Tíminn - 29.08.1975, Blaðsíða 8

Tíminn - 29.08.1975, Blaðsíða 8
8 TÍMINN Föstudagur 29. ágúst 1975 Sérstætt framlag Péturs Maack til ljósmyndasýning- arinnar Ljós ’75 Svnir um 40 mvndir af sömu stúlkunni — Já, ég get ekki sagt annað, en að mér þyki skemmtilegra að fást við bundið verkefni — þetta er eins og með skólaritgerðirnar — það var skemmtilegra að glima við eitthvað ákveðið verkefni en þegar valið var frjálst. Mér finnst þetta gera meiri kröfur tii min og það gefur auga ieið að það verða að vera mjög frambærilegar myndir, þegar sýningargesti er boðið upp á að sjá 30—40 myndir af sömu manneskjunni. Nú — ég hafði iöngun til að reyna þetta, þvi að ég hef aidrei áður tekið fyrir neitt ákveðið tema. Hins vegar má segja, að ég hafi vaiið mér talsvert þröngan ramma, þegar aðcins ein persóna á i hiut, — og það var vissuiega nokkrum erfiðieikum bundið að finna tíma, sem hentaði okkur báðum i þá mánuði, sem ég vann að þessu verkefni. Tiðindamaður þáttarins Með Ungu Fólki er staddur að heim- ir, — og þegar ég hafði kynnzt henni talsvert þá fyrst fór ein- hver árangur að koma fram. Um alllangt skeið var ég eins og grár köttur i Þjóðleikhúsinu, ýmist uppi i rjáfri eða niðri á sviði. Hvað margar myndir i allt? Látum okkur nú sjá, — ætli það hafi ekki verið um 3000 myndir i allt sem ég tók af henni. Strákarnir þrir unnu af kappi á heimili Péturs við að skera og lima upp myndir, — og voru húsakynnin öll undirlögð. — Það er nú kannski ekki mikið þó að allt hér sé undirlagt, — en heima h já Gunnari — sem er að byggja uppi i Mosfellssveit — er myrkrakompan það eina, sem er búið að ganga frá i húsinu, segir Pétur. — Ég held, að fólkið i næsta nágrenni haldi lika að við séum eitthvað meira en litið skritnir, bætir hann við. Pétur, Kjartan og Gunnar munu sýna á milli 100 og 110 sagt, að Listasafn rikisins á enga ljósmynd i sinu safni, — og þetta er sérstaklega undarlegt fyrir þá sök, að öll nútlmalista- söfn erlendis kaupa mjög mikiö af ljósmyndum, — það er senni- lega i mörgum söfnum, alveg helmingaskipti milli málverka og ljósmynda og i sumum söfn- um er meirihluti listaverkanna ljósmyndir. — Við höfum svona verið að gæla við þá hugmynd, að gefa Listasafninu eina ljósmynd, — þvi að þá yrðu þeir að taka við henni. Þeir, sem eitthvað hafa feng- izt viö ljósmyndun sem tæki til persónulegrar sköpunar hér- lendis, reka sig oft á þann vegg, meö ungu fólki sem almenningur hefur reist sér utan um skoðanir sinar á ljós- myndun. Það hefur oftar en einu sinni og oftar en tvisvar heyrzt i sýningarsölum, þar sem ljós- myndarar sýna verk sin, að það sé litið varið i þessar my ndir, — þvi að viðkomandi manneskja þekki engan á myndunum. „Þið ætlið þó ekki að láta mig borga fyrir það, að sjá einhverjar svart/hvitar myndir af ein- hverju fólki sem ég hef aldrei séð, sagði frú nokkur hér i bæ við forráöamenn ljósmyndasýn- ingar sem sett var upp. Ljós- myndarar, sem hafa litið á framleiðslu sina sem list og vinna að henni sem list, verða oft varir við þetta og önnur álika sjónarmið. — Telur þú, Pétur, að ljós- mynd sem list hafi verið nægi- lega kynnt hér á landi? — Fjandinn hafi það! Viö er- um búnir að sýna i tvigang, og erum að fara af stað með þriöju sýninguna — og það hlýtur að koma að þvi, aö fólk almennt viðurkenni okkar ljósmyndir sem list. Svart/ hvitar myndir geta verið alveg æöislegar. Við erum kannski bara of óþolin- móðir og sennilega dugir það eitt aö halda ótrauðir áfram. — Við fengum strax inni á Kjarvalsstöðum i fyrra skiptið, og það voru engin vandræði þegar við sóttum um þar aftur nú. Sýningarráö hússins viður- kennir þvi framleiðslu okkar sem list, — en hins vegar verður ljósmyndun sem list ekki viður- kennd fyrr en almenningur hef- ur viðurkennt hana, — ekki fyrr en fólk byrjar I rikara mæli að skreyta hibýli sin með ljós- myndum, alveg á sama hátt og það skreytir hibýli sin með mál- verkum. Ljósmynd er til að gleðja augað, og sama er að segja um málverkið, þ.e.a.s. þegar fólk kaupir ekki bara nafn málarans. — Það er kannski aðalatriðið við listljósmyndun að vera á- hugamaður, eða eins og Gunnar Hannesson orðaði það: ,,Þú hverfur til myndavélarinnar þegar þú hefur löngun til þess, en ekki þegar þú þarft að gera það”, — þarft að skila einhverju ákveðnu verkefni, fermingar- myndum, brúðkaupsmyndum o.s.frv. — Við viljum fá gagnrýni — listgagnrýni — á okkar myndir, en ekki eins og siðast þegar við sýndum, þegar gagnrýnendurn- ir rituðu mest um þann fitons- kraft sem væri að baki sýning- arinnar. — Við stöndum engan veginn jafnfætis listmálurum hvað fjármálahliðina snertir. Við verðum fyrst og fremst að hugsa um að fá sem flesta gesti, en ekki aö selja, skýtur Kjartan inn I. — Já, þetta er alveg rétt. Lé- legur listmálari, sem heldur sýningu þarf ekki að selja nema eina mynd til að eiga fyrir leig- unni á sýningarsalnum, og hann þarf að selja aðra mynd til að eiga upp i kostnað við kaup á römmum. Við þurfum hins veg- ar að selja 10 myndir aðeins til að eiga fyrir leigunni! — Viö erum viöurkenndir af atvinnuljósmyndurum, og ég er dálitið undrandi á þvi. Þaö er mér hins vegar óskiljanlegt, hvers vegna atvinnuljósmynd- arinn litur ekki á sig sem lista- mann. Af hverju líta þeir bara á sitt starf sem atvinnu? Mér finnst, stúdióljósmyndarar bæði geta gert miklu betur og meira ef þeir kærðu sig um. Og kann- ski eiga þeir fullt af listaverk- um. En hvers vegna fáum við þá ekki að sjá þau? Við vitum jú um Kaldal, sem á stórkostleg portret, — en hvað vitum við um hina? A siðustu sýningu Ljós- klúbbsins urðu nokkrar deilur um söluskatt, — en skatt- heimtumenn vildu söluskatt- skylda allar myndirnar sem seldust á sýningunni. Um þetta var mikið ritað i blöð. „Skattur- inn I dómarasæti: Ljósmyndun er engin list!! ” var fyrirsögn i einu blaðanna. Mál þetta endaði svo á þann veg, að söluskattur var látinn niður falla, þar sem ekki hefði þótt sýnt, að ljós- myndararnir hefðu sett upp sýninguna i ágóðaskyni. Ein- hvern veginn á þessa leið var það orðað i bréfi til klúbbsins frá skattinum. — Við ætluðum að fara með þetta lengra, ef niðurstaðan hefði orðið á annan veg — og höfðum I bigerð að senda sam- tökum, bæði atvinnuljósmynd- ara og áhugaljósmyndara, á Norðurlöndum bréf um málið og óska eftir umsögn þeirra. En alls staðar á Norðurlöndum er ljósmyndun undanþegin sölu- skatti eins og hver annar list- rænn varningur. — Það, sem kannski er mest um vert i sambandi við svona sýningu, er það, að þetta er skapandi vinna og mikið átak sem til þarf. Ég hefði t.d. sennilega aldrei látið hvarfla að mér, að halda sýningu, vegna þess að við getum gert þetta- saman og unnið að þessu sam- an. — Ég held að það sé okkur öllum sameiginlegt, að lita á hlutina frá öðru sjónarhorni en almennt gengur og gerist, — og við reynum hver á sinn hátt að vera mjög persónulegir. Hér áður fyrr þurfti allur hópurinn að vera smmála um að þessi mynd og þessi mynd væri hæf á sýningu—nú er þessu ekki leng- ur til að dreifa, — við ráðum þvi sjálfir hvaða myndir verða sendar á sýninguna. Nú erum við ekki að sýna andlit hópsins heldur þrjá ljósmyndara, — og þvi verða myndir okkar i þrem- ur básum á sýningunni. — Ljósmyndun gefur mér mikið en ég hef verið að fást við þetta alltfrá barnæsku, gegnum öll táningaárin — og það er fyrst núna, að ég tel mig geta fram- kallað og stækkað svona nokk- urn veginn klakklaust. — Ég persónulega hef mikinn áhuga á þvi að við höldum hóp- inn áfram — en þið strákar? Kjaran og Gunnar tóku i sama streng. — En hafið þið ekki hugsað að fjölga meðlimum klúbbsins? — Nei, ég hef þá skoðun að það borgi sig ekki, þvi að við þyrftum þá að byrja að ifenna þeim alls konar vinntíbrögð, sem viö höfum verið að læra i gegnum árin, — og þó það verði kannski litið á það sem mont, er það staðreynd sennilega engu að siður, — að við höfum senni- lega hvað mesta reynslu i stækkun mynda hérlendis, eftir að hafa unnið aö þremur sýn- ingum. Sýningin Ljós ’75 verður opn- uð næstkomandi miðvikudag og þar sem Pétur er hættur að tala — setjum við punkt. —Gsal— og vinnustotu FétursMaacks myndir á sýningu sinni, en enn- ljósmyndara — vel að merkja, fremurhafa þeir fengið sérstak- Þetta eru félagarnir I Ljósklúbbnum, t.f.v. Pétur; Kjartan og Gunnar. an gest til að vera með þeim á sýningunni, — ljósmyndarann Mats W. Lund, sem mun sýna stækkaðar litmyndir. Á siöustu sýningu, Ljós ’73 var Gunnar Hannesson heiðursgestur þeirra. — Auðvitað er þetta fjárhags- áhætta, sem við tökum á okkur með þvi að efna til sýningar. Ég gæti imyndað mér að við hefö- um fengiö u.þ.b. eina krónu og fimmtiu aura fyrir hvern klukkutima sem við unpum að siðustu sýning! Þá höfðum við fermetraverðá myndunum, þ.e. myndirnar voru misjafnlega dýrar eftir þvi hvað þær voru stórar — Nú verða allar mynd- irnar jafnstórar, og allar á sama verði, — 10 þúsund krón- ur. — Já, við seldum sæmilega á siðustu sýningu. — Það var dálitið merkilegt að Heyrnleysingjaskólinn keypti af okkur þrjár stórar myndir, sem hanga uppi i þess- um nýtizkulegu ibúðarhúsum upp við öskjuhlið. — Hins vegar er það dálitið furðulegt, svo ekki sé meira áhugaljósmyndara — en hann og félagar hans, Kjartan B. Kristjánsson og Gunnar S. Guð- mundsson, ætla að opna ljós- myndasýningu að Kjarvalsstöð- um næstkomandi miðvikudag, 3. september og mun sýning þeirra standa yfir til 16. septem- ber. Pétur Maack er félagi i fé- lagsskap sem nefnist Ljós, en það er félagsskapur áður- nefndra þriggja áhugaljós- myndara, sem hefur haldið tvær sýningar I Reykjavik áður, — en sú þriðja stendur fyrir dyrum að Kjarvalsstöðum eins og áður segir. Sýninguna nefna þeir fé- lagar Ljós ’75 og sýnir Pétur á milli 30 og 40 myndir af Helgu Eldon, ballerínu með meiru, og eru framangreind orð höfð eftir Pétri um þetta sérstæða fram- lag hans til sýningarinnar. — Ég byrjaði að taka myndir af Helgu i marz 1974 og siðustu myndirnar af henni tók ég i vor. Fyrst tók ég um 300 myndir af henni og þaö var engin nothæf. Þá brugðum við á það ráð að fara i bió saman og i gönguferð-

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.