Tíminn - 17.09.1976, Blaðsíða 7

Tíminn - 17.09.1976, Blaðsíða 7
Föstudagur 17. september 1976. Tf.MINN 7 -----------------. Yfirgripsmikil sýning á Ijósm. Gunnars heitins Hannessonar hefst / kvöld að Kjarvalsstöðum V_________________J -hs-Rvik. 1 gærkvöldi var opnuö sýning á stækkuðum ljós- myndum eftir Gunnar heitinn Hannesson að Kjarvalsstöðum. Opnunin i kvöld er fyrir gesti, en frá og með morgundeginum verður sýningin opin al- menningi, allt fram til 28. september n.k. Megnið af myndunum á sýningunni hafa aldrei birzt opinberlega áður, en alls eru á sýningunni 120 myndir. Myndirnar eru nær allar til sölu, en verð þeirra er 50 þúsund fyrir myndir, sem eru stækkaðar um 22 svar sinnum frá filmustærð, og 60 þúsund fyrir myndir, sem stækkaðar eru 30 sinnum. Það eru afkomendur Gunnars Hannessonar, sem að þessari sýningu standa, en að sögn Gunnars sonar hans, eru það einkum þrir aðilar, sem gert hafa það kleift að koma þessari sýningu á fót, þeir Haraldur J. Hamar, Mats Wibe-Lund og Gisli B. Björnsson.Þessir menn hafa annazt val myndanna ásamt uppsetningu, eftir aö „kópiurnar” komu stækkaðar frá Noregi. Myndirnar eru allar limdar upp á sérstakar álplötur, þannig aö ekki er hætta á, að þær verpist, þó að ekki sé settur rammi utan á þær. Auk ýmiss konar mótiva skiptast myndirnar einkum i myndir frá Reykjavik, af jöklum og hálendi og gosum ýmiss konar. Gunnar Hannesson fæddist i Reykjavik 28.3.1915. Hann hlaut verzlunarmenntun en 15 ára réðist hann til Marteins Einarssonar við Laugaveg — þar sem hann starfaði 34 ár, eða til 1964. Þá setti hann á stofn eigið fyrirtæki i innflutningi, Technica, og rak það til dauða- dags. Frá unga aldri hafði Gunnar mikinn áhuga á að ferðast um landið og var hann viðförull og mikill náttúruskoðari. Það var þó ekki fyrr en árið 1964, er hann var 49 ára, að hann eignaðist fyrstu ljósmyndavélina. Var það Canonette. Fékk hann fljótt mikinn áhuga á að fást við ljós- myndun I tómstundum sinum — og þar eð hann gjörþekkti stóra hluta landsins og hélt áfram uppteknum hætti að feröast, eignaðist hann brátt töluvert safn mynda frá stöðum, sem að jafnaði þykja áhugaverðir til ljósmyndunar. Lagði hann slika rækt við þetta viðfangsefni, að hann haföi ljósmyndavél jafnan við hendina, hvort sem hann var utan bæjar eða innan. Gunnar haföi ekki tekið myndir I mörg ár þegar þær fóru að birtast á prenti og var leitað til hans i þvi skyni æ meira eftir þvi sem timar liðu. Nokkrir útgefendur birtu myndir hans að staðaldri og má i þvi sambandi nefna ICELAND REVIEW — og almanök Eimskipafélags Islands. Myndir hans birtust og I fjölmörgum erlendum ritum — og bókum. Tvær bækur voru gefnar út með myndum Gunnars Hannessonar eingöngu. Reykjavikurbók (1974) og Vatnajökulsbók (1975), báðar I útgáfu ICELAND REVIEW. Honum var boðin þátttaka I sýningunni Ljós ’73 — og ennfremur sýndi hann lit- skyggnur i sérstökum sal að Kjarvalsstöðum i sambandi við sýninguna Island — Islendingar á þjóðhátiðarárinu 1974. Þá var Gunnari boðið að sýna i sýningarsal Nikon House I New York á s.l. vetri, en þangað er einungis boðið þekktum og viðurkenndum ljósmyndurum frá ýmsum löndum. Nokkrar þeirra mynda, sem eru nú sýndar að Kjarvalsstöðum, voru á sýningunni i New York. Gunnar Hannesson bjó alla ævi I Reykjavik og lézt þar 24.6. 1976. Haraldur J. Hamar ritar eftirfarandi i sýningarskrá: Fáir íslendingar hafa sinnt ljósmyndun i öðrum tilgangi en að festa á filmu andlit og at- burði liðandi stundar sjálfum sér og öðrum til ánægju og til að eiga eitthvað til minja. Hið al- menna viðhorf til myndatöku úti I náttúrunni hefur verið „doku- mentariskt” — eða eins og svo ofter sagt: „Svona Iitur bærinn út af sjó.... Svona er fossinn þegar horft er af hólnum.” — Gunnar Hannesson var hins- vegar i hópi hinna fáu sem höfðu annað viðhorf. Hann gaf sér jafnan nægan tima og fann hvernig hægt var að nota ljós- myndavélina til aö tjá eigin til- finningu fyrir þvi sérkennilega, hrifandi eða hrikalega i um hverfinu — oe vta hinu til hliöar. sem honum fannst ekki skipta máli hverju sinni. I byrjun handlék hann myndavélina á hinn hefðbundna hátt, elstu myndirnar bera þess merki. En hann bjó yfir næmu litaskyni og listrænum smekk, sem olli þvi að hann byrjaði að uppgvöta landið á ný gegnum marg- breytilegar linsur myndvél- arinnar — og hann hafði ánægju af að leyfa öðrum aö njóta þessa með sér. Af viðfangsefnum var það einkum tvennt, sem hann hafði mikla ánægju af að fást viö: Annars vegar borgin hans, Reykjavik — hins vegar Vatna- jökull og umhverfi. En hann fór viðar. Og þótt Gunnar hafi ekki sinnt ljósmyndun nema seinasta áratug ævinnar, náði hann undraverðum árangri — ekki aðeins hvað magn og yfirferð varðar, heldur lika árangur. Það er mat þeirra, sem hafa vit á, að fáir ef nokkrir hérlendir ljósmyndarar hafi komizt lengra I listrænni túlkun Is- lenzkrar náttúru I ljósmyndun — en Gunnari Hannessyni tókst I sinum beztu myndum — Fólk veitir einkum athygli hinni sér- kennilegu birtu sem einkennir margar af beztu myndum hans — og dulmagnar oft andrúms- loftið svo að einstök kennileiti og misfellur I náttúrunni hverfa, vikja fyrir einhverjum yfir- gnæfandi tóni eða stemmningu, sem fyllir allan myndflötinn. A hinn bóginn finnum við lika hár- skarpar, tærar og oft litaglaðar myndir — en alltaf einfaldar og sterkar. Þaö var og athyglis- vert, að Gunnar kærði sig aldrei um að hafa ljósmyndavélina meö sér þegar hann fór er- lendis. Hann sá þar aldrei neitt, sem vakti áhuga eða löngun til að mynda. En um leið og hann var kominn heim var hann rokinn af stað með myndavél- arnar, tsland töfraöi hann — og Gunnar vilaöi ekki fyrir sér að ferðast alla nóttina, ef veöurlag var þannig að hann gæti átt von á heillandi morgunskimu áein- hverjum tilteknum stað i fjar- lægum landshluta. Þessvegna liggur eftir hann meira úrval frábærra litmynda en til er ann- ars staöar á tslandi — er mér óhætt að segja. Það var þvi ekki auðvelt aö velja úr safni hans liðið sýnishorn til að stækka og setja upp að Kjarvalsstöðum. Nokkrar myndanna hafði hann valið sjálfur fyrir andlát sitt á síðasta sumri, en fjölskylda hans og vinir luku svo þvi verki.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.