Fréttablaðið - 26.09.2006, Blaðsíða 62

Fréttablaðið - 26.09.2006, Blaðsíða 62
 26. september 2006 ÞRIÐJUDAGUR38 HRÓSIÐ … 1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 VEISTU SVARIÐ Svör við spurningum á síðu 8 1 Kaupmannahöfn 2 Nirvana 3 Ian Woosnam FRÉTTIR AF FÓLKI LÁRÉTT: 2 andlegt áfall 6 málmur 8 kúgun 9 vell 11 öfug röð 12 hlé 14 hindrun 16 persónufornafn 17 loka 18 mál 20 í röð 21 frumeind. LÓÐRÉTT: 1 rótartauga 3 tveir eins 4 skotskífa 5 málmur 7 loftauga 10 rá 13 fiskur 15 stefna 16 borða 19 kusk. LAUSN LÁRÉTT: 2 lost, 6 ál, 8 oki, 9 gos, 11 on, 12 aflát, 14 tálmi, 16 ég, 17 lás, 18 tal, 20 lm, 21 atóm. LÓÐRÉTT: 1 tága, 3 oo, 4 skotmál, 5 tin, 7 loftgat, 10 slá, 13 áll, 15 ismi, 16 éta, 19 ló. Mikil leynd hvílir yfir verkefni þeirra Sigurjóns Kjartanssonar og Óskars Jónassonar sem gengur undir vinnuheitinu Press en sam- kvæmt heimildum Fréttablaðsins er um að ræða hálfgerðan E.R - þátt á dagblaði með tilheyrandi drama og spennu. Félagarnir hafa fengið handritastyrk frá Kvikmyndasjóði Íslands og eru Saga Film og Stöð 2 gengin til liðs við þá. Sigurjón vildi lítið tjá sig um málið þegar Fréttablaðið hafði uppi á honum en sagði verkefnið vera í góðum farvegi. „Þetta er á handritastigi og það er verið að leita eftir fjármagni en við stefn- um á að fara í tökur um mitt næsta ár,“ sagði Sigurjón en ekki hafa verið ráðnir neinir leikarar né leikstjóri. Samkvæmt heimildum Frétta- blaðsins hafa glæpasagnahöfund- arnir Yrsa Sigurðardóttir og Árni Þórarinsson verið fengin í hand- ritateymið en þeir Sigurjón og Óskar eru titlaðir „skaparar“ og munu hafa yfirumsjón með gerð handritsins þannig að ekki verði neitt misræmi með persónur. Samkvæmt Magnúsi Viðari Sig- urðssyni hjá Saga Film er verið að leita eftir fjármagni frá Sví- þjóð og Þýskalandi, væntanlega með það fyrir augum að selja þættina þangað en nor- rænar glæpasögur hafa átt góðu gengi að fagna í síðarnefnda land- inu og því ljóst að þarna gæti verið frjór jarðvegur fyrir þættina. „Okkar draumur er að fjármagna tólf þátta röð,“ sagði Magnús Viðar en vildi ekki tjá sig um málið að öðru leyti. - fgg Stórskotalið í nýjum sjónvarpsþætti YRSA SIGURÐARDÓTTIR Er af hinni nýju kynslóð glæpa- sagnahöfunda sem notið hafa mikilla vinsælda hér heima og erlendis. ÁRNI ÞÓRARINSSON Hefur verið ráðinn í handritateymi þáttanna en hann er þekktur fyrir sögur sínar um Einar blaða- mann. ÓSKAR JÓNASSON Þætt- irnir eru sagðir gerast inni á fjölmiðli og er þeim líkt við sjúkra- húsþáttinn E.R. SIGURJÓN KJART- ANSSON Er titl- aður sem annar skapari þáttanna Press sem núna eru í fullum undirbúningi. ... fær útvarpsmaðurinn Freyr Eyjólfsson sem nýverið tók bílpróf, 32 ára að aldri, og fer aldrei yfir löglegan hámarks- hraða né gleymir að gefa stefnuljós. Þáttur Hemma Gunn, Í sjöunda himni, fer í loftið frá Nasa á fimmtudaginn og eru miklar vonir við hann bundnar. Fyrsti gestur Hemma verður sjálf Dilana úr sjónvarpsþáttunum Rock Star: Supernova ásamt Magna Ásgeirs- syni en þau ætla að halda tónleika á Hótel Íslandi um helgina ásamt Á móti Sól. Að sögn komast gestir í salnum ekki inn án vegabréfs því einn heppinn gestur verður dreginn út í beinni og keyrður út á flugvöll á sömu mínútunni. Áheyrnarprufur fyrir þáttinn X-Fact- or hefjast á þriðjudaginn í næstu viku á Hótel KEA á Akureyri. Þegar hafa um fimm hundruð manns skráð sig og þrjátíu hópar auk þess sem fullmannaður kór mun hafa ákveðið að láta slag standa. Þau Ellý úr Q4U og Páll Óskar skipa dómnefndina auk Einars Bárðar- sonar sem er kampakátur með velgengni Nylon. Umboðsmaðurinn hlýtur því að vera spenntur að sjá hvað birtist fyrir sjónum hans í X -Factor og hvort arftakar stúlknasveit- arinnar knáu kunni að leynast þar. Eyrún Magnúsdóttir hefur tekið lífinu með ró frá því að hún kvaddi Kastljós og safnað kröftum fyrir komandi verkefni. Hvaða verkefni það eru hefur hún aftur á móti verið ófáan- leg til að gefa upp. Þó er haft fyrir satt að hún ætli að söðla algjörlega um og gerast upplýsingafulltrúi hjá ónefndu fjármálafyrirtæki, sem þýðir að líklega er hún að kveðja fjölmiðlabransann fyrir fullt og allt. Eyrún er með B.A.-gráðu í hagfræði, en hefur þó eingöngu starfað á fjöl- miðlum frá því að hún lauk háskólanámi, og er ekki ósennilegt að hún vilji hasla sér völl á sviði sem stendur nær hennar mennt- un. - fgg/bs Auðunn Blöndal, sem er þekktur fyrir strákapör sín í þættinum Strákunum, er að byrja með nýjan þátt á sjónvarpsstöðinni Sirkus undir nafninu Tekinn og verður fyrsti þátturinn sýndur 9. október. Þar hrekkir Auðunn fræga fólkið með áður óþekktum hætti en fyrirmyndin er sótt í þáttinn Punk‘d á MTV sem gerði Ashton Kutcher að stórstjörnu. „Ég er búinn að skemmta mér konunglega, hef verið að stjórna leikurum og haft mikið gaman af,“ segir Auðunn og bætir því við að svona þátt væri ekki hægt að gera öðruvísi en með dyggri aðstoð ættingja, vina og maka fórnar- lambanna. „Tolli hjálpaði okkur til dæmis að gera at í bróður sínum Bubba Morthens,“ segir Auðunn en þeir létu draga bíl kóngsins á brott. „Bubbi varð náttúrlega alveg brjálaður og hringdi á lögg- una,“ útskýrir Auðunn og hlær. Þá er Halla Vilhjálmsdóttir látin líta út fyrir að vera búðarþjófur og fékk kynnir X-Factor hálfgert sjokk í kjölfarið en þar var ekki látið við sitja heldur var Halla síðan æst upp úr öllu valdi. Auð- unn segir þó að flestir hafi tekið gríninu með stóískri ró og hann hafi ekki hlotið neinn líkamlegan skaða af. Skemmtilegast fannst Auðuni þó að hrekkja Badda, söngvara Jeff Who?, sem var sendur í hálfasnalega myndatöku hjá ljós- myndaranum Ara Magg. „Þáttur- inn gengur enda ekki eingöngu út á að hrekkja fólk heldur líka að koma þeim í vandræðalega aðstöðu.“ - fgg Gerði Bubba brjálaðan NÆSTA FÓRNARLAMB? Auðunn Blöndal hefur verið að hrekkja fræga fólkið og hver veit nema Beyoncé verði næsta fórnarlamb. „Ég ólst upp við glamur afa á píanóið á Ísafirði og það er eigin- lega honum að kenna að ég fór að vinna í tónlist,“ segir Viðar Hákon Gíslason, gítarleikari í hljómsveit- inni Trabant, sem hefur nýlokið upptökum að plötu ásamt afa sínum, Vilberg Vilbergssyni. Plat- an verður gefin út á næstunni á vegum 12 Tóna en ekki er enn komið nafn á verkið. „Þetta er djassplata og saman- safn af lögum eftir afa. Ég sá aðal- lega um upptökurnar og að velja úr efni,“ segir Viðar en upptökurnar fóru fram í Félagsheimilinu í Bolungarvík og í sundlaugarstúd- íói Sigur Rósar í Mosfellsbæ. Viðar fékk strákana í hljómsveitinni Flís til að leggja þeim lið á plötunni. Vilberg Vilbergsson er 76 ára gamall og algjör snillingur á harm- ónikku og saxófón og hefur smitað nánustu fjölskyldumeðlimi af tón- listarbakteríunni. Ásamt því að vera tónlistarmaður var Vilberg rakari á Ísafirði og segir Viðar afa sinn vera hinn fyrsta Hairdoctor. „Ástæðan fyrir því að ég ákvað að fara með afa í stúdíó og gera plötu var að mig langaði að gefa honum eitthvað til baka. Hann hefur haft áhrif á mína tónlistar- gerð og nú þegar ég kann að taka upp tónlist langaði mig að gera eitthvað sniðugt með honum,“ segir Viðar. Hann bætir því við að tónlist Vilbergs sé með ein- hvern ákveðinn hljóm sem erfitt sé að lýsa en að platan sé fyrsta flokks blús- og djassplata. alfrun@frettabladid.is VIÐAR HÁKON GÍSLASON: UNDIRBÝR ÚTGÁFU Á NÝRRI PLÖTU Gefur út djassplötu með afa sínum VIÐ UPPTÖKUR Viðar ásamt afa sínum Vilberg Vilbergssyni og strákunum úr hljómsveitinni Flís við upptökur á plötunni sem er að sögn Viðars fyrsta flokks djass- og blúsplata. FRÉTTABLAÐIÐ/SARA VILBERGS ���� �������� ��������� ������ ������� ����������������� ������������� �������������� ������������� ����������������� ������������������ ��������������� ������������� �������������� ��������������� ���������������
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.