dan
Hansson. Það eru Hrók-
urinn og Íslandsbanki
sem standa fyrir viðburðinum en
hægt verður að fylgjast með
þrekraun Henriks í beinni útsend-
ingu á netinu á slóðinni www.hrok-
urinn.is. Mótið hefst klukkan 15 en
teflt er fyrir luktum dyrum þar sem
fjöltefli af þessu tagi krefst mikillar
einbeitingar og næðis. Mótherjar
Henriks verða þeir átján knáu krakk-
ar sem unnu sér rétt til að tefla á
úrslitamóti Tívólísyrpunnar 2005 en
það fór fram á sunnudaginn í
höfuðstöðvum Íslandsbanka og lauk
með sigri Ingvars Ásbjörnssonar úr
Rimaskóla.