Fréttablaðið - 20.08.2005, Blaðsíða 56
> Við gleðjumst ...
... með Gretu Mjöll Samúelsdóttur,
framherja Breiðabliks í Landsbankadeild
kvenna í knattspyrnu, sem valin
hefur verið í íslenska landsliðið
sem mætir Hvít-Rússum á
sunnudag, í stað Katrínar
Jónsdóttur sem á við meiðsli
að stríða. Gréta Mjöll hefur
verið aðaldriffjöðurin í
sóknarleik Blika í sumar og er
verðlaunuð með landsliðssæti.
20. ágúst 2005 LAUGARDAGUR
Allir í maraþon
Hið árlega Reykjavíkurmaraþon verður
háð í 23. sinn í miðbænum á morgun og
hafa aldrei verið fleiri útlendingar skráðir
til leiks. Maraþonið hefst kl. 10.00 en
upphitun fyrir skemmtiskokkið hefst kl.
10.45 og hlaupið sjálft stundarfjórðungi
síðar. Í tengslum við maraþonið verður
skemmtidagskrá í Lækjargötunni sem
hefst kl. 11.40.
sport@frettabladid.is
40
> Við hlökkum ...
.... til að fylgjast með íslensku
leikmönnunum í þýsku
úrvalsdeildinni í handbolta í vetur,
sem virðast vera í mjög góðu
formi af undirbúnings-
tímabilinu að dæma. Í gær
skoraði Einar Hólmgeirsson
átta mörk í æfingaleik
með Grosswalstad.
Íslendingar bi›u lægri hlut, 32–31, fyrir Spáni á HM U-21 árs li›a í handbolta.
Ísland ver›ur a› sigra fi‡skaland í dag til a› eiga möguleika á a› vinna móti›.
Naumt tap gegn Spáni
HANDBOLTI Piltalandslið Íslands í
handknattleik tapaði með eins
marks mun, 32-31, fyrir Spáni á
heimsmeistaramótinu í Ungverja-
landi. Íslendingar byrjuðu leikinn
vel en náðu ekki fylgja því eftir og
náðu Spánverjar fljótlega öruggri
forystu. Um miðbik hálfleiksins
var staðan 15-8 Spáni í vil en Ís-
lenska liðinu tókst að laga stöðuna
áður en flautað var til hálfleiks og
minnkaði muninn í fimm mörk, 17-
12.
Leikmenn íslenska liðsins komu
ákveðnir til leiks í seinni hálfleik
og minnkuðu muninn fljótlega í
þrjú mörk, 20-17. Spánverjar héldu
svo þriggja marka forskoti fram á
lokamínúturnar þegar íslenska lið-
inu tókst með mikilli baráttu að
minnka muninn í eitt mark þegar
aðeins ein mínúta var eftir.
Spánverjar fóru í sókn og náðu að
skora úr vítakasti. Íslendingar
náðu að skora í næstu sókn en
tíminn var of skammur og því voru
það Spánverjar sem hrósuðu sigri.
Línumaðurinn Kári Kristjáns-
son, sem nýlega gekk til liðs við
Hauka frá ÍBV, átti stórleik og
skoraði ellefu mörk úr ellefu
skottilraunum. Ásgeir Örn Hall-
grímsson kom næstur með sjö
mörk og Árni Sigtryggsson skor-
aði sex.
Íslenska liðið mætir því þýska í
dag og hreinlega verður að vinna
til að eiga einhvern möguleika á
verðlaunasæti. Fari svo að
íslenska liðið tapi fer það
stigalaust í milliriðilinn, en það
gerir möguleikana nánast að engu.
- mh
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
17 18 19 20 21 22 23
Sunnudagur
ÁGÚST
KÖRFUBOLTI Alda Leif Jónsdóttir,
fyrirliði ÍS í 1. deild kvenna í
körfubolta og fimmta leikjahæsta
landsliðskona Íslands frá upphafi,
mun spila með hollenska liðinu
Den Helder í hollensku úrvals-
deildinni næsta vetur.
Den Helder vann meistaratitil-
inn annað árið í röð á síðasta
keppnistímabili og hefur orðið
meistari alls ellefu sinnum frá ár-
inu 1985. Með liðinu leika nú með-
al annars tvær af efnilegustu
körfuknattleikskonum Hollands,
186 sm framherjinn Leonie Kooij
og 188 sm miðherjinn Naomi
Halman en þær eru báðar aðeins
19 ára. Den Helder-liðið er þekkt
fyrir frábært uppbyggingarstarf
og þar hafa margar af fremstu
körfuboltakonum landsins stigið
sín fyrstu spor en þjálfari liðsins
er jafnframt þjálfari unglinga-
landsliða Hollands.
Alda Leif sem er 26 ára gömul
var valin í lið ársins í sjöunda
sinn síðasta vetur, leiddi deildina
í vítanýtingu (88,8%) og var með
15,6 stig og 5,7 stoðsendingar að
meðaltali í leik.
Þetta er mikill missir fyrir ÍS
en liðið hefur nú misst báða leik-
stjórnendur sína frá því í fyrra,
því á dögunum gekk Erna Rún
Magnúsdóttir til liðs við Grinda-
vík á nýjan leik. Ívar Ásgrímsson
hefur tekið við þjálfun liðsins á
ný eftir árs fjarveru.
Alda Leif og kærasti hennar
Sigurður Þorvaldsson verða því
bæði á fullu í hollenska körfubolt-
anum næsta vetur því Sigurður
mun spila með Woon!Aris
Leeuwarden ásamt Hlyni Bær-
ingssyni en sá bær er í klukku-
tíma fjarlægð frá Den Helder.
Þetta er í annað sinn sem Alda
Leif reynir fyrir sér erlendis en
hún lék við góðan orðstír hjá
danska liðinu Holbæk veturinn
2000-01.
Alda Leif til hollensku meistaranna
Markahrókurinn Steingrímur Jóhannes-
son hefur skorað fimmtíu deildarmörk í
Vestmannaeyjum en
þeim áfanga náði
hann á á fimmtu-
dag þegar ÍBV vann
5-1 sigur á Grindavík. „Það kom mér á
óvart hvað það var lítil barátta í
Grindavíkurliðinu en við spiluðum vel
og hefðu leikmenn nýtt færin hefði
leikurinn farið svona 10-3.
Það er mikill stígandi í
okkar leik og nú þeg-
ar allir virðast heilir
þá gengur þetta ansi
vel,“ sagði Steingrímur en hann skoraði
49 af þessum mörkum í Eyjum með
ÍBV en eitt fyrir Fylki gegn ÍBV. Hann
hefur alls skorað 80 deildarmörk.
Sigurinn var ansi mikilvægur fyrir Eyja-
menn sem komust úr fallsæti. „Það
er meira fjör þarna í botnbarátt-
unni en á toppi deildarinnar
þar sem mótið er nánast
ónýtt! Ég man þeg-
ar ég var að
byrja með
meistaraflokki að þá feng-
um við utanlandsferðir fyrir
að bjarga okkur frá falli en
svo urðum við meistarar
1997 og fengum ekkert. Það
er meira í húfi á botninum,“
sagði Steingrímur sem er orð-
inn 32 ára og hefur ekki getað
spilað af fullum krafti undanfar-
in ár vegna meiðsla.
„Það hefur verið mjög þreytandi að
geta ekki spilað. Fyrst maður er kominn
með 80 mörk þá er freistandi að reyna
að ná upp í 100 en það verður sífellt
erfiðara eftir því sem aldurinn færist yfir
mann og maður missir svona mikið úr.
Maður hefur verið að íhuga hvort það
sé ekki að koma tími til að fara að
segja þetta gott.“
Steingrímur segist ekki vera neitt stress-
aður þótt lið hans sé í harðri botnbar-
áttu. „Sumum finnst ég vera full rólegur
en ég er ekkert að stressa mig. Það
mikill kostur fyrir okkur að leika þessa
sex stiga leiki á heimavelli og næsti
leikur verður gegn Þrótti á sunnudag
sem er ekki síður mikilvægur leikur.
Okkar heimavöllur er án nokkurs vafa
besti völlur landsins og það er frábært
að spila þar,“ sagði Steingrímur.
STEINGRÍMUR JÓHANNESSON: HEFUR SKORAÐ 80 DEILDARMÖRK Á FERLINUM, ÞAR AF 50 Í EYJUM
Freistandi a› ná upp í hundra› mörk
Almennur hluti 1 - Fjarnám
Þ
já
lf
ar
an
ám
sk
ei
ð
Í
S
Í
Þjálfaranámskeið ÍSÍ
www.isisport.is
Þjálfaramenntun íþróttahreyfingarinnar fæst metin til eininga í
framhaldsskólum samkvæmt aðalnámskrá framhaldsskóla.
Frekari upplýsingar má finna á
www.isisport.is
ÍSÍ býður upp á þjálfaranámskeið í gegnum fjarnám. Námskeiðið innheldur námsefni þeirra þriggja
námskeiða sem ÍSÍ hefur boðið uppá á 1. stigi. Námskeiðið er jafngilt ÍÞF102 áfanga framhaldsskólanna
og kennt verður í gegnum Menntagátt Menntamálaráðuneytisins.
Námskeiðið er ígildi 60 kennslustunda og er byggt upp með verkefnum og umræðum auk þess sem farið
er í glærusýningar. Námsbækur eru þær sömu og á hefðbundnum þjálfaranámskeiðum ÍSÍ.
Að auki gefst þátttakendum færi á að skoða verklega þætti á geisladiski sem fylgir námskeiðinu.
Verð á námskeiðið er kr. 20.000,- en þeir aðilar sem lokið hafa hluta námsins í gegnum önnur
námskeið ÍSÍ eða hafa sambærilegt nám að baki gefst kostur á sækja þetta námskeið á lægra verði.
Skráningar þurfa að berast á netfangið namskeid@isisport.is eða í síma 514-4000 fyrir mánudaginn
5. september. Kennsla hefst mánudaginn 12. september.
■ ■ LEIKIR
16.00 Breiðablik mætir KS á
Kópavogsvelli í 1.deild karla.
■ ■ SJÓNVARP
10.50 Formúla 1 á RÚV.
11.00 Upphitun á Enska boltanum.
Spáð í spilin í umferð helgarinnar.
11.20 Skoski fótboltinn á Sýn. Bein
útsending frá leik Glasgow Rangers og
Glasgow Celtic.
11.30 Man. Utd–Aston Villa á
Enska boltanum. Bein útsending.
12.10 Gullmót í frjálsum íþróttum
á RÚV.
13.20 Strandblak á Sýn.
13.30 Á vellinum með Snorra Má
á Enska boltanum.
13.45 Liverpool–Sunderland á
Enska boltanum. Bein útsending. Á
öðrum rásum eru eftirtaldir leikir sýndir:
Blackburn–Fulham, Charlton–Wigan,
Newcastle–West Ham og Totten-
ham–Middlesbrough.
14.10 Götufótbolti á Sýn.
14.20 PGA mótaröðin í golfi á Sýn.
14.45 Mótorsport 2005 á Sýn.
15.15 Motorworld á Sýn.
15.45 World Supercross á Sýn.
16.00 Birmingham–Man. City á
Enska boltanum. Bein útsending.
17.10 Golf Greatest Round á Sýn.
18.00 Skoski fótboltinn á Sýn.
Útsending frá leik Rangers og Celtic.
19.50 Supercopa á Sýn. Útsending
frá síðari leik Barcelona og Real Betis.
22.00 Hnefaleikar á Sýn.
00.00 Hnefaleikar á Sýn.
Stúdínur eru búnar að missa fyrirliða sinn í kvennakörfunni:
KÁRI KRISTJÁNSSON Kári átti stórleik í gær og var markahæsti leikmaður íslenska liðsins
með ellefu mörk úr ellefu marktilraunum.
MÖRK ÍSLANDS
Kári Kristjánsson 11 (11 skot)
Ásgeir Örn Hallgrímsson 7 (15)
Árni Sigtryggsson 6 (11)
Arnór Atlason 4 (5)
Ragnar Njálsson 1 (2)
Daníel Berg Grétarsson 1 (1)
Árni Þórarinsson 1 (1)
VARIN SKOT
Björgvin Gústavsson 8 (af 34 skotum)
Davíð Svansson 5 (af 11)