Tíminn - 07.05.1978, Blaðsíða 2
2
ít é a
Sunnudagur 7. mai 1978.
DUFGUS:
Nemenda/eikhúsið
Það var ánægjulegt að sjá sýningu Nem-
endaleikhússins á leikriti Flosa Ölafssonar,
Slúðrinu í Lindarbæ. Ekki af því að leikritið
væri framúrskarandi, það hefur sennilega
hvorki verið betra né verra en til var ætlazt.
Hins vegar gaf það leikendum mikil tæki-
færi til þess að sýna fjölbreytni í leik og
vissulega er það kostur þegar um er að
ræða leikhóp sem fyrst og fremst sýnir
hæfni sína að loknu námi. En það er
skemmst frá því að segja,nemendur allir
sýndu mikla hæfni í grundvallaratriðum
leiklistar, oq svndu bar að auki umtalsverð
tilþrif og lyftu sjálfu leikverkinu langt upp
fyrir það sem textinn gaf tilefni til. Þessi
sýning sýndi að Leiklistarskólinn ungi er
góður skóli og þaðan er að vænta nýrra
manna með meiri kunnáttu en íslenzkir
leikarar hafa almennt haft yfir að ráða
hingað til, og hef ur þó ekkert skort á að hér
kæmu fram margir frábærir leikarar.
Hitt er svo annað mál að litlar likur eru á
því að sá f jöldi sem útskrif ast úr Leikiistar-
skólanum i framtíðinni muni fá störf við
leiklist. Markaðurinn fyrir leikara er tak-
markaður og ekki horfur á að það breytist
til muna á næstunni. Og það er eftirsjá í því
að fá ekki að sjá allt þetta unga fólk á leik-
sviði aftur. En við því er ekkert að gera,
enda hefur þessu fólki væntanlega verið
það Ijóst, þegar það hóf nám, að atvinnu-
möguleikar fyrir svo stóran hóp væru tak-
markaðir.
Skólastjóri Leiklistarskólans ræddi þetta
vandamál í viðtali í vetur og lét þá þau orð
falla að ríkisvaldið hefði gleymt því þegar
það stofnaði skólann að það þyrfti að út-
vega fólkinu atvinnu. Þetta voru ósmekkleg
orð og ósæmileg. Gerð var krafa til ríkis-
valdsins um stofnun skólans. Sú krafa var
endurtekin árum saman af vaxandi þunga.
Þá var það rökstutt að þörf væri f yrir þenn-
an skóla en aldrei minnzt á það einu orði að
rikið ætti einnig að sjá því fólki sem þaðan
útskrifaðistfyrirævistarfi. En því miður er
ekki við skólastjóra Leiklistarskólans einan
að sakast, það er að verða óþarflega al-
gengur hugsunarháttur hér að ríkið eigi að
sjá f.yrir öllu og öllum. Þessi hugsunarhátt-
ur verður að hverfa og vonandi hafa þeir
nemendur Leiklistarskólans sem nú eru að
útskrifast þann manndóm að leggja ekki
árár í bát, þó að samfélagið leggi ekki allt
upp í hendurnar á þeim.
Það eru nefnilega ýmsar aðrar leiðir til.
Kvikmyndagerð er hér á algeru frumstigi
og þyrfti þar sannarlega að taka til hend-
inni. Það verður að vísu löng barátta og
hörð því að allt þarf sinn tíma til þróunar.
Kvikmyndagerð hér á landi kemur varla til
með að verða verkefni ríkisvaldsins nema
að litlu leyti. Til þess að hef ja kvikmynda-
gerð til vegs og virðingar þurfa að koma
framtakssemi, hugkvæmni, dugnaður og
kjarkur einstaklingsins. Það er verðugt
verkefni fyrir ungt fólk.
Það kunna einnig að vera f leiri möguleik-
ar. Víða úti á landsbyggðinni er mikill áhugi
fyrir leiklist og áhugastarf stendur með
töluverðum blóma. Það væri mikill fengur
fyrir þá staði að fá ungt vel menntað fólk til
starfa. Það er sannfæring mín að víða yrði
hinum ungu leikurum veitt aðstaða til jáess
að fá lífvænlegt aðalstarf sem veitti síðan
möguleika til að leiða áhugamannastarfið
og lyfta því upp. Það yrði til mikils
menningarauki fyrir landsbyggðina.
A uppstingingardag opnaði Fanney Jónsdóttir málverkasýningu aft
Laugavegi 21, en Fanney hefur áftur haldift sýningu aft Klausturhólum.
A þessari sýningu verfta um 40 myndir, flest oliumálverk og vatnslita-
myndir. Megnift af þeim er unnift á þessu og siOastliftnu ári. Sýningin
verftur opin daglega frá kl. tvö til sex fram að hvitasunnu. Aftgangur er
ókeypis. Fanney hefur málaft lengi, en hún stundafti nám á sinum tima I
Kaupmannahöfn.
Sýning Ragnars
f jöri í Kjarvalsstaði
hleypir
FI Hátt á fjórfta þúsund manns
hafa nú þegar séft sýningu Ragn-
ars Páls listmálara aft Kjarvals-
stöftum, en sýningin stendur til 7.
mai. A sýningunni eru 78 málverk
alls, þar af voru 40 tii sölu og seld-
ust þau öll fyrsta daginn. Þrjátiu
málverk seldust fyrsta klukku-
timann. Hefur mjög lifnaft yfir
Kjarvalsstöftum vift þessa geysi-
legu aftsókn.
Ragnar Páll sagöi i samtali viö
Timann i gær, aö margir úr dreif-
býlinu hefftu komift á þessa sýn-
ingu og var hann þakklátur fyrir
þaft. Menntamálaráöherra heföi
komift tvisvar á sýninguna og
nokkrir stjórnmálamenn aftrir
litift inn. Eins og vanalega hafa
fulltrúar Listasafns rikisins ekki
látift sjá sig en Ragnar Páll kvaft
lágmark aft þeir kæmu og skoð-
uðu sýningar.
Myndirnar á sýningunni voru
mest blómamyndir, landslags-
myndir og nokkur „portrait”,
sem eru i einkaeign. Þar á meöal
af Agústi Þorvaldssyni fyrrver-
andi alþingismanni, Þórfti frá
Dagverftará og Hannibal Valdi-
marssyni.
„Annars ber sýningin þaö meft
sér”, sagöi Ragnar Páll, „aft ég
átti þess kost i fyrrasumar aft
vera mikift úti á landsbyggftinni,
sérstaklega meftal fólks á Austur-
landi og i Mývatnssveit. Kynntist
ég þarna mörgu úrvalsfólki og
eru margir staftir mér hugstæftir
Nótt eftir Ragnar Pál. Myndin
er úr Borgarfirfti eystra.
mmmm
i ' Td' 't 1 M
B! 9 ísá
;■ ' ^ v í.:
>1 KpS'’’***' F
siftan, eins og t.d. Borgarfjörftur
eystri.”
Sýning Ragnars Páls á Kjar-
valsstöftum er niunda einkasýn-
ing hans og önnur i röftinni á
Kjarvalsstöftum.
Sonur Indiru
fangelsaður
Nýja Delhi/Reuter Sanjay
Gandhi sonur Indiru Gandhi fyrr-
um forsætisráðherra Indlands
var i gær dæmdur i mánaðar
fangelsi vegna tilraunar til aft
múta manni er bera áttí vitni i
máli gegn honum. Tveim klukku-
stundum siftar var Gandhi færftur
i fangelsi. Hann er nú ákærftur
fyrir aft hafa gert tilraun til að
eyðileggja kvikmyndir er fjölluftu
um spillingu stjórnmálamanna í
Indlandi. Allmörg vitni hafa
breytt framburði sinum vift
réttarhöldin frá þvi er þau höfðu
áður borið.
A meðan Indira Gandhi
stjórnafti Indlandi undir neyftar-
lögum á árunum 1975 og 1976 var
Sanjay einn áhrifamesti stjórn-
málamaður i landinu. Talið er aö
áætlanir hans um aö hefta fólks-
fjölgun i Indlandi hafi átt hvaft
drýgstan þátt i aft flokkur Indiru
Gandhi beið ósigur i siðustu
kosningum.
Bændur
Röskur drengur á 13.
ári óskar eftir sveita-
dvöl. Getur byrjað
strax
Upplýsingar í síma 3-
66-12, eftir kl. 8 á
kvöldin.